23.12.2008

Fjárhagsáætlun 2009.
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps vinnur sameiginlega að fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 og var hún til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar þann 18. desember.  Vegna áfalla í efnahag þjóðarinnar er gert ráð fyrir töluverðri tekjuminnkun frá yfirstandandi ári samhliða almennum kostnaðarhækkunum og hárri verðbólgu.

Gert er ráð fyrir að útsvarshlutfall verði 13,28%, álagningarhlutfall fasteignaskatts 0,56 í A-flokki, 1,32 í B-flokki og 1,49 í C-flokki.  Gert er ráð fyrir að allar gjaldskrár hækki sem nemur hækkun vísitölu nema gjaldskrá Tónskóla sem hækkar um 25%. 

Forsvarsmenn stofnana hafa unnið að hagræðingartillögum með sveitarstjórn með það að markmiði að draga úr kostnaði eins og kostur er.  Hætt verður að taka við fullorðnum nemendum í Tónskólann og yfirvinna takmörkuð við að nemendum á strengjahljóðfæri sé boðið upp á ½ nám.   Kennslustundakvóti grunnskóla verður lækkaður um 15 stundir og dregið úr yfirvinnu og forfallakennslu.  Dægradvöl verður gjaldskyld fyrir aðra en akstursnemendur.  Vistunartími á leikskóla verður takmarkaður við kl. 8-16 og yfirvinna takmörkuð.  Skoðað verður hvort hækka þurfi inntökualdur á leikskóla en hann miðast nú við 9 mánuði.  Dregið verður úr opnunartíma íþróttamannvirkja og kostnaður við yfirstjórn lækkar sem nemur áformaðri lækkun þingfararkaups.  Gert er ráð fyrir að hætta í verkefninu GreenGlobe.  Starfsmannahald í þjónustustöð verði endurskoðað.  Gert er ráð fyrir lántöku allt að 20 m.kr. vegna framkvæmda áranna 2008 og 2009.
Útlit er fyrir hallarekstur þrátt fyrir ofangreindar aðgerðir.
Gert er ráð fyrir að fjárhagsáætlun verði til seinni umræðu 22. janúar 2009.