21.12.05
Fjárhagsáætlun 2006
Sveitarstjórn samþykkti fjárhagsáætlun fyrir árið 2006 á fundi sínum fyrr í kvöld.  Gert er ráð fyrir að heildartekjur verði um 276 mkr og rekstrargjöld um 258 millj. kr og 18 mkr rekstarafgangi án tillits til fjármagnsliða sem verða neikvæðir um 10 mkr.  Veltufé frá rekstri er áætlað um 22 mkr.  Framkvæmdir verða minni í sniðum en undanfarin ár en þó er m.a. gert ráð fyrir umtalsverðu viðhaldi á húsnæði grunnskólans auk þess 7-8 nýjar lóðir verða gerðar byggingarhæfar.
                            sjá fjárhagsáætlun 2006   (pdf-skjal)
21.12.05
Engar lántökur á næsta ári
Skv. nýsamþykktri fjárhagsáætlun er ekki gert ráð fyrir lántökum hjá sveitarsjóði á næsta ári enda mun ýmsum þykja nóg um skuldasöfnun núverandi sveitarstjórnar.  Gert er ráð fyrir að í árslok 2006 verði skuldir og skuldbindingar Mýrdalshrepps um 470.000 á hvern íbúa.  Skv. árbók sveitarfélaga 2005 eru skuldir sveitarfélaga utan Reykjavíkur milli 600.000 og 700.000 á íbúa þannig Mýrdælingar mega sæmilega vel við una mv. þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað á síðustu árum. 
21.12.05
Hollvinasjóður Hjallatúns
Stofnaður hefur verið Hollvinasjóður Hjallatúns sem halda skal utan um gjafafé og önnur frjáls framlög sem ánöfnuð eru dvalar- og hjúkrunarfélaginu Hjallatúni svo sem minningarsjóð og kapellusjóð.  Í fyrstu stjórn sjóðsins sem starfar samkvæmt sérstakri skipulagsskrá, eru oddviti og sveitarstjóri Mýrdalshrepps ásamt nýskipuðum sýslumanni V-Skaftfellinga Önnu Birnu Þráinsdóttur.
18.12.05
Drangur vann Reyni í Sandgerði
Drangur lék síðasta leik sinn á árinu í Sandgerði  þar sem liðið valtaði yfir heimamenn í Reyni. Lokatölur voru 65-91. Justin Shouse var stigahæstur að vanda og skoraði 43 stig
 
06.12.05
Hringvegur 1 um Mýrdal – jarðgöng um Reynisfjall

Mýrdalshreppur varð til með sameiningu Dyrhóla- og Hvammshrepps þann 1. janúar 1984.  Í greinargerð samstarfsnefndar um sameiningu hreppanna segir m.a: 
Sjá nánar
06.12.05
Drangur vann Stjörnuna
Drangur er á fljúgandi siglingu og vann sinn þriðja sigur í röð þegar þeir unnu Stjörnuna 89-83 og komst þar með í fjórða sæti deildarinnar.  Körfuknattleiksdeild Drangs
01.12.05
Sparkvöllurinn formlega opnaður

Fulltrúar KSÍ komu til Víkur fyrir nokkru og opnuðu sparkvöllurinn með aðstoð grunnskólabarna.  
01.12.05
Geðorðin 10 á öll heimili
Mýrdalshreppur hefur í samstarfi við Lýðheilsustöð dreift segulmottum með geðorðunum 10 inn á hvert heimili í sveitarfélögunum.
01.12.05
Vetrarríki í Vík
Vetur konungur minnti á sig í gær og á tímabili var illfært um þorpið.  Einhverjir lentu í erfiðleikum á leiðinni inn fyrir Reynisfjall enda hált, hvasst og blint á köflum.
01.12.05
Opnun sundlaugar lítillega breytt
Vetraropnunartímar í sundlaug.
Aðrir opnunartímar haldast óbreyttir.
Föstudagar  13:00-21:30
Laugardagar  11:00-15:00
Sunnudagar  11:00-15:00
 
Sími: 487 1174. Netfang: ithrottamidstod@vik.is
15.11.05
Aðalskipulag 2005-2025
Fjölmennur kynningarfundur var haldinn í Leikskálum mánudaginn 14. nóvember.  Alls mættu um 75 aðilar til að kynna sér hugmyndir um nýjar veglínur hringvegar 1 um Mýrdal.  Umræður voru góðar á fundinum og sitt sýndist hverjum.  Þykir ýmsum sem hugmyndirnar hefðu í för með sér of mikil áhrif á hina fögru náttúru Mýrdalsins meðan aðrir telja öryggi vegfarenda svo ábótavant á núverandi vegi að ekki sé annað forsvaranlegt en gera ráð fyrir nýrri veglínu á tillögu að aðalskipulagi.

Þeir sem þess óska geta komið sjónarmiðum og umsögnum sínum á framfæri við skipulags- og byggingarnefnd fram til 21. nóvember nk.  Skipulags- og byggingarnefnd mun síðan ásamt ráðgjafa gera tillögu um hvaða leið skal velja til að setja inn á tillögu að aðalskipulagi.  Sjá Aðalskipulag
 
15.11.05
Deiliskipulag Dyrhólaeyjar
Deiliskipulag Dyrhólaeyjar hefur loks tekið gildi með birtingu auglýsingar í Stjórnartíðindum sjá

http://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=a76e34f4-de46-4dc2-85ea-1d39ee0e6536 

Vonast er til að þar með verði geti Umhverfisstofnun farið að vinna að einhverjum úrbótum á svæðinu en brýn nauðsyn er á að koma upp salernisaðstöðu og að stýra umferð ferðamanna með gerð göngustíga.  Greinargerð og uppdrættir verða væntanlega aðgengileg hér á vefnum innan tíðar.
 
16.11.05
Ungmennahús opnar í Leikskálum
OZ - ungmennahús opnaði í Leikskálum föstudaginn 11. nóv. sl.  Húsið verður opið á föstudagskvöldum fyrst um sinn.  Victor Berg Guðmundsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi hefur umsjón með starfinu. 
sjá tilkynningu
07.11.05
Drangur vann Breiðablik
Drangur vann Breiðablik 79-77 í æsispennandi leik íþróttahúsinu í Vík á laugardag.  Með sigrinum komst Drangur upp í fjórða sæti deildarinnar. 
Sjá nánar heimasíðu körfuknattleiksdeildar Drangs
Körfuknattleiksdeild Drangs
 
07.11.05
Aðalskipulag 2005-2025
Unnið er að tillögum varðandi nýja legu hringvegar 1 um Mýrdal.  Gert er ráð fyrir að halda kynningarfund í Leikskálum mánudaginn 14. nóvember nk. kl. 20:00 þar sem kynntar verða hugmyndir sem skipulags- og byggingarnefnd hefur unnið að.  Þeir sem það vilja geta síðan komið sjónarmiðum og umsögnum sínum á framfæri við skipulags- og byggingarnefnd.    Hugmyndirnar verða jafnframt sendar Vegagerðinni og Umhverfisstofnun til umsagnar.  Skiplags- og byggingarnefnd mun síðan ásamt ráðgjafa gera tillögu um hvaða leið skal velja til að setja inn á tillögu að aðalskipulagi.  Sjá Aðalskipulag
 
07.11.05
Deiliskipulag Dyrhólaeyjar
Deiliskipulag Dyrhólaeyjar er loks að taka gildi.  Vonast er til að þar með verði geti Umhverfisstofnun farið að vinna að einhverjum úrbótum á svæðinu en brýn nauðsyn er á að koma upp salernisaðstöðu og að stýra umferð ferðamanna með gerð göngustíga.  Greinargerð og uppdrættir verða væntanlega aðgengileg hér á vefnum innan tíðar.
 
07.11.05
Kraftur - fegurð - frískleiki
Stefnumótun Rangæinga og Mýrdælinga í atvinnu- og ferðamálum hefur litið dagsins ljós.  Þar má finna ýmsar athyglisverðar hugmyndir sem vert er að vinna að.
Skýrsluna má finna á vef atvinnu- og ferðamálafulltrúa.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi
07.11.05
Drangur vann Breiðablik
Drangur vann Breiðablik 79-77 í æsispennandi leik íþróttahúsinu í Vík á laugardag.  Með sigrinum komst Drangur upp í fjórða sæti deildarinnar. 
Sjá nánar heimasíðu körfuknattleiksdeildar Drangs
Körfuknattleiksdeild Drangs
 
25.10.05
Furðufuglar á ferð
Jónas ljósmyndari í Fagradal festi á mynd auðnutittling og barrfinku. Auðnutittlingur er algengur varpfugl í landinu, verpir eingöngu í trjám og er algengari fyrir norðan. Barrfinka er flækingsfugl frá Evrópu, kemur hingað við og við.  Haft er eftir Ævari Petersen að mikið hafi verið af flækingsfuglum á ferð að undanförnu.
 
25.10.05
Góð þátttaka í kvennafríi
Um 50 konur söfnuðust saman á ráðhústorginu upp úr kl. 14:08 á mánudag.  Konurnar gengu um þorpið og vöktu athygli á málstað kvenna.  Guðmundur í Víkurskála bauð hópnum upp á kaffi og kökur í tilefni dagsins.  
25.10.05
Gjaldskrá fyrir búfjáreftirlit
Landbúnaðarráðuneytið hefur staðfest gjaldskrá fyrir búfjáreftirlit í Mýrdalshreppi.  Skv. gjaldskránni er m.a. heimilt að innheimta kostnað vegna búfjáreftirlits í þeim tilvikum sem sem umráðmenn búfjár láta undir höfuð leggjast að senda búfjáreftirlitsmanni útfyllta haustskýrslu.
   nánar......
25.10.05
Reglur um úthlutun lóða
Sveitarstjórn hefur samþykkt reglur um úthlutun lóða.   nánar......
 
20.10.05
Sundlaugin eins árs

Haldið verður upp á eins árs afmæli sundlaugarinnar næstkomandi sunnudag 30. október.  Opið verður milli kl. 10:00 og 16:00.  Allir frá frítt í sund og boðið verður upp á kaffi og meðlæti og börnin fá ís eftir sundið. 
Gestir til þessa hafa verð 15.454 skv. nákvæmum talningum starfsfóls og óhætt er að segja að tilkoma sundlaugarinnar hafi haft mikil og jákvæð áhrif á samfélagið.
  
20.10.05
Lifnar yfir byggingariðnaði í Vík
Sveitarstjórn hefur úthlutað 6 íbúðarhúsalóðum í Vík á síðustu fundum og bygging er hafin á einni lóð.  Þá er í bígerð bygging íbúðarhúss í Dyrhólahverfi.
 
02.08.05
ULM - HSK fyrirmyndarfélag

Lið HSK fékk titilinn fyrirmyndarfélag unglingalandsmótsins 2005.  Við mótsslit tilkynnti Björn B. Jónsson formaður UMFÍ að unglingalandmót 2007 yrði haldið á Höfn í Hornafirði en áður hefur veið ákveðið að unglingalandsmót 2006 verði að Laugum í Þingeyjarsýslu.  Eftir að Björn hafði formlega slitið mótinu á sunnudagskvöldið hélt björgunarsveitin Víkverji veglega flugeldasýningu og mótsgestir mynduðu hring á hlaupabrautinni.
 
02.08.05
ULM - Fjör á kvöldvökum

Þétt dagskrá var að íþróttakeppni lokinni og voru kvöldvökurnar haldnar í stærsta tjaldi landsins.  Hildur Vala og Á móti sól komu meðal annarra fram.
 
30.07.05
ULM - Keppni gengur skv. áætlun

Unglingalandsmótsnefnd og sérgreinastjórar hafa greinilega undirbúið sig vel, keppni gengur skv. áætlun.  Fjölmargir keppendur eru í knattspyrnu og körfu og stendur keppni sleitulaust frá 9:00 til 19:00.  Í knattspyrnu er keppt á 5-7 völlum samtímis.
 
30.07.05
ULM - um 7000 gestir
Björn B. Jónsson formaður UMFÍ setti 8. unglingalandsmót UMFÍ á Víkurvelli í gærkveldi að viðstöddu fjölmenni.  Yfir 1000 keppendur gengu inn á völlinn undir merkjum félaga seinna í yndislegu veðri.
Talið er að um 7000 gestir séu á svæðinu.  Í dag laugardag hefur verið þurrt, um 15 stiga hiti, logn en sólarlaust.
29.07.05
ULM - góð stemming á mótinu
Góð stemming er á Víkurvelli og keppni í fullum gangi.  Veðrið leikur við mótsgesti, sólin skín og vindur er hægur.  Jónas ljósmyndari Erlendsson er búinn að smella nokkrum myndum og sjá má nokkrar þeirra hér.
 
 
29.07.05
ULM - keppni hafin

Keppni hófst kl. 9:00 í körfubolta, hestaíþróttum og golfi og kl. 11:00 í knattspyrnu.  Keppni í frjálsum hefst kl. 13:00.
Ágætis veður er í Vík, sólskin og hægur vindur.  Um 1300 manns voru mætt á svæðið í gærkveldi og stöðugur straumur er á tjaldsvæðið í morgun.

28.07.05
Unglingalandsmót

Á annað þúsund keppendur hafa nú skráð
sig til þátttöku á unglingalandsmótinu.  Keppendur og fjölskyldur þeirra eru byrjaðir að koma sér fyrir á tjaldsvæðinu í Vík enda hefst keppni í sumum greinum í fyrramálið.

Dagskrá mótsins má finna hér...

27.07.05
Undirbúningi fyrir unglingalandsmót lokið

Framkvæmdum vegna unglingalandsmóts er lokið.  Íþróttavöllurinn í Vík er orðinn stórglæsilegur og aðstaða þar með ágætum.  Lagt hefur verið gúmmíefni á hlaupa-, kast- og stökkbrautir og umhverfi vallarins lagfært.  Jafnframt hefur lóð grunnskóla og íþróttamiðstöðvar verið tekin í gegn.
 
11.07.05
Könnun á hagkvæmni varmadælna

Orkustofnun og Mýrdalshreppur hafa gert samning við Fjarhitun hf. um að kanna möguleika á því að nota varmadælur til húshitunar í Vík í Mýrdal. Verkefnið felst m.a. í forathugun á því hvort fjárhagslega hagkvæmt sé að ráðast í hönnun og byggingu hitaveitu sem notar varmadælur. Varmadælur henta vel þar sem aðgangur er að volgu vatni sem ekki er nægilega heitt til að hægt sé að nýta það beint til húshitunar.
11.07.05
Gönguleiðakort á vefinn

Hér á vefnum má nú finna einfalt gönguleiðakort sem sýnir fjórar gönguleiðir í næsta nágrenni Víkur.  Þrjár hafa þegar verið stikaðar, tvær uppi á Reynisfjalli og ein sem fer með Grafargili sem Víkurá rennur um.  Á morgun hefjast Veraldarvinir handa við að merkja fjórðu leiðina sem ná skal upp á Höttu.  Gert er ráð fyrir að því verki verði lokið fyrir vikulokin.  Kortið fæst á skjáinn með því að smella á viðeigandi hnapp hér til vinstri eða hér.......  Lýsing á leiðunum verður sett á vefinn innan tíðar.
 
08.07.05
Framkvæmdir í hápunkti

Framkvæmdir vegna undirbúnings fyrir Unglingalandsmóts eru nú í hámarki.  Verið er að leggja gúmmíefni á hlaupabrautir, steypa gangstéttir og helluleggja lóð íþróttahúss og sundlaugar.  Á hlaupabrautir er fyrst lagt svart gúmmí og þar ofan á rautt.  Þegar þetta er skrifað eiga verktakar eftir 5-7 daga vinnu við hlaupabrautirnar.

 

11.07.05
Sýning á verkum Sigrúnar Jónsdóttur

Laugardaginn 9. júlí var opnuð sýning í Brydebúð á verkum Sigrúnar Jónsdóttur kirkjulistakonu
f. 19.8.1921 - d. 22.11.2001Sjá nánar...  
11.07.05
Veraldarvinir í Vík

18 manna hópur ungmenna frá ýmsum löndum dvelur nú í Vík og aðstoðar við undirbúning unglingalandsmóts og vinnur einnig við gróðursetningu og merkingu gönguleiða.  Á laugardagskvöldið bauð hópurinn Mýrdælinga og aðra gesti velkomna á Halldórskaffi þar sem boðið var upp á skemmtun og smárétti frá heimalöndum þeirra.
08.07.05
Deildarárskóla minnst

Gamlir nemendur Deildarárskóla afhjúpuði minnisvarða um skólann laugardaginn 2. júlí sl.

Deildarárskóli var starfræktur frá 1904 til 1959 og mættu um 60 fyrrum nemendur til athafnarinnar.  Skólahúsið þjónar nú sem gangnamannahús á Höfðabrekkuafrétti.
  16.06.05
Malbikað við íþróttamiðstöðina

Lokið er við að malbika bílastæði við íþróttamiðstöðina og lokið verður við að malbika undir hlaupabrautir á íþróttavellinum í byrjun næstu viku.  Um mánaðarmótin er von á verktökum til að leggja gúmmíefni á hlaupabrautirnar þannig að allt stefnir í að völlurinn verði tilbúinn tímanlega fyrir landsmót.
16.06.05
Þjóðhátíð í Vík

Margt verður til gamans gert í Vík á þjóðhátíðardaginn eins og dagskrá dagsins sýnir.  Þar á meðal er messa, skrúðganga, spól- og spyrnukeppni svo eitthvað sé talið.  Hátíðin endar á grillveislu til heiðurs sjálfboðaliðunum sem lögðu þökur á 10.000 m2 umhverfis íþróttavöllinn.
03.06.05
Ekki dropi úr lofti í margar vikur

Ekki hefur rignt í Vík í margar vikur og þykir mörgum nóg um þurrkinn.  Slökkviliðið í Vík stendur í ströngu við að vökva nýþökulögð svæði umhverfis íþróttavöllinn.

Mýrdælingar eru búnir að leggja yfir 10.000 m2 af þökum umhverfis íþróttavöllinn, allt í sjálfboðavinnu.  Milli 80 og 90 manns hafa komið að verkinu og hafa m.a. félagar björgunarsveitarinnar Víkverja og slökkviliðsins lagt hönd á plóginn og lagt til tæki.

03.06.05
Rennibraut sett upp við sundlaugina

Rennibrautin sem íbúar Mýrdalshrepps hafa verið að safna fyrir er komin í notkun og vekur lukku meðal yngri kynslóðarinnar.
Aðsóknin að sundlauginni er góð, 1377 gestir mættu í maí.
Sundlaugin er opin virka daga kl. 7:10-21:30 og 10:00-17:00 um helgar.

 

 

03.06.05
Íþróttaskóli barnanna í Vík
var hluti af námi nemenda í íþróttavali við grunnskóla Mýrdalshrepps. Ákveðið var að nota ágóðan af starfinu í að kaupa eitthvað skemmtilegt sem allir gætu notað í íþróttamiðstöðinni og þótti jafnvægishjólið “Pedalo” tilvalið.

Hægt er að skoða myndir úr íþróttaskólanum á http://oz.vik.is

03.06.05
Heimsókn á leikskólanum.

Fulltrúi RKÍ Víkurdeildar Sigurður Hjálmarsson og Sigurður B. Baldvinsson lögregluþjónn heimsóttu leikskólann Suður-Vík og afhentu börnunum sem eru að útskrifast í leikskólanum reiðhjólahjálma að gjöf. Börnin fengu einnig fræðslu um hvað það er mikilvægt að nota hjálminn.
10.05.05
Framkvæmdir við íþróttavöll
Þökulagning á áhorfendasvæðum er hafinn og það eru vaskir Mýrdælingar sem sjá um verkið í sjálfboðavinnu.  Vonast er til að þökulagningu ljúki í næstu viku.
10.05.05
Meistaraflokkur HK við æfingar á Víkurvelli
Víkurvöllur kemur góður undan vetri og er tilbúinn til notkunar.  HK-menn notuð síðustu helgi við æfingar á vellinum og létu vel af aðstöðunni.
10.05.05
"Bæjarstjórnin" vann!
Hópur sem kallaði sig Bæjarstjórnina kom sá og sigraði á Raularanum.  Alls voru það átta hópar sem tóku þátt og var mál manna að vel hafi til tekist eins og reyndar jafnan áður.
29.04.05
Allir í golf
Golfvöllurinn kemur góður undan vetri og er orðinn fallega grænn.  Völlurinn er í göngufæri frá Vík í einkar fallegu umhverfi undir Víkurhömrum sem óðast eru að færast í sinn fallega græna sumarbúning.

 

 

29.04.05
Spennan magnast
Ekki fer framhjá neinum sem fer um Vík í dag að Raularinn er á næstu grösum.  Starfsfólk KB-banka var með hefðbundið "Raularakaffi" í dag og mættu margir til að gæða sér á krásunum og njóta ráðgjafar um sparnað í leiðinni.  Keppnin verður að Höfðabrekku á laugardagskvöldið.
20.04.05
Opið hús í Félagsmiðstöðinni OZ
Margir lögðu leið sína í félagsmiðstöðina OZ 14. apríl sl. en þá var starfsemin kynnt.  Hljómsveitir OZ tóku nokkur lög og fulltrúar Rauða kross Íslands komu færandi hendi með gjafabréf fyrir borðtennisborði.
14.04.05
400 m hlaupabraut
Sveitarstjórn ákvað á fundi sínum fyrr í kvöld að lögð skyldi 400 m hlaupabraut með viðurkenndu efni á íþróttavöllinn í Vík.  Þar með er ljóst að aðstaða til að taka við unglingalandsmóti í sumar verður til fyrirmyndar.

Hér má sjá uppdrátt af vellinum og umhverfi hans.

   
31.03.05
Framkvæmdir vegna unglingalandsmóts hafnar
Vinna er hafin við íþróttavöllinn í Vík vegna unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður í Vík um verslunarmannahelgina.    Verið er að skipta um jarðveg undir hlaupabrautum og bílastæðum og koma upp jarðvegsmönum umhverfis völlinn.  Völlurinn sjálfur er þegar farin að grænka eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
 
31.03.05
Opið hús í Félagsmiðstöðinni OZ
Mikill þróttur hefur verið í starfi félagsmiðstöðvarinnar í vetur en hún hefur verið markvisst byggð upp í samvinnu Víkurdeildar Rauða Kross Íslands og Mýrdalshrepps.
Fimmtudaginn 14. apríl nk. verður opið hús hjá OZ milli kl. 18:00 og 21:00 þar sem starfsemin verður kynnt og gestum gefinn kostur á að skoða aðstöðuna.  Boðið verður upp á kaffi og vöflur.
Félagsmiðstöðin OZ er til húsa í félagsheimilinu Leikskálum.
 
   

31.03.05
Lionsklúbburinn gefur hjartastuðtæki
Lionsklúbburinn Suðri hefur fært íþróttamiðstöðinni í Vík hjartastuðtæki.  Við afhendinguna sögðust þeir Lionsmenn óska þess að aldrei þurfi að koma til þess að nota þurfi tækið en ljóst er að tilkoma þess eykur mjög öryggi notenda íþróttamiðstöðvarinnar.  
Á myndinni sést þegar þeir Lions-félagar Jón Valmundsson, Reynir Ragnarsson og Sigurður Hjálmarsson afhenda Sveini Pálssyni sveitarstjóra tækið.

17.03.05
Ársreikningur 2004 samþykktur
Sveitarstjórn samþykkti ársreikning fyrir árið 2004 á fundi sínum fyrr í dag.  Halli á rekstri samstæðu var 14,1 millj. kr. sem er lakari árangur en fjárhagsáætlun hafði sýnt.   Lífeyrisskuldbindingar voru endurmetnar og hækkuðu þær um 6 millj.kr og til gjalda voru færðar á árinu um 3 millj. kr. Starfsmat samkvæmt kjarasamningum, 3,3 millj. kr. var gert upp á árinu 2004. Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga lækkuðu frá árinu 2003 um 2,2 millj. kr.
Ársreikningur 2004
 
15.03.05
Drangur vann ÍS
Körfuknattleikslið Drangs vann ÍS 85-47 í síðasta leik sínum í 1. deildinni á þessari leiktíð.  Drangur lenti þar með í 7. sæti deildarinnar, 8 stigum frá úrslitakeppni.  Góður árangur hjá Drangi á fyrsta ári í 1. deild.
 
15.03.05
Sinubruni í Dyrhólahverfi
Betur fór en á horfðist þegar kviknaði í sinu við bæinn Loftsali í Mýrdal.  Slökkviliðinu og bændum í nágrenninu tókst að slökkva eldinn áður en illa fór.
09.03.05
Suðræn stemming í heita pottinum
Sl. laugardagsmorgun var morgunsundhópurinn boðaður í suðrænan sólskinspott.  Veðrið lék við pottgesti sem nú eru að vakna af vetrardvalanum.  Helst var skortur á nógu sterkri sólvörn og suðrænir vindar gerðust á tímabili aðgangsharðir  sem kom þó ekki að sök í skógarþykkninu.  Óvæntur gestur kom í pottinn en það var “eiturslanga” sem hafði leynst í ávaxtakassanum, sem betur fór hafði forsvarsmaður pottpartýsins búið um skeið í Afríku og kunni tökin á slöngunni sem var hin spakasta og fékk sér sundsprett með gestunum.  
 
09.03.05
Enn byggt að Höfðabrekku
Ekkert lát er á uppbyggingunni að Höfðabrekku - þetta forna höfuðbýli er að ná fyrri reisn, nú sem eitt af stærri hótelum á landsbyggðinni.  Íbúðarhús er í byggingu og í gær var reist viðbygging við veitingasalinn.  Á myndinni er Jóhannes Kristjánsson hótelhaldari að fylgjast með að Guðmundur yfirsmiður fari rétt að.  Burðarvirki hússins er frá Límtré-Vírnet eins og flestar aðrar byggingar hótelsins.    
 
22.02.05
Kvenfélag Hvammshrepps 85 ára
Kvenfélagið hélt upp á afmæli sitt með því að bjóða öllum Mýrdælingum til hátíðarkvöldverðar í Leikskálum.

Ýmislegt var til skemmtunar og Málfríður Eggertsdóttir rakti sögu kvenfélagsins sem stofnað var árið 1919 og hefur starfað óslitið síðan.

Vel var mætt og þær kvenfélagskonur voru samar við sig og deildu út gjöfum og styrkjum í tilefni dagsins.

22.02.05
Gengið suður fyrir Dyrhólaey
Suðvestanáttin sem hefur verið nokkuð þrálát í vetur hefur skapað möguleika á nýjum spennandi gönguleiðum með því að bera sand að þar sem sjór fellur að öllu jöfnu að.  Í dag bar það til tíðinda að Þorsteinn á Vatnsskarðshólum gekk við þriðja mann suður fyrir Dyrhólaey, frá Kirkjufjöru í gegnum gatið á Tónni og í gömlu Dyrhólahöfn.  Ekki er vitað til að þetta hafi verið gert áður.  Þeir félagar komust þó ekki þurrum fótum og ókunnugum er ráðið frá að reyna að feta í fótspor þeirra.  Jónas ljósmyndari var að sjálfsögðu nærri.

 

22.02.05
Gengið suður fyrir Reynisfjall - Oddsfjara
Svæðið austan undir sunnanverðu Reynisfjalli norður undir Þórshafnarklakkinn var fyrr á öldum kallað Þórshöfn, en árið 1636 lenti Oddur Pétursson formaður á báti frá Vestmannaeyjum í hrakningum ásamt skipshöfn sinni austur með suðurströndinni og gátu þeir hvergi lent báti sínum, fyrr en þarna. Þurftu þeir að klífa Reynisfjallið að sunnan til þess að komast til byggða og þótti það hin mesta þrekraun, síðan hefur þessi fjara verið kölluð Oddsfjara. En svartur sandurinn á suðurströndinni er á stöðugri hreyfingu og fer nokkuð eftir ríkjandi vindáttum hvar hann grefur úr og hvar hann hleðst upp og á sama hátt er með Oddsfjöru að hún kemur og fer. Oftast er þar ekkert nema urð og grjót og geta liðið mörg ár eða jafnvel áratugir á milli þess að hún myndist, en í ríkjandi vestlægum áttum undanfarinna daga er nú komin þó nokkur fjara sem er mest syðst og skagar langt út frá fjallinu, og frá Vík séð sýnist sem hún sé komin nálægt því hálfa leið út að Reynisdröngum. Sú er þó ekki raunin þar sem mikill áll er á milli, en ótrúlega er þó stutt á milli ef staðið er í fjörunni. Jafn mikil og fjaran er nú varð hún líklega síðast í kringum 1983.

Þórshafnarklakkur er landamerki milli Reynishverfisjarða og Víkurjarða og var til skamms tíma ófært yfir hann, en mikið grjóthrun úr fjallinu í kringum 1990, sem lenti yfir Klakkinn og út í sjó, gerði það að hægt er að klöngrast þar yfir. Fyrstur til að fara þá leið var Ragnar Indriðason bóndi í Görðum í Reynishverfi, og fór hann þar um einungis fimm dögum eftir að skriðan féll. Oddsfjara lítil þá og þurfti hann því að fara um grjóturðina með fjallinu alla leið. Nokkrir hafa farið þar um síðan og notfærði Brandur Jón Guðjónsson úr Vík sér þessar aðstæður sem sköpuðust um helgina til þess að fara frá Vík og suður með fjallinu, yfir Þórshafnarklakk og á Oddsfjöru og gekk svo inn Reynishverfi og fyrir Fjallsendann að norðan og þaðan til Víkur og er þar með líklega fyrstur manna til að fara þurrum fótum umhverfis Reynisfjall í einni ferð. Þess má geta að ferðin tók hann þrjár klukkustundir og þrjár mínútur.

 Á efri myndinni eru Guðrún Brynja Guðjónsdóttir og Jóhannes Brandsson í Oddsfjöru, Reynisdrangar í baksýn og á þeirri neðri eru Ragnar Indriðason t.v. og Brandur Jón Guðjónsson.

22.02.05
Hátíð í heita pottinum
Á miðjum Þorra kom saman í heita pottinum við nýju sundlaugina hópur fólks sem stundar morgunsund reglulega, auk starfsfólks íþróttamiðstöðvarinnar. Veitingar voru í þjóðlegri kantinum í takt við almanakið og tókst þetta svo vel að allir voru sammála um að frá og með þessu fyrsta skipti væri þetta nú þegar orðin hefð.
 Íþróttamiðstöðin, þ.e. sundlaugin, tækjasalurinn og íþróttasalurinn opna kl. 7 að morgni  og eru opin til 8:30 en þá tekur skólastarfið við, auk þess sem félag eldri borgara hefur fasta tíma, en svo er opnað aftur fyrir almenning síðdegis og er opið fram á kvöld. Starfsmenn eru þrír í tveimur og hálfu stöðugildi.

 
22.02.05
Mýrdalur - land og saga, átthagafræði í 1100 ár.
Góð þátttaka er í námskeiði Fræðslunets Suðurlands sem fram fer í Leikskálum.  Yfir 70 manns mæta á námskeiðið og gerður hefur verið góður rómur að fyrirlesurum.  Enn er möguleiki að slást í hópinn.  Skráning er hjá Óskari H. Ólafssyni s. 482-4117 netf. oho7@simnet.is 

Dagskrá........

11.01.05
Mýrdalur - land og saga, átthagafræði í 1100 ár.
Fræðslunet Suðurlands efnir til 10 kvölda námskeiðs í Vík sem hefst 8. febrúar nk.  Skráning er hafin hjá  Jóni Hjartarsyni s. 480-8155 og 480-5020 netf. fraedslunet@sudurland.is  eða Óskari H. Ólafssyni s. 482-4117 netf. oho7@simnet.is 

Sjá nánar........
 

11.01.05
Snjóflóðahætta í Reynishverfi
Töluvert hefur snjóað og blásið í Mýrdalnum síðustu daga.   Íbúar á Görðum, Reyni og efri bænum á Lækjarbakka gistu á öðrum bæjum síðustu nótt og enn er talin hætta á snjóflóðum við Garða.