|
01.12.04 Fjármál Mýrdalshrepps ekki lengur undir smásjánni Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur með bréfi dags. 16. nóvember 2004 tilkynnt að skýringar sveitarstjórnar séu fullnægjandi og að miðað við fyrirliggjandi fjárhagsáætlanir, sé ekki ástæða til að hafa fjármál sveitarfélagsins lengur til sérstakrar skoðunar. |
01.12.04 Sundlaugin vígð Sundlaugin var vígð við hátíðlega athöfn og í besta Sundlaugin er hin glæsilegasta, 8x17 m að stærð auk vaðlaugar og setlaugar. |
||
|
01.12.04 Mýrdalshreppur 20 ára Mýrdalshreppur hélt upp á 20 ára afmæli sitt 26. nóvember sl. Stofnanir sveitarfélagsins tóku á móti gestum og gangandi og boðið var upp á veitingar. Mýrdalshreppur varð formlega til 1. janúar 1984 við sameiningu Dyrhóla- og Hvammshrepps. |
01.12.04 Sameining sveitarfélaga Sveitarstjórn bókaði á fundi sínum þann 25. nóvember sl. að hún myndi ekki álykta um tillögu sameiningarnefndar fyrr en niðurstaða hefði náðst um tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga miðað við núverandi verkefni en viðræður hafa gengið treglega innan tekjustofnanefndar. |
||
|
23.11.04 Félagsmiðstöðin OZ í Vík Rauði kross Íslands Víkurdeild heimsótti Félagsmiðstöðina og færði OZ til eignar FINEPIX S5500 stafræna myndavél ásamt fylgihlutum. Við í OZ þökkum þeim kærlega fyrir þessa frábæru og nauðsynlegu gjöf sem á eftir að koma að góðum notum í framtíðinni. Hægt er að skoða myndir úr starfinu á http://oz.vik.is |
23.11.04 Borgarafundur Borgarafundur var haldinn fimmtudaginn 11. nóvember sl. Á fundinum var farið yfir ársreikning 2003, framkvæmdir og áætlanir. Hjálmar Árnason og Guðjón Hjörleifsson alþingismenn kynnti tillögu sameiningarnefndar um sameiningu Mýrdals- og Skaftárhrepps. Um 10% íbúa Mýrdalshrepps voru á fundinum og flestir þeir sem tjáðu sig sáu lítinn til gang í þessari sameiningu. Ýmsir töldu vænlegra að horfa til sameiningar við Rangæinga í fyllingu tímans. |
||
|
12.10.04 Ungmennahús í Vík Mýrdalshreppur og Víkurdeild Rauða kross Íslands |
12.10.04 Drangur tapaði fyrsta leiknum ![]() Körfuknattleikslið Drangs tapaði naumlega fyrsta leik sínum í 1. deildinni körfu. Úrslit leiksins urðu 69-75 eftir að Drangsmenn höfðu haft forustu allt fram í 4. leikhluta. Sjá nánar heimasíðu Körfuknattleiksdeild Drangs |
||
|
07.10.04 Endurskoðuð fjárhagsáætlun 2004 samþykkt Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum fyrr í kvöld endurskoðaða fjárhagsáætlun fyrir árið 2004. Skv. henni er gert ráð fyrir að halli á rekstri sveitarsjóðs á árinu verði um 2,7 millj. kr. sem er sama fjárhæð og áður var gert ráð fyrir. Í bókun sveitarstjórnar kemur fram að skuldir og skuldbindingar sveitarsjóðs eru áætlaðar um 180 millj. kr. í árslok eða um 367.000 pr íbúa. Til samanburðar voru skuldir í árslok 2001, þ.e. áður en framkvæmdir við íþróttahús, stækkun grunnskóla go sundlaug hófust, 163,7 millj. kr. Endurskoðuð áætlun 2004 |
07.10.04 Gönguleiðir merktar Veraldarvinir, 23 manna hópur sjálfboðaliða af ýmsum þjóðernum sem nýverið var að störfum í Vík, merkti m.a. gönguleiðir um Reynisfjall og Grafargil. Starfsmenn Mýrdalshrepps eru að smíða stiga til að létta göngufólki að komast yfir girðingar á leiðunum en síðan ætti vaxandi hópi göngufólks í Mýrdal ekkert að vera að vanbúnaði að reyna leiðirnar. |
||
|
30.09.04 Heimasíða Bjólfskviðu Á síðunni má sjá ýmislegt áhugavert varðandi undirbúning og framvindu kvikmyndatökunnar ásamt fjölda mynda m.a.
myndir sem Jónas í Fagradal hefur tekið en myndi hér til
hliðar er úr safni hans. Sjá
www.beowulf-movie.com
|
30.09.04 Safnað fyrir rennibraut Æskulýðs- og tómstundanefnd stendur fyrir söfnun til kaupa á rennibraut við sundlaugina sem brátt verður
tilbúin til notkunar. Reikningsnúmerið er
0317-13-701174, kt. 461283-0399Nokkuð hefur safnast í sjóðinn en betur má ef duga skal. |
||
|
17.09.04 Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2002-2022 auglýst Tillaga að aðalskipulagi verður formlega auglýst í Lögbirtingarblaði föstudaginn 24. september nk. eins og fram kemur í tilkynningu hér neðar á síðunni. Greinargerð og uppdrætti má nálgast með tenglunum hér að neðan. Greinargerð Sveitarfélagsuppdráttur Þéttbýlisuppdráttur |
|||
|
Veraldarvinir í Vík
17.09.04 24 manna hópur Veraldarvina er nú að störfum í Vík og mun setja svið á mannlífið næstu tvær vikur. Veraldarvinir eru ungt fólk sem vinnur sem sjálfboðaliðar að umhverfisverkefnum ýmiss konar. Hópurinn sem kominn er til Víkur er af 11 þjóðernum á aldrinum 18-38 ára og mun m.a. vinna að lagningu gönguleiða og göngustíga í og umhverfis Vík. |
|||
|
Framkvæmdir við sundlaug á lokastigi
17.09.04 Nú fer loks að hilla undir að hægt verði að stinga sér til sund í sundlauginni í Vík. Gangi allt að óskum má reikna með að um mánaðarmótin verði hægt að opna laugina. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um formlega opnun |
|||
|
Safnað fyrir rennibraut
17.09.04 Áhugafólk hefur opnað reikning til að safna fyrir rennibraut við sundlaugina. Reikningsnúmerið er 0317-13-701174, kennitala 461283-0399 |
|||
|
Mikil umsvif við kvikmyndun
Bjólfskviðu 17.09.04 Stór hópur kvikmyndagerðamanna er nú í Mýrdalnum við tökur Bjólfskviðu. Myndin er tekin vítt og breytt í Mýrdal en stærsta leikmyndin er á Höfðabrekkuheiði. Á myndinni vinnur Óðinn Gíslason við smíði leikmyndar. |
![]() |
||
|
Stafgöngunámskeið í Vík
24.08.2004 Laugardaginn 21. ágúst sl. hélt Halldór Hreinsson stafgöngukennari námskeið í Vík. Þátttakendur voru flestir úr Mýrdalnum, 13 manns, auk tveggja úr Skaftárhreppi, og örkuðu þeir fram og aftur um Suður-Víkur túnið, sem Halldór taldi vera, eins og reyndar allt þorpið og nágrenni þess, kjörlendi fyrir iðkendur stafgöngunnar. Stafgangan hentar öllum aldurshópum, eins og sést á meðfylgjandi mynd (á myndina vantar þrjá lærlinga, kennarinn krýpur fyrir framan), yngsti þátttakandinn fæddur 1982 og sá elsti 1929. Vegna almennrar ánægju lærlinganna og fjölda fyrirspurna þeirra sem ekki komust, hefur verið ákveðið að halda annað námskeið sunnudaginn 12. september n.k. |
|
||
|
Unglingalandsmót UMFÍ 2005 í Vík
16.08.2004 Á setningu Unglingalandsmóts UMFÍ á Sauðarkróki um verslunarmannahelgina var tilkynnt að unglingalandsmót 2005 félli í skaut USVS með mótsstað í Vík. |
|||
|
|||
|
Tillaga að aðalskipulagi
Mýrdalshrepps 2002-2022
18.05.2004 Gert er ráð fyrir að tillaga að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2002-2022 verði auglýst skv. skipulags- og byggingarlögum að lokinni umræðu skipulags- og byggingarnefndar og sveitarstjórnar í næstu viku og kynningu á borgarafundi 3. júní nk. Þeir sem vilja gægjast í vinnugögnin geta smellt á eftirfarandi tengla. Um er að ræða nokkuð stórar pdf-skrár þannig að þeir sem eru með hægar tengingar ættu kannski að bíða eftir borgarafundinum. Greinargerð Sveitarfélagsuppdráttur Þéttbýlisuppdráttur
|
|||
|
Ársreikningur og fjárhagsáætlanir
21.06.2004 Ársreikningur 2003, fjárhagsáætlun 2004 og þriggja ára áætlun 2005-2007 eru nú aðgengilegar á vefnum. Smellið á tenglana hér að neðan. Ársreikningur 2003 Fjárhagsáætlun 2004 Þriggja ára áætlun 2005-2007
|
|||
|
Lögreglusamþykkt fyrir
Mýrdalshrepp 26.05.2004 Endanleg drög að lögreglusamþykkt verða lögð fyrir fund sveitarstjórnar 27. maí nk. Áhugasamir geta kynnt sér efni frumvarpsins hér.... |
|||
|
Sumardagar í Vík
12.06.03 Hátíðin Sumardagar í Vík er haldin nú um helgina. Á föstudagskvöldið var harmonikkuball á Ketilsstöðum og í dag hefur dagskráin verið að mestu eftir áætlun þrátt fyrir að "þriggja vikna meðalúrkoma" hafi komið úr loftinu á einum degi. Þegar þetta er skrifað hefur stytt upp og senn líður að brekkusöng við varðeldinn og síðan dansleikur með Sniglabandinu. Dagskráin er á þessari slóð.... |
|||
|
Sparkvöllur í Vík
18.05.2004 KSÍ hefur ákveðið að úthluta sparkvelli til Víkur. Mýrdalshreppur sér um undirlag, girðingu og lýsingu en KSÍ útvegar og leggur fyrsta flokks gervigras á völlinn sveitarfélaginu að kostnaðarlausu.
Þetta verður enn ein stoðin í
öflugri uppbyggingu íþróttaaðstöðu í Vík.
Ef smellt er á táknið hér til hliðar opnast
afstöðumynd sem m.a. sýnir fyrirhugaða
staðsetningu sparkvallar á skólalóðinni við
grunnskólann.
|
![]() |
||
|
Samþykkt um búfjárhald í
burðarliðnum 10.05.2004 Landbúnaðarráðherra hefur nú staðfest samþykkt um búfjárhald og von er á auglýsingu í Stjórnartíðindum í vikunni. Þar með verður komið á lausagöngubann á hringvegi (1) frá Vík að Jökulsá á Sólheimasandi. Jafnframt tekur Vegagerðin að sér viðhald girðinga með veginum á þessu svæði. Endanleg drög að samþykktinni má nálgast hér.... |
|||
|
Sauðburður gengur vel og
gróður snemma á ferðinni 10.05.2004 Sauðburður gengur vel í Mýrdals og veðurblíðan gerir bændum starfið auðveldara. Sauðféð getur spókað sig utandyra og notið sólskinsins sem hefur verið ríkulegt síðustu daga. Hinn græni einkennislitur Mýrdalsins er nú allsráðandi og sláttuvélarnar eru byrjaðar sönginn sem varla þagnar fyrr en í haust. Það er helst að nú vanti vætu en ekki hefur rignt hér um slóðir svo dögum ef ekki vikum skiptir. |
![]() |
||
|
Leikskólabörn taka fyrstu
skóflustungu að sundlaug
10.05.2004 Börnin í leikskólanum Suður-Vík létu sitt ekki eftir liggja þegar byrjað var að grafa fyrir sundlaug í Vík á alþjóðadegi hreyfingar. Sundlaugargarðurinn er hannaður af Alark arkitektum og verður aðallaugin 8,33x16,67 m að stærð. Að auki verða vaðlaug sem leikskólabörnin eiga eflaust eftir að una sér í og setlaug fyrir þá sem vilja meiri hita í kroppinn. Laugarnar verða steinsteyptar og klæddar með sundlaugardúk. |
![]() |
||
|
Viðurkenning í hugmyndasamkeppni
Landsbankans 10.05.2004 Nemendur í 3. og 4. bekk grunnskólans ásamt kennurum fengu viðurkenningu fyrir athyglisverðustu hugmyndina um miðbæ Reykjavíkur í hugmyndasamkeppni Landsbankans. Ásamt viðurkenningarskjali fengu þau kr. 50.000,- |
![]() |
||
|
Háhraðatengingar í Vík
10.05.2004 Íbúum og fyrirtækjum í Vík stendur nú til boða háhraðatengingar frá fyrirtækinu eMax en Mýrdalshreppur hefur gert samning við fyrirtækið um að amk. 90% heimila í sveitarfélaginu standi til boða háhraða Internettenging fyrir árslok 2005. |
|||
|
Fjármögnun íþróttahúss lokið.
03.05.2004 Með lokagreiðslu Jöfnunarsjóðs er fjármögnun íþróttahúss lokið og skammtímaskuldir að fullu greiddar. Upphaflegar áætlanir um fjármögnun hafa þar með gengið eftir. |
|||
|
Mýrdalshreppur óskar eftir
þátttöku í sparkvallaátaki KSÍ
03.05.2004 Sveitarstjórn hefur ákveðið að sækja um þátttöku í sparkvallaátaki KSÍ með það að markmiði að koma upp gervigrasklæddum sparkvelli (18x33 m) þegar á þessu ári enda hefur verið gert ráð fyrir slíkum velli á skólalóðinni og jarðvinnu er þar lokið. |
|||
|
Hópferðabílar Suðurlands halda áfram
skólaakstri. 03.05.2004 Sveitarstjórn samþykkti á fundi 29. apríl að ganga að tilboði Hópferðabíla Suðurlands um skólaakstur fyrir grunnskólann skólaárin 2004-2005 og 2005-2006. Þrjú tilboð bárust og reyndist tilboð Hópferðabíla lægst. |
|||
|
Klakkur byggir fyrsta áfanga
sundlaugar. 03.05.2004 Sveitarstjórn samþykkti á fundi 29. apríl að ganga að tilboði byggingarfélagsins Klakks um 1. áfanga sundlaugar í Vík. Starfsfólk hefur verið ráðið frá 1. júlí nk. |
|||
|
Katla ræskir sig 20.04.04 Reynir Ragnarsson sést hér spýta Múlakvísl eftir að hafa metið leiðni vatnsins með að því er virðist svipaðri aðferð og beitt er við vínsmökkun. Þetta notar Reynir væntanlega til að sannreyna niðurstöður mælitækjanna. Nokkrir smáskjálftar urðu í Kötluöskjunni á sunnudag og samfara hækkaði leiðnin í Múlakvísl. Allt hefur verið með kyrrum kjörum síðan og leiðnin lækkað. |
![]() |
||
|
Skugganefja á
Víkurfjöru 20.04.04
Myndin var tekin fyrir nokkru er starfsmaður Hafrannsóknastofnunar var að taka sýni úr Skugganefju sem er mjög sjaldgæf hvalategund hér við land. Starfsmenn áhaldahúss sem sjást í baksýn höfðu snarlega urðað dýrið enda var ilmurinn engan veginn indæll. |
![]() |
||
|
Drangur vann 2.
deildina í körfu
29.03.2004
Körfuknattleikslið Drangs
gerði sér lítið fyrir og vann 2 deildina í
körfuknattleik en úrslitakeppnin fór fram í Vík og á
Klaustri um helgina. Drangur vann alla andstæðinga
sína og lagði lið ÍA í úrslitaleiknum 79-68 og voru
Drangsmenn yfir allan leikinn ef undan er skilinn fyrsti
mínútur fyrsta leikhluta.Þetta er frábær árangur ekki síst í ljósi þess að þetta er fyrsta keppnistímabil liðsins. Sjá nánar heimasíðu körfuknattleikslið Drangs http://drangur.tripod.com Til hamingu Drangsmenn! |
![]() |
||
|
Aukin samvinna
lögreglu í Vík, á Hvolsvelli og
Selfossi
22.03.2004
Lögreglustjórarnir í Vík,
á Holsvelli og Selfossi undirrituðu í
dag samning um samstarf sín í milli um
löggæslu á Suðurlandi. „Samningnum er
ætlað að gilda til loka september á
þessu ári og miðar að því að styrkja og
efla löggæslu á Suðurlandi, bæta nýtingu
fjármuna og tryggja enn betur öryggi
íbúa á svæðinu öllu, ásamt því að efla
eftirlit á hálendi Suðurlands,“ segir í
fréttatilkynningunni. „Samvinna
verður aukin með það fyrir augum að
minnka nauðsyn bakvakta og efla um leið
sérstök átaksverkefni og eftirlit.
Einnig er ætlunin að efla samstarf á
sviði lögreglurannsókna svo sem kostur
er, þar með talið fíkniefnaeftirlit,“
segir ennfremur. Þá segir að
ætlunin sé að gera tilraun með
sameiginlegar vaktir út fyrir mörk
einstakra umdæma þannig að lögreglumenn
úr fleiri en einu umdæmi gangi
sameiginlega vaktir þegar henta þykir.
Einnig er stefnt að sameiginlegum
átaksverkefnum og eftirliti af hálfu
umdæmanna þriggja. Jafnframt er stefnt
að samnýtingu bifreiða eftir því sem
kostur er.
Af mbl.is
|
|||
|
Baldur Þorsteinsson á flot 17.03.2004 Norska dráttarbátnum tókst að draga Baldur Þorsteinsson á flot á flóðinu um 02:30 í nótt. Von er á björgunarmönnum til byggða í nótt eða fyrramálið. Gera má ráð fyrir að víða verði fagnaðarfundir þar sem sumir hverjir hafa staðið vaktina nánast sleitulaust frá því að strandið varð og lítt eða ekki sést heima. Þetta strand flokkast sennilega sem "gott strand" svo vitnað sé í strandsýninguna í Brydebúð án þess að tilraun sé gerð til að skýra hugtakið nánar hér. |
|||
|
Mikil umsvif á strandstað 12.03.2004 Nú þegar norski dráttarbáturinn er um það bil að koma á strandstað eru menn sem óðast að gera allt klárt í fjörunni. Verktakafyrirtækið Framrás í Vík er komið með hluta af tækjum sínum á staðinn og búið er að setja upp fullkomið eldhús á staðnum en það er í eigu Mýrdælings hf. Umhverfisráðherra og Sýslumaðurinn í Vík kynntu sér aðstæður í gær. |
![]() |
![]() |
|
|
Víkverjar á Skarðsfjöru
09.03.2004 Félagar úr björgunarsveitinni Víkverja í Vík voru mættir snemma morguns í Skarðsfjöru þar sem togarann Baldvin Þorsteinsson rak til lands með nótina í skrúfunni. Þeir félagar í Víkverja hafa lagt metnað sinn í að viðhalda kunnáttu sinni í notkun línubyssu og björgunarstóls en sem betur fer þurfti ekki að grípa þeirra áhalda þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar bjargaði giftusamlega mönnunum úr skipinu. Mörg skip hafa lent upp í hafnlausri suðurströndinni, sérstaklega á fyrri hluta síðustu aldar og nokkrum tókst að bjarga þannig að ekki er ástæða til að gefa upp von með þetta skip þó stórt sé. Á sýningu um skipströnd við suðurströndina sem sjá má í Brydebúð í Vík, kemur ma. fram að á annað hundrað skip strönduðu þar á um hundrað ára tímabili. |
![]() |
||
|
Háhraðatengingar í Vík
19.02.2004 Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum fyrr í kvöld að ganga til samninga við eMax ehf um háhraða internettenginar í Mýrdal. Gera má ráð fyrir að íbúar og fyrirtæki í Vík geti tengst í marsmánuði og að velflest heimili í Mýrdal geti tengst fyrir árslok 2005. |
|||
|
Nýjar reglur um fjárhagsaðstoð
19.02.2004 Sveitarstjórn hefur samþykkt nýjar reglur um fjárhagsaðstoð sem taka þegar gildi. |
|||
|
Drangur kominn í úrslit í
körfunni 16.02.2004
Drangur vann ÍV frá Vestmanneyjum 62-49 í Vík á sunnudaginn. Með sigrinum er Drangur kominn í úrslitakeppni um sæti í 1. deild þó ein umferð sé eftir. Frábær árangur hjá Drangsmönnum á sínu fyrsta ári í 2. deild. Myndirnar tóku þeir Jónas Erlendsson og Sigurður Hjálmarsson |
|
||
|
Vetrarblíða í Vík
04.02.2004 Lítið verður vart við Vetur konung hér um slóðir og trúa Mýrdælir vart veðurlýsingum frá öðrum landshlutum þessa dagana. Á þessari mynd Sigurðar Hjálmarssonar sjást börnin af leikskólanum Suður-Vík á heilsubótargöngu í blíðviðrinu. |
|
||
|
Þorrablót á Ketilsstöðum
04.02.2004 Íbúar í ytri hluta Mýrdalsins halda þorrablót laugardaginn 7. febrúar. Víkingar blótuðu Þorra í Leikskálum 24. janúar og ef að líkum lætur blóta íbúar eystri hluta Mýrdalsins, þ.e. aðrir en Víkingar, á Eyrarlandi í endaðan Þorra. |
|||
|
Kynning á ferðaþjónustu í Höfuðborgarstofu
04.02.2004 Ferðaþjónustuaðilar í Rangárþingi og Mýrdalshreppi verða í Höfuðborgarstofu á fimmtudag og föstudag með kynningu á starfssemi sinni á svæðinu. Það er Eymundur atvinnu- og ferðamálafulltrúi sem hefur skipulagt þetta. |
|||