Tekið úr MBL miðvikudaginn 11. mars s.l.
Eftir: Ingveldi Geirsdóttir ingveldur@mbl.is
Syngja Dolly og Jackson
Nemendur ML setja upp Með fiðring í maga
"Verkið gerist á einu sumri og fjallar um stelpur og stráka sem eru saman í sönghóp, aðalparið í hópnum hættir saman og tvístrast þá hópurinn með tilheyrandi dramatík og gamni," segir Eydís Inga Valsdóttir formaður árshátíðarnefndar Mímis, nemendafélags Menntaskólans að Laugarvatni, um leikritið Með fiðring í maga sem nemendur skólans frumsýna á föstudaginn.
Leikritið er byggt á gamalli íslenskri bíómynd en Eydís vill ekki gefa upp
hvaða mynd það er því áhorfendur eiga að komast að því sjálfir. Handritið
er skrifað af leikstjóranum Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur og Heru
Sigurðardóttur. Leikhópurinn hefur svo í samvinnu við leikstjórann gert
handritið að sínu.
Eydís segir Með fiðring í maga vera tímalaust þó kvikmyndin sé höfð
nokkuð gamaldags en verkið gerist til að byrja með í Reykjavík, fer síðan á
Jökulheima, í Húnaver og á Gaddstaðaflatir. Það eru ekki minni stjörnur en
Dolly Parton og Michael Jackson sem eiga flest lögin í verkinu. Textarnir
við lögin voru íslenskaðir af leikstjóranum fyrir utan textann við "Stand by
your man" sem fenginn er að láni hjá kántrísveitinni Klaufunum sem hefur einnig
lánað karlkyns leikurum í verkinu kúrekastígvélin sín.
Enn ein Hara-systirin
25 nemendur leika í leikritinu ásamt 6 manna hljómsveit. En allt í allt
koma um 35 manns að leiksýningunni. Eydís segir að 60 manns hafi sóst
eftir að leika í verkinu sem verður að teljast mjög gott í tæplega 150 manna
skóla. Með aðalhlutverk fara Árni Benónýsson og Regína Lilja Magnúsdóttir
sem er systir Hildar og Rakelar sem hafa kallað sig Hara-systur og komu nýverið
fram í Söngvakeppni Sjónvarpsins í rokkgrúppunni Elektru.
Með fiðring í maga verður forsýnt fyrir íbúa Sólheima í Grímsnesi 12.
mars en frumsýning verður í Aratungu á föstudaginn.
Uppselt er á þá sýningu. Leikhópurinn fer í sýningarferð með verkið um
Suðurland og til Mosfellsbæjar í marsmánuði.
Miðaðantanir í síma 693-2168
|
Lögin í sýningunni |
|
| - Island in the stream / Vin í eyðimörk -
(Dolly Parton/Kenny Rogers) - 9 to 5 / Verkamaðurinn (Dolly Parton) - Jolene / Jórunn (Dolly Parton) - I just can´t stop loving you / Þú varst sá fyrsti (Michael Jackson) |
- Beat it / Með viljann að vopni (Michael
Jackson) - Billi Jean / Og hann fór (Michael Jackson) - Keep on the sunny side / Ferðalagið (The Carter family) - Stand by your man /Stattu með mér (Tammy Wynette) |