Grein mbl
13.05.2009
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Stoltir
starfsmenn Anna Birna Þráinsdóttir sýslumaður, Ragnheiður Högnadóttir, Elísabet
Magnúsdóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir og Guðrún Hildur Kolbeins. Kristín
Ragnarsdóttir var ekki viðstödd myndatöku.
„ÉG lít á starfsfólkið sem samstarfsfólk og reyni að koma fram við það af heiðarleika. Ég þykist ekki vita allt, reyni frekar að leita aðstoðar hjá starfsfólkinu við að leysa málin en að vera í yfirboðarastöðu,“ segir Anna Birna Þráinsdóttir, sýslumaður í Vík í Mýrdal. Embætti hennar var valið stofnun ársins 2009 hjá SFR – Stéttarfélagi í almannaþjónustu.
Sýslumaðurinn í Vík fékk hæstu einkunn í vali SFR á stofnun ársins, 4,75 af 5 mögulegum. Umferðarstofa varð í öðru sæti en hún var valin stofnun ársins í hópi stærri stofnana. Sýslumannsembættið í Vík var í öðru sæti í þessu vali á síðasta ári, á eftir Skattrannsóknarstjóra.
Starfsfólk viðkomandi stofnana gefur einkunnir fyrir starfsanda, vinnuskilyrði og ýmsa aðra þætti. Sex starfsmenn eru hjá sýslumannsembættinu í Vík og tóku allir þátt, nema sýslumaðurinn sjálfur. Anna Birna segir að viðurkenningin sýni að hjá stofnuninni sé gott starfsfólk sem sýni metnað í starfi. Það skili sér til ánægðra viðskiptavina. Allt þetta ásamt góðri starfsaðstöðu skapi góðan starfsanda. Starfsfólkið var sammála um að gefa stofnuninni hæstu einkunn fyrir nokkra þætti, eins og starfsanda, ímynd og ánægju og stolt og litlu lægri einkunn fékk trúverðugleiki stjórnandans. Ekki var sama ánægja með launakjörin hjá sýslumannsembættinu, 2,94, og sveigjanleiki í vinnu var einnig undir meðallagi. „Launakjör starfsfólksins eru fastbundin í kjarasamningum. Vissulega reynir maður þó að bæta kjörin, eins og kjarasamningar leyfa,“ segir Anna Birna.
Sýslumannsembættið í Vík hefur tekið að sér ný verkefni, eins og fleiri embætti á landsbyggðinni. Það gefur út Lögbirtingablaðið og nýlega tók það að sér að færa bókhald sendiráða Íslands. „Þessi nýju verkefni skapa tækifæri fyrir fólk að láta reyna á þekkingu sína og verður til þess að efla starfsemi embættisins. Fólk verður stoltara af vinnustaðnum og það smitar út í samfélagið,“ segir Anna Birna.
Starfið við útgáfu Lögbirtingablaðsins felst í því að taka við auglýsingum, meðhöndla þær og gefa út. Blaðið er gefið út rafrænt og á pappír. Áskrifendur eru hátt í þúsund, þar af eru aðeins tíu sem halda í pappírsútgáfuna.