Stefnt er að öðru móti Skaftfellinga að hausti
og að þessu sinni á Kirkjubæjarklaustri ef fer sem horfir.
Það er fagnaðarefni að þessum viðburði því þarna skemmti sér fólk á ólíkum aldri
við þessa krefjandi en fjölbreyttu íþrótt. Úrslit voru ekki sérstaklega gefin út
en þátttakendur allir, sem voru kringum tuttugu talsins, voru sjálfum sér og
liðum sínum til sóma.
Lið Hornfirðinga heitir Hornafjörður Badminton Group og er Haukur Helgi
Þorvaldsson liðsstjóri þeirra.
Lið sunnanmanna heitir Hrollaugsmenn og er Gísli Sverrir Árnason liðsstjóri
þeirra. Víkurliðið var undir stjórn Guðrúnar Ólafsdóttur.
Í bígerð er sem sagt að efna til móts sömu aðila á Kirkjubæjarklaustri í haust
og þá verður skoðað hvort heimamenn þar vilja slást í hópinn.
Texti Gísli Sverrir