Aðalfundur Rauða kross Íslands verður haldinn í Vík í Mýrdal þann 16. maí næstkomandi. Gert er ráð fyrir miklu fjölmenni á fundinn alls staðar að af landinu. Fundurinn hefst kl. 9 að morgni með setningu Önnu Stefánsdóttur formanns Rauða krossins. Þá flytja ávörp Sveinn Pálsson sveitarstjóri Mýrdalshrepps og Sveinn Þorsteinsson formaður Víkurdeildar. Að því loknu verða veittar viðurkenningar til sjálfboðaliða og verkefna Rauða krossins.
Á aðalfundinum verður m.a. rætt um nýja umhverfisstefnu Rauða krossins, sem Karen Erla Erlingsdóttir formaður starfshóps um umhverfismál og loftslagsbreytingar fylgir úr hlaði, og Madeleen Helmer forstöðukona loftslagsmiðstöðvar Rauða krossins og Rauða hálfmánans flytur ávarp í gegnum fjarfundabúnað. Þá verða á fundinum tíu málstofur um verkefni félagsins sem öll tengjast efnahagskreppunni.