|
Eldri
fréttir 2008 |
|
|
|
| |
 |
Flugeldasala
björgunarsveitanna er nú farin af stað og er
hún ein af mikilvægustu fjáröflunarleiðum
þeirra. Í Vík í Mýrdal sáu félagar úr
Björgunarsveitinni Víkverja um flugeldasýnigu í
tengslum við jólaball í Leikskálum en þeir hafa
um árabil útbúið sýningar og séð um að kveikja á
þeim. Ekki skemmdi fyrir að veðrið var
einstaklega gott, 10 stiga hiti og logn.
Jónas Erlendsson tók þessar myndir af
sýningunni.
Fleiri
myndir.... |
|
 |

Fréttabréf tónskóla Mýrdalshrepps
Nemendur í
tónlistarnámi í vetur eru 57 talsins. 17 á
píanó, 28 á gítar, 3 á bassa, 1 á þverflautu, 2
í söng, 6 á trommur og 4 á fiðlu.
(Munur á samanlögðum fjölda skýrist af því að
einstaka nemandi lærir á tvö hljóðfæri) Nemendum
hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár og er það
jákvæð og hvetjandi þróun. Mikil mannrækt felst
í tónlistarnámi og þegar
Meira... |
|
 |
12.12.2008
Stórkostlegt sjónarhorn
Jónas Erlendsson sendi okkur
myndina sem er tekin frá Kötlutanga í vestur til
Reynisdranga og Dyrhólaeyjar í kvöldroða. |
|
 |
- Gleðilegt
ár, með
kærum þökkum fyrir góðar stundir
á liðnu ári -
Starfsfólk
Mýrdalshrepps
|
|
|

Flugeldasala Víkverja er í húsi sveitarinnar sem
hér segir:
Mánudagur 29.12 kl. 16:00 - 20:00
Þriðjudagur 30.12 kl. 14:00 - 20:00
Gamlársdagur 31.12 kl. 10:00 - 14:00
Þrettándinn 6. janúar kl. 16:00 - 19:00
Viðskiptavinum Víkverja stendur til boða eins og
áður að greiða í sýningarpott fyrir
áramótasýningu í Vík. Sýningin verður um
kl. 21:15 á gamlárskvöld,
meðan á brennunni stendur.
Víkverji |
|
|
Guðsþjónustur í Mýrdal jólin 2008
Nánar... |
 |
|
|
Skrifstofa Mýrdalshrepps er
lokuð 24. desember, aðfangadag
og 31. desember, gamlársdag.
Jólakveðja,
Starfsfólk Mýrdalshrepps |
 |
|
 |
Íþróttamiðstöðin í Vík
Hátíðaropnun Jólin 2008
Meira... |
|
08.12.2008
Jólahlaðborð á Ströndinni
Tæplega 80 manns sóttu jólahlaðborð laugardaginn
29. nóvember s.l. á Ströndinni v/Víkurskála.
Fljótlega varð ljóst að uppselt yrði í
matarveisluna.
Mýrdalshreppur hefur undanfarin ár boðið
fastráðnu starfsfólki sínu á hlaðborð ýmiskonar
með villibráðar- jólaívafi. Upphaflega, í
tíð Hafsteins Jóhannessonar þáverandi
sveitarstjóra Mýrdalshrepps var boðið til
hlaðborðs og íslenskrar leikgerðar á Píkusögum í
Leikskálum.
Á Ströndinni í ár var boðið upp á jólahlaðborð
undir veislustjórn Jóns Skeiðungs Bjarnasonar,
sem m.a. lét mannskapinn dansa "kónga" undir
dyggri forystu sýslumannsins okkar Önnu Birnu
Þráinsdóttur
Fleiri myndir... |
 |
 |
| |
|
28.11.2008
Aðalskipulag - skýrsla Vegagerðarinnar
Vegagerðin hefur nú lokið gerð skýrslu sem sýnir
hugmyndir stofnunarinnar að vegasamgöngum um
Mýrdal til framtíðar. Þessi vinna var unnin að
ósk skipulags- og byggingarnefndar með tilvísun
í 28. gr. Vegalaga nr. 80/2007. Skýrsluna má
finna á slóðinni:
http://www.vegagerdin.is/upplysingar-og-utgafa/onnurskjol/
|
|
 |
 |
24.11.2008
Kvíarnef í Fagradalshömrum
Jónas Erlendsson sendi okkur þessar ljúfu
sólarlagsmyndir. |
 |
|
|
 |
Tökum nú höndum saman!!
Mætum og upplifum gamla, góða
stemningu.
Laugardaginn 27. desember verður flautað til
leiks
í íþróttahúsinu í Vík
Lesa meira..... |
|
 |
08.12.2008
Hvalur rekur á Reynisfjöru í Mýrdal
Að sögn Sverris D. Halldórssonar hjá Hafró
sýndist honum að um væri að ræða langreyð og að
öllum líkindum kvendýr.
Fleiri myndir... |
| |
|
Hvernig félagslíf er í boði á Suðurlandi?
Nú er unnið að gerð gagnagrunns
um hvers kyns félags- og menningarstarf sem er í
boði á Suðurlandi og opið er öllum almenningi.
Stjórnir félagasamtaka eru hvattar til að senda
eftirtaldar upplýsingar fyrir 7. desember til
skráningar í gagnagrunninn á netfangið
glugginn@sudurglugginn.is
Lesa meira.... |
|
|
Tónskóli Mýrdælinga
auglýsir Jólatónleika tónskólans
í kvöld þriðjudaginn
16.desember í stofum
1. og 2. bekkjar grunnskólans.
Gengið inn um dyr Íþróttamiðstöðvar.
Þeir fyrri eru haldnir kl. 18:00 og
þeir síðari kl. 20:00
Lesa meira... |
 |
|
|
Kirkjuskólinn í Mýrdal
Síðasta samvera fyrir jól verður næsta
laugardag,
13. desember 2008 kl. 11:15 - 12:00
í grunnskóla Mýrdalshrepps.
Komum okkur í jólaskap saman.
Kveðja
Haraldur M. Kristjánsson
sóknarprestur
|
|
 |
Minnum á
Fund um atvinnulífið |
 |
|
Hvetjum þig/ykkur til að koma
á súpufund Atvinnuþróunarfélags Suðurlands og
Atvinnumálanefndar Mýrdalshrepps á
Ströndinni, Víkurskála kl. 12:00 mánudaginn
15. desember n.k.
Kynnt verður starfsemi Atvinnuþróunarfélagsins,
Eignarhaldsfélags Suðurlands og Vaxtarsamnings
Suðurlands og Vestmannaeyja. Nú er
tækifæri fyrir ykkur atvinnurekendur á svæðinu
að koma með fyrirspurnir og ræða málin
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og
Atvinnumálanefnd Mýrdalshrepps |
|
 |
19.11.2008
Harpa gefur út bók
Við höfum áður fjallað um listakonuna okkar,
Hörpu Jónsdóttur, sem við Mýrdælingar höfum
eignað okkur eftir að hún fluttist ásamt
fjölskyldu sinni til Víkur. Nú er komin út
bókin "Húsið – Ljósbrot frá Ísafirði" eftir
Hörpu. Bókin er gefin út hjá Vestfirska
forlaginu.
Þetta er önnur bók Hörpu, hún fékk Íslensku
barnabókaverðlaunin árið 2002 fyrir "Ferðina til
Samiraka" og sama ár var hún valin
bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar.
Harpa er einnig þekkt hannyrðakona.
Sagan af húsinu segir fyrst og fremst frá
fólkinu í kring um það, bænum og nánasta
umhverfi. Höfundur bregður upp hlýlegum en
jafnframt skarpskyggnum myndum af bæjarbrag og
samfélagi á Ísafirði, séð með augum þess sem
tilheyrir því – en þó ekki.
Fjöldi ljósmynda setur svip á verkið |
| |
|
 |
13.11.2008
Mýrdælingar eiga "sunnlending
vikunnar"
að þessu sinni hjá
"Sunnlenska fréttablaðinu". Magdalena
Katrín Sveinsdóttir lenti í 2. sæti í söngkeppni
félagsmiðstöðva Suðurkjördæmis en María
Ólafsdóttir frá Mosfellsbæ sigraði. Í
þriðja sæti voru þau Kristrún Steingrímsdóttir
og Júlíus Már Grétarsson frá félagsmiðstöðinni á
Hellu.
Magdalena keppti fyrir hönd
félagsmiðstöðvarinnar OZ í Vík með laginu Zombie
eftir The Cranberries. Með laginu vann hún sér
þátttökurétt í söngkeppni SAMFÉS sem haldin
verður í febrúar 2009.
Lesa viðtalið í
"Sunnlenska" |
 |
|
|
|
Bygg til
manneldis
Möguleikar til nýsköpunar á eystri
hluta Suðurlands.
Landbúnaðarháskóli Íslands og
Matís ohf. hafa leitað leiða til að nýta
íslenskt bygg til manneldis og það er
Framleiðnisjóður landbúnaðarins sem hefur styrkt
þetta starf.
Á dögunum var efnt til málþings um verkefnið í
Reykjavík og nú verður blásið til samskonar
þings sem að þessu sinni verður haldið í
Skógarskóla undir Eyjafjöllum.
Málþingið verður miðvikudaginn 3. desember og
stendur frá kl. 13.00 til 14.30.
Allir eru velkomnir á málþingið sem er haldið
undir yfirskriftinni
Möguleikar til
nýsköpunar á eystri hluta Suðurlands.
Auglýsing...
Lesa
meira... |
|
 |
Jólahlaðborð
á Ströndinni 29. nóv.
uppselt
Húsið opnar kl.19:30 með fordrykk og
borðhald hefst kl. 20:00
Veislustjóri verður Jón (Skeiðungur) Bjarnason
Lifandi tónlist fram eftir nóttu |
|
 |
Aðventusamkoma í Mýrdal 2008 |
 |
|
Aðventusamkoma sem er samstarfsverkefni allra
skóla og sókna
í Mýrdal verður í
félagsheimilinu Leikskálum í Vík,
sunnudaginn 30. nóvember n.k. kl. 16:00.
Meira... |
|
|
|
 |
10.11.2008
Litadýrð í boði Móður Náttúru
Það er engu líkara en að eldgos sé hafið
í Reynisfjalli þegar horft er upp eftir
Bakkabrautinni. Patrycja Makowska hefur
áður sent okkur frábærar myndir og eru
þessar enginn eftirbátur. Litadýrðin
blasti við henni laugardaginn 18. okt.
s.l. |
 |
|
Fleiri myndir.... |
|
|
|
 |
Hjúkrunar og dvalarheimilið
Hjallatún
auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi til afleysinga
í eitt ár
Lesa meira.... |
|
 |
Starfsmaður
óskast í 25% starf í heimaþjónustu hjá
Mýrdalshreppi
Laun
samkvæmt kjarasamningi LN og FOSS
Upplýsingar veitir undirrituð í síma 487-1210
eða á skrifstofunni
Helga Halldórsdóttir
skrifstofustjóri |
| |
|
 |
Tónleikar í Víkurkirkju
færast til sunnudagsins
23. nóvember
kl. 16:00 vegna jarðarfarar
Margrét
Stefánsdóttir sópran,
Jóhann Stefánsson trompet,
Hilmar Örn Agnarsson orgel |
|
Lesa meira..... |
|
|
Íbúafundi frestað
Áður auglýstum íbúafundi um skólamál sem halda
átti
laugardaginn 15. nóvember er frestað um
óákveðinn tíma
vegna jarðarfarar. |
|

Fræðslunefnd
Mýrdalshrepps |

Atvinnuþróunarfélag
Suðurlands |
|
|
ÍBÚAFUNDUR
Fræðslunefnd Mýrdalshrepps og
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands boða íbúa
sveitarfélagsins á opinn íbúafund í
Íþróttamiðstöðinni Vík
laugardaginn 15. nóvember kl. 10:00
Fundurinn er boðaður til að fá
hugmyndir og álit íbúa á því hvernig best sé að
móta Draumskóla Mýrdalshrepps.
Lesa meira..... |
|
 |
04.11.2008
Áhugamannasamtök um "Betri byggð í
Mýrdal" stofnuð.
Fimmtudaginn 23. október s.l. var haldinn fundur
um stofnun áhugamannasamtaka um bættar
samgöngur, jarðgöng um Reynisfjall og byggingu
sjóvarnargarða við Vík.
Á fundinn mættu 70 manns og 65 gerðust
stofnfélagar.
Félagið heitir „Betri byggð í Mýrdal“.
Jóhannes Kristjánsson setti fundinn og fór svo
yfir forsögu og framtíð.
Lesa meira.... |
|
Fleiri myndir... |
|
|
 |
28.10.2008
Safnahelgi á Suðurlandi 7.- 9. nóvember n.k
Í uppsiglingu er einhver stærsti
menningarviðburður á Suðurlandi um langa hríð.
Söfn um allt Suðurland og í Vestmannaeyjum bjóða
upp á fjölbreytta menningardagskrá þessa helgi.
Af þessu
tilefni er
opið
í Brydebúð í Vík, og
Héraðsbókasafni V-Skaftfellinga í Vík,
laugardaginn 8. nóvember frá kl. 14:00 - 16:00
Í Brydebúð er Mýrdalur - mannlíf og náttúra,
Gott strand eða vont og Sigrúnarstofa. Aðgangur
er ókeypis.
Á bókasafnið eru allir velkomnir og er gestum
boðið að velja sér bækur af hlaðborði til
eignar.
Lesa meira.... |
|
www.sofnasudurlandi.is |
|
|
Fýlaveisla á Ströndinni
v/Víkurskála
Fýlaveisla verður haldin á Ströndinni
bistro-bar v/Víkurskála laugardagskvöldið
8. nóvember n.k.
Meira... |
|
|
|
|
Tilkynning frá sóknarprestinum í Vík
Guðsþjónustan sem vera átti í Skeiðflatarkirkju
næsta sunnudag, 9. nóvember,
fellur niður af óviðráðanlegum ástæðum.
Minni á kirkjuskólann næsta laugardag, 8. nóv.
kl. 11:15
Haraldur M. Kristjánsson |
|
 |
http://www.forvarnardagur.is/ |
Í dag
fimmtudaginn 6. nóvember, verður haldinn
Forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins.
Í 9. bekkjum verður dagskrá helguð baráttunni
gegn fíkniefnum þar sem áhersla er lögð á
uppbyggilegar forvarnir og þátttöku ungmennanna
sjálfra. Forvarnardagurinn er haldinn að
frumkvæði forseta Íslands en aðrir aðstandendur
eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands,
Ungmennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta,
Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg
og lyfjafyrirtækið Actavis sem er
aðalstuðningsaðili verkefnisins |
|
 |
15.10.2008
Hrepparnir mætast á miðri leið.
Það var mikið fjör á Hótel Önnu, Moldnúpi
föstudagskvöldið 10. október s.l. en þar hittust
skrifstofukonur minni sveitarfélaganna á
Suðurlandi. Hópurinn hefur hist tvisvar
áður. Að þessu sinni hittust Grímsnes- og
Grafningshreppur, Rangárþing Ytra, Rangárþing
Eystra og svo Mýrdalshreppur. Fjarri góðu
gamni að þessu sinni var Skaftárhreppur, Skeiða-
og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur,
Flóahreppur, Ásahreppur og Bláskógabyggð.
Hópurinn fékk höfðinglegar móttökur hjá Eyju
Þóru Einarsdóttur og hennar fólki og var mikið
hlegið og sungið þegar líða tók á kvöldið.
Einni konunni varð það á orði að þetta væri
kannski fyrsta skrefið í átt að sameiningu
hreppanna.
Stefnt er að því að hópurinn hittist tvisvar á
ári, að vori og hausti.
Við Mýrdælingar verðum þess heiðurs aðnjótandi
að bjóða þessum frábæru konum heim þegar snjóa
leysir. |
 |
|
Fleiri myndir... |
|
 |
Hjúkrunarheimilið Hjallatún í Vík |
|
Helgistund
verður á Hjúkrunarheimilinu Hjallatúni
sunnudaginn 2. nóvember nk. kl. 15:00.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára
Gestssonar organista.
Gaman ef ættingjar heimilismanna á Hjallatúni
gætu verið viðstaddir stundina.
Sóknarprestur |
|
 |
Víkurkirkja í Mýrdal |
|
Guðsþjónusta
verður í Víkurkirkju í Mýrdal sunnudaginn 2.
nóvember nk. kl. 14:00.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára
Gestssonar organista.
Þennan sunnudag ber upp á 24. sunnudag eftir
Trinitatis, sem jafnframt er Allra heilagra
messa (þegar látinna er minnst).
Eigum notalega og uppbyggilega stund í kirkjunni
okkar á þessu óvissutímum í þjóðlífinu.
Fermingarbörn og foreldrar sérstaklega hvött til
að mæta.
Sóknarprestur |
|
08.10.2008
Gengið til góðs
Það voru ferskir krakkar er
gengu til góðs laugardaginn 4. október
s.l. fyrir Rauða krossinn.
RKÍ Víkurdeild vill koma þakklæti til allra
þeirra er tóku þátt í verkefninu með einum eða
öðrum hætti.
|
|

Anna Dís, Arnar og Magdalena |

Alda, Guðbjörg og Emilía |

Þorsteinn, Ægir, Fjölnir og
Friðbert |

Allur hópurinn samankominn |
Myndir: Sveinn
Þorsteinsson formaður RKÍ Víkurdeildar |
|
|
Málþing um átaksverkefni í Rangárvallasýslu og
Vestur Skaftafellssýslu verður haldið
miðvikudagskvöldið 29. október. kl. 20:00
í gamla Héraðskólanum Skógum undir Eyjafjöllum
Málþingið hefst á býlinu Þorvaldseyri með
inngangi og hressingu kl. 19:00.
Kl. 19:30 verður nýja kornþurrkstöðin í
Drangshlíð skoðuð og síðan verður farið að
Skógum
þar sem málþinginu verður framhaldið kl. 20.00
Lesa meira... |
|
|
|
 |
Fýlaveisla
Skaftfellingafélagsins verður haldin í
Skaftfellingabúð, fyrsta vetrardag
laugardaginn næstkomandi 25.
október 2008 og hefst með borðhaldi kl. 20:00.
Á borðum verður saltaður fýll með tilheyrandi
meðlæti sem og
hangikjet, flatkökur og smér.
Fýllinn kemur frá Sigurði Hjálmarssyni í Vík og
fjölskyldu hans.
Þórir N. Kjartansson mun segja fýlasögur undir
borðhaldi.
Hljómsveitin Tónabræður frá Vík mun leika fyrir
dansi.
Sjá nánar á
skaft.is |
|
Tónabræður |
|
 |
Reyniskirkja í Mýrdal
Guðsþjónusta verður í
Reyniskirkju í Mýrdal,
nk. sunnudag, 26. október 2008, kl. 14:00.
Organisti er Kristín Björnsdóttir.
Almennur safnaðarsöngur.
Fjölmennum og eigum notalega stund í kirkjunni.
sóknarprestur |
|
|
Fundarboð
Þann 21. janúar 2008 var Mýrdalshrepp afhent
áskorun um breytta veglínu í Mýrdal
undirrituð af 211 einstaklingum.
Þar sem hér var um sýnilega mikla samstöðu að
ræða hefur komið upp sú hugmynd
að fylgja þessu enn betur eftir með stofnun
áhugamannasamtaka til að þrýsta á slíka
framkvæmd.
Ákveðið er því að boða til almenns fundar í
Leikskálum
fimmtudaginn 23. október kl. 20.30
Undirbúningsnefndin
Auglýsing... |
|
 |
Skeiðflatarkirkja í Mýrdal
Guðsþjónusta verður í
Skeiðflatarkirkju í Mýrdal
nk. sunnudag, 19. október 2008, kl. 14:00.
|
|
Samkór
Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar
organista.
Fermingarbörn og foreldrar sérstaklega hvött til
að mæta.
Þegar kreppir að í fjármálum þjóðarinnar er gott
að koma til kirkjunnar sinnar
og eiga þar uppbyggilega stund.
Fjölmennum
Sóknarprestur |
|
|
Menntamálaráðherra kynnir nýja menntastefnu á
Selfossi
á opnum kynningarfundi sem haldinn verður mánudagskvöldið 13. október í
Fjölbrautaskólanum á Selfossi kl 20 til 22.
Lesa meira.....
|
|
 |
Víkurkirkja í Mýrdal |
|
Guðsþjónusta
verður í Víkurkirkju n.k. sunnudag 12. október
2008, kl. 14:00.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára
Gestssonar, nýráðins organista
í Víkur- og Skeiðflatarkirkjum.
Fjölmennum til kirkju og ræktum samfélagið við
Guð
um leið og við bjóðum nýjan organista velkominn
til starfa.
Á þrengingatímum í efnahagslífinu, er
nauðsynlegt að heyra um von og blessun
fagnaðarerindisins.
Væntanleg fermingarbörn næsta vors eru hvött til
að mæta ásamt foreldrum sínum og forráðamönnum.
Sóknarprestur |
|
|
Menningarráð Suðurlands
auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni
samnings sveitarfélaga á Suðurlandi og
menntamálaráðuneytis og
samgönguráðuneytis um menningarmál
Lesa meira.....
|
|
 |
03.10.2008
Smölun Hvítmögu
Hvítmaga var smöluð um síðustu helgi.
Hvítmaga liggur milli Skógafjalls og
Sólheimaheiðar í Mýrdal og er ekki hægt að
komast yfir í Hvítmögu nema með því að fara yfir
Sólheimajökul sem er skriðjökull úr
Mýrdalsjökli. Að sögn Einars Guðna
Þorsteinssonar bónda á Ytri Sólheimum smalaðist
nokkuð vel þó enn sé vitað af nokkrum kindum
eftir.
Þetta er fjórða árið sem þeir bræður á Ytri
Sólheimum og Brekkum reka fé í Hvítmögu, og þó
jökullinn sé flugháll eftir miklar rigningar
undanfarið og smalarnir séu vel vopnaðir
fjallajárnum og fjallastöngum fóta kindurnar sig
ótrúlega vel á svellinu. Einar Guðni taldi að
féð væri vænt eftir gott sumar .
Að sögn Óskars Þorsteinssonar eru það
uppáhaldskindurnar sem fá að fara í Hvítmögu og
tók hann vel á móti þeim með Súkkulaði og kökum
Texti og myndir: Jónas Erlendsson |
 |
|
Fleiri myndir |
|
 |
Velkomin
á menningarhátíð |
|
|
|
|
Íbúar
Mýrdalshrepps eru hvattir til að skreyta hús sín
í

|
|
|
Endurvinnsluvika haldin
í fyrsta sinn á Íslandi:
Um 91% Íslendinga flokka sorp til endurvinnslu
Meira.... |
|
 |
16.09.2008
Grafarrétt
Jónas Erlendsson tók þessar myndir í Grafarrétt
í Skaftártungu um síðustu helgi.
Fleiri myndir... |
 |
|
 |
17.09.08
Víkingar í Vík
Patrycja Makowska er ýmislegt til lista lagt
eins og myndir hennar bera með sér. Hún
gekk fram á víkinga í fjörunni í Vík á dögunum,
og tók þessar myndir af því tilefni.
Fleiri myndir.... |
 |
| |
|
|
|

Dagskrá á
Suðurlandi verður auglýst nánar í
héraðsfréttablöðum og á heimasíðu Fræðslunetsins |
Umfjöllunarefni
viku símenntunar verður m.a.
Fræðsluerindi um starfsánægju og starfsleiða
Fjallað verður um mikilvægi símenntunar og
fullorðinsfræðslu fyrir einstaklinga
Kynning í
fyrirtækjum á réttindum starfsmanna til
námskeiðsstyrkja frá stéttarfélögum og á
námsframboði Fræðslunetsins
Kynning á námskeiðum sem eru sérsniðin fyrir þá
sem hafa stutta formlega skólagöngu að baki |
|
 |
15.09.2008
Huldufjöll í Mýrdal
Myndirnar eru teknar í gönguferð sem Grétar
Einarsson, Sædís Íva Elíasdóttir og Sigrún
Guðmundsdóttir fóru í sumar í Huldufjöll í
Mýrdal.
Fleiri myndir... |
| |
|
 |
Fýlaveisla
verður haldin á
veitingastaðnum Ströndinni v/Víkurskála
laugardaginn 8. nóvember n.k.
Nánar auglýst síðar...
|
|
|
|
Regnboginn-list í fögru umhverfi
Menningarveisla í Mýrdal
3. - 5. október 2008
Meira.... |
|
15.09.2008
Hvalreki
Á myndunum sem Jónas Erlendsson tók, er Böðvar
Jónsson bóndi í Norðurhjálegu í Álftaveri og
Ragnhildur Jónsdóttir, en Böðvar fann búrhvalinn
rekinn.
Sporðurinn er um fjórir metrar í þvermál en
erfitt var að mæla lengd hvalsins þar sem
sporðurinn lá fram með hausnum. Hvalurinn
var stiginn og reyndist hann vera um 20 skref
(ca. 20 metrar). |
 |
|
Fleiri myndir... |
|
09.09.2008
Nýtt fyrirtæki
Nýtt fyrirtæki, Mýrdalssandur
ehf., hóf rekstur í Mýrdalshreppi á líðandi
sumri og er aðalstarfsemi þess að þurrka sand
til sandblásturs.
Eflaust hafa margir rekið augun í vinnslulínu
Mýrdalssands (sem þykir sérstakt augnayndi) og
stendur vestan undir iðnaðarhúsi VíkurHúsa að
Sunnubraut 21 í Vík og sendir frá sér
gufubólstra þegar vinnsla er í gangi.
Sandurinn, sem tekinn er úr námu skammt austan
Víkur, er þurrkaður með 500kw steinolíubásara og
síðan settur í stórsekki sem eru fluttir á
markað hvert á land sem er og vonandi fljótlega
víðar.
Stofnendur og eigendur Mýrdalssands ehf eru þeir
Jóhann Vignir Hróbjartsson og Páll Tómasson.
JVH |

Mýrdalssandur ehf
Sunnubraut 21 Vík
Símar 897-7737 Jói
867-0331 Palli |
|
|
02.09.2008
Myndir frá
Hjallatúni
Myndirnar sendi Sigríður Kjartansdóttir
hjúkrunarforstjóri á Hjallatúni, í byrjun
vikunnar.
|
 |
Þröngt setinn
bekkurinn á pallinum á góðviðrisdögum |
 |
Fýll í matinn
eða er hann að sækja um pláss?? |
 |
Handboltasigur
á móti Spáni –
allir með hraust hjörtu og þoldu álagið |
|
 |
08.08.2008
Öldungamót í
badminton, blaki, bridge, fótbolta, frjálsum og
golfi
Í haust ætlar ungmannafélagið Sindri á Höfn í
Hornafirði að halda öldungamót á Höfn fyrir
konur og karla sem náð hafa 30 ára aldri. Á
mótinu sem verður haldið 19. – 20. september
verður keppt í badminton, blaki, bridge,
fótbolta, frjálsum og golfi. Í allar þessar
greinar geta menn skráð sig sem lið fyrir
ákveðið félag eða sem einstaklingar.
Lesa meira.... |
|
|
|
|
KÖTLUHLAUP 2008
LAUGARDAGINN 6. SEPTEMBER - VÍK Í MÝRDAL
Laugardaginn 6.
september verður hið svokallaða
“Kötluhlaup” í Vík í Mýrdal.
Þetta er í fjórða sinn sem hlaupið er haldið. Fyrstu tvö árin var Vegagerdin í Vík
framkvæmdaraðili hlaupsins, þá tók
Mýrdalshreppur við framkvæmdinni sem nú hefur
fengið umf Kötlu
til samtarfs.
Vegalengdirnar eru 10 km, 21
km og 42 km.
Þátttakendur geta valið um hvort þeir vilja
hlaupa eða hjóla leiðina.
Hópar eða fyrirtæki geta líka tekið þátt sem
boðhlaups- eða boðhjólalið og skipt leiðinni á
milli sín.
Bílar munu fylgja þátttakendum.
Lesa nánar.....
|
|
 |
11.08.2008
Listaverkauppboð í tilefni hálfrar aldar.
Kolbrún Hjörleifsdóttir skólastjóri í
grunnskólanum í Vík Mýrdal hélt uppboð á
glerlistaverkum í Reynisfjöru þann 9. ágúst kl.
16.30 í tilefni af hálfrar aldar veru sinni á
jörðinni. Allur ágóði uppboðsins rennur
til styrktar foreldrastarfi innan Uppeldis til
ábyrgðar /uppbyggingar-sjálfsaga. Verkin eru 7
og kallar hún sýninguna, Konan á strönd lífsins.
Kolbrún segir þau tákni konuna frá fæðingu og
fram yfir dauða. En Kolbrún hefur einnig unnið
mjög sérstök listaverk sem eru unnin úr ull á
striga og opnaði hún sýningu á þeim í
gistiheimilinu Ársölum sama dag. Á myndunum er
Kolbrún að undirbúa uppboðið í Reynisfjöru.
Fleiri myndir....
Afmælismyndir... |
 |
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
08.08.08
Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn.
Um nýliðna verslunarmannahelgi fóru 41 keppandi
frá USVS ásamt foreldrum og fríðu föruneyti á
Unglingalandsmót í Þorlákshöfn. Liðsstjóri
hópsins var Inger Schiöth. Öruggt má segja að
hópurinn stækki með ári hverju enda er þetta
frábær umgjörð um verslunarmannahelgina.
Allir finna sér keppni eða skemmtun við sitt
hæfi. Hópurinn okkar keppti í fótbolta,
frjálsum, hestaíþróttum, skák og sundi.
USVS skartaði
fótboltaliði sem bar nafnið Katla og stofnað var
í tilefni ULM, skipað 11-12 ára
strákum. Liðsstjórar Kötlu voru Grétar og
Guðni Einarssynir stjórnuðu svo liðinu með
styrkum höndum.
USVS hópurinn var til fyrirmyndar alla helgina,
innan vallar og utan, og keppendurnir okkar voru
að standa sig framúrskarandi vel í öllum þeim
greinum sem að þau tóku þátt í.
Lesa
meira..... |
|
05.08.2008
Ferðalag um
Arnarstakksheiði
Myndirnar tók Jónas Erlendsson um miðjan júlí
þegar Frískir á fjórum, fóru í ferðalag á
hjólum um Arnarstakksheiði. |
 |
|
Fleiri myndir... |
|
 |
11.08.2008
Hlaup í
Skaftá
Myndir teknar seinnipartinn í gær við bæinn
Skaftárdal en þar varið farið að vaxa töluvert í
Skaftánni.
Myndir.... |
|
|
Íþróttahátíð USVS
2008
Héraðsmót USVS
í frjálsum íþróttum verður
haldið á Víkurvelli sunnudaginn 17. ágúst.
Mótið er í umsjón Ungmennafélagsins Kötlu.
Grill - og sundlaugarpartý
að lokinni keppni á laugardeginum. |
 |
 |
 |
|
 |
08.07.2008
"För" fær
heimsókn frá Hull
Þann 9. júlí er von er á heimsókn
40 stúdenta og 4 kennara frá Hymers College, sem
er virtur skóli í Hull. Hópurinn ber
kveðju borgarstjóra og sjómannaráðs Hull.
Tilgangur heimsóknarinnar er að skoða "systur"
minnismerki Farar. Kolbrún
Hjörleifsdóttir, skólastjóri grunnskóla
Mýrdalshrepps mun taka á móti hópnum f.h.
sveitarstjóra. Steinunn Þórarinsdóttir
listamaður og skapari minnismerkisins mun ávarpa
hópinn sem síðar gengur í Brydebúð og skoðar
sýningarnar. |
|
 |
07.07.2008
Galdrakarlinn í
Oz í Vík
Víkarar eiga von á góðum gestum því Leikhópurinn
Lotta ætlar að kíkja í heimsókn til Víkur
laugardaginn 12. júlí n.k. kl. 17:00 með
fjölskyldusýninguna Galdrakarlinn í Oz.
Leikhópurinn er á ferðalagi og mun sýna
víðsvegar um landið en leikhópurinn heimsótti
okkur einmitt í júlímánuði á síðasta ári og
sýndi okkur Dýrin í Hálsaskógi við miklar
vinsældir.
Dóróthea ætlar sér að vera á Syngjandanum ásamt
vinum sínum og verður sýningin undir berum himni
og er fólk hvatt til að klæða sig eftir veðri.
Við setjum nánari upplýsingar inn á heimasíðuna
síðar í vikunni.
Lesa
nánar um sýninguna og Leikhópinn Lottu.... |
| |
|
 |
01.07.2008
Netaviðgerðir á Hjallatúni
Einn góðviðrisdaginn í síðustu viku tók Sigurður
Hjálmarsson myndir af nokkrum heimilismönnum á
Hjallatúni við að hreinsa og gera við net.
Netið er í eigu Harðar Sigurbjörnssonar og
verður hugsanlega notað til veiða í sumar.
Á myndinni sjáum við frá vinstri: Guðfinnu
Ólafsdóttur frá Fagradal, Þorstein Einarsson,
Þóru Þorbergsdóttur og Hörð Sigurbjörnsson |
|
Fleiri myndir... |
|
01.07.2008
Prjónað af kappi
Þessa dagana er setið vel við í garðstofunni á
Hjallatúni. Verið er að prjóna sokka í
gríð og erg sem væntanlega verða til sölu á
Hestamannamótinu á Hellu. Þess má svo geta
að nýverið voru keyptir stólar í garðstofuna og
var hluti þeirra keyptur fyrir ágóða af
jólabasar Hjallatúns síðustu ára. |
 |
|
Ljósm.Guðl.Guðm. |
|
11. Unglingalandsmót
UMFÍ í Þorlákshöfn 1. - 3. ágúst 2008
USVS
hvetur til myndarlegrar þátttöku á
Unglingalandsmót sem nú er orðinn árlegur
viðburður
um verslunarmannahelgina.
Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus
fjölskylduhátíð þar sem börn og unglingar á
aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum
íþróttagreinum. Samhliða er boðið upp á
fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir
alla fjölskylduna. Unglingalandsmótin hafa
hvarvetna vakið mikla athygli og þeir fjölmörgu
sem þau hafa sótt, hafa verið öðrum til mikillar
fyrirmyndar með allri framkomu hvort sem er í
keppni eða leik. Unglingalandsmótin eru klárlega
með stærri íþróttaviðburðum á Íslandi ár hvert
og eru nú orðin árlegur viðburður um
verslunarmannahelgina
Lesa meira.... |
|
|
Jazz undir fjöllum 11. og 12. júlí 2008
Tónlistarhátíðin
Jazz undir
Fjöllum verður haldin í fimmta
sinn í Skógum dagana 11. og 12. júlí.
Eins og undanfarin ár hefur Sigurður
Flosason skipulagt tónlistaratriðin
og lagt mikinn metnað í dagskrá þessa
vinsæla menningarviðburðar. Haldnir verða
sex tónleikar,
en á þeim koma fjölmargir af þekktustu
djassleikurum landsins fram.
Lesa meira..... |
|
 |
30.06.2008
Vogmær rekur á land
Vogmær rak á land í Reynisfjöru í Mýrdal í
vikunni.
Ragnar Indriðason frá Görðum fann fiskinn
nýrekinn og var hann þá með lífsmarki og
uggarnir blóðrauðir. Þeir misstu fljótt lit
eftir að vogmærin drapst.
Indriði Loftsson, faðir Ragnars, mældi vogmeyna
og reyndist hún vera 136 sm löng og um 20 sm há
utan ugga en ekki nema 3-4 sm þykk þar sem hún
var þykkust. Augun voru um 6 sm í þvermál.
Í fyrrasumar rak tunglfisk á sömu fjöru, en hann
er sjaldgæfari reki en vogmeyjar.
Þess má svo geta að í nóvember á síðasta ári kom
Þórður Sveinsson í Vík einmitt með þennan
"furðufisk" til okkar á skrifstofu
Mýrdalshrepps. Þá frétt má sjá undir eldri
fréttir 2007.
Meira um
Vogmeyjar... |
|
Indriði
Loftsson
heldur á vogmeynni |
|
 |
27.06.2008
Víkarar gengu á Heklu
Alls tóku 110 manns þátt í Jónsmessugöngu FÍ á
Heklu. Ferðin gekk vel og var gengið upp í ágætu
veðri þrátt fyrir skúraveður allt í kring. Komið
var á Heklutind skömmu eftir miðnætti. Útsýnið
var stórbrotið, sólroðin ský í fjarska og
einstaka fjallstindur reis upp úr skýjum. Ljósm.
og texti tekið af vef
http://fi.is
Á einni myndinni glittir í
silfurrefinn úr Sigtúninu. |
|
Fleiri
myndir... |
|
|
Vefstjórinn er í
sumarleyfi frá 14. júlí - 5. ágúst n.k.
Njótið þess að vera til
Kveðja
Inger |
 |
|
 |
24.06.2008
Sólarmegin í tilverunni
Ekki hafa verið
slegin nein hitamet í dag, en dagurinn þó með
þeim betri í Víkinni. Af því tilefni ákvað
heimilisfólkið á Hjallatúni að færa
morgunleikfimina út fyrir.
Ekki er hægt að sjá betur en að allir njóti
hreyfingarinnar í yndislegu veðri.
Fleirir myndir..... |
| Ljósm.Guðl.Guðm. |
|
26.06.2008
Rafbændur funda
Jónas
Erlendsson hefur auðsjáanlega verið á ferðalagi
og sendir okkur myndir af mönnum og málefnum og
núna austan af landi. Myndirnar voru
teknar þegar rafbændur á landinu komu til
aðalfundar á Egilsstöðum um síðustu helgi. Eftir
fundinn var farið til Seyðisfjarðar og nýja
virkjunin í Fjarðará skoðuð. |
 |
|
Fleiri myndir... |
|
 |
26.06.2008
Skógardagurinn
mikli
Mikið var um að vera í
trjásafninu í Hallormstaðarskógi
um síðustu helgi á afmælisdegi
bændaskógræktar á Héraði. Var
m.a. boðið var uppá kjöt af
heilgrilluðum nautskrokki og
ketilkaffi að hætti skógarmanna.
Jónas Erlendsson tók myndirnar
af því tilefni. |
|
Fleiri myndir... |
|
24.06.2008
Opinn landbúnaður í Fagradal
Með Opnum landbúnaði
gefst almenningi tækifæri á að heimsækja
bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í
sveitum landsins. Í Fagradal verður fiskeldið
hjá Fagradalsbleikju ehf til sýnis helgin
28.-29. júní frá kl. 10-18 báða dagana. Vonumst
til að sjá sem flesta.
Ábúendur Fagradal |
 |
|
23.06.2008
Minnismerki á gröf belgísku
sjómannanna.
Í Víkurkirkjugarði eru leiði fimm
belgískra sjómanna og til skamms tíma voru þau
áberandi í þessum fagra og vinalega kirkjugarði
þar sem mikil rækt er lögð við leiðin og
umhverfi allt. Ekki að þau væru ósnyrtileg,
heldur hitt að þau voru fimm samliggjandi og
ómerkt.
Nú hefur sóknarnefndin í Vík látið gera látlaust
minnismerki á gröf þeirra með nöfnum þeirra
allra, fæðingarári og dánardægri.
Stutt athöfn fór fram að morgni 17. júní þar
sem sóknarpresturinn í Vík, séra Haraldur M.
Kristjánsson, minntist belgísku sjómannanna og
fór með bæn.
Á neðri myndinni sjáum við Ögmund Ólafsson,
Helgu Halldórsdóttur, sr. Harald, Áslaugu
Vilhjálmsdóttur og Guðnýju Guðnadóttur.
Saga belgísku sjómannanna |
 |

Ljósm.Guðl.Guðm. |
|
 |
23.06.2008
Alþjóðlegur prjónadagur
Alþjóðlegi prjónadagurinn World wide knit in
public (WWKIP) day var haldinn 14. júní s.l. og
af því tilefni kom Mýrdælskt prjónafólk saman
fyrir utan Hótel Lunda í Vík og prjónaði saman í
góða veðrinu. Á myndinni sjáum við Tinna
Elíasdóttir, ömmu hennar Svanhvíti Sveinsdóttir
og Hörpu Jónsdóttur með prjónana á lofti. |
|
Fleiri
myndir... |
|
 |
23.06.2008
Unglingarnir okkar fá frábæra
dóma
Hróður
unglinganna okkar berst víða eins og heimasíða
borgarbyggðar ber með sér.
Á vegum umf Kötlu fór héðan fríður hópur 20
ungmenna í æfingabúðir í Borgarnes í fylgd
Kristínar Marti þjálfara þeirra ásamt foreldrum
sem aðstoðuðu við þjálfun ofl.
Sjá nánar
http://www.borgarbyggd.is/frettir/nr/73577/ |
|
Mynd:
Indriði
Jósafatsson |
|
 |
23.06.2008
Svöðusár
Myndin er tekin 16. júní s.l. af Jónasi
Erlendssyni inni í Höfðabrekkuafrétti í Mýrdal
en eins og hún ber með sér eru komin mjög ljót
sár í jarðveginn á aurnum framan við Miðafrétt.
Fleiri
myndir..... |
| |
|
05.06.2008
Fjórhjólaklúbbur í heimsókn.
Jónas sendi okkur þessar myndir sem hann tók um
síðustu helgi þegar Fjórhjólaklúppur Suðurnesja
var í heimsókn í Mýrdalnum. Þeir fengu
leyfi til að vera á afmörkuðu svæði austan við
Hjörleifshöfða á Mýrdalssandi. Eftir
adrenalíninnspýtinguna var svo grillað á gamla
hótelinu í Vík. |
 |
|
Fleiri myndir... |
|
|
|
 |
16.06.2008
Þjóðhátíðarhöld
Ungmennafélagið Katla mun sjá um hátíðarhöld í
Vík á þjóðhátíðardaginn. Dagskráin hefst á
göngu undir leiðsögn Ferðafélags Mýrdælinga.
Gengið verður frá Víkurkirkju og farinn
svokallaður Grafargilshringur sem er um 2 tíma
ganga. Guðþjónusta verður kl. 13:00 og að
henni lokinni verður skrúðganga niður á
íþróttavöll þar sem ýmislegt verður í boði.
Kaffisala verður í Leikskálum
milli 15:30 og 17:30.
Frítt verður í sund
milli 10 og 17.
Klukkan 18:00 mun Sr. Haraldur
M. Kristjánsson blessa líkkæli sem komið hefur
verið upp að Sunnubraut 15 og mun þá húsnæðið
verða til sýnis. |
|
05.06.2008
Gjöf til hmf Sindra
Dogsledding.is í Vík í Mýrdal (Hundasleðaferðir)
sem eru í eigu Sigurðar Baldvinssonar og Lindu
Lorange gáfu nú um s.l. helgi hestamannafélaginu
Sindra þrjá hnakka og tíu kamba. Gjöfin kemur
sér afar vel þar sem óvenju mikil ásókn er í
reiðskóla hjá hestmannafélaginu þetta árið.
96 manns hafa skráð sig í skólann en á það skal
bent að það er fimmti hluti íbúa hreppsins.
Hundasleðafeðir eru með ferðir á Mýrdalsjökli,
en bjóða einnig upp á hundakerruferðir á
Sólheimasandi. |
 |
|
Mynd: Jónas
Erlendsson |
|
 |
02.06.2008
Endurbygging Deildarárskóla
Nýr grunnur að Deildarárskóla er í byggingu.
Að sögn Sigurðar Hjálmarssonar voru grunnveggir
steyptir s.l. sumar og í sumar á að steypa
plötuna. Stefnt er að því að gera húsið
fokhelt í haust ásamt því að lagfæra og koma
fyrir snyrtingu sem Hermann Árna og Sigga,
ávallt kennd við Heiði, gáfu félaginu.
Grétar Einarsson í Þórisholti ætlar svo að
leggja til rotþró.
Á árinu 2007 fékk félagið 500 þúsund krónur úr
Fjallasjóði ÁTVR og 100 þúsund frá Kaupþingi
banka.
Á þessu ári hefur félagið nú þegar fengið 800
þúsund krónur úr Pokasjóði og von er á 100
þúsund krónum frá Kaupþingi banka.
Sjá teikningu |
 |
|
|

Tiltektarvika og
grillveisla
Eins og auglýst var í síðasta Vita er vikan 1. –
7. júní sérstök tiltektarvika í Mýrdalshreppi.
Vonast er til að íbúar taki höndum saman og
hreinsi lóðir sínar og nánasta umhverfi þessa
daga.
Tilvalið er að gera atlögu að hvönn og
Spánarkerfli áður en þessir fallegu vágestir ná
að þroska fræ.
Á fimmtudag og föstudag í þessari viku geta þeir
íbúar í Vík sem ekki hafa tök á að fara með
garðaúrgang á gámavöllinn, sett poka með slíkum
úrgangi að gangstétt
og munu þá starfsmenn áhaldahúss fjarlægja
pokana.
Veraldarvinir munu hjálpa til við hreinsun á
opnum svæðum á föstudag og laugardag.
Laugardaginn 7. júní kl. 17:00 verður síðan
slegið upp grilli við íþróttamiðstöðina til að
fagna góðu verki. Boðið verður upp á pylsur og
gos.
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd
Mýrdalshrepps |
|
02.06.2008
H-Gæðalína
Victor Berg Guðmundsson fyrrv. tómstundafulltrúi
okkar Mýrdælinga sendi okkur þessa mynd af sér
og vinnufélögunum.
Þeir eru að vinna með nýja tækni við fóðrun
neysluvatnslagna án þess að nokkuð rask eigi sér
stað. Þeir hafa lokið við fyrstu tvö húsin
og eru að byrja á blokkunum við Kirkjusand 1-5 í
Reykjavík |
 |
| |
|
 |
Vikan 1. – 7. júní er sérstök
tiltektarvika í Mýrdalshreppi.
Vonast er til að íbúar taki höndum saman og
hreinsi lóðir sínar og nánasta umhverfi þessa
daga. Veraldarvinir munu hjálpa til við
hreinsun á opnum svæðum 6. – 7. júní.
Laugardaginn 7. verður síðan slegið upp grilli
til að fagna góðu verki.
Nánar auglýst á vef Mýrdalshrepps
www.vik.is og í næsta Vita.
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd
Mýrdalshrepps. |
| |
|
 |
22.05.2008
Vorverk Landgræðslunnar og
Vegagerðarinnar
Jónas Erlendsson var á ferðinni og smellti
nokkrum myndum af Árna Eiríkssyni sáðmanni hjá
Landgræðslunni sem var að setja melgrasfræ í
sáðvélina á Mýrdalssandi í vikunni.
Verkefnið er samvinnuverkefni Landgræðslu
ríkisins og Vegagerðarinnar til að hefta sandfok
á þjóðvegi 1 yfir Mýrdalssand.
Fleiri myndir..... |
|
 |
19.05.2008
Sýslumaðurinn í Vík í 2. sæti
SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð fyrir,
í þriðja sinn, að vali á Stofnun ársins.
Könnunin náði til félagsmanna SFR á
starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað.
Ennfremur var öllum stofnunum ríkisins gefinn
kostur á því að allir starfsmenn, óháð því í
hvað stéttarfélögum þeir eru, gætu tekið þátt.
Lesa meira
á slóðinni
http://www.sfr.is/frettir/nr/832/
|
| |
|
 |
19.05.2008
Vorverkin
Jónas
Erlendsson í Fagradal sendi okkur myndir sem
voru teknar á sumardaginn fyrsta þegar hann var
að koma áburðinum á tún.
Fleiri
myndir.... |
|
19.05.2008
Sauðburður í Fagradal
Sauðburður er nú langt kominn í Fagradal og voru
aðeins 2 ær óbornar, föstudaginn 16. maí s.l.
Sauðburður hefur gengið mjög vel og frjósemi í
góðu meðallagi, 21 ær var einlemd 9%, 34 ær með
þremur lömbum 15%, 2 ær með fjórum lömbum ca.1%
og 75 % með tveimur lömbum.
100 ær áttu þá að meðaltali 208 lömb.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem Jónas í
Fagradal tók í fjárhúsunum. |
 |
|
Fleiri
myndir... |
|
 |
Hin árlega
sumarblómasala
kvenfélags Hvammshrepps verður þriðjudaginn 3.
og miðvikudaginn 4. júní n.k.
á bankaplaninu milli kl. 14 og 18 báða dagana
Sjá nánar auglýsingu í Vitanum |
|
16.05.2008
Gjöf í flygissjóðinn
Í desember 2007 fagnaði Anna Björnsdóttir 60 ára
afmæli sínu og af því tilefni ákvað hún að
stofna sjóð, sem hefur það að markmiði að
fjármagna kaup á flygli fyrir okkur Mýrdælinga.
Þann 14. maí s.l. var svo flygilsjóðnum færð góð
gjöf til minningar um Guðjón Þorsteinsson en
hann var mikll áhugamaður um tónlist og
tónlistarlíf.
Það var eiginkona Guðjóns, Hrönn Brandsdóttir
sem færði sjóðnum hundrað þúsund krónur í
tilefni af því að hann hefði orðið áttræður þann
14. maí 2008 ef hann hefði lifað.
Að sögn Helgu Viðarsdóttir, sem er ein
stjórnarkonum sjóðsins hafa þegar safnast
365.000 kr. |
 |
|
F.v. Magga Steina, Brandur,
Hafsteinn og Brynja Guðjónsbörn, Hrönn Brandsd.,
Anna Björns, Helga V. og Kristín Ragnarsd. |
|
 |
16.05.2008
RKÍ Víkurdeild gefur hjálma
Sveinn Þorsteinsson formaður
Rauðakrossdeildarinnar í Vík í Mýrdal, afhenti
elstu börnum leikskólans Suður-Víkur í Vík
reiðhjólahjálma sem gjöf frá RKÍ.
Jón Hlöðver Hrafnsson lögreglumaður fræddi
krakkana um notkun hjálmanna og kenndi þeim að
stilla festingarnar. Við þetta sama
tækifæri útskrifaði leikskólinn elsta bekkinn en
í honum voru 9 krakkar sem nú bíða spennt eftir
að fara á næsta skólastig. |
|
Fleiri
myndir... |
|
 |
Óskar P., Örn Árna og Jónas Þórir í Leikskálum
föstudagskvöldið 30. maí n.k.
Lesa
meira..... |
|
|
Aðalfundur Ferðafélags Mýrdælinga verður
haldinn
á Ströndinni í Víkurskála
sunnudaginn 1. júní 2008 kl. 20:30
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur
mál.
Stjórnin |
 |
|
|
|
|
Fundur um
markaðs- og kynningarmál
Boðað er til fundar um markaðs- og kynningarmál
í Leikskálum
miðvikudaginn 21. maí nk. kl. 15:30.
Tilgangur fundarins er að kanna hvort áhugi sé
meðal hagsmunaaðila í Mýrdalshreppi að taka
höndum saman um markaðs- og kynningarmál. Allir
eru velkomnir.
Á fundinn mæta fulltrúar Atvinnuþróunarfélags
Suðurlands.
Atvinnumálanefnd Mýrdalshrepps |
|
 |
05.05.2008
Ferming í Skeiðflatarkirkju
Sunnudaginn 27.
apríl s.l. voru fermd 4 börn í
Skeiðflatarkirkju.
Á myndinni sjáum við f.v. Guðlaugu Lilju
Sævarsdóttur, Vigdísi Evu Steinþórsdóttur,
Ástþór Hermannsson, Sólon Helga Jóhannsson og
sr. Haraldur M. Kristjánsson.
|
|
Ljósm. Halldóra
Gylfadóttir |
|
 |
05.05.2008
Sigurvegarar Raularans
í pörtum.
Raularinn "söngvarakeppni" var haldin að
Höfðabrekku miðvikudagskvöldið 30. apríl s.l.
með fríðu fylgi keppenda.
Keppendur að þessu sinni voru Dizz, Í pörtum,
Ljósin í bænum, Estrella, Kanslarinn og Kvaka
Dú. Um 170 manns sóttu Höfðabrekku heim af þessu
tilefni.
Fleiri myndir.... |
| |
|
 |
30.04.2008
Raularakaffi í Kaupþingi
Í dag er Raularadagur og
komið að hinu árlega "fermingarhlaðborði" þeirra
Kaupþingskvenna.
Vefstjórinn lét sig ekki vanta og smellti af
nokkrum myndum í leiðinni.
Fleiri myndir... |
 |
| |
|
|
30.04.2008
Vaskir badmintonspilarar
Fyrir skömmu hittust
badmintonhópar frá Hornafirði og Reykjavík á
miðri leið, í Vík í Mýrdal, og spiluðu saman
dagsstund. Reykjavíkurhópurinn er skipaður
Hornfirðingum að stofni til auk ýmissa góðra
félaga. Í Vík voru fyrir vaskir
badmintonspilarar svo úr var þriggja hópa mót.
Móttökur í Vík voru afar góðar svo og aðstaða
öll til fyrirmyndar. Eftir mótið var farið í
sundlaugina og heita pottinn.
Lesa meira... |
 |
|
Texti:
Gísli Sverrir |
|
|
Tónleikar í
Leikskálum
Tónleikar
Tónskólans í Mýrdalshreppi verða haldnir í kvöld
fimmtudagskvöld 15. maí kl. 20:00
Fram koma nemendur
á píanó, fiðlu, klassískan gítar, þverflautu,
harmóníku og söngnemendur.
Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir
Áætlað er að rokktónleikar Tónskólans
verði haldnir 22. maí n.k.
|
 |
|
29.04.2008
ÍBV - ÍA á Víkurvelli
Knattspyrnulið ÍBV og ÍA mætast í æfingaleik á
Víkurvelli 1. maí kl. 14:00.
Þetta er kjörið tækifæri til að viðra sig eftir
Raularann og sjá þessi frábæru lið takast á.
Víkurvöllur kemur vel undan vetri, er orðinn
fallega grænn og tilbúinn fyrir sparkið.
Meistaraflokkur Fram var hér við æfingar um
síðustu helgi. |
 |
| |
|
|
Víkurkirkja í
Mýrdal
Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju í Mýrdal, nk.
hvítasunnudag
11. maí 2008 kl. 14:00.
Samkór Mýrdælinga syngur.
Organisti og stjórnandi er Kitty Kovács.
Fjölmennum
Sóknarprestur |
 |
|
Ljósm.
Sævar Jónasson
http://flickr.com/photos/saevarjo |
|
 |
28.04.2008
Minkur á ferð?
Sigurður Hjálmarsson sendi þessar myndir sem
hann tók einn morguninn af dauðum tjaldi.
Sigurður velti því fyrir sér hvort minkurinn
væri hér valsandi um þar sem honum hefði borist
til eyrna að um fleiri dauða fugla væri að ræða. |
 |
|
18.04.2008
Endurskinsvesti í Leikskólann
Suður-Vík
Á dögunum færði Víkurdeild Rauða kross Íslands
leikskólanum Suður - Vík ný endurskinsvesti að
gjöf.
Hér sést hluti af Appelsínuhóp í nýju vestunum,
tilbúin að leggja af stað í Íþróttamiðstöðina,
þar sem þau stunda íþróttir einu sinni í viku.
Á myndinni eru Sæmi, Eva, Þórhildur, Birnir,
Sólbjörg og Vignir. |
 |
| |
|
 |
Ljósmyndasýning Jónasar
Jónas Erlendsson Fagradal í Mýrdal sýnir
ljósmyndir í Remfló nýrri verslun á Selfossi. 10
myndir sem hann hefur tekið af atburðum,
mannlífi og dýrum tengdu landbúnaði. Jónas er
starfandi sauðfjárbóndi, á og rekur jafnframt
Fagradalsbleikju ehf.
Jónas hefur um nokkurt árabil verið fréttaritari
Morgunblaðsins og er mikill áhugamaður um
ljósmyndun.
Myndirnar eru allar til sölu og eru teknar á
Canon 5D myndavél. |
| |
|
|
|
 |
30.04.2008
Heyrst
hefur......
að
umboðsmaður Íslands hafi mætt á "general" prufu
Raularans í gærkvöldi og haldi hvorki vindi né
vatni yfir ótrúlegum sönghæfileikum Mýrdælinga.
Engir samningar eru þó í höfn en haft er eftir
talsmanni hans að nær örugglega náist að
undirrita 2 samninga í kvöld á Raularanum, þó
vill hann ekki gefa upp hvaða stjörnur um er að
ræða þar sem aðrir umboðsmenn séu á leið til
Íslands.
Umboðsmaðurinn hefur þó af því þungar áhyggjur
hvaða áhrif heimsathygli muni hafi á hæverska
Mýrdælinga.
"Sel það ekki dýrara en ég stal því "....... |
|
 |
16.04.2008
Elvar Orri er íþróttamaður ársins
2007 og Björk er efnilegust íþróttamanna 2007
Á 38. sambandsþingi USVS (Ungmennasamband
Vestur-Skaftfellinga) þann 29. mars s.l. var
valinn íþróttamaður ársins 2007 og efnilegasti
íþróttamaður ársins 2007.
Að þessu sinni voru tilnefnd í íþróttamann
ársins þau:
Arnar Snær Ágústsson umf Drangi, Elvar Orri
Jóhannsson frá umf Dyrhólaey og Harpa Ósk
Jóhannesdóttir umf Skafta.
Elvar Orri Jóhannsson hlaut titilinn
íþróttamaður ársins og er vel að titlinum
kominn.
Í efnilegasta íþróttamanninn voru tilnefnd þau:
Ármann Daði Gíslason frá umf Skafta, Björk
Smáradóttir frá umf Drangi og Magdalena Katrín
Sveinsdóttir frá umf Drangi. Það var svo Björk
Smáradóttir sem hampaði titlinum efnilegasti
íþróttamaðurinn. |
|
Elvar og Björk |
 |
|
Flottur hópur |
|
 |
10.04.2008
Nýr framkvæmdastjóri AÞS
Sædís Íva
Elíasdóttir ráðgjafi AÞS úr Vík í Mýrdal, tók
við stöðu framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags
Suðurlands mánudaginn 7. apríl s.l. úr hópi 27
umsækjenda.
Sædís Íva er fædd í Reykjavík 1967 og er
rekstrarfræðingur frá Viðskiptaháskólanum á
Bifröst og viðskiptafræðingur MBA frá HÍ.
Lesa meira..... |
|
 |
09.04.2008
Ferming í Víkurkirkju
Sunnudaginn 6.
apríl s.l. voru fermd 5 börn í Víkurkirkju.
Víkin skartaði sínu fegursta í tilefni dagsins
og fengu fermingarbörnin góðan dag til
minningar.
Á myndinni sjáum við í efri röð f.h. sr. Harald
M. Kristjánsson, Birki Grétarsson, Ingibjörgu
Matthíasdóttur og Magdalenu Katrínu
Sveinsdóttur. Í neðri röð f.v er Ragnar
Kristinsson og Jóna Þórey Árnadóttir. |
|
Ljósmynd
Kristín Marti Kasparsd. |
|
|
Dagur umhverfisins 25.
Apríl.
Umhverfisráðuneytið hefur ákveðið að þema
dagsins sé vistvænn lífsstíll. Ráðuneytið hvetur
alla landsmenn til að hugleiða hvernig breyta má
daglegu lífi til vistvænni lífsstíls.
Lesa meira.... |
 |
|
|
Fermingarguðsþjónusta verður í
Skeiðflatarkirkju,
nk. sunnudag 27. apríl 2008 kl. 13:30
Fermd verða:
Ástþór Hermannsson, Gilsbakka 5, 860 Hvolsvelli.
Guðlaug Lilja Sævarsdóttir, Brekkum 4, 871 Vík.
Sólon Helgi Jóhannsson, Eyjarhólum, 871 Vík.
Vigdís Eva Steinþórsdóttir, Ási, 871 Vík
Samkór Mýrdælinga syngur. Organisti Kitty
Kovács .
sóknarprestur |
 |
| |
|
|
|
 |
Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð fer syngjandi um Suðurland
dagana 19. - 21. apríl n.k.
Nánari dagskrá..... |
| |
|
 |
16.04.2008 is
Fallegur sunnudagur í apríl.
Þegar Jónas Erlendsson sendir
okkur myndir af landslaginu sem er nánast við
bæjardyrnar okkar fyllist ég stundum lotningu og
hugsa um hvað ég er heppin að njóta þeirra
forréttinda að búa við þessa náttúrufegurð.
Sjón er sögu ríkari..... |
|
Fleiri myndir... |
|
 |
16.04.2008
Þar sem sumarleyfi og síðan veikindi vefstjóra
hömluðu frétta- og atburðaflutningi á vik.is
verður farið í það að fullum krafti að vinna það
efni er okkur hefur borist.
Fréttaþyrstir eru beðnir afsökunar og verður nú
gerð bragarbót á.
Með bestu kveðju
Inger |
|
10.04.2008
Aðalfundur RKÍ haldinn í Vík 2009
Á aðalfundi Víkurdeildar Rauða kross Íslands 20.
febrúar s.l. var kynnt að aðalfundur Rauða kross
Íslands árið 2009 verði haldinn í Vík.
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps fagnar þessum
áformum og tekur jákvætt í að ljá afnot af
húsnæði sveitarfélagsins til fundarhaldanna og
bjóða til hádegisverðar.
Á fundinum 20. febrúar s.l. kynnti sveitarstjóri
áform um endurbyggingu þjónustustöðvar
sveitarfélagsins þar sem gert er ráð fyrir nýju
húsnæði fyrir sjúkrabíl RKÍ. |
 |
|
 |
Hamrahlíðarkórinn í
Víkurkirkju
Guðsþjónusta verður í
Víkurkirkju í Mýrdal,
sunnudaginn 20. apríl nk. kl. 11:00.
Kór Menntaskólans við Hamrahlíð,
sem er á ferð um Suðurland
þessa helgi, annast söng og messusvör auk þess
sem
hann leiðir almennan söng kirkjugesta.
Stjórnandi er Þorgerður Ingólfsdóttir.
Nær allur söngur í guðsþjónustunni verður án
undirleiks (agapella)
Lesa meira... |
| |
 |
|
|
Tónskóli
Mýrdælinga auglýsir:
Tónleikar í Leikskálum fimmtudaginn 10. apríl
kl. 20:00
Fram koma nemendur á píanó,
fiðlu, klassískan gítar,
þverflautu og harmoníku auk söngnemenda.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir |
 |
|
|
 |
Minnum á
Hundahreinsun í Mýrdalshreppi
Í samræmi við 3. gr.
reglugerðar um ormahreinsun hunda nr.
837/1999
og samþykkt Mýrdalshrepps um hundahald í
Mýrdalshreppi nr. 319/2000
eru hundaeigendur boðaðir með hunda sína til
hreinsunar
miðvikudaginn 16. apríl nk.
kl. 17:00-18:30
í áhaldahúsið, Suðurvíkurvegi 3
Sveitarstjóri
|
|
 |
19.03.2008
"Mýrdalssandur Space Center"
"Það kemur mörgun á
óvart að heyra að franskir vísindamenn hafi
skotið fjórum eldflaugum út í geiminn frá
Íslandi fyrir rúmlega fjórum áratugum. Út í
geiminn? Já, og meira að segja í
440 km hæð
"Sumarið 1964
settu frönsku vísindamennirnir frá CNES (Centre
National d'Etudes Spatiales) upp búðir sínar á
Mýrdalssandi á móts við Höfðabrekku og skutu upp
tveim eldflaugum".
Þetta er úrdráttur úr áhugaverðri grein Ágústar
H. Bjarnasonar verkfræðings. Ágúst heldur
úti bloggsíðunni
http://agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/#entry-477982
og þar má finna ýmsa forvitnilega hluti. |
| |
 |
|
 |
Skaftfellingamessa í Breiðholtskirkju
var haldin sunnudaginn 9. mars s.l.
Þar þjóna Sr. Bryndís Malla Elídóttir sem áður
þjónaði á Klaustri og Sr. Gísli Jónsson
prófastur sem áður þjónaði í Vík. Að austan kom
sr. Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur og
prófastur í Vík og Sr. Ingólfur Hartvigsson á
Klaustri ásamt kirkjukórunum í
Vestur-Skaftafellssýslu. |
 |
|
Lesa meira... |
Myndir... |
|
|
|
|
|
Ragna í
Fagradal málar skemmtilegar myndir
sjá nánar á
 |
 |
|
 |
04.03.08
Þórisholtsbændur hljóta landbúnaðarverðlaun
Búnaðarþing var sett um síðustu helgi við
hátíðlega athöfn í Súlnasal Hótels Sögu.
Setningarathöfnin fór fram undir yfirskriftinni
"Að lifa af landsins gæðum" og hófst með ræðum
þeirra Haraldar Benediktssonar formanns
Bændasamtaka Íslands og Einars Kr. Guðfinnssonar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þá veitti Einar Kr. Guðfinnsson sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra ábúendum fjögurra jarða
Landbúnaðarverðlaunin 2008.
Þau eru viðurkenning til þeirra sem á einn eða
annan hátt tengjast landbúnaði og hafa sýnt
áræðni og dugnað í verkum sínum og framkvæmdum.
Landbúnaðarverðlaun hlutu í ár bændurnir á Stað
og Árbæ í Reykhólasveit, ábúendur í Þórisholti í
Mýrdal og Möðrudal á Efra-Fjalli.
Verðlaunagripirnir eru hannaðir af Ívari
Björnssyni gullsmið og gerðir úr silfri og
íslensku grjóti. |

Halla, Guðni, Grétar og Sædís Íva
í Þórisholti |
|
|
|
|
|
|
|
03.03.2008
Vetur konungur minnti rækilæga á sig í gær
sunnudag og þar með að hann væri nú ekki alveg
búinn að sleppa klónum.
Jónas dreif sig nú samt út og tók þessar myndir.
Mikil snjóþyngsli eru í Vík og gengur
snjómokstur vel. |
 |
|
Fleiri
myndir |
|
 |
22.02.2008
Tunglmyrkvi
Jónas Erlendsson vakti eftir tunglmyrkvanum sem
varð aðfaranótt fimmtudags og uppskar þessar
frábæru myndir.
Tunglmyrkvi er ekki eins og sólmyrkvi, þegar
hrein og skýr tunglskífa gengur fyrir sólu.
Vegna eðlismunar milli sólar, jarðar og
tunglsins, þá er skugginn af jörðinni á
tunglið "óhreinn" ef svo mætti að orði komast.
Geislar sólarinnar sem sleikja yfirborð jarðar
fara í raun í gegnum lofthjúp hennar með þeim
afleiðingum að blátt litróf ljósins sundrast í
allar áttir en rauðu geislarnir halda áfram.
Tekið af vef Finns Malmquist.
Lesa meira
http://finder.blog.is/blog/finder/entry/101969/
|
 |
|
|
 |
Solla í Himneskri
hollustu, matarhönnuður og
frumkvöðull í heilsumatargerð á Íslandi, ætlar
að koma til okkar og halda grænmetisnámskeið í
Vík
þriðjudaginn 25. mars
n.k. kl. 17:30
Hún kennir m.a. skynsamlega leið til að breyta
matarræðinu, heilsusamlegar eldunaraðferðir,
sykurlausa eftirrétti ofl. ofl.
Námskeiðsgjald 5.000 kr. (sama verð og í Rvík)
Sjá nánar í Vitanum 5. mars s.l.
Unnur
s: 486-1600 & 896-8884 |
| |
|
31.03.2008
Sorphirða fellur niður í dag
Vegna veikinda fellur
sorphirða niður í dag. Beðist e r velvirðingar á
óþægindum sem þetta kann að valda.
|
 |
Kirkjuskólinn
verður með síðustu samveru vetrarins í
Grunnskóla Mýrdalshrepps,
laugardaginn 15. mars 2008, kl. 11:15
Nýjar bækur með skemmtilegum myndum
og fróðlegum texta.
Verið nú dugleg að mæta.
Sóknarprestur |
|
Kirkjuskólinn í Mýrdal |
|
|
Framtíðarstarf í Íþróttamiðstöðinni í Vík
Meira... |
 |
|
|
|
|
Aðalfundur umf
Dyrhólaeyjar verður haldinn að Ketilsstöðum,
fimmtud. 13 mars. kl. 20,00.
Venjuleg aðalfundarstörf
Sameining umf Dyrhólaeyjar og umf Drangs.
Fjölmennum á fund
Stjórnin |
|
Umf
Drangur/Dyrhólaey
Stofnfundur sameinaðs ungmennafélags Drangs
og Dyrhólaeyjar verður mánudaginn 17. mars
n.k. kl. 20:00 í Leikskálum
Mætum öll
Dagskrá
|
|
|
|
|
Kökubasar
Kvenfélag Dyrhólahrepps verður
með árlegan kökubasar föstudaginn 14. mars í
Leikskálum
kl. 13:00 - 15:30
Félagskonur |
|
|
B I N G Ó
Hið árlega páskaeggjabingó
kvenfélags Hvammshrepps verður í Leikskálum
þriðjudaginn 18. mars n.k. kl. 20:00
Glæsilegt úrval páskaeggja
Nefndin |
 |
|
|
|
|
Hugmyndasamkeppni
Í tilefni af fyrirhugaðri sameiningu
ungmennafélaganna í Mýrdalshreppi
Lesa meira.... |
|
|
Skaftfellingamessa í Breiðholtskirkju
sunnudaginn 9. mars n.k. kl. 14:00 þar sem allir
kirkjukórar Vestur-Skaftafellssýslu,
Skaftfellingakórinn í Reykjavík og kór
Breiðholtskirkju annast söng.
Að lokinni messu selur Söngfélagið kaffi og
kökur í safnaðarheimilinu og flytur nokkur lög
undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar.
Allir Skaftfellingar hvattir til að mæta.
Haraldur M. Kristjánsson
prófastur |
 |
|
 |
Aðalfundur umf
Drangs
verður haldinn í Leikskálum
laugardaginn
08.03.2008 kl. 15:00
Fjölmennum
Stjórnin |
|

Mynd: Sunnlenska |
Tónleikar 9.
mars n.k.
Stórsveit Suðurlands heimsækir okkur Mýrdælinga
ásamt tveimur af bestu jazzsöngkonum landsins,
þeim Kristjönu Stefánsdóttur og Guðlaug Dröfn
Ólafsdóttur, og heldur tónleika í Leikskálum
sunnudagskvöldið 9. mars n.k. kl. 20:30
Stórsveitin er skipuð tónlistarfólki sem tengist
Suðurlandi á einhvern hátt og hefur áhuga á
stórsveitartónlist. Stjórnandi sveitarinnar er
Vignir Þór Stefánsson.
Lesa meira..... |
|
|

Ljósm. Guðrún
Hildur Kolb. |
Helgihald í
Víkurprestakalli veturinn 2007-2008
Seinni hluti |
|
| |
09.01.2008
Anna "okkar" Björnsdóttir stofnar flygilsjóð
Í tilefni af 60 ára afmæli sínu þann 26.
desember s.l. stofnaði Anna Björns sjóð sem
hefur það að markmiði að fjármagna kaup á flygli
fyrir okkur Mýrdælinga.
Stofnuð hefur verið bók í Kaupþingi Banka:
0317-13-300380
kt: 420269-6689
Lesa meira... |
|
 |
 |
| |
|
|
|
|
Húseigendur í Vík í Mýrdal eru minntir á að
hreinsa frá sorpílátum.
Sorphreinsun fer fram eftir hádegi í dag
mánudag 3. mars.
Sveitarstjóri
|
|
|
|
|
|
Fjölskylduguðsþjónusta í Víkurkirkju
á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar, nk. sunnudag, 2.
mars, kl. 14:00.
Sungnir verða léttir og skemmtilegir sálmar og
söngvar.
Kitty Kovács leikur á orgelið.
Kirkjuskólabörn, fermingarbörn og foreldrar
sérstaklega hvött til að mæta.
Sóknarprestur |
|
|
|
 |
07.
febrúar 2008
Vel heppnað öskuball félagsmiðstöðvarinnar OZ
Frábær þátttaka var á árlegu öskuballi
félagsmiðstöðvarinnar OZ.
Börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega og
eins og fyrri ár var mikið lagt í búninga og
hönnun. Dugmiklir unglingar í 8. - 10.
bekk sáu um dagskránna sem var fjölbreytt og
skemmtileg. Magdalena Katrín og Ólöf Lilja sungu
m.a.
Þetta árið var slegið úr tveimur tunnum.
Ein tunna var fyrir 9 ára og yngri og svo var
tunna fyrir þau eldri.
Svanhvít M. Sveinsdóttir f.h. Kvenfélags
Hvammshrepps færði félagsmiðstöðinni styrk að
upphæð 50.000 kr.
Vefritari las í dagblöðum á öskudag að
heimatilbúnir búningar væru nánast að líða undir
lok. Við vitum betur, því að eftir því er
tekið ár eftir ár að nýir búningar líta ávallt
dagsins ljós á öskuballi í Vík. |
 |
|
Fleiri
myndir.... |
|
 |
01.02.2008
Svart og hvítt
Myndirnar eru teknar í gær af Jónasi Erlendssyni
í Víkurþorpi.
En í sunnan og suðvestan áttum síðustu daga
þefur mikið af sandi úr Víkurfjöru gengið inn
yfir suðurhluta Víkurþorps.
Fleiri
myndir.... |
 |
| |
|
|
 |
Víkurkirkja í Mýrdal
Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju
n.k. sunnudag, 17. febrúar 2008, kl. 14:00.
Kórar Víkur- og Skeiðflatarkirkna syngja undir
stjórn Kitty Kovács organista.
Fermingarbörn og foreldrar sérstaklega hvött til
að mæta.
Sóknarprestur |
|
Menningarráð Suðurlands auglýsir viðveru
menningarfulltrúa vegna úthlutunar á
menningarstyrkjum vorið 2008
Viðtalstímar menningarfulltrúa, Dorothee
Lubecki
-
Kirkjubæjarklaustur, fimmtudaginn 14.
febrúar nk. á hótelinu , kl. 15:00,
opinn fundur um menningarmál kl. 16:00
-
Vík í Mýrdal, miðvikudaginn 20. febrúar
kl. 11:00-12:30 á
hreppsskrifstofu
Einnig er hægt að hafa samband í síma
480-8207 / 896-7511 eða með netpósti:
menning@sudurland.is
Frekari upplýsingar og eyðiblöð eru á
heimasíðu
www.sudurland.is
|
|
|
Munum eftir
að gefa
smáfuglunum
|
 |
|
 |
31.01.2008
Uppsveitabrosið 2007 til Víkur
Uppsveitabrosið 2007 var
afhent sl. miðvikudag. Það voru tvær konur sem
hlutu brosið að þessu sinni, þær Steingerður
Hreinsdóttir og Sædís Íva Elíasdóttir, ráðgjafar
hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands.
Uppsveitabrosið fá þær m.a. fyrir framúrskarandi
samvinnu.
“Uppsveitabrosið” er viðurkenning sem veitt er
árlega einstaklingi eða fyrirtæki.
Bros frá Uppsveitunum til þeirra sem hafa lagt
ferðaþjónustunni á svæðinu lið á jákvæðan
uppbyggilegan hátt og stuðlað að samvinnu.
Markmiðið er að senda út jákvæð skilaboð og
vekja athygli á því sem vel er gert.
Tekið af vef
sveitir.is
Sjá nánar.... |
| |
 |
|
 |
Áheitasundmaraþon OZ
Í dag, fimmtudaginn 14. febrúar 2008 er áheitasundmaraþon
hjá Félagsmiðstöðinni OZ. Maraþonið
felst í því að krakkarnir ætla að skiptast á að
synda stanslaust og reyna að synda minnst
samtals 50 km.
Áheitasundmaraþonið fer fram í sundlauginni í
Vík.
Áætlað er að krakkarnir syndi minnst
samtals um 50 km. án þess að slíta keðjuna.
Tilefnið er söfnun í ferðasjóðinn.
Mýrdælingar tóku vel á móti krökkunum þegar þau
gengu hús og söfnuðu áheitum.
Stöndum saman og styðjum við bakið á krökkunum
okkar!
Victor Berg Guðmundsson
Íþróttafulltrúi
http://oz.xblogg.is
|
 |
|
 |
30.01.2008
Vel blótað í Leikskálum
Þorrablót Víkurbúa og vina var
haldið í Leikskálum í Vík
26. janúar s.l. Þema blótsins var
N1 /
Orkan (Enn Eitt
Orkublótið)
Vikurnar fyrir blótið var þó búið að kynda undir
Mýrdælingum með 3 tbl. af Víkurbirtingi.
Af mörgu var að taka eins og svo oft áður og "er
þetta mikilvæg samkoma í samfélaginu, því að
þarna eru málin gerð upp og gagnrýnd á léttum
nótum" er haft eftir formanni þessa blóts Önnu
Birnu Þráinsdóttur, sýslumanni.
"Þorrablótin eru alltaf skemmtileg og góðir
gestir gera gott blót. Enginn fór þó af þessu
blóti stórslasaður eða stórmóðgaður" segir
formaðurinn enn fremur og bætir svo við að starf
í þorrablótsnefnd sé hollt, gott og gaman og
allir leggi þannig sitt af mörkum.
Þorrablótsnefnd 2009 skipa......
Fleiri
myndir....... |
 |
|
Ljósm. Sig.H. |
Ljósm. Sig.H.
Salurinn |
 |
 |
|
Ljósm.Sig.H.
Nefndin |
Ljósm. Jónas E |
|
|
|
|
|
|
Tréútskurður Grunnnámskeið
Námskeið
í Vík
Fyrirhugað er að halda tréútskurðarnámskeið
á vegum Handverkshússins,
helgina 16.- 17. febrúar n.k. frá kl. 10 - 16
báða dagana (hádegishlé)
Leiðbeinandi er Jón Adolf
tréútskurðarmeistari
http://www.jonadolf.com
Nánar... |
 |
|
30.01.2008
Þorrablót Skaftfellingafélagsins í Reykjavík
Laugardaginn 26. janúar s.l. var haldið
Þorrablót hjá Skaftfellingafélaginu í Reykjavík.
Fullt var á blótinu, um 150 manns, sem mættu úr
báðum sýslum. Fyrst var borðaður hefðbundin
þorramatur með tilheyrandi drykkjum og síðan
stigu á stokk Davíð Ólafsson og Stefán Íslandi
og fóru með söng og gamanmál. Einnig fengu þeir
formann og gjaldkera félagsins til að taka því í
erfiðust köflunum !!!
Að skemmtidagskrá lokinn spiluðu og sungu Hilmar
Sverrisson og Helga Möller fyrir dansi.
Texti og myndir: Helgi frá Fossi á Síðu
Fleiri myndir.... |
 |
 |
| |
|
 |
Víkurkirkja í Mýrdal
Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju
sunnudag í föstuinngangi,
3. febrúar 2008, kl. 14:00.
Organisti er Kitty Kovács.
Söng annast kirkjukórar Víkur- og
Skeiðflatarkirkna.
Fjölmennum.
Fermingarbörn og foreldrar sérstaklega hvött til
að mæta.
Sóknarprestur |
|
Ljósm. Guðrún
Hildur Kolb. |
|
 |
Áheitasundmaraþoni OZ frestað vegna veðurs.
Nánari
upplýsingar síðar... |
|
|
|
|
|
|
 |
Áheitasundmaraþon OZ
Helgina 25-26. janúar 2008 er áheitasundmaraþon
fyrirhugað hjá Félagsmiðstöðinni OZ.
Tilefnið er söfnun í ferðasjóðinn. Maraþonið
felst í því að krakkarnir ætla að skiptast á að
synda stanslaust og reyna að synda minnst
samtals 50 km.
Áheitasundmaraþonið fer fram í sundlauginni í
Vík. Áætlað er að krakkarnir syndi minnst
samtals um 50 km. án þess að slíta keðjuna.
Miðvikudaginn 23. og fimmtudaginn 24. janúar
munu krakkarnir ganga í hús og safna áheitum.
Stöndum saman og styðjum við bakið á krökkunum
okkar!
Victor Berg Guðmundsson
Íþróttafulltrúi
http://oz.xblogg.is
|
 |
|
|
|
 |
Aðalskipulag
Mýrdalshrepps
Mánudaginn 21. janúar 2008 verður haldin
kynningarfundur um tillögu að aðalskipulagi
Mýrdalshrepps 2005-2025. Fundurinn verður
haldinn í Félagsheimilinu Leikskálum í Vík og
hefst kl. 20.00.
Allir eru velkomnir.
Sveitarstjóri Mýrdalshrepps
|
|
|
|
Grunnskóli Mýrdalshrepps,
Vík í Mýrdal
Aðstoðarskólastjóri
Laus er til umsóknar staða
aðstoðarskólastjóra
vegna fæðingarorlofs frá 1. febrúar 2008 til
eins árs. |
 |
|
Grunnskóli
Mýrdalshrepps er fámennur skóli með um 70
nemendur í 1. -10.bekk.
Í skólanum er góður starfsandi og öflugt
starfslið.
Aðaláherslur í skólastarfinu eru á mannrækt og
umhverfi, unnið er að innleiðingu Uppeldis til
ábyrgðar, unnið markvisst með einstaklingsmiðað
nám og skrefin sjö að Grænfánanum. Skólinn er
þátttakandi í verkefni Lýðheilsustöðvar Allt
hefur áhrif einkum við sjálf.
Heimasíða skólans er
http://gsm.ismennt.is
Nánari upplýsingar gefa :
Skólastjóri Kolbrún Hjörleifsdóttir í síma 487
1242/866 7580 netfang:
kolbrun@ismennt.is
Sveitarstjóri Sveinn Pálsson í síma 487 1210
netfang:
sveitarstjori@vik.is
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2008
Yfirlit yfir nám og störf auk meðmæla skulu
fylgja umsókn. |
|
|
21.01.2008
Víkurbúar athugið!
Sorp er hirt í Víkurþorpi í dag mánudag.
Vinsamlegast mokið frá sorpílátum.
Ögmundur Ólafsson ehf.,
892-9726 |
|
|
18.01.2008
Opið hús hjá
Íslandsvinum.
Það verður “opið hús” hjá ferðaskrifstofunni
Íslandsvinum, Reykjavíkurvegi 64
Hafnarfirði, á morgun laugardaginn 19.
janúar milli kl. 13 og 17.
Þar verða kynntar þær skíða-, göngu- og
hjólaferðir sem í boði eru á þessu ári.
Lesa meira...
|
|
|
|
|
Lögbirtingablaðið 100 ára
og af því tilefni býður starfsfólkið til
afmælisveislu
Lesa meira..... |
 |
|
 |
28.12.2007
Sjaldséðir hvítir.....
Þórir Kjartansson náði þessum myndum í síðustu
viku.
Þetta er Kúhegri, suðlægur fugl og er næst okkur
við Miðjarðarhaf, og hefur aðeins sést einu
sinni áður á Íslandi.
Von var á hópi af fuglaáhugamönnum til Víkur til
að reyna að sjá og mynda gripinn. |
 |
|
Íbúðir fyrir 50 ára og eldri rísa við Hátún
í Vík í Mýrdal.
|
 |
Lýsing:
Húsin eru raðhús með þremur íbúðum og eru
íbúðinar misstórar.
Í suðurendanum er stærsta íbúðin 103,4 m2, miðju
íbúðin er 89,8 m2 og norðurendinn er 90,4 m2.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar að utan sem innan
og lóð þökulögð.
Þessar íbúðir eru skilgreindar sem
þjónustuíbúðir fyrir 50 ára og eldri og er
eftirfarandi þjónusta í boði gegn gjaldi:
* Öryggishnappur sem tengdur er við
dvalarheimilið Hjallatún, þar sem vaktmaður er
allan sólarhringinn
með beinan aðgang að lækni.
* Matur frá Hjallatúni, annað hvort
heimsending eða í matsal.
* Þrif á íbúðum.
* Þvottur.
Meira....
Nánari upplýsingar og byggingarlýsing hjá
VíkurHúsum.
Jóhann Vignir Hróbjartsson
Húsasmíðameistari
Sími 897 7737 |
|
 |
Sundlaugin
komin í lag |
|
|

Skyndihjálp IV í Leikskálum í Vík
RKÍ - Víkurdeild
hefur ákveðið að halda
skyndihjálparnámskeið sem er ætlað öllum þeim
sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og
öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita
nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum.
Meira..... |
|
Þrettándabrenna í Vík
Félagar í bjsv Víkverja
stóðu fyrir brennu á þrettándanum þar sem
gamlársbrennunni var frestað vegna veðurs. Einar
Bárðarson form. sveitarinnar var brennustjóri og
Framrás ehf styrkti brennuna með kveikjulegi. |
_small.jpg) |
_small.jpg) |
_small.jpg) |
|
|
Fundarboð
Guðni Ágústsson og
Bjarni Harðarson þingmenn
Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi boða til
súpufundar í Víkurskála,
föstudaginn 11. janúar 2008 kl.
12:00-13:00
Allir velkomnir |
|
Þessa daga er
unnið hörðum höndum við að opna sundlaugina
okkar að nýju.
Tilkynning um opnun verður send út með
dreifibréfi |
 |
|
|
 |
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐIN Í VÍK
Viðskiptavinir athugið!
Íþróttamiðstöðin lokar kl. 12:00 sunnudaginn 13.
janúar vegna skyndihjálparnámskeiðs starfsmanna.
Victor Berg Guðmundsson
Íþróttafulltrúi |
|
 |
Með
þessari frábæru mynd sem Jónas í Fagradal sendi
óskar Mýrdalshreppur/Vik.is öllum gleðilegs nýs
árs
og þakkar góðar stundir
á gamla árinu |
|