|
|
|
|
 |
30. des. Sunnud. millijóla og nýárs
Guðsþjónusta í Sólheimakapellu, kl. 14:00.
Organisti er Kristín Björnsdóttir.
Almennur
safnaðarsöngur. |
|
|
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól með innilegu
þakklæti fyrir
góða og vinsamlega þjónustu á
árinu
sem er að líða.
Friður og birta frelsarans
Jesú Krists fylgi ykkur og fjölskyldum ykkar á
nýju ári.
Haraldur M. Kristjánsson prófastur í Vík
|
 |
|
 |
Aðventustund
Skaftfellingafélagsins
Sunnudaginn 9. desember hélt
Skaftfellingafélagið sína árlegu aðventustund í
Skaftfellingabúð. Aðsóknin var mjög góð,
eitthvað yfir hundrað manns.
Fyrst söng kór Skaftfellingafélagsins en við
stjórn kórsins hefur tekið Friðrik Vignir
Stefánsson. Jóna Gísladóttir söng einsöng.
Gunnþór Gunnardóttir frá Hnappavöllum las upp úr
ný útgefinni bók, Sótt fram, sem Sigurður
Björnsson frá Kvískerjum hefur ritað um sögu
sýslunefndar Austur-Skaftafellssýslu og Öræfin.
Síðan var sungið og gengið í kringum jólatré við
undirleik Kristins Kjartanssonar úr Mýrdal sem
spilaði á harmonikku og svo kom skeggjaður
náungi ofan úr fjöllunum í heimsókn.
Með þessu gæddu menn sér á kaffi og meðlæti sem
kórinn lagði til.
Samkoman þótti takast með miklum ágætum.
Sjá fleiri myndir.....
Texti og myndir: Svavar M. Sigurjónsson |
 |
 |
|
 |
Barna- og fjölskyldusamkoma
í Ketilsstaðaskóla
sunnudaginn 30. desember 2007 kl. 20:00
Jólatré - jólasveinar - glensspilum - spjöllum
maður er manns gaman
Veitingar að hætti kvenfélagskvenna.
Aðgangur krónur 1.000.- Frítt fyrir 14 ára og
yngri
Fjölmennum, allir velkomnir.
Kvenfélag Dyrhólahrepps |
 |
|
 |
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐIN
Í VÍK
Opnunartímar milli jóla og nýárs
Þreksalur-heitur
pottur-íþróttasalur-gufubað og ljósabekkur
Við óskum öllum viðskiptavinum okkar gleðilegra
jóla og farsældar á komandi ári.
Victor Berg Guðmundsson - íþróttafulltrúi |
 |
|
 |
Jólaball
2007
Verður haldið í Leikskálum Vík, föstudaginn 28.
desember.
Fjörið hefst klukkan 16:30 og stendur til kl
18:00.
Hljómsveitin Granít leikur öll helstu jólalögin.
Von er á jólasveinum og Björgunarsveitin
Víkverji
sér um flugeldana!
500 kr. inn og frítt fyrir 16 ára og yngri.
Verðum með alvöru kaffiveitingar í ár.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Nefndin |
 |
|
 |
07.12.2007
Menningarstyrkir í Mýrdalinn
Menningarráð Suðurlands úthlutaði styrkjum til
menningarstarfs á Suðurlandi við hátíðlega
athöfn í Listasafni Árnesinga í Hveragerði
sunnudaginn 2. desember s.l. Ávörp
fluttu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra, Róbert Marshall
aðstoðarmaður samgönguráðherra og Jóna
Sigurbjartsdóttir formaður Menningarráðs
Suðurlands. Styrkina afhentu Þorgerður Katrín og
Dorothee Lubecki menningarfulltrúi Suðurlands.
Mýrdælingar sóttu styrki í Menningarráðið og
fengu.
Lesa meira... |
| |
|
|
|
11.desember 2007
Hlaup í Skeiðará
Jónas Erlendsson tók þessa mynd í síðustu viku
þegar lítið hlaup kom í Skeiðará.
Rennsli árinnar var talið álíka mikið og gott
sumarrennsli og brennisteinslykt fannst á
Skeiðarársandi. Hlaup í Skeiðará fara af stað
þegar vatn úr Grímsvötnum stendur nægilega hátt
til að ná að brjóta sér leið undir
Skeiðarárjökul.
Fylgjast má með vatnshæð og rafleiðni í ánni í
vöktunarkerfi Vatnamælinga:
http://vmkerfi.os.is |
 |
| |
|
|
Handmálaðar jólakúlur
frá Póllandi
Erum með okkar árlegu jólakúlusölu núna
og þeir sem áhuga hafa,
hafi samband við Petru.
Jólakveðja
Umf Dyrhólaey
Petra s: 487-1322 og gsm 866-0786 |
 |
|
|
Leyfi þarf fyrir brennum og
flugeldasýningum
Allir sem ætla að halda brennu,
selja flugelda eða halda flugeldasýningu um
áramót eða á þrettándanum, þurfa að sækja um
leyfi. Lögráða ábyrgðarmaður þarf að vera
skráður fyrir hverri brennu og með
leyfisumsókninni þurfa að fylgja skriflegt
starfsleyfi heilbrigðisnefndar og vottorð frá
vátryggingafélagi um ábyrgðartryggingu vegna
brennunnar. Umsóknareyðublöð vegna
bálkasta, brenna, sölu flugelda og
flugeldasýningar fást hjá sýslumönnum og rafrænt
á heimasíðu lögreglunnar.
(Tekið úr Glugganum) |
 |
|
26.11.07
Myndir teknar 25. nóvember við afleggjarann heim
að Höfðabrekku í Mýrdal, en þá lenti bíll út í
Höfðabrekkutjörnum.
Sjá nánar í MBL í dag. |
 |
 |
 |
|
 |
21.11.2007
Vogmær á tröppunum.
Þórður Sveinsson heimsótti
okkur á skrifstofu Mýrdalshrepps í gær með
"furðufisk" í farteskinu. Okkur lék
forvitni á að vita af hvaða tegund fiskurinn
væri og sendi sveitarstjórinn, Sveinn Pálsson,
mynd af honum til Hafrannsóknarstofnunar og
þaðan bárust upplýsingar um hæl frá Jónbirni
Pálssyni.
Fiskurinn heitir vogmær, sem er
uppsjávarfiskur og lifir m.a. í hafinu
suður af Íslandi, en rekur alltaf öðru hverju á
fjörur.
Í ár hafa borist óvenju margar fréttir af vogmær
við landið, í reynd nánast allt í kringum
landið, þó sennilega ekki af Austfjörðum
|
 |
|
|
|
|
Aðventusamkoma í Mýrdal 2007
Aðventusamkoma verður í
félagsheimilinu Leikskálum í Vík,
miðvikudagskvöldið 5. desember nk. kl. 20:00.
Helgileikur, upplestur, söngur og tónlist sem
tengist aðventu og jólum.
Að lokinni samkomunni verða ljósin tendruð á
jólatré Mýrdælinga.
Samkoman er samstarfsverkefni grunnskólans,
tónskólans, kirkjukóranna og allra sóknanna í
Mýrdal.
Fjölmennum á sameiginlega aðventuhátíð okkar
allra.
Samstarfshópurinn
|
 |
| |
|
|
Starfsmaður óskast við
ræstingar á skrifstofu Mýrdalshrepps
Nánari upplýsingar veitir Helga
Halldórsdóttir, skrifstofustjóri
í síma 487-1210
|
 |
|
|
Borholutilboð
á 10 og 30 tíma kortum í
Íþróttamiðstöð
Meira.... |
|
|
Aðalskipulag - kynningarfundur
Fundinum, sem boðað hafði verið til fimmtudaginn 6. desember n.k.
er frestað af
óviðráðanlegum orsökum.
Sveitarstjóri
Mýrdalshrepps
|
|
|
|
|
Villibráðarveisla á
Ströndinni
Villibráðarhlaðborð verður í boði laugardaginn
24. nóvember n.k. á Ströndinni.
Þar verður uppistand allt kvöldið og ball á
eftir.
Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl.
20:00
Verð pr. mann er krónur 5.900.-
Nánari upplýsingar í síma 487-1230
Mýrdalshreppur býður fastráðnu starfsfólki sínu
til veislunnar.
|
 |
|
|
Boltaleikar USVS
Allir krakkar í 1. – 10. bekk mætum á
boltaleika í íþróttahúsinu Vík, laugardaginn
24. kl. 12:30.
Skemmtilegar boltaíþróttir hefðbundnar og
óhefðbundnar
Grillum saman eftir
skemmtilega samveru. |
 |
 |
|
|
Tilkynning frá
Skaftfellingafélaginu
Næsta fimmtudag, 22. nóvember kl.
20:00 verður myndasýning í hjá
Skaftfellingafélaginu í Skaftfellingabúð
Laugavegi 178. Myndefnið verður úr ýmsum áttum
og frá ýmsum tímum.
Meira... |
|
|
Spilakvöld í GSM
22. nóvember kl. 20:00
Meira.... |
 |
|
|
|
|
Jól í Skókassa |
 |
Jól í Skókassa |
25.10.2007
Við sögðum frá því fyrr í vikunni að
kvenfélagskonur í Dyrhólahreppi ætla að styðja
verkefnið "jól í skókassa" og nú ætla krakkar í
3. og 4. bekk í grunnskólanum í Vík að taka
höndum saman...
Meira.....
Nánari upplýsingar um verkefnið
fást á heimasíðu
KFUM/KFUK og svo má sjá kynningarmyndband á
sömu síðu. |
|
|
Kirkjuskólinn í Mýrdal
Kirkjuskólinn í Mýrdal er með næstu samveru
laugardaginn 24. nóv. 2007, kl. 11:15 í
Víkurskóla.
Nýjar bækur með Danna og Birtu,
brúður koma í heimsókn,
söngur og litastund.
Verið dugleg að mæta.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sóknarprestur
|
|
|
 |
Kökubasar í Leikskálum
Kvenfélag Dyrhólahrepps verður
með kökubasar í Leikskálum næstkomandi
föstudag frá kl. 13:00 - 15:30. |
|
|
Auglýsing um verkefnastyrki til menningarstarfs á Suðurlandi
Menningarráð Suðurlands
auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni
samnings sveitarfélaga á Suðurlandi og
menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis um
menningarmál
Meira.....
Úthlutunarreglur
Umsóknareyðublað |
|
| |
 |
|
|
Frá leikskólanum Suður –
Vík
Starfsmaður óskast í 50% stöðu við kennslu bæði
yngri og eldri barna.
Vinnutími getur verið sveigjanlegur.
Nánari upplýsingar hjá Aðalheiði á leikskólanum,
sími 487-1241 og 899 9607 eða
hjá Helgu á skrifstofu Mýrdalshrepps,
sími 487-1210
Leikskólastjóri |
|
|
18.10.2007
Kvenfélag Dyrhólahrepps
Kvenfélagskonur í
Dyrhólahreppi verða önnum kafnar í vetur eins og
dagskráin þeirra sýnir.
Félagið styður verkefni KFUM og KFUK ,,Jól
í skókassa’’ með því að safna saman
gjafakössum í sveitarfélaginu og koma þeim til
skila hjá samtökunum í Reykjavík.
Lokaskiladagur 30. október.
Verkefnið verður auglýst nánar í Vitanum.
Aðrir viðburðir.... |
|
| |
 |
|
24.10.2007
Valkyrjur í Valhöll...
45. sambandsþing UMFÍ var haldið á Þingvöllum
dagana 20.-21. október á 100 ára afmæli
Ungmennafélags Íslands. Þingið var sett í
Almannagjá að viðstöddum góðum gestum.
Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands
ávarpaði þingfulltrúa og gesti og Ólafur
Rafnsson forseti ÍSÍ sæmdi Björn B. Jónsson
gullmerki ÍSÍ.
Meira.... |
 |
|
 |
25.10.2007
Klakveiði
Myndir þessar eru teknar af Jónasi Erl. um
síðustu helgi en þá var farið í klakveiði í
Vatnsá í Mýrdal. Mikill fiskur var í ánni. Sem
dæmi um það var talið að í "Frúarhylnum" einum
hafi verið ca. 300 laxar.
Á laugardeginum var reynt að veiða með rafmagni
en gekk það illa vegna vatnavaxta í ánni.
Á sunnudeginum var net dregið fram og það látið
reka í einn hylinn, sem fylltist strax og úr því
komu 49 laxar. Teknar voru tæpar 60 hrygnur en
eitthvað minna af hængum til að nota í klak. |
|
 |
Tilkynning frá USVS
Vegna dræmrar þátttöku fellur niður
körfuknattleiksmót sem vera átti
laugardaginn 27. október nk.
Knattspyrnudagur sem vera átti 10. nóvember n.k.
frestast einnig vegna
Söngvakeppni Félagsmiðstöðva, Samfés.
Breyting á dagsetningu nánar auglýst síðar.
USVS |
|
|
Guðsþjónusta í Víkurkirkju
Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju, á Allra
heilagra messu, nk. sunnudag,
4. nóvember 2007, kl 14:00.
Kórar Víkur- og Skeiðflatarkirkna syngja.
Organisti og stjórnandi er Kitty Kóvacs.
Undirleik á fiðlu annast Balász Stankowsky.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega
hvött til að mæta.
Sóknarprestur |
 |
| |
|
|
SÖNGKEPPNI
Í VÍK
Þriðjudaginn
23. október
kl. 19:30 í Leikskálum
Meira.... |
|
|
|
| |
 |
|
|
Reyniskirkja í Mýrdal
Guðsþjónusta verður í Reyniskirkju í Mýrdal,
sunnudaginn 21. október nk. kl. 14:00.
Organisti er Kristín Björnsdóttir.
Almennur safnaðarsöngur.
Fjölmennum.
Sóknarprestur |
|
|

OPIÐ HÚS HJÁ VÍKURDEILD
í Leikskálum laugardaginn
20. okt. kl. 13-16
Dagskrá... |
|
|
Umhverfisverðlaun
Mýrdalshrepps 2007
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd Mýrdalshrepps
óskaði á dögunum eftir
tilnefningum til umhverfisviðurkenninga. Er þetta í fyrsta skipti
sem þetta er gert. Tilnefningarnar náðu til garða,
fyrirtækja eða býla í Mýrdalshreppi sem þættu skara fram úr fyrir
snyrtimennsku.
Á hátíðardagskrá menningarhelgarinnar, um
síðustu helgi, voru svo fyrstu
umhverfisverðlaunin afhent.
Sigrún Guðmundsdóttir formaður nefndarinnar
afhenti Jóni Gunnari Jónssyni, Austurvegi 11b
verðlaunin. Jón er vel að verðlaununum
kominn enda hefur garður hans lengi verið
rómaður fyrir snyrtimennsku og fegurð.
Til hamingju Jón Gunnar. |
 |
| |
|
 |
09.10.2007
Tímamót
Guðmundur Elíasson sem rekið hefur Víkurskála og
Hótel Eddu í 20 ár stendur á tímamótum, og af
því tilefni buðu hann og Lóa í kaffi og
rjómapönnukökur og krakkarnir fengu ís,
laugardaginn 29. sept. s.l.
Guðmundur og Lóa flytja á Selfoss og verður
Guðmundur stöðvarstjóri í N1 Fossnesti á
Selfossi.
Elías sonur hans og Vilborg tengdadóttir hans
taka við rekstrinum hér í Vík.
Margt var um manninn á Ströndinni í Víkurskála
og tók Jónas Erlendsson myndirnar af því
tilefni.
Fleiri myndir.... |
 |
| |
|
08.10.07
Frábær menningarhelgi
Myndirnar tók Sigurður Hjálmarsson á setningu
menningarhelgar Regnbogans á föstudagskvöld.
Á næstu dögum kemur nánari umfjöllun og fleiri
myndir inn á heimasíðuna. |
 |
 |
 |
| |
 |
 |
|
08.10.07
Frábær menningarhelgi
Myndirnar tók Sigurður Hjálmarsson á setningu
menningarhelgar Regnbogans á föstudagskvöld.
Á næstu dögum kemur nánari umfjöllun og fleiri
myndir inn á heimasíðuna. |
 |
 |
 |
| |
 |
 |
|
|
|

 |
08.10.07
Uppskerustörf
Í vor gaf Kaupþing banki leikskólabörnum í
Suður-Vík allt til matjurtaræktar nema sjálfa
moldina. Mýrdalshreppur úthlutaði þeim svo
litlum skika til verksins.
Í lok september var svo kominn uppskerutími... |
 |
 |
 |
|
03.10.07
Vestanpósturinn til Víkur
Mýrdalurinn geymir margan
listamanninn, án þess þó að margir viti af
honum. Hún Harpa Jónsóttir er ein af þeim.
Ekki aðeins tekur hún stórkostlegar ljósmyndir
heldur er hún afar listræn hannyrðakona.
Vefstjórinn mælir með að skoða heimasíðu hennar
http://vestan.blogspot.com/ |
 |
| Ljósm. Harpa J. |
|
|
Menningarfulltrúi
Suðurlands, Dorothee Lubecki, verður til viðtals
á skrifstofu Mýrdalshrepps miðvikudaginn
17.10.2007 kl. 16:00 - 17:00
menning@sudurland.is
Austurvegi 56, 800 Selfossi
s: 480-8207
Gsm: 896-7511 |
|
|
|
|

Upp hefur komið
hugmynd um að vera með á heimasíðunni okkar dálk
sem ber heitið "Notað & Nýtt" (eða eitthvað
annað) og er dálknum ætlað að vera nokkurs konar
smáauglýsinga dálkur.
Það kemur aðeins fyrir að við viljum gjarna
selja/gefa, og eða óskum eftir notuðum/nýjum
hlutum. Því ekki að auglýsa það í
heimabyggð og athuga viðbrögðin.
Endilega látið vita hvort áhugi sé fyrir hendi.
Með bestu kveðju,
Inger Schiöth
|
|
|
|
|
Ball í Leikskálum
Laugardaginn 13. október
frá kl. 23:00 til 03:00
Hljómsveitin Kopar leikur
Aldurstakmark 16 ára
Umf. Drangur
|
|
|
|
 |
01.10.07
Nýbyggingar leynast víða í Víkinni
Áhugi um nýbyggingar hefur glæðst verulega
undanfarin ár í Mýrdalnum og eru listaverkin
víða.
Nokkrir ungir menn byggðu sér hús á lóðinni hjá
Auðbert og Vigfúsi Páli.
Til verksins var notað það efni sem við blasti;
girðingarstaurar, bretti, hellur ofl.
Þessir framkvæmdamenn voru: Ástþór Tryggvason,
Mikael og Benjamín Kjartanssynir og Breki Þór
Sveinsson. Mikið var upp úr því lagt að hafa
traustan grunn og þóttu hellurnar góður kostur.
Eitthvað hafði Kári komið við bygginguna áður en
tækifæri gafst til ljósmyndunar. |
 |
|
|
|
|
 |
Niðurtalning í
menningarveislu |
Í
kvöld |
|
|
|
|
Menningarveisla
í Vík
dagana 5.-
7. október 2007
Guðrún Gunnarsdóttir söngkona
með tónleika
Kristjana Stefánsdóttir og hljómsveit,
Hrafnaspark, Jóhanna Friðrika, Halldór Unnar,
Sigurður Sigurðarson fer með vísur og gamanmál og
......
Fréttatilkynning |
|
|
|
|
|
|
|
Vefstjóra vik.is barst góð ábending um að gaman
væri að þorpsbúar tækju sig saman og flögguðu í
tilefni Menningarhátíðar |
|
|
|
|
|
Á laugardag verður opið í
Leirbrot og gler
Lítið við því margt er þar að
finna
Rófusúpa býsna góð á boðstólum þá
er
Beint frá Þórisholti, ekkert
minna
Meira.......
|
|
 |
Feðgar með linsuauga
Feðgarnir Jónas og Sævar frá Fagradal í Mýrdal
eru með ljósmyndasýningu
í Víkurskála í Menningarveislu í Vík, dagana 5 –
7 október.
Jónas er bóndi í Fagradal og Sævar er nemi við
Háskólann í Reykjavík.
Á sýningunni eru 22 myndir.
Myndir eftir Sævar má sjá nánar á:
http://flickr.com/photos/saevarjo |
|
Ljósm.
Ragnhildur
Jónsdóttir
móðir Sævars |
|
|
|
|
|
|
 |
02.10.07
Grjóthrun
Eitthvað verður undan að láta í allri úrkomunni
undanfarið. Myndirnar voru teknar um
síðustu helgi þegar grjóthrun úr Konnahamri
lokaði veginum um Höfðabrekkuheiðar og inn í
Þakgil. |
 |
|
|
|
 |
Kvenfélögin styrkja
Félagsmiðstöðina OZ
Fulltrúar Kvenfélags Hvammshrepps
og Kvenfélagsins Ljósbrá heimsóttu
Félagsmiðstöðina OZ sl. fimmtudag og afhentu
börnunum og forstöðumanni veglegan styrk að
upphæð 140.000 kr.
Einnig buðu þær öllum í nýbakaðar pönnukökur og
mjólk. Styrkurinn verður notaður til að byggja
upp veglegt diskótek þar sem börn og unglingar
geta æft sig, bæði í söng og sem plötusnúðar
framtíðar og haldið eigin diskótek.
Ég vil fyrir hönd Félagsmiðstöðvarinnar OZ þakka
kvenfélögunum fyrir þennan frábæra styrk og
síðast en ekki síst fyrir alla hjálpina á
Undankeppni Söngkeppni Samfés sem haldin var með
glæsibrag í Vík 2.-4. febrúar 2007.
Victor Berg Guðmundsson –
Íþróttafulltrúi. |
|
|
|
Handknattleiksdeild Kópavogs
– Æfingabúðir í Vík
Helgina 7-9. september voru frískir strákar í 4.
flokki HK í æfingabúðum hérna hjá okkur í Vík.
Strákarnir æfðu tvisvar sinnum á dag í
íþróttamiðstöðinni og létu svo fara vel um sig í
Leikskálum og sundlauginni á frítímanum.
Þjálfarinn Finnbogi Grétar Sigurbjörnsson var
ánægður með æfingarnar og vel heppnaða helgi. |
 |
| |
|
|
|
|
|
|
 |
26.09.07
Fjórhjólaheimsókn
Myndir þessar voru teknar á
Mýrdalssandi og í ferð inn á Höfðabrekkuafrétt
af Jónasi Erlendssyni eina helgina þegar
fjórhjólaklúbbur frá Suðurnesjum kom í
helgarheimsókn í Mýrdalinn
Fleiri myndir... |
 |
|
|
|
 |
17.09.07
Vatnavextir
Jónas Erlendsson ljósmyndari með meiru
er duglegur við að senda okkur myndir og
texta til birtingar á heimasíðunni.
Miklir vatnavextir voru í Múlakvísl nú
um miðjan september en lón sem hafa
myndast m.a. í Rjúpnagili sprungu fram
og ollu vatnavöxtunum í ánni. Á
myndunum sem teknar voru á
föstudagskvöldið af Rjúpnagilsbrún í
austur yfir Rjúpnagil og Kötluskriðjökul
sést þar sem vatnið hefur sprengt sér
leið í gegn um jökulinn. |
 |
|
|
|
07.09.07
Haustmyndir
Myndirnar eru teknar í vikunni þegar Jónas í
Fagradal fór að leita kinda á Fagradalsheiði.
Fleiri myndir...... |
 |
|
17.09.07
Það snjóaði óvenju snemma....
Jónas tók þessar snjómyndir
laugardaginn 15. sept. s.l.
Fleiri myndir... |
 |
|
|
10.09.07
Vel heppnað
KÖTLUHLAUP
Laugardaginn 8. september var hið svokallaða
“Kötluhlaup” í Vík í Mýrdal haldið í þriðja
sinn.
Hlaupstjórinn Gylfi Júlíusson ræsti keppendur á
frjálsíþróttavellinum í mjög góðu veðri.
Hægt var að velja á milli vegalengda: 10km, 21km
eða 42 km.
Fjöldi þátttakenda á öllum aldri ýmist hjóluðu,
hlupu, gengu eða skiptust á að hlaupa eða hjóla
vegalengdir sem í boði voru.
Að sögn Victors Berg Guðmundssonar
íþróttafulltrúa er verið að breyta aðeins
upprunalegri mynd hlaupsins og er ætlunin að
byggja hlaupið upp og gera það að árlegum
viðburði í Víkinni.
Aðalmarkmið Kötluhlaupsins er að koma saman í
góðra félaga hópi og hreyfa sig í fallegu
umhverfi.
Victor vill sérstaklega þakka öllum þeim sem
komu að undirbúningi og framkvæmd Kötluhlaupsins
og vonast til að sjá sem flesta að ári.
Fleiri myndir.... |
 |
 |
 |
 |
|
10.09.07
Tekið úr svelti
Sigurður Hjálmarsson tók þessar stórskemmtilegu
myndir á dögunum þegar lambi var bjargað úr
svelti í Keldukömbum í Höfðabrekkuhálsi.
Á myndunum eru Karl Pálmason í Kerlingardal
eigandi lambhrútsins sem bjargað var og Eiríkur
Vilhelm Sigurðarson sem beitti þolinmæði og
fjallstöng við björgunina.
Myndaröðin..... |
 |
|

Ljósm.
Sig. Hjálmarsson |
10.09.07
Lukkupakkasala
Þessir hressu krakkar í Vík í Mýrdal stóðu að
lukkupakkasölu einn bjartan ágústdag í sumar.
Fengu þau aðstöðu við Víkurprjón en þar ræður
húsum afi Önnu Elísabetar, Þórir Kjartansson.
Þórhildur og Elísabet söfnuðu efni í pakkana hjá
einstaklingum og fyrirtækjum í Vík. Það
tók þær svo heilan dag að pakka öllu inn.
Ágóðanum, 8105 kr. afhentu krakkarnir svo
Rauða krossi Íslands, Víkurdeild til styrktar.
Á meðf. mynd eru f.v. Þórhildur Kristinsdóttir,
Anna Elísabet Jónínudóttir og Benjamín
Kjartansson sem aðstoðaði stúlkurnar við söluna. |
|
10.09.07
Biskupinn í heimsókn
Í vísitasíu biskups Hr. Karls Sigurbjörnssonar
komu þau í heimsókn í leikskólann Suður-Vík.
Biskupinn gaf börnunum kross og fékk afmælisbarn
dagsins, Vignir Jóhannsson, fyrsta krossinn.
Tinna Elíasdóttir og Birgitta Ingadóttir sungu
fyrir biskupinn og fengu vænt faðmlag frá honum
að launum.
Fleiri
myndir.... |
 |
|
|
UMHVERFISVIÐURKENNING MÝRDALSHREPPS
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd Mýrdalshrepps óskar eftir
tilnefningum til umhverfisviðurkenninga. Tilnefna skal garða,
fyrirtæki eða býli í Mýrdalshreppi sem þykja skara fram úr fyrir
snyrtimennsku. Tilnefningum má skila í þar til gerðan kassa í
Kjarval í Vík til 15 september 2007.
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd
|
|
|
 |
30.08.07
Fréttir frá
Tónskóla Mýrdælinga
Tónskólinn er nú að hefja sitt 27. starfsár.
Tónskólinn í Vík var stofnaður árið 1981 en
veturinn 1991-1992 var reglugerð skólans
endurskoðuð og nafni hans breytt í Tónskóla
Mýrdælinga. Á síðasta starfsári var skólastjóri
jafnframt eini kennari skólans en nú verður
breyting á því.
Tveir nýir kennarar koma til starfa í haust.
Það eru þau Baláz Stankowsky, fiðlu- og
gítarleikari, og Kitty Kovács, píanóleikari og
kórstjóri. Þau eru ungverjar og störfuðu í
fyrravetur við Tónlistarskóla Rangæinga. Baláz
og Kitty munu skipta með sér 50% starfi í
tónskólanum, auk þess að annast tónmenntakennslu
í grunnskólanum, starf organista Víkurkirkju og
kórstjórn kóranna í Skeiðflatar- og
Víkurkirkju.
Meira... |
|
20.08.07
Logandi
ský
Jónas Erlendsson sendi okkur þessar frábæru
ljósmyndir af logandi skýi. |
 |
 |
 |
|
|
KÖTLUHLAUP 2007
LAUGARDAGINN 8. SEPTEMBER - VÍK Í MÝRDAL
Laugardaginn 8.
september kl. 12:00 verður hið svokallaða
“Kötluhlaup” í Vík í Mýrdal.
Þetta er í þriðja sinn sem hlaupið er haldið,
fyrstu tvö árin var Vegagerdin í Vík
framkvæmdaraðili hlaupsins en nú hefur
Mýrdalshreppur tekið við framkvæmdinni og mun
gera það næstu ár. Vegalengdirnar eru 10 km, 21
km og 42 km.
Þátttakendur geta valið um hvort þeir vilja
hlaupa eða hjóla leiðina.
Hópar eða fyrirtæki geta líka tekið þátt sem
boðhlaups- eða boðhjólalið og skipt leiðinni á
milli sín.
Bílar munu fylgja þátttakendum.
Meira... |
|

Tekið af
sudurland.net |
22.08.07
Úr
dagbók lögreglunnar á Hvolsvelli
Alls voru 198 mál þessa vikuna á Hvolsvelli.
Fjöldi þeirra sem teknir voru fyrir of hraðan
akstur þessa vikuna voru 87 talsins.
Sérstakt umferðareftirlit hefur verið í umdæminu
og heldur hefur slegið á hraðann þessa vikuna.
Tíu umferðaróhöpp voru tilkynnt í vikunni, en
nokkuð er um að útlendingar missi stjórn á
ökutækjum sínum sem flest eru bílaleigubílar og
velti þeim. Tvær bifreiðar ultu á
Skaftártunguvegi og ein við Dyrhóley í vikunni.
Þarna er mestu um að kenna reynsluleysi í akstri
á malarvegum.
Meira.. |
|
|
Þakkir til
Austur- og Vestur - Skaftfellinga
Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, og
eiginkona hans
frú Kristín Guðjónsdóttir,
vísiteruðu Skaftafellsprófastsdæmi
dagana 18. –
25. ágúst sl.
Með þeim í för voru prófastshjónin í Vík,
Haraldur M. Kristjánsson og
Guðlaug
Guðmundsdóttir.
Biskup hóf för sína í Hoffellskirkju í Nesjum og
endaði í Víkurkirkju í Mýrdal.
Hvarvetna var okkur fagnað með einstakri hlýju
og gestrisni,
sem ég vil fyrir hönd okkar allra,
þakka af heilum hug.
Sú virðing og samheldni sem söfnuðirnir í
Skaftafellsprófastsdæmi sýndu
er sannarlega til
eftirbreytni.
Haraldur M. Kristjánsson
prófastur |

|
|
Mynd: Guðlaug
Guðmundsdóttir |
|
22.08.07
Landbúnaðarsýning á Sauðárkróki
var
haldin um síðustu helgi og okkar maður Jónas
Erlendsson sótti hana heim og tók þessar
myndir af því tilefni.
Sýningin var haldin bæði innan- og utandyra við
Reiðhöllina Svaðastaði. Stór vélasýning náði
yfir fjögur þúsund fermetra á útisvæði og inni í
reiðhöllinni kynnti fjöldi fyrirtækja vörur og
þjónustu fyrir landbúnaðinn. Meðal
dagskráratriða voru kálfa- og hrútasýningar, auk
þess sem landnámshænur og smalahundar komu
talsvert við sögu. Landbúnaðarráðherra, Einar K.
Guðfinnsson, flutti ávarp í setningarathöfn á
föstudeginum. Húsdýragarður og sveitamarkaður
voru starfræktir á sýningunni, kynning var á
handverki fyrr og nú, þar sem m.a. var sýnd
kembing, brugðning og spuni.
www.horse.is/landbunadarsyning |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|
|
|
Vísitasía biskups
Íslands í Skaftafellsprófastsdæmi
Biskup Íslands, herra Karl
Sigurbjörnsson vísiterar
Skaftafellsprófastsdæmi dagana 18. - 25. ágúst
nk.
Síðast vísiteraði herra Ólafur Skúlason,
þáverandi biskup Íslands,
Austur- og Vestur-Skaftafellssýslur, árið 1994.
Biskup heimsækir kirkjur og söfnuði og kynnir
sér kirkjulegt starf í Skaftafellssýslunum
báðum.
Í öllum kirkjum verða helgistundir eða
guðsþjónustur eftir atvikum, ásamt fundum
með sóknarprestum, sóknarnefndum og starfsfólki
safnaðanna.
Biskup heimsækir einnig dvalar- og
hjúkrunarheimili aldraðra þar sem þau eru og
vonast einnig eftir að fá að hitta börnin í
söfnuðunum,
ýmist í skólunum eða kirkjunum, eftir aðstæðum.
Með biskupi í för verður eiginkona hans frú
Kristín Guðjónsdóttir, prófastur
Skaftafellsprófastsdæmis, séra Haraldur M.
Kristjánsson í Vík
og eiginkona hans, frú Guðlaug Guðmundsdóttir.
Dagskrá... |
 |
|
|
Víkurprestakall í Mýrdal

Eins og kunnugt er
heimsækja biskupshjónin, herra Karl
Sigurbjörnsson og frú Kristín Guðjónsdóttir,
söfnuði, kirkjur og kapellu í Mýrdal,
föstudaginn 24. og laugardaginn 25. ágúst 2007.
Síðasti biskup sem hér vísiteraði var herra
Ólafur Skúlason, 1994.
Það er einlæg von mín sem sóknarprests ykkar, að
allir sem möguleika hafa á
noti tækifærið til að heilsa upp á
biskupshjónin.
Börn og unglingar eru sérstaklega boðin í
kirkjurnar því biskup hyggst ávarpa þau
sérstaklega. Hver veit nema því fylgi einhver
hlutur til minja um komu hans.
Sjón er sögu ríkari.
Væntanleg fermingarbörn næsta vors eru hvött til
að mæta ásamt foreldrum og forráðamönnum.
Biskup predikar á öllum kirkjunum og þjónar
fyrir altari ásamt sóknarpresti.
Séra Haraldur M. Kristjánsson
|
|

Reyniskirkja |

Skeiðflatakirkja |
Dagskrá |

Sólheimakapella |

Víkurkirkja |
|
10.08.07
Skin og skúrir
á Suðurlandi
"Það rignir ekki mikið í Mýrdalnum, svona að
meðaltali 2svar í viku, fyrst í þrjá daga og svo
í fjóra daga " sagði góður maður, fyrrum
sveitarstjóri okkar Mýrdælinga.
(fyrsti stafurinn í nafninu hans er Hafsteinn)
Vætan hefur nú ekki truflað okkur Mýrdælinga
mikið í sumar nema þá helst á ferðalagi.
Jónas Erlendsson ljósmyndari tók þessar ótrúlegu
myndir á dögunum þegar hann var á ferð um
Suðurland.
Fleiri
myndir... |
 |
 |
 |
|
09.08.07
Frískir
á fjórum
hjólaklúbbur Mýrdælinga fóru í góða ferð eina
helgina en þá fóru félagarnir inn á
Höfðabrekkuafrétt eftir smalavegi sem þar er og
upp á Mýrdalsjökul. |
 |
 |
 |
| |
|
|
|
|
Íþróttahátíð USVS
2007
Héraðsmót USVS
í frjálsum íþróttum verður
haldið á Víkurvelli helgina 18.- 19. ágúst.
Mótið er í umsjón Ungmennafélagsins Ármanns í
samstarfi við Ungmennafélagið Skafta.
Grill - og sundlaugarpartý
að lokinni keppni á laugardeginum.
Sjá nánar... |
|
 |
 |
 |
|
 |
09.08.08
Vefstjórinn er loksins kominn úr sumarleyfi
og hefur nú þegar úr ýmsum fréttum að moða og
kemur þeim á síðuna á næstu dögum.
Með bestu kveðju
Inger |
|
 |
11.07.07
Jóhann Vignir í 2. sæti í spjótkasti á landsmóti
UMFÍ
Jóhann Vignir Hróbjartsson kastaði spjótinu
55,11m sem tryggði honum 2. sæti á eftir Jónasi
H. Hallgrímssyni ÍBH (58,50) og á undan Erni
Daviðssyni HSK (54, 69).
Þetta er stórglæsilegur árangur hjá honum Jóa og
óskum við honum til hamingju og vonum að hann
haldi svona áfram.
Krakkarnir okkar í frjálsum njóta heldur betur
kunnáttu Jóa því hann hefur verið að þjálfa þau
í spjótkasti og kúluvarpi í sumar.
Björk Smáradóttir (16 ára) keppti í
langstökki og í 100m hlaupi.
Í forkeppninni stökk hún 4,99 m sem er
aðeins 1 cm frá viðmiðum fyrir úrvalshóp
unglinga en jafnframt er þetta héraðsmet.
Björk lenti síðan í 9. sæti í úrslitum og henni
tókst einnig að komast áfram í milliriðla í 100m
hlaupi. Það er ljóst að hér er um efnilega
frjálsíþróttakonu að ræða og óskum við henni til
hamingju með árangurinn
(unnið upp úr fréttum af
umf.vik.is)
|
 |
|
13.07.07
Mýrdælingar fá Orku
Þessa
daga er unnið hörðum höndum við að koma upp
Orkustöð í Vík sem verður formlega opnuð 21.
júlí n.k.
Þetta er 23. Orkustöðin og verður talsvert um
dýrðir á opnunarhátíðinni og gerða félagar úr
akstursklúbbnum 4x4 sig breiða á svæðinu.
|
 |
 |
 |
| |
|
 |
|
|
|
|
| |
 |
 |
 |
 |
09.07.07
Branduglumyndir Þóris N. Kjartanssonar í Vík
Í síðustu dagskrá þann 5. júlí s.l. var birt
myndaröð sem Þórir N. Kjartansson tók af
branduglu.
Í textanum segir m.a. ".... sendi blaðinu
meðfylgjandi myndir sem hann tók fyrir skemmstu
og sanna það að brandugla er farin að verpa í
Mýrdal. Í fuglabókum er þetta svæði
ekki merkt sem slíkt. Þórir hefur,
sem áhugamaður um fugla og fuglaljósmyndun haft
grun um þetta í nokkur ár en fyrst nú getað fært
á það sönnur. "En það sem mestu veldur um þetta
er að í lúpínubreiðunum á Mýrdals- og Skógasandi
er allt orðið fullt af músum og hún er
uppáhaldsfæða uglunnar. Þarna er líka
orðið krökkt af öðrum fuglum s.s.
þúfutittlingum, stelk, spóa og jafnvel rjúpu"
sagði Þórir í samtali við Dagskránna.
Þórir kom á skrifstofu hreppsins og vefstjórinn
hafði á orði hversu stórkostlegar myndirnar
hefðu verið og í samtalinu kom fram að Þórir
hefði legið æði lengi yfir þessari myndaröð og
sagði það nokkuð merkilegt hvernig uglan hagaði
sér í veiðinni. "Hún steypir sér yfir
bráðina, drepur hana snöggt og hefur sig til
flugs með bráðina í klónum. Þegar hún svo
nálgast hreiðrið lætur hún bráðina í gogginn til
að hafa fætur frjálsta til lendingar - Í þetta
skiptið virðast ungarnir ekki hafa verið svangir
svo uglan leit vel í kringum sig áður en hún kom
músinni fyrir undir lúpínu og faldi hana til
betri tíma". |
|
 |
06.07.07
Dýrin í
Hálsaskógi til Víkur
Víkarar eiga von á góðri heimsókn.
Leikhópurinn Lotta ætlar að kíkja í heimsókn til
Víkur laugardaginn 14. júlí næstkomandi
með sýninguna Dýrin í Hálsaskógi.
Hægt verður að heimsækja dýrin og verður
Hálsaskógur að þessu sinni staðsettur á
Syngjandanum þar sem Lilli klifurmús og félagar
bregða á leik.
Í uppsetningu Lottu fá dýrin að komast í sitt
rétta umhverfi en sýnt er undir berum himni.
Sýningin er rúmur klukkutími að lengd og er full
af glensi og fjöri fyrir alla fjölskylduna.
Sýningin hefst klukkan 16:00 og miðaverð er 1500
krónur fyrir fullorðna og 1000 krónur fyrir börn
í fylgd með fullorðnum.
Þar sem sýnt er utandyra er fólk hvatt til að
klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi til
að sitja á.
Þessi skemmtilega og lifandi sýning verður
einnig sýnd í Elliðaárdalnum flesta miðvikudaga
í sumar ásamt því að ferðast um allt landið og
nú er komið að Víkinni.
Bent er á að leyfilegt er að taka myndir.
Sjóvá býður börnum viðskiptavina sinna í Stofni
frítt á sýninguna. Til að þiggja boðið
þarf að framvísa boðskorti sem gildir fyrir 12
ára og yngri í fylgd með fullorðnum. Boðskortið
var sent viðskiptavinum í Stofni í júní s.l.
Miðapantanir eru í síma 699-3993 og á
dyrinihalsaskogi@gmail.com.
Frekari upplýsingar má finna á
www.123.is/dyrinihalsaskogi. |
 |
 |
|
29.06.07
Ákvörðun tekin um veglínu
Skipulags- og byggingarnefnd og
sveitarstjórn hafa nú ákveðið hvaða
veglína verði sett inn á
aðalskipulagstillögu. Sjá nánar
tengilinn Skipulagsmál. |
|
|
 |
20.06.07
Hátíðahöld 17. júní
fóru
fram í Víkinni í nokkrum næðingi.
Skrúðganga fór frá Víkurkirkju eftir
guðsþjónustu og var gangan í fylgd slökkviliðs
Mýrdalshrepps og var gengið fylktu liði á
íþróttavöllinn þar sem hátíðahöldin fóru fram.
Fjallkonan að þessu sinni var Margrét
Sigurgeirsdóttir.
Ungir og aldnir fóru í leiki og blásið var til
reipitogs milli annars vegar slökkviliðsins og
sveitarstjórnar og hinsvegar slökkviliðsins og
allra barna á svæðinu.
Sveitarstjórn vann fyrri umferð en varð að lúta
í lægra haldi þegar sveitarstjórnarmaður færði
sig um set yfir í slökkviliðið. Börnin unnu svo
sína umferð með miklum glæsibrag.
Boðið var upp á andlitsmálningu og var bílafloti
slökkviliðsins til sýnis.
Kvenfélag Hvammshrepps var með kaffisölu í
félagsheimilinu Leikskálum að loknum fjörugum
leikjum en þar stóð Tónskóli Mýrdalshrepps fyrir
tónleikum.
Fleiri myndir
....... |
 |
 |
|
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
25.06.07
Íþróttahátíð HSK og USVS
Íþróttahátíð HSK var haldin í Vík s.l. laugardag
í samstarfi við USVS. Þetta var í fyrsta
sinn sem héraðsmót HSK er haldið utan
sambandssvæðisins.
Keppt var í flokkum 14 ára og yngri í frjálsum
íþróttum og íþróttum fatlaðra.
Keppendur voru u.þ.b. 100 talsins þ.e. í kringum
80 frá HSK og 20 frá USVS.
Keppnin tókst vel í alla staði þrátt fyrir
stífan vind og moldrok sem gerði keppendum
erfitt fyrir.
Um kvöldið var fyrirhuguð kvöldvaka en var henni
frestað þar sem keppendur voru bæði sólbrunnir
og þreyttir eftir veðurbarninginn.
Fleiri myndir.... |
|
|
|
 |
20.06.07
Kvennahlaup ÍSÍ
Þessar myndir tók Jónas Erlendsson við
íþróttamiðstöðina í Vík þegar kvennahlaupið var
ræst.
2 vegalengdir voru í boði, 3 og 7 km.
Konurnar ýmist hlupu eða gengu annars vegar að
Uxafótalæk og hinsvegar að húsinu á
tjaldsvæðinu.
Þegar markinu var náð beið eftir konunum
verðlaunapeningur og svaladrykkur.
Gaman var að sjá hversu margar aðkomnar konur
tóku þátt í hlaupinu |
 |
 |
|
|
20.06.07
Útiklukka í sundlaugina
Þann 17. júní s.l. afhenti Kaupþing banki í Vík
veglega útiklukku sem setja á upp við
sundlaugina í Vík í Mýrdal.
Þetta eru gleðifréttir fyrir fastagesti
morgunsundsins.
Sveinn Pálsson sveitarstjóri Mýrdalshrepps
veitti klukkunni viðtöku úr hendi Þorgerðar
Einarsdóttur þjónustustjóra Kaupþings banka. |
 |
|
|
|

Ljósm.
Sjóvá
Ljósm. Sveinn P. |
08.06.07
Nýr
tækjabíll slökkviliðsins
Á
dögunum áskotnaðist slökkviliði okkar Mýrdælinga
vegleg gjöf frá Sjóvá. Þ.e. tækjabíll er verður
notaður til að ferja mennina í útköll, hvort
heldur sem er í bruna eða á slysstað, og eru
þeir nú fljótari á staðinn. Á myndinni
tekur Kristján Kristjánsson slökkviliðsmaður við
bifreiðinni úr höndum Helga Bjarnasonar
aðstoðarforstjóra Sjóvá en Kristján sá um
samninga við Sjóvá f.h. slökkviliðsins.
Þetta hefur lengi verið draumur okkar manna sem
eru nú heldur kátir.
Slökkviliðsmenn hafa nú þegar hafið söfnun fyrir
tækjaklippum sem er grunnbúnaður og kostar á
bilinu 1200 - 1400 þús. krónur
Söfnunarreikningur okkar manna er 0317-13-701200
kt: 461283-0399
Í vikunni stóð bíllinn við skrifstofu
Mýrdalshrepps, sem ekki er í frásögur færandi
nema af því að inn á skrifstofuna komu nokkrir
útlendingar í leit að heilsugæslu eða
sjúkrahúsi.
Starfsfólk skrifstofunnar er semsagt við öllu
búið þessa sumardaga. |
|
|
|
|
29.05.07
Leiðarlýsing, Vestur-Skaftafellssýsla
Á árinu 1980 tóku nokkrir áhugamenn sig
til og gáfu út bækling undir nafninu
Leiðarlýsing, Vestur-Skaftafellssýsla.
Í bæklingnum er lýst öllum helstu leiðum
og kennileitum í sýslunni með stuttu
ágripi af sögu og náttúrufari.
Bæklingnum fylgdi kort frá Landmælingum
Íslands og var útgáfan fjármögnuð með
auglýsingum.
Gylfi Júlíusson þáverandi
vegaverkstjóri hafði frumkvæði að
útgáfunni og valdi hann með sér menn sem
hann taldi gagnlega verkefninu. Það
voru þeir Sigþór Sigurðsson
símaverkstjóri sem þekkti afar vel
til svæðisins alls frá starfi sínu,
Jón Valmundsson brúarsmiður
sem einnig hafði starfað um alla
sýsluna, Björgvin Salómonsson
skólastjóri sem valinn var vegna
ritfærni og Guðmundur Elíasson en
frændi hans átti prentsmiðju.
Meira...
Nokkrar myndir frá
forsetaheimsókninni.... |
 |
Heiðursmennirnir og
frumkvöðlarnir f.v. Sigþór Sigurðsson,
Jón Valmundsson, Björgvin Salómonsson,
Gylfi Júlíusson og Guðmundur Elíasson. |
 |
f.v. f.h. byggðasafnsins
að Skógum Ólafur Eggertsson, Sveinn
Pálsson sveitarstj. Mýrdalshrepps, Jóna
Sigurbjarts-dóttir f.h. Skaftárhrepps og
Björgvin Salómonsson. |
|
|
 |
HEILSUHÓPUR 2007
Sumarátaksnámskeið
23. maí - 27. júní
Meira... |
 |
|
21.05.07
Lokun
Dyrhólaey er lokuð fyrir allri umferð til 25.
júní. |
 |
|
|
21.05.07
Ljósmyndasýning
Fjölmenni var við opnun sýningar Fókuss,
"Mannlíf í Fókus", í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur laugardaginn 19. maí s.l.
Á sýningunni eiga þeir feðgar Jónas
Erlendsson og Sævar Jónasson átta
myndir.
Páll Guðjónsson, formaður sýninganefndar
ávarpaði gesti og boðið var upp á veitingar.
Rannveig Sigurgeirsdóttir, gjaldkeri
félagsins, kvaddi sér hljóðs og þakkaði
sýningarnefnd fyrir mikla vinnu við
undirbúning sýningarinnar með því að afhenda
Páli Guðjónssyni, Sæþóri L. Jónssyni og
Helga Bjarnasyni blóm.
|
 |
|
 |
21.05.07
Stórbingó Drangs
Stórbingó Drangs
var haldið í Leikskálum í
Vík í síðustu viku.
Fjölmenni var á skemmtilegu
kvöldi og stjórnuðu Þorgerður Einarsdóttir og
Sædís Íva Elíasdóttir bingóinu eins og
herforingjar.
Vinningar voru af stærri gerðinni s.s. flug og
helgardvöl í Vestmannaeyjum, helgardvöl í Reykjaskógi, 3 rétta
máltíð fyrir 2, gjafabréf og körfur, og
margt fleira.
Eins og svo oft gerist raðast vinningar oft á
sömu fjölskyldurnar, og var þetta bingó þar
engin undantekning og fór stór hluti vinninga
til stórfjölskyldunnar í Þórisholti,
fjölskyldu Kristínar Einarsdóttur og einnig
hafði Solveig Sigr. Gunnarsdóttir vinninga
aðdráttarafl. |

Fleiri
myndir.... |
|
 |
Reyniskirkja í Mýrdal
Guðsþjónusta verður í Reyniskirkju í Mýrdal á
Þrenningarhátíð,
sunnudaginn 3. júní 2007 kl. 14:00 sem
einnig er sjómannadagurinn
Organisti er Kristín Björnsdóttir
Almennur safnaðarsöngur
Sóknarbörn Reyniskirkju, aðrir Mýrdælingar og
gestir hvött til að mæta
Upplifum saman notalega stund í kirkjunni á
helgum degi |
| |
|
|
16.05.07
Útskriftarnemar í Suður-Vík
Föstudaginn 11. maí s.l. var útskrift
elstu nemenda leikskólans í Suður - Vík sem
þetta árið eru þrír.
Dagurinn var
tekinn snemma og Byggðasafnið í Skógum
heimsótt þar sem Þórður Tómasson tók á móti
þeim og sýndi þeim ýmislegt markvert.
Í hádeginu var farið í hamborgaraveislu í
Víkurskála og að því loknu var farið í
leikskólann aftur þar sem formaður
Víkurdeildar Rauða krossins, Sveinn
Þorsteinsson og Sigurður B. Baldvinsson
lögreglumaður mættu til að afhenda
útskriftarnemunum reiðhjólahjálma að gjöf
frá Rauða krossinum og fræða þá um notkun
þeirra.
Nemendurnir voru síðan útskrifaðir af
deildarstjóra sínum á Bolabás, Höllu
Ólafsdóttir sem eytt hafði skemmtilegum degi
með þeim.
|
 |
 |
|
21.05.07
Sá hörmulegi atburður átti sér stað s.l.
laugardag að 75 ára gömul kona drukknaði í
Reynisfjöru.
Sjá nánari umfjöllun á
mbl.is
Ekki eru nema nokkrir dagar síðan
björgunarsveitin í Vík fékk beiðni um að setja
upp viðvörunarskilti við Reynisfjöru. Verkefnið
var rétt komið af stað þegar hið hörmulega slys
varð á laugardag. |

Ljósm. Ragnhildur Jónsdóttir |
 |
|
|
|
 |
15.05.07
Gjafir
til Hjallatúns
Föstudaginn 11. maí s.l. var dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Hjallatúni í Vík gefnar 2
súrefnissíur. Önnur stór til að staðsetja í
herbergi sjúklings, og svo minni sem hægt er að
ferðast með um hýbýli og einnig í bíl.
Í minni súrefnissíunni er hleðslubatterí sem
hægt er að hlaða inni og einnig með
tengingu í kveikjara í bifreiðum.
Þetta gerir þaða að verkum að einstaklingur sem
þarf stöðuga súrefnisgjöf, hefur mun meira
frelsi til athafna og ferðalaga en áður var
mögulegt, og þarf ekki að óttast að súrefni
klárist.
Gefendur voru: afkomendur Margrétar Jónsdóttur
og Tómasar Jónssonar,
Lionsklúbbhurinn Suðri, Rauði Kross Íslands
Víkurdeild, Kvenfélagið Ljósbrá, Kvenfélag
Dyrhólahrepps og Kvenfélag Hvammshrepps. |
 |
 |
|
14.05.07
Á förnum
vegi
Í
morgun hljóp skrifstofumaður hreppsins út í góða
veðrið til að fá samþykki leikskólastjórans, sem
var á göngu með nokkur leikskólabörn, á nokkrum
reikningum.
Ekki er annað hægt að sjá en að skrifstofustarf
sé unnið á ýmsum stöðum. |

Ljósm.
Guðný Guðnadóttir |
|
|
|
Vinnuskóli sumarið 2007
Unglingar fæddir 1991, 1992, 1993
og 1994 með lögheimili í Mýrdalshreppi, eiga
rétt á vinnu í vinnuskólanum í sumar.
Unnið verður virka daga frá 08:30 - 12:00 og
13:00 - 16:30.
Unglingar fæddir 1994 vinna 4 tíma á dag.
Skráning er á skrifstofu hreppsins virka daga
frá kl. 10:00 - 12:00 og
13:00 - 15:00 til 25. maí 2007.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni eða í
síma 487-1210.
Sveitarstjóri |
 |
|
 |
 |
10.05.07
Skilti
lagað
Mánudagskvöldið
8. maí s.l. fóru nokkrir félagar úr
björgunarsveitinni Víkverja héðan úr Vík í
nokkuð óvenjulega ferð. Var hún farin
til að laga og færa til skilti sem hafði verið
komið upp af lögreglunni við bílaplanið að
Sólheimaskriðjökli. Við jökulinn hefur myndast
íshellir þar sem jökulsáin hefur runnið undan
jöklinum.
Að sögn Einars Bárðarsonar formanns Víkverja
skoðuðu félagarnir einnig umræddan íshelli.
Eins og sést á sumum myndunum innan úr hellinum
er hann ekki mjög þykkur á köflum og kemur
birta mjög vel í gegnum ísveggina þar sem þeir
er hvað þynnstir.
Talsverð hætta er á hruni úr hellismunnanum og
er bara spurning hvenær æði stórt stykki fyrir
ofan munnann hrynur niður...
Þeir félagar gengu frá skiltinu á nýjan stað
þannig að enginn ætti að komast inn í hellinn án
þess að sjá merkið við hellismunnann.
Fleiri myndir.... |
 |
 |

Ljósmyndari: |

Einar Bárðarson |
|

Hreinsunardagur í Vík
Þriðjudaginn 22. maí nk.
verður tekið til á opnum svæðum í Vík.
Mæting við íþróttamiðstöðina kl. 19:30.
Hvetjum lóðarhafa, bændur og búalið til að
laga til á lóðum / búum sínum.
Hreint land – fagurt land.
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd
Mýrdalshrepps.
|
|
|
 |
Helgistund á Hjallatúni í Vík
Helgistund verður á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Hjallatúni,
uppstigningardag, fimmtudaginn 17. maí n.k. kl. 15:00
Sóknarprestur |
|
|

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju í Mýrdal,
sunnudaginn 20. maí n.k. kl. 14:00
Léttir sálmar og söngvar við allra hæfi
Kórar Víkur- og Skeiðflatarkirkna syngja undir
stjórn Önnu Björnsdóttur
Páll Rúnar Pálsson syngur einsöng í einu
lagi
Undirleikarar á hljóðfæri eru Kristín
Björnsdóttir á orgel, Anna Björnsdóttir
á gítar, Hróbjartur Vigfússon á gítar og
Kristinn Jóh. Níelsson á gítar og fiðlu.
Fjölmennum til kirkju og eigum þar skemmtilega
og notalega stund
áður en sumarleyfin hefjast að fullum krafti.
Sóknarprestur |
|
|
Bingó!
Stórbingó
Drangs verður í Leikskálum fimmtudaginn 17.
maí kl. 20:00.
Nánar..... |
|
|
Vortónleikar
Tónskóla Mýrdælinga verða haldnir
í leikskálum miðvikudaginn 16. maí kl. 20:00
Fjölbreytt efnisskrá
Aðgangur ókeypis
Allir hjartanlega velkomnir
|
|
|
|
|
|
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
02.05.07
Raularinn
Raularinn var haldinn í ellefta sinn þann 30.
apríl s.l. á Höfðabrekku.
Undirbúningur umboðsmanna flytjenda hófst
nokkrum dögum áður með skiltum og ýmsum
skilaboðum.
Raularadaginn sjálfan var svo mikið húllumhæ
víða um þorpið. Umboðsmenn heimsóttu
vinnustaði og kynntu sína sig og sína. Hæst bar
þó raularakaffi Kaupþings-banka kvenna.
Víkarar tala alltaf um að kökuborðið líti út
eins og "meðal fermingarveisla"
Öll þessi ellefu ár hafa banka-konur bakað og
staðið fyrir raularakaffinu og allt á eigin
kostnað. Bankinn býður upp á drykkjarföng
þ.e. kaffi og safa.
Heimsóknir í bankann á þessum degi undanfarin ár
hafa farið í 180 manns en sló þó öll aðsóknarmet
þetta árið, en yfir 200 manns fengu sér kökur og
kaffi hjá þeim. Raularinn var svo haldinn
með pompi og prakt um kvöldið.
Umfjöllun um Raularann sjálfan kemur svo með
myndum fljótlega.
Fleiri myndir... |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
| |
 |
 |
02.05.07
Súpufundur
Jónas í Fagradal var á ferðinni þegar
frambjóðendurnir í Suðurkjördæmi, nafnarnir Árni
Mathiesen, fjármálaráðherra og Árni Johnsen í 2.
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins buðu upp á
súpufund í hádeginu 26. apríl s.l. á Stöndinni í
Víkurskála.
Milli 40 og 50 manns mættu til fundarins |

Ljósm. Jónas Erlendsson |
|
|
25.04.07
Dagur
umhverfisins
Dagur umhverfisins er haldinn hátíðlegur 25.
apríl ár hvert, á fæðingardegi
Sveins
Pálssonar læknis í Suður-Vík. Sveinn (1762-1840) var
fyrsti íslenski náttúrufræðingurinn og sá sem einna
fyrstur hvatti til aðgerða gegn skógareyðingu á Íslandi
og orðaði þá hugsun sem nú kallast sjálfbær þróun. Dagur
umhverfisins verður að þessu sinni tileinkaður hreinni
orku og loftslagsmálum.
Margvíslegan fróðleik um umhverfismál má finna á vef
Námsgagnastofnunar, vef
Staðardagskrár 21, og vef
Orkuseturs.
|
|



 |
23.04.07
Það er
komið sumar....
Sumardagurinn fyrsti skartaði sínu fegursta
þegar
Björgunarsveitin Víkverji og Foreldrafélag
Leikskólans Suður-Víkur stóðu fyrir opnu húsi hjá
Björgunarsveitinni.
Ungir sem aldnir skoðuðu tæki og tól
sveitarinnar og mátti sjá þar nokkra upprennandi
björgunarsveitarmenn og konur.
"Hin ýmsu útköll" heyrðust af vörum barnanna sem
"björguðu" hvert öðru úr miklum háska.
Fleiri myndir....
“Fjöldi fólks kom við hjá okkur og þáði kaffi og
vöfflur” sagði Einar Bárðarson formaður
Víkverja. Einnig fengum við óvænta gesti.
Varðskipið Týr var fyrir utan Víkina og okkur
datt í hug að bjóða þeim kaffi og það komu 5
skipverjar úr áhöfn Týs í land á léttbáti, og
æfðu brimlendingu við Vík, og kíktu á okkur. Við
þökkum þeim fyrir komuna, það var mjög gaman að
fá þau.
”Dagurinn heppnaðist í alla staði mjög vel.
Veðrið lék við gesti og börnin nutu sín í
veðurblíðunni. Börnunum var boðið að fara á
hestbak, andlitsmáling frá Félagsmiðstöðinni OZ
var á staðnum og tæki Björgunarsveitarinnar voru
til sýnis.
“Við fengum um 130 gesti til okkar í kaffi og
vöfflur og það teljum við mjög gott” sagði
Einar. Við viljum þakka foreldrafélaginu og
Leikskólanum í Suður-Vík mjög gott samstarf, en
mikil samvinna hefur verið milli
Björgunarsveitarinnar og Leikskólans í vetur.
Börnin eru farin að þekkja okkur og merki
Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, það er
mikilvægt fyrir okkur öll” sagði Einar að lokum. |



 |
|
23.04.07
Nýr
vefur umf Drangs og Dyrhólaeyjar
Umf Drangur
og Dyrhólaey hafa opnað sameiginlega heimasíðu
félaganna
http://umf.vik.is/
Kristínu Marti er ýmislegt fleira til lista lagt
annað en að kenna og þjálfa því hún hefur vandað
mjög til heimasíðunnar og nýtur fulltingis
Guðnýjar Sigurðardóttur.
Til hamingju umf Drangur og Dyrhólaey |
 |
|
23.04.07
För
Á dögunum var grein um För í aprílhefti
tímaritsins ameríska Sculpture.
Greinin....
Steinunn Þórarinsdóttir var síðan á ferðinni með
ameríska kvikmyndagerðarmenn sem voru að mynda
verkið. |

Ljósm. Þórir Kjartansson |
|
|
 |
 |
|
30.04.07
Þessi umboðsmaður bauð upp á sáluhjálp að
Sigtúni 2 sem er sýslumannshúsið !!
Gríðarleg umferðarteppa myndaðist í Sigtúninu,
öðrum íbúum til mikillar hrellingar !!! |
|
23.04.07
Spennan magnast
þessa dagana í Mýrdalnum en þann 30. apríl nk.
fer fram söngvakeppnin Raularinn á Hótel
Höfðabrekku. Þetta er í 11. skipti sem þessi
skemmtilega keppni fer fram og alltaf er hún
haldin á þessum degi.
Sunnlenska tók á dögunum hús á Sveini Pálssyni
sveitarstjóra og gítarleikara
hljómsveitarinnar Granít.... |

|
|
|
|
|

Útvarp
Raularinn
FM 103,5
Útsendingin verður n.k. laugardag, sunnudag og
mánudag og næst aðallega í Vík
|
|
|
|
|

18.04.2007
Opið hús hjá OZ
Á dögunum var haldin samkoma í Félagsmiðstöðinni
OZ í Vík, og var tilefnið tímamót í
starfseminni, því þá lauk formlega þátttöku
Víkurdeildar Rauða krossins í rekstrinum.
Dagskrá kvöldsins var fjölbreytt og
menningarleg. Ávörp voru flutt og síðan
myndasýningar og tónlistaratriði í umsjá
ungmenna. Mikið líf var í húsinu þetta kvöld, og
ungir sem aldnir tóku þátt, hver á sinn hátt,
enda aðstaða öll til mikillar fyrirmyndar.
Meira... |
|
|
Ný stjórn umf
Drangs
var kosin
á aðalfundi Drangs sem haldinn var í Leikskálum
3. apríl s.l.
Nýja stjórn skipa:
Sveinn Þorsteinsson formaður
Kristín Marti Kasparsdóttir gjaldkeri
Elísabet Magnúsdóttir ritari
Meðstjórnendum Páll Tómasson og
Pálmi Kristjánsson |
|
Vaxtarsamningur Suðurlands og Vestmannaeyja
Opinn kynningarfundur
Vaxtarsamningur Suðurlands og Vestmannaeyja
heldur opinn kynningarfund um mögulegt
klasasamstarf og þátttöku
í Vaxtarsamningi
Þriðjudaginn 24. apríl kl. 15:30 á Hótel
Höfðabrekku
Dagskrá:
Kynning á Vaxtarsamningi Suðurlands og
Vestmannaeyja
Steingerður Hreinsdóttir, Verkefnastjóri,
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands
Klasar-tækifæri til samstarfs
Elvar K Valsson, Verkefnastjóri, Impra
nýsköpunarmiðstöð
Hugarflug og skilgreining verkefnahugmynda
Sævar Kristinsson, framkvæmdastjóri, Netspor
Markmiðið er að heimamenn kanni ný tækifæri
sem opnast hafa til klasasamstarfs
í tengslum við Vaxtarsamning Suðurlands og
Vestmannaeyja
Allir áhugasamir um samvinnu eru hvattir til
að mæta
|
|
|

Víkurkirkja í Mýrdal
Fermingarguðsþjónusta
verður í Víkurkirkju
sunnudaginn 22. apríl 2007
kl. 13:30
Kórar Skeiðflatar- og Víkurkirkna syngja
undir stjórn Önnu Björnsdóttur
Organisti er Kristín Björnsdóttir
Haraldur M. Kristjánsson
sóknarprestur |
Fermdir verða:
Arnar Snær Ágústsson
Suðurvíkurvegi 10 870 Vík
Hlynur Guðmundsson
Bakkabraut 4, 870 Vík
Viktor Smári Sigurjónsson
Mánabraut 12, 870 Vík
|
|
|
Byggðasafnið í Skógum - sumardagurinn fyrsti
2007
Hin
árlega söngstund í Skógum verður sumardaginn
fyrsta,
fimmtudagskvöldið 19. apríl n.k. kl. 20:30
Dagskráin hefst með stuttri helgistund í
Skógakirkju
sem séra Haraldur M. Kristjánsson prófastur í
Vík annast.
Síðan verður komið saman í gamla
barnaskólahúsinu frá Litla-Hvammi í Mýrdal, þar
sem gömul ættjarðar- og sumarlög verða leikin og
sungin.
Kristín Björnsdóttir organist annast undirleik
og stjórnar almennum söng viðstaddra, með
kórfólk úr Mýrdal og undan Eyjafjöllum, í broddi
fylkingar.
Eftir að raddböndin hafa verið þanin, bjóða
safnið og kórfélagar upp á
kaffi og pönnukökur í Samgöngusafninu.
Mikilvægt er að allir sem unna söng í sumarbyrjun, láti sig ekki vanta
á þetta árvissa söngkvöld í Skógum.
Fjölmennum
Aðstandendur |

mynd tekin af heimasíðu
skogasafn.is |
| |
|
18. apríl 2007
Dósasöfnun
Í dag síðasta vetrardag ætla nemendur í 7. - 9.
bekk að vera á ferðinni í Mýrdalnum og safna
flöskum og dósum.
Andvirðið leggja þau í væntanlega námsferð til
Danmerkur 6. - 14. september.
|
 |
|
|
|
18. apríl 2007
Víkverji
og foreldrafélag leikskólans
Á
morgun, sumardaginn fyrsta, ætla
björgunarsveitin Víkverji og foreldrafélag
leikskólans Suður-Víkur að leiða saman hesta
sína og vera með opið hús hjá björgunarsveitinni
kl. 14:00
Boðið verður upp á andlitsmálningu fyrir börnin
og þau sem það vilja geta fengið að fara á
hestbak.
Tæki og tól björgunarsveitarinnar verð til sýnis
og ætlar Víkverji að bjóða upp á kaffi og með
því.
Fögnum
sumri |
 |
|
Gleðilegt sumar |
|
18. apríl 2007
Meistaraflokkur karla HK æfir í Vík í Mýrdal
Gunnar Guðmundsson þjálfari meistaraflokks karla
HK leggur land undir fót í fyrramálið, að morgni
sumardagsins fyrsta, og heldur í æfingabúðir til
Víkur í Mýrdal. Þetta er í annað sinn á þremur
árum sem slík æfingaferð er farin til Víkur og
telur Gunnar að hér sé fínasta aðstaða til
æfinga og dvalar með fótboltahópa.
"Við vorum í Vík fyrir tveimur árum og vorum
mjög ánægðir með alla aðstöðu þar og þær
móttökur sem við fengum," sagði þjálfarinn.
Gunnar kemur með stóran hóp austur, 26-28
leikmenn, eða alla þá sem skipa æfingahópinn um
þessar mundir.
Að sögn Victors Berg æskulýðs- og
tómstundafulltrúa Mýrdalshrepps hafa nú þegar
margir hópar staðfest komu sína í æfingabúðir í
apríl og maí.
Unnið af vef
hk.is |
 |
|
Gunnar
Guðmundsson |
|
|
|
 |
27.03.2007
Ársþing USVS
Um fjörutíu manns sátu 37. ársþing USVS sem
haldið var á Ströndinni í Vík 25. mars sl.
Á þinginu kom fram að mjög blómlegt starf hefur
verið hjá sambandinu og aðildarfélögum þess á
síðasta ári.
Sæmundur Runólfsson veitti Steinu
Harðardóttur, fráfarandi stjórnarmanni USVS,
starfsmerki UMFÍ og Engilbert Olgeirsson veitti
þeim Sædísi Ívu Elíasdóttur, fráfarandi
formanni USVS og Þorgerði Einarsdóttur,
fráfarandi gjaldkera og framkvæmdastjóra USVS
silfurmerki ÍSÍ.
Harpa Ósk Jóhannesdóttir var kjörin
Íþróttamaður USVS 2006 og Arnar Snær
Ágústsson var kjörinn Efnilegasti
íþróttamaður USVS 2006.
Stjórn sambandsins veitti Kristínu Marti
Kasparsdóttur, frjálsíþróttakonu og
þjálfara, sérstaka viðurkenningu Eldhugi USVS
2006 fyrir frábært starf í frjálsum
íþróttum.
Meira.... |
 |
|
|
Dósasöfnun í Mýrdalshreppi
Vetrartiltekt!
Er ekki tilvalið að
taka til fyrir sumardaginn fyrsta??
Væntanlegir Danmerkurfarar þ.e. krakkarnir í
7.,8. og 9. bekk Grunnskóla Mýrdalshrepps verða
á ferðinni miðvikudaginn 18. apríl n.k. og losa
ykkur við allar þær dósir sem þið viljið af
hendi láta
Með fyrirfram þakklæti
Safnarar
 |
 |
|
|

Skeiðflatarkirkja í Mýrdal
Fermingarguðsþjónusta
verður í Skeiðflatarkirkju
sunnudaginn 15. apríl 2007
kl. 13:30
Kórar Skeiðflatar- og Víkurkirkna syngja
undir stjórn Önnu Björnsdóttur
Organisti er Kristín Björnsdóttir
Haraldur M. Kristjánsson
sóknarprestur |
Fermd verða:
Bergþór Bergsson
Vestri-Pétursey, 871 Vík
Elvar Orri Jóhannsson
Brekkum, 871 Vík
Gunnar Ólafsson
Giljum, 871 Vík
Gunnþór Bergsson
Vestri-Pétursey, 871 Vík
Ólöf Lilja Steinþórsdóttir
Ási, 871 Vík
|
|

Einar Guðni að smala |
|

Skýjahöll yfir Vík |

Loðnuveiðar |
|
|
Aðalfundur
umf. Drangs
þriðjudaginn 3. apríl kl. 20:00
í Leikskálum
DAGSKRÁ:
1.
Kjör fundarstjóra og
ritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar félagsins
4. Félagsgjöld
5. Kosningar
6. Sameining Drangur/Dyrhólaey
7. Önnur mál
Stjórnin
Félagar fjölmennum á fundinn
|
|
|
|
Guðsþjónustur í
Víkurprestakalli í Mýrdal
bænadaga og páska 2007
Kæru sóknarbörn og þeir sem
staddir verða í Vík á páskum.
Eftir guðsþjónustuna í Víkurkirkju á
páskadagsmorgni kl. 08:00 er öllum viðstöddum
boðið að þiggja morgunkaffi á prestssetrinu að
Ránarbraut 7 í Vík
Hlökkum til að hitta ykkur
Haraldur M. Kristjánsson
sóknarprestur
Fjölmennum til kirkju á mestu hátíð
kristninnar |

Gleðilega
páska |
|
|
|
|
02.04.2007
Jónas lætur fólk hlaupa 1. apríl
Jónas ljósmyndari í Fagradal tók sig til og
lét mannskapinn hlaupa apríl.
Eftirfarandi texti birtist:
"Eins og sjá má á myndunum sem ég tók í
morgun þá er komið mikið hlaupvatn í
Múlakvísl og eru vegagerðarmenn hræddir um
að þjóðvegur 1 þoli ekki álagið og fari í
sundur austan við Múlakvíslar-brúnna í dag.
Mikil brennisteinslikt er af ánni.
Kv Jónas
Erlendsson"
Síðan birtist eftirfarandi texti:
"Vegna
óvenju mikilla viðbragða í morgun ætla
ég að minna á að í dag er 1. apríl og
það sem ég sendi frá mér í morgun er
aprílgabb, myndirnar
sem ég sendi með eru frá Skaftárhlaupum
síðustu ára.
Kveðja
Jónas Erlendsson"
|
|
Apríl-gabb |
 |
 |
 |
|

 |
19.03.2007
Mýrdalshreppur og Sjóvá-Almennar
tryggingar hf., undirrita vátryggingasamning
Vátryggingasamningur var undirritaður
nýverið milli Mýrdalshrepps og
Sjóvár-Almennra trygginga hf.
Leitað var tilboða í tryggingar
sveitarfélagsins og reyndist tilboð
Sjóvár-Almennra hagstæðast. Gildistími
samningsins er 5 ár.
Vátryggingasamningurinn tekur til allra
trygginga s.s. brunatrygginga,
húseignatrygginga, húseigendatrygginga,
lausafjártrygginga, ábyrgðartrygginga
bifreiðatrygginga og slysatrygginga
starfsmanna og skólabarna.
Á myndunum sjáum við Jón Hróbjartsson
viðskiptastjóra hjá Sjóvá-Almennum og Svein
Pálsson sveitarstjóra undirrita og handsala
samninginn.
|
|
 |
Kirkjuskólinn í Mýrdal
Síðasta
samvera kirkjuskólans í Mýrdal á þessum
vetri,
verður í grunnskólanum í Vík
laugardaginn
31. mars 2007, kl. 11:15 - 12:00.
Fjölmennum og
kveðjum Engilráð andarunga
og félaga
hennar.
Sóknarprestur
|
 |
|
 |
|
Fréttatilkynning 15. mars 2007
Heimili og skóli óskar eftir
tilnefningum til foreldraverðlauna
Foreldraverðlaun Heimilis og
skóla – landssamtaka foreldra verða veitt 15.maí
2007 í 12. sinn. Að auki verða veitt
hvatningarverðlaun til einstaklinga og skóla ef
tilefni þykir til.
Meira..... |
|
|
Aðalfundur Búnaðarfélags Dyrhólahrepps
verður haldinn
þriðjudagskvöldið 27. mars
kl. 20:30
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Stjórnin |
|
|
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN OZ

Þri. 27. mars 2007 í Leikskálum
kl. 19:00-21:00
Samstarfsverkefni Mýrdalshrepps
og RKÍ Víkurdeildar um rekstur
félagsmiðstöðvarinnar OZ lauk um áramótin. Af
því tilefni viljum við þakka RKÍ fyrir
samstarfið og bjóða alla hjartanlega velkomna í
opið hús þriðjudaginn 27. mars.
Dagskrá hefst kl. 19:00
Vöfflukaffi OZ og sjoppan opin
|
 |

FÉLAGSMIÐSTÖÐIN OZ
http://oz.xblogg.is
Sími: 487 – 1210. |
 |
|
Fréttatilkynning
Suðurland – framtíðarlandið
Málþing á Hótel Selfoss/Selfossbíó
30. mars
nk.
Föstudaginn 30. mars nk. verður haldið
málþing á vegum Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga í samvinnu við
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, og
Vinnumálastofnun á Suðurlandi.
Á málþinginu verður fjallað um framtíð
Suðurlands, þau tækifæri sem svæðið býður
upp á og hvernig best sé að nýta þau.
Meðal fyrirlesara verða: Andri Snær
Magnason rithöfundur, Friðrik
Sophusson forstjóri Landsvirkjunar,
Friðrik Pálsson formaður stjórnar
Vaxtarsamnings Suðurlands, Sigurður
Jóhannesson Hagfræðistofnun H.Í., Unnur
Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri
Rangárþings eystra, Jón Hjaltalín
Magnússon verkfræðingur, Gunnar
Steinn Pálsson framkvæmdastjóri,
Sveinn Aðalsteinsson prófessor og
Runólfur Ágústsson fyrrv. rektor.
Málþingið fer fram í stærri sal Selfossbíós
og stendur frá kl. 11.00 – 16.00.
|
|
|
Orðsending
Vegna lækkunar virðisaukaskatts á matvælum úr
14% í 7% þann 1. mars sl. lækkar verð á
máltíðum í mötuneyti Grunnskóla Mýrdalshrepps
frá 1. mars og verður sem hér segir:
Nemendur í 1.-4. bekk greiða 187 kr.-
fyrir máltíðina.
Nemendur í 5.- 10. bekk og starfsmenn
greiða 210.- fyrir máltíðina
Vík í Mýrdal 9. mars 2007
Helga Halldórsdóttir
skrifstofustjóri |
 |
|
|
Ársþing
USVS
Verður haldið
sunnudaginn 25. mars. á Ströndinni í
Víkurskála.
Þingið hefst kl. 10:00 og stendur fram eftir
degi. Klukkan þrjú verður tilkynnt verður val á
Íþróttamanni USVS 2006
en þar eru tilnefnd Guðlaug Lilja
Sævarsdóttir, Gunnar Pétur Sigmarsson, Harpa Ósk
Jóhannesdóttir og Sölvi Hrafn Sveinsson.
Einnig verður tilkynnt val á
Efnilegasta
íþróttamanni USVS 2006
en þar eru tilnefnd Arnar Snær
Ágústsson, Ágúst Þórður Sigurðarson, Elvar Orri
Jóhannsson, Solveig Sigríður Gunnarsdóttir og
Steinn Orri Erlendarson. Þingið sitja 34
fulltrúar aðildarfélaga USVS. Margt góðra gesta
mætir á svæðið. |
|
19.03.2007
Nýtt
fólk í stjórn RKÍ Víkurdeildar
Á aðalfundi
RKÍ Víkurdeildar 8. mars s.l. varð nokkur
endurnýjun á fólki í stjórn.
Sveinn
Þorsteinsson var kosinn formaður.
Guðmundur
Vignir Steinsson og Símon Þór
Waagfjörð meðstjórnendur og
Æsa
Gísladóttir kosinn ritari.
Nýr
skoðunarmaður var kjörinn Sigurður
Hjálmarsson.
Af fyrri
stjórn halda áfram Elsa G. Vilmundardóttir
gjaldkeri og Gunnar Halldórsson
skoðunarmaður.
|

Ljósm. Jóhanna F. Róbertsd.
Á myndinni eru:
Sig. Ævar Harðarson, Guðm.Vignir, Sigurður H.,
Helga Ólafsd., Sveinn Þ., Elsa G., Gunnar
Halldórsson og Bárður Einarsson.
Á myndina vantar Símon Þ. Waagfjörð. |
|
|

Leikfélag
Menntaskólans að Laugarvatni kynnir leikritið:
"Í
fyrrasumar"
Það voru þær
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Hera
Sigurðardóttir ásamt leikhóp skólans sem
skrifuðu verkið.
Hér er á
ferðinni
stórskemmtilegur söngleikur með dramatísku ívafi
í anda Grease sem inniheldur góðan húmor og
skemmtilega leikburði. "Í fyrrasumar" er stórgóð
sýning sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Leikritið fjallar aðallega um
tvo "vinsælu" vinahópana í menntaskóla á síðari
hluta 7. áratugarins, sem kalla sig Munkana og
Gylturnar. Þetta eru krakkar sem hafa
gaman að lífinu og eru að þreifa fyrir sér í
heimi ástanna sem getur bæði verið spennandi og
erfitt.
Sýning verður í félagsheimilinu
Leikskálum laugardaginn 24. mars kl. 16:00
Miðaverð: 1500 fyrir 13 ára og
eldri
1000 fyrir 5 - 12 ára
Frítt fyrir 5 ára og yngri |
|

Sólheimakapella í Mýrdal
Guðsþjónusta
verður í Sólheimakapellu í Mýrdal,
nk.
sunnudag, 25. mars 2007, kl. 14:00.
Kristín
Björnsdóttir leikur á orgel
og
stjórnar almennum safnaðarsöng.
Fjölmennum
Sóknarprestur
|
|
|
Æskulýðshittingur
Laugardaginn 24. mars n.k. langar okkur
að bjóða krökkum í hestamannafélaginu og öðrum
sem hafa áhuga á hestamennsku að koma og hittast
á Hótel Vík frá kl. 12:30 til 15:00 þar
sem við ætlum að gera okkur glaðan dag, fara í
leiki og kynna það sem framundan er hjá okkur í
æskulýðsnefninni.
Hestamannafélagið Sindri.
Meira
á www.hmf-sindri.bloggar.is |
|
 |
15.03.2007
Vík –
uppáhaldsstaðurinn!
Í fasteignablaði Morgunblaðsins 12. mars s.l.
var frábært viðtal Kristjáns Guðlaugssonar
blaðamanns við Unni Elfu Þorsteinsdóttur á
Dyrhólum.
Fyrir þá sem ekki sjá Morgunblaðið er
greinin nú sjáanleg hér á heimasíðunni.
"Unni Elfu Þorsteinsdóttur þykir Vík í Mýrdal
fallegasti staðurinn í heiminum og vill hvergi
annars staðar búa. Þar segir hún að sé öflug
félagsstarfsemi og að talsverð uppbygging hafi
verið þar á síðustu árum." |
 |
 |
 |
|
14.03.2007
Æskulýðs- og fjölskylduguðsþjónusta
með léttri tónlist var í Víkurkirkju s.l.
sunnudag.
Margt var um manninn og hafði eitt sóknarbarnið
á orði eftir að hafa dáðst að ljósakrónu
kirkjunnar að "hún passaði akkúrat í herbergið
hennar"
Nokkrir nemendur úr Grunnskóla Mýrdalshrepps
leiddu sálmasöng og messusvör undir stjórn Önnu
Björnsdóttur og lék Kristín Björnsdóttir á orgel kirkjunnar.
Magdalena Katrín Sveinsdóttir söng einsöng í
einum sálminum. |
 |
|
 |
|
|
13.03.2007
Hjónabandið á Hjallatúni
Hljómsveitin Hjónabandið stóð fyrir skemmtun á
Hjallatúni 8. mars s.l.
Heimilisfólk og um 20 gestir, aðstandendur og
eldri borgarar nutu flutnings Hjónabandsins á
söng og glensi og var kvöldstundin
ákaflega ánægjuleg.
Fleiri
myndir.... |
 |
 |
|
|
Íbúafundur
Green Globe 21
í Leikskálum 20. mars n.k.
Byggðasamlag Green Globe 21 í Rangárvalla- og
Skaftafellssýslu boðar til íbúafunda til
kynningar á Green Globe 21 verkefninu.
Sveitarfélög á svæði byggðasamlagsins,
auk Þjóðgarðsins Skaftafells,
eru þátttakendur í verkefninu.
Green Globe 21 eru alþjóðleg vottunarsamtök sem
votta fyrirtæki í ferðaþjónustu og samfélög.
Vottunarkerfið miðar m.a. að því að ná fram
bættri frammistöðu í umhverfismálum,
sem leiðir til rekstrarsparnaðar
og bættrar samkeppnisstöðu svæðisins.
Meira......... |
|
|
09.03.2007
Slökkviliðs "strákarnir okkar"
Lítil umfjöllun hefur verið um slökkvilið okkar
Mýrdælinga. Sem betur fer finnst okkur. Fæstir
vita að þessir frísku og fersku menn hittast
alltaf á miðvikudagskvöldum í Íþróttamiðstöðinni
og æfa saman. Farið er í þrek og þol og
sérhanna þeir félagar þrautabrautir til að
erfiða meira.
Töluverð nýliðun hefur orðið í slökkvliðinu að
undanförnu. Frá síðasta ári hafa bæst við 7
nýir menn. Af því tilefni kom Brunamálastofnun
með námskeiðið Slökkviliðsmaður I –
Grunnnám til Víkur helgina 3. og 4. mars
s.l. Leikskálar voru m.a. reykfylltir og
”strákarnir okkar” sendir inn.
Frá síðasta ári bættust við slökkviliðsstjóri,
Ágúst Freyr Bjartmarsson og
varaslökkviliðsstjóri, Ívar Páll Bjartmarsson.
Aðrir nýliðar eru: Kristján Kristjánsson
(Dyrhólum), Ólafur Ögmundsson, Jóhann Vignir
Hróbjartsson, Páll Tómasson, Stefán Kjartansson,
Guðmundur Vignir Steinsson og Victor Berg
Guðmundsson. Fyrir voru: Grétar Einarsson,
Jóhann Einarsson, Jón Hjálmarsson, Ólafur St.
Björnsson, Pálmi Sveinsson, Smári Tómasson, Vigfús Páll Auðbertsson
og Sigurður Gýmir Bjartmarsson.
Í síðasta útkalli slökkviliðsins uppgötvaðist að
engin teppi voru í slökkvibílnum, Kaupþing
banki var ekki lengi að bregðast við og styrkti
slökkviliðið um 10 flísteppi.
Einn nýliðinn, Kristján Kristjánsson, hafði
samband við slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og
næsta dag var komið loforð um 6 notaða galla og
jafnmörg pör af stígvélum. |

Páll Tómasson gerir sig kláran
fyrir reykköfun
Ljósmyndir teknar á gsm síma
Jónasar í Fagradal þegar hann var á ferðinni
eitt miðvikudagskvöld
í þrektíma
slökkviliðsins. |

Victor Berg á ferð... |

Slökkviliðsstjórinn á klukkunni |

Kristján á flugi.... |

...... og skriði |

|
|
|
Reyniskirkja í
Mýrdal
Guðsþjónusta verður í Reyniskirkju í
Mýrdal,
nk.
sunnudag,
18. mars 2007, kl. 14:00.
Kristín
Björnsdóttir leikur á orgel og
stjórnar almennum safnaðarsöng.
Fjölmennum til kirkju
á 4.
sunnudegi í föstu.
Sóknarprestur
|
 |
|
|

Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir |
Sköpunartónleikar
í Leikskálum laugardagskvöldið
17. mars kl. 20:00
Nánar auglýst síðar |
|
06.03.2007
Stóra upplestrarkeppnin
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk verður haldin
í ellefta sinn á Hellu 7. mars n.k.
Verkefnið hófst að vanda með samstilltu átaki í
öllum þátttökubekkjum á degi íslenskrar tungu,
16. nóvember. Frá þeim degi og fram í mars hefur
umsjónarkennari 7. bekkjar, Elín Einarsdóttir,
lagt sérstaka rækt við vandaðan upplestur og
framsögn í bekk sínum. Verkefninu lauk síðan í
gær með skólakeppni í Víkurskóla og voru 2
aðilar valdir úr hópnum og einn til vara, til að
vera fulltrúar skólans í héraðskeppninni.
Í 7. bekk eru: Birkir Grétarsson, Guðlaug L.
Sævarsdóttir, Ingibjörg Matthíasdóttir, Jóna
Þórey Árnadóttir, Magdalena K. Sveinsdóttir,
Ragnar Kristinsson, Sólon Jóhannsson og Vigdís
Eva Steinþórsdóttir. Sólon var fjarri góðu
gamni vegna veikinda.
Foreldrum, fyrri keppendum í 8. bekk og verðandi
keppendum í 6. bekk var boðið til upplestrarins.
Skólakeppnin fór fram í 3 liðum.
Krakkarnir lásu fyrst ljóð sem þau höfðu valið,
texta úr bók og svo aftur ljóð.
Í dómnefnd sátu: Kolbrún Hjörleifsdóttir
skólastjóri, Helga Viðarsdóttir skólaliði og
Gunnar Halldórsson kennari.
Kolbrún sagði eftir upplesturinn að nefndin
hefði verið í vanda eftir upplesturinn þar sem
krakkarnir hefðu öll staðið sig mjög vel. Á
endanum hefðu þau þó ákveðið að Vigdís Eva og
Magdalena Katrín færu sem fulltrúar skólans og
Birkir til vara. |

 |

 |

Ljósm. Grétar Einarsson |

 |
|
|
05.03.2007
Auglýst eftir hugmyndum
Nú
er leitað eftir hugmyndum að nöfnum á deildirnar
í leikskólanum Suður – Vík.
Deildirnar eru tvær og eru á efri og neðri hæð
hússins.
Þar sem húsnæðið er orðið gamalt og á sér langa
og merka sögu, þykir við hæfi að fanga verði
leitað í örnefni úr nágrenninu.
Þeir sem vilja koma hugmyndum á framfæri geta
sent leikskólastjóranum tölvupóst á
leikskoli@vik.is
fyrir 1. apríl. |
 |
|
 |
 |
 |
 |
 |
  |
27.02.2007
Öskudagur í leikskólanum Suður-Vík
var með heldur óvenjulegu sniði í ár.
Krakkarnir komust ekki út vegna (ó)veðurs en ekki
er annað að sjá að þau hafi átt ljúfan dag
inni við.
Leikskólastjórinn tók myndirnar. |
|
|
Víkurkirkja í
Mýrdal
Æskulýðs- og
fjölskylduguðsþjónusta með léttri tónlist verður
í Víkurkirkju í Mýrdal, sunnudaginn 11. mars
2007 kl. 14:00
Nokkrir nemendur úr Grunnskóla Mýrdalshrepps
leiða sálmasöng og messusvör undir stjórn Önnu
Björnsdóttur.
Kristín Björnsdóttir leikur á orgel kirkjunnar.
Ég hvet sóknarbörn mín ásamt þeim sem eru
gestkomandi og eða leið eiga um Mýrdalinn næsta
sunnudag að fjölmenna í Víkurkirkju
af þessu skemmtilega tilefni.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega
hvött til að mæta.
Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur |
 |
|
|
27.02.2007
Áhorfendur í röð
Bragi og Stebbi, starfsmenn Mýrdalshrepps, fengu góðan liðsstyrk í áhorfi
þegar þeir voru að setja upp grindverk á
leikskólanum Suður-Vík í morgun. |

Ljósm. Aðalheiður |
|
|

Aðalfundur RKÍ Víkurdeildar
verður
haldinn fimmtudaginn 8. mars
2007 kl. 20:30
á Ströndinni í Víkurskála.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
Stjórn RKÍ Víkurdeild |
|
|
|
23.02.07
Öskudagur í Vík
var hvass og kaldur að þessu sinni.
Foreldrar gripu inn í aðstæður og óku hópum á
áfangastaði. Þrátt fyrir hálfgert óveður var
gestkvæmt á skrifstofu hreppsins eins og sjá má
af meðfylgjandi myndum.
Sumir hópar voru þó í eldri kantinum en fengu
nammi eins aðrir að loknum söng.
Fleiri myndir... |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|
23.02.07
Skuggsýnt í Víkurþorpi
Í gær var heldur skuggsýnt í Víkinni þar sem
moldrok og sandur gekk yfir þorpið.
Ýmsir halda því fram að Mýrdalssandur hafi nú
flutt sig um set.
Myndirnar eru teknar út um gluggann á skrifstofu
hreppsins. |
 |
 |
|
22.02.2007
kl. 12:00
Jónas í Fagradal var að senda okkur þessa
símamynd sem segir meira en mörg orð. |
 |
|
|
|
|
Skeiðflatarkirkja í Mýrdal
Í tilefni af
æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar verður
fjölskylduguðsþjónusta með léttri tónlist
í
Skeiðflatarkirkju í Mýrdal,
sunnudaginn 4.
mars 2007 kl. 14:00.
Kristín
Björnsdóttir organisti leikur undir og
stjórnar almennum söng.
Nemendur
Tónskóla Mýrdalshrepps koma fram og leika á
hljómborð
undir stjórn skólastjóra skólans, Kristins
Níelssonar.
Eftir
guðsþjónustuna verður kvenfélag
Dyrhólahrepps með kaffisölu í
Ketilsstaðaskóla
til styrktar Skeiðflatarkirkju.
Ég hvet
sóknarbörn mín, alla velunnara
Skeiðflatarkirkju ásamt þeim sem leið eiga
um Mýrdalinn á þessum degi, að
fjölmenna í kirkjuna af þessu hátíðlega
tilefni.
Fermingarbörn
og foreldrar þeirra sérstaklega hvött til að
mæta.
Sóknarprestur
|
|
|
16.02.07
Sunnudaginn 11. febrúar var haldin guðsþjónusta
í Víkurkirkju með heldur óvenjulegu sniði.
Kórar Víkur- og Skeiðflatakirkju leiddu söng og
hluti nemenda í Tónskóla Mýrdalshrepps sóttu
kirkjuna heim ásamt skólastjóra sínum Kristni
Níelssyni, og spiluðu undir á rafmagnsgítara,
bassa og trommur.
Skemmtileg stemming myndaðist og kunnu
kirkjugestir vel að meta þetta einstaka uppbrot.
Fleiri myndir... |

Ljósm. Guðlaug Guðmundsdóttir

 |
 |
 |
|
|
Auglýsendur
VITANS vinsaml. athugið!
Útkoma
VITANS fellur niður næstu tvær vikur, þ.e.
miðvikudagana 21. og 28. febrúar.
Ekki er annað vitað á þessari stundu en að
útkoma hans verði óbreytt frá því.
Leitið upplýsinga í síma 487-1299 eða
487-1429
SÆUNN/VITINN
|
|
|
Fundur um
skólamál
Mánudaginn 26.
febrúar kl. 20:30 verður fundur um skólamál í
Leikskálum.
Frummælendur eru:
-
Kristinn Kristjánsson
sérfræðingur á kjarasviði Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
-
Svandís Ingimundardóttir,
þróunar- og skólafulltrúi Sambands íslenskra
sveitarfélaga
-
Sólrún Kristinsdóttir og
Edda Kjartansdóttir frá
Símenntun-Rannsóknir-Ráðgjöf, Kennaraháskóla
Íslands
Fundurinn er
öllum opinn
Mýrdalshreppur
DAGSKRÁ |
|
|
Stjörnuhelgi í
Þórbergssetri
Bókmenntir og vísindi
Fyrirhugað er að halda stjörnuhelgi í
Þórbergssetri dagana 24. – 25. febrúar.
Dagskráin er unnin í samvinnu við Snævarr
Guðmundsson fjallaleiðsögumann, náttúruunnanda
og ljósmyndara sjá
www.snaevarr.com
Snævarrr kemur með stórt stjörnuver með sér á
staðinn og þátttakendur fá að fara inn í verið
og fara í ferðalag um himingeiminn undir
leiðsögn hans. Einnig verður farið í kvöldgöngu
ef að veðrið verður gott og skyggnst um
óravíddir himingeimsins. Snævarr ætlar síðan að
flytja fræðsluerindi um norðurljósin kl 11:00 á
sunnudeginum. Tengja á dagskrána bókmenntum
Þórbergs með upplifun og upplestri úr verkum
skáldsins.
Meira.... |
|
|
Reyniskirkja
í Mýrdal
Guðsþjónusta
verður í Reyniskirkju í Mýrdal,
nk. sunnudag,
25. febrúar 2007, kl. 14:00.
Kristín
Björnsdóttir leikur á orgel og stjórnar
almennum
safnaðarsöng.
Hvet alla
Mýrdælinga
til að
fjölmenna í guðsþjónustuna.
Sóknarprestur
|
|
|
|

Ljósm.I.Sch |
08.02.07
Breytt
götumynd
Sunnubrautin í Víkinni hefur
tekið á sig allt aðra og glæsilega mynd á
undanförnum mánuðum og er gleðilegt til þess að
hugsa að svona mikil uppbygging skuli eiga sér
stað í okkar litla bæjarfélagi.
Nýjasta húsið hefur litið dagsins ljós því s.l.
miðvikudag kom 4 manna hópur húsasmiða frá SG
húsum til að reisa myndarlegt hús þeirra
Guðmundar Vignis og Kolbrúnar Óskar
Guðjónsdóttur.
Að undanförnu hafa risið hús séð frá vestri til
austurs; hús Eggerts Skúlasonar, þá hús þeirra
Kolbrúnar og Guðm. Vignis, hús Guðrúnar Hildar
og Ólafs Ögmundssonar og þá hús Hafdísar
Eggertsdóttur og Sveins Þorsteinssonar.
Til hamingju ! |
 |
 |
 |
|
|
 |
|
 |
|
GRÍMUBALL
Öskudag, 21. febrúar 2007
verður hið árlega
grímuball OZ í Leikskálum.
Meira...
 |
 |
|
15.02.07
Vitinn
verður
í breyttu formi þessa viku - en af
óviðráðanlegum ástæðum var hann ekki sendur
vefstjóra í PDF formi eins og áður.
Vonandi verður þessu kippt í liðinn hið fyrsta.
Vefstjóri |
|
 |
07.02.07
Sauðfé heimt á þorra
10 kindur fundust þegar
farið var skyggnast um í Svínatungum og
Koltungum í Mýrdal. Þetta voru að mestu
leyti lömb en þó voru tvær fullorðnar kindur í
hópnum.
Kindurnar voru frá þremur bæjum; Litlu Heiði,
Giljum og Norður Fossi.
Á
myndinni efri t.h. er Ólafur Steinar Björnsson
bóndi á Reyni að reyna að fá þrjár þeirra til að
stökkva fram af kletti sem þær höfðu stoppað
uppi á og þá kom fjallastöngin sér vel.
Á neðri myndinni t.v. eru Ólafur St. og Grétar Einarsson bóndi í
Þórisholti með einn af lambhrútunum í sauðbandi.
Kindurnar voru farnar að leggja af en vel
frískar á fæti.
Á hinum myndunum eru Ragna í Fagradal og Grétar
Einarsson.
Fleiri myndir..... |
 |
 |
 |
|
|
Auglýsing frá USVS
Seinni umferð í innanhúsmóti USVS í knattspyrnu
verður í Vík laugardaginn
17. febrúar og hefst kl. 10:00
Einnig verður seinni umferðin í körfunni
afgreidd á laugardaginn en einungis tveir leikir
verða spilaðir.

Meira |
|
|
Þorrablót
Eyrarlandi
verður haldið laugardaginn
17. febrúar n.k.
Þátttaka tilkynnist fyrir mánudag
12. febrúar í símum:
893-7205 Jónas
868-7897 Guðni
892-5753 Finnbogi |
|

Hlynur, Ólöf og Elvar kynnar
kvölds |

Anna Björk Sig. |

Arnar Snær Ág. |

Dómnefndin |

Epoxy ásamt Rögnu Björgu |

Harpa |
05.02.07
Söngkeppni
félagsmiðstöðva á Suðurlandi
Það fór
ekki fram hjá neinum að íbúafjöldi Víkurkauptúns
rúmlega tvöfaldaðist um síðustu helgi.
Við fengum 15 félagsmiðstöðvar í
heimsókn og var fjöldi þátttakenda og gesta um
500 talsins.
Ástæðan? Jú, félagsmiðstöðin OZ hélt Undankeppni
í Söngkeppni Samfés.
Allir
keppendur stóðu sig mjög vel og voru sínum
félagsmiðstöðvum til sóma með frábær atriði.
Í þetta skipti komust Félagsmiðstöðin á Hellu,
Fjörheimar-Reykjanesbæ,
Skjálftaskjól-Hveragerði, Bólið-Mosfellsbæ og
Tvisturinn-Hvolsvelli áfram í aðalkeppnina.
Arnar Snær Ágústsson og Anna Björk
Sigurðardóttir tóku þátt fyrir hönd OZ og stóðu
sig með mikilli prýði.
Það var sýnilegt og umtalað af þjónustuaðilum
og íbúum í Vík að unglingarnir hafi verið
kurteisir og jákvæðir. Það er mikilvægt að við
vinnum saman og leggjum árherslu á faglegt
tómstundastarf þar sem lögð er áhersla á
forvarnir, fræðslu og örvun félagsþroska og
jákvæðra samskipta.
Meira....
Fleiri
myndir..... |
|
|
Víkurkirkja
í Mýrdal
Guðsþjónusta
með léttri tónlist og söngvum
verður í
Víkurkirkju í Mýrdal
sunnudaginn
11. febrúar 2007 kl. 14:00.
Kristinn
Níelsson skólastjóri Tónskóla Mýrdalshrepps
og nemendur
tónskólans munu leika undir í lögunum
ásamt Kristínu Björnsdóttur organista.
Kirkjukórar
Víkur- og Skeiðflatarkirkna
munu leiða
sönginn undir stjórn Önnu Björnsdóttur.
Fjölmennum
til kirkju og
syngjum Drottni lofgjörð og þökk.
Fermingarbörn
og foreldrar
í öllum sóknum prestakallsins
sérstaklega
hvött til að mæta í Víkurkirkju.
Sóknarprestur
|
|
|

Víkurdeild
Námskeið fyrir heimsóknavini
verður haldið á Ströndinni í Víkurskála
miðvikudaginn 14. febrúar n.k.
kl. 18-21 ef næg þátttaka fæst.
Umsóknir verða að berast fyrir 9. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá
Áslaugu í síma 487-1227 og
Elsu í síma 487-1482 eða 848-3826
Víkurdeild Rauða krossins |
|
 |
 |
 |
05.02.07
Þorrablót í Suður-Vík
Haldið var þorrablót í Leikskólanum Suður-Vík í
síðustu viku.
Ekki er hægt að sjá annað en að yngsta kynslóðin
njóti matarins.
Hjördís Rut tók þessar myndir af því tilefni.
Fleiri myndir.... |
 |
|
|
01.02.07
Nýir menn við stjórnvölinn hjá slökkviliðinu.
Bræðurnir Ágúst Freyr og Ívar Páll
Bjartmarssynir hafa tekið við stjórn
slökkviliðsins af Jóni Hjálmarssyni sem settist
í aftursætið um áramótin.
Verið er að æfa nýja slökkviliðsmenn og
fyrirhugað er að endurnýja vatnsbíl liðsins á
árinu. |
|
31.01.07
Keppendur frá USVS standa sig frábærlega
á Stórmóti ÍR.
Segja má
að áhugi á frjálsum íþróttum hafi glæðst
allverulega að undanförnu.
Ýmsu má það þakka, glæsilegri íþróttaaðstöðu sem
við eigum hér í Vík og ekki síst Kristínu Martí
Kasparsdóttur þjálfara með meiru.
Við eigum marga krakka sem eru ekki einungis
hæfileikaríkir heldur sem eru líka áhugasamir og
eru tilbúnir að leggja sig fram í æfingum.
Þau sýna það og sanna á hverju mótinu á fætur
öðru að þau eru sjálfum sér og okkur til mikils
sóma.
Helgina 20. - 22. janúar s.l. fór nokkuð stór
hópur héðan úr Mýrdalnum á Stórmót ÍR er haldið
var í
Laugardalshöll.... |
|
|
Úrslit þátttakenda frá USVS
á Stórmóti ÍR
20. - 22. janúar 2007
Meira.... |
|
 |
 |
|
 |
|
 |
24.01.07
Þorrablót Víkurbúa og vina
2007
var haldið
í Leikskálum í Vík 20. janúar s.l. Þema blótsins
var Horft til framtíðar, Vík á álöld.
Af mörgu var að taka hvað varðar annál síðasta
árs s.s. afhjúpun af minnisvarðanum FÖR.
Af því tilefni var sveitarstjóranum færð
gríðarmikil og þung "gull" keðja sem honum er
ætlað að bera við opinberar athafnir.
Þessi mikli gripur prýðir nú vegg skrifstofu
Mýrdalshrepps, gestum og gangandi til mikillar
gleði.
Vel á annað hundrað manns sótti blótið sem þótti
takast gríðarvel.
Sjá fleiri myndir: |
|
|
Nefndina skipuðu:
Helga og Sigurgeir formenn
Hildigunnur og Victor
Ragga og Tryggvi
Hafdís og Matti
Naní og Smári
Helga og Gylfi
Guðrún Ólafs og
Guðný Guðna
Ný nefnd fyrir árið 2007 var skipuð með lífsins
"elixir" að hætti sr. Sigurgeirs og hana skipa:
Anna Birna og Sigurður
formenn
Kolbrún Ósk og Guðm.Vignir
Kristín og Björn Hallmundur
Helga og Ögmundur
Gunnsa og Emmi
Áslaug og Siggi
Vilborg og Elli
|
|
25.01.07
Vaxtarsprotar
Impra
nýsköpunarmiðstöð og Framleiðnisjóður
landbúnaðarins, í samvinnu við Búnaðarsamband
Suðurlands og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands,
munu í næstu viku ýta úr vör nýju
þróunarverkefni. Verkefnið, sem nefnt er
Vaxtarsprotar, hefur það að markmiði að
hvetja og styðja við fjölbreytta atvinnusköpun í
sveitum.
Verkefnið verður kynnt á tveimur kynningarfundum
á Suðurlandi í næstu viku.
Fyrirlesarar eru m.a. Elín Aradóttir,
verkefnisstjóri hjá Impru nýsköpunarmiðstöð,
Jóhannes Kristjánsson, ferðaþjónustubóndi á
Höfðabrekku í Mýrdal, sem segir frá reynslu
sinni og gefur góð ráð og Andri Snær Magnason
rithöfundur.
Meira..... |
|
|
|
|
|
|
|
|
Þorrablót
Kvenfélag Hvammshrepps heldur sitt árlega
Þorrablót í Leikskálum
laugardaginn 27. jan. n.k. kl. 12:00
Allir Mýrdælingar 67 ára og eldri ásamt mökum og
kvenfélagskonur og fjölskyldur þeirra
eru boðin velkomin.
Mætum öll og eigum saman
notalega stund á Þorra
Nefndin
|
|
Munum eftir
að gefa
smáfuglunum
|
 |
|
|

Skeiðflatarkirkja
í Mýrdal
Guðsþjónusta verður í Skeiðflatarkirkju í
Mýrdal, sunnudaginn 28. janúar n.k. kl. 14:00
Kirkjukórar Skeiðflatar- og Víkurkirkna syngja
undir stjórn Önnu Björnsdóttur.
Organisti er Kristín Björnsdóttir.
Kirkjukórarnir hafa ákveðið að syngja saman
við athafnir í vetur og styrkja þannig sönglífið
í kirkjunum.
Allir Mýrdælingar eru hvattir til að
fjölmenna í fyrstu guðsþjónustu á nýju ári þar
sem samvinna og styrkur sóknanna í Mýrdal er
leiðarljósið.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru
sérstaklega hvött til að mæta
Sóknarprestur |
|
_small.jpg)
_small.jpg) |
_small.jpg) |
|
15.01.07
FÖR
Styttan
hennar Steinunnar "FÖR" finnst Þóri N.
Kjartanssyni mjög skemmtilegt myndefni við
allskonar skilyrði.
Þórir þessar
myndir eitt kvöldið skömmu fyrir jól.
Steinunn ætlar
að nota þær í kynningarefni vegna
sýningarinnar, Palm Beach Art Fair í
Flórida, þar sem hún verður þátttakandi.
|
|
|
 |
15.01.07
Vélsleða bjargað á land
Jónas Erlendsson tók þessar myndir 7.
janúar s.l. þegar snjósleðamaður úr Vík
tapaði sleða sínum í tveggja metra djúpt
vatn í Höfðabrekku-tjörnum og varð hann
að synda til lands. Myndirnar voru
teknar þegar sleðanum var bjargað í
land.
Sjá fleiri myndir:
http://www.pbase.com/fagradal
|
 |
|
15.01.07
Hvalreki
Langreyð rak á land í Sólheimafjöru í
Mýrdal.
Hún var í kring um 14 metrar á lengd, og
að sögn Magnúsar Snorrasonar bónda í
Sólheimahjáleigu hefur hún rekið milli
jóla og nýárs.
|
 |
 |
|