|
20.10.2006
Lögbirtingablaðið til Víkur
Frá og
með 1. janúar 2007 verður Lögbirtingablaðið
gefið út hér í Vík. Þetta er liður í að
færa opinber störf út á landsbyggðina.
Þá er þetta líka gert til að renna styrkari
stoðum undir starfsemi embættis sýslumannsins í
V-Skaft en yfirstjórn lögreglunnar hverfur frá
embættinu í Vík til sýslumannsins á Hvolsvelli
þann 1. janúar 2007.
Í símtali við Kjartan Þorkelsson sýslumann á
Hvolsvelli staðfesti hann að löggæslan í Vík og
á Klaustri breytist ekkert við þessa tilfærslu,
áfram verði lögreglustöð á báðum stöðum.
Þvert á móti komi þessi breyting til með að efla
löggæsluna ef eitthvað er.
Á dögunum var auglýst eftir fulltrúa ritstjóra
Lögbirtingablaðsins. Ritstjóri blaðsins er
sýslumaður okkar V-Skaftfellinga, Anna Birna
Þráinsdóttir. Að sögn Önnu Birnu sóttu 3
einstaklingar um stöðuna.
Gengið verður frá ráðningu Guðrúnar Hildar
Kolbeins á næstu dögum. Starfsþjálfun Guðrúnar
Hildar fer fram í Reykjavík í nóvembermánuði.
Tilgangur Lögbirtingablaðsins er að birta ýmsar
tilkynningar frá stjórnvöldum s.s.ýmsar
tilkynningar vegna gjaldþrotaskipta, kaupmála,
nauðungarsölu fasteigna, félög og firmu.
Hinn almenni borgari getur verið áskrifandi
hvort sem er á rafrænu eða prentuðu formi.
Sjá nánar
www.logbirtingablad.is |