|
Loksins, loksins - sundlaug í Vík
18.12.2003 Sveitarstjórn Mýrdalshrepps samþykkti á fundi sínum fyrr í kvöld að byggja sundlaug við íþróttahúsið í Vík. Sundlaug hefur verið á óskalista Mýrdæla í áratugi en það sem gerir framkvæmdina mögulega nú er að þegar er búið að koma upp búningsaðstöðu fyrir sundlaugina í íþróttahúsinu Gert er ráð fyrir 11 millj. kr til framkvæmdanna á árinu 2004 vonast er eftir að hún verði tilbúin til notkunar í byrjun sumars. Einnig er gert ráð fyrir fráveituframkvæmdum í Vík sem ættu að nægja til að hreinsun skolps í Vík verði í samræmi við gildandi lög. |
|
|
Fjárhagsáætlun 2004 samþykkt
18.12.2003 Niðurstaða samstæðureiknings sveitarfélagsins sýnir heildareignir að fjárhæð 328,8 millj. kr., langtímaskuldir 113,1 millj.kr., skammtímaskuldir 33,8 millj. kr., eigið fé 149,2 millj.kr. og lífeyrisskuldbindingar 28,6 millj. kr. Handbært fé frá rekstri er 10,6 millj. kr. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er 5,6 millj. kr. Afborganir langtímalána eru 8,7 millj. kr. og ný langtímalán áætluð 10,0 millj. kr. Í A-hluta áætlunarinnar (aðalsjóði, eignasjóði og þjónustudeild) kemur fram að heildartekjur sveitarfélagsins eru áætlaðar 173,4 millj. kr., þar af útsvar 85 millj. kr. og framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 53,8 millj.kr. Rekstur málaflokka ásamt eignasjóði kostar 172,9 millj. kr. Stærsti einstaki útgjaldaliður eru fræðslu- og uppeldismál með 92,7 millj. kr. eða um 53% af heildartekjum. Heildarlaunagreiðslur eru áætlaðar 94,2 millj. kr. eða um 54% af tekjum samstæðunnar. Helstu liðir í framkvæmdum/fjárfestingu eru fráveitur í Vík, sundlaug við grunnskólann og viðgerðir á Mýrarbraut 13. Þá er gert ráð fyrir að ljúka úrbótum á lóð leikskóla. Heildarskuldir pr. íbúa í árslok 2004 eru áætlaðar kr. 354.000,-. Árið 2002 voru skuldir sveitarfélaga á Íslandi að meðaltali 627.426 kr. pr. íbúa. Fyrirliggjandi fjárhagsáætlun 2004 samþykkt samhljóða. |
|
|
Áhugaverðar niðurstöður í könnun
Ferðamálaráðs 07.12.2003 Ferðamálaráð til fjölda ára gert kannanir meðal erlendra gesta. Nú eru niðurstöður könnunartímabilsins september 2001-ágúst 2002 aðgengilegar á vef Ferðamálaráðs www.ferdamalarad.is. Niðurstöðurnar eru um margt fróðlegar og eru lesendur hvattir til að skoða þær. Slóðin er http://www.now2004.is/Kannanir/konn_rammi.html Á súluritinu hér til hliðar sem er úr umræddri könnum, má lesa að um 50% erlendra ferðamanna að sumri virðast heimsækja Vík. Þarna er Vík í 3-5 sæti ásamt Mývatni og Akureyri á eftir Geysi og Þingvöllum sem hafa nokkra sérstöðu. |
![]() |
|
Bónað og þrifið til að komast til
"Baunalands" 09.12.2003 Krakkar í 8. og 9. bekk Grunnskóla Mýrdalshrepps ásamt foreldrum unnu við að bóna og þrífa bíla s.l. sunnudag í slökkvistöðinni í Suður-Vík. Alls voru bónaðir og þrifnir 14 bílar. Mikill kraftur var í krökkunum enda eru þau að þessu til að safna peningum fyrir væntanlegri Danmerkurferð. Ljósm. Sigurður Hjálmarsson |
|
|
Jónas í Fagradal opnar ljósmyndasýningu.
07.12.2003 Hinn bráðsnjalli ljósmyndari Jónas í Fagradal, sem m.a. leggur til margar myndir sem birtast hér á vik.is, hefur opnað ljósmyndasýningu á Halldórskaffi. Þar sýnir hann 24 myndir sem sýna ýmis tilbrigði í litadýrð náttúrunnar. |
|
|
Drangur sigrar ÍV
07.12.2003 Drangur sigraði IV frá Vestmannaeyjum 81 stigi gegn 59 í íþróttahúsinu í Vík í gær og eru því langefstir í sínum riðli í 2. deild 6. riðli í körfubolta. Heimasíða körfuknattleiksliðs Drangs: Ljósm. Jónas Erlendsson |
![]() |
|
Aðventusamkoma í Víkurkirkju
01.12.2003 Mýrdælir áttu notalega stund í Víkurkirkju í gær á aðventusamkomu þar sem dagskráin var fjölbreytt að vanda. Þegar myndin var tekin hafði séra Haraldi tekist að smala saman börnunum að altarinu og ekki er annað að sjá en hann hafi fangað athygli þeirra. Að athöfninni lokinni var kveikt á jólatrénu sem stendur framan við kirkjuna. Ljósm. Jónas Erlendsson |
![]() |
|
Körfuknattleikslið Drangs sigrar enn.
26.11.2003 Á sunnudaginn mætti Drangur
Hrunamönnum, UMFH í íþróttahúsinu í Vík. Drangur sigraði
í leiknum 108 - 50 með dyggum stuðningi áhorfenda sem létu vel
í sér heyra. Í gærkvöldi mætti Drangur Dimon í
íþróttahúsinu í Hvolsvelli og enn vann Drangur 85 - 35.
Lið Drangs en nú efst í riðli A6.
Ljósm. Jónas Erlendsson |
![]() |
|
Vel mætt á "villibráðarjólahlaðborð"
26.11.2003 Milli 170 og 180 manns skemmtu sér konunglega í Leikskálum á laugardaginn. Boðið var upp á villibráðarhlaðborð með jólaívafi. Hinir öldnu höfðingjar í Ríó tríó tróðu upp við góðar undirtektir. Þremenningarnir nutu aðstoðar Gunnars Þórðarsonar og Björns Thoroddsens gítarleikara. Ljósm. Jónas Erlendsson |
![]() |
|
Stangveiðifélagið eys úr sjóðum sínum
26.11.2003 Stangveiðifélagið Stakkur hélt árshátíð sína á villibráðarkvöldinu og þar mætti formaður félagsins, Hafsteinn Jóhannesson með digran sjóð. Félagið færði Slökkviliði Mýrdalahrepps, björgunarsveitinni Víkverja og körfuknattleiksliði Drangs veglega styrki sem nýtast munu vel í starfi félaganna. Ljósm. Jónas Erlendsson |
![]() |
|
Vetur konungur mættur.
26.11.2003 Vetrarlegt er nú um að litast í Vík en nokkuð hefur snjóað síðustu daga. Börnin brosa nú eyrna á milli og renna sér um allar brekkur. Ljósm. Sigurður Hjálmarsson |
|
|
Víkurdeild RKÍ færir Hjallatúni gjöf.
26.11.2003 Víkurdeild Rauða kross Íslands kom færandi hendi á dvalarheimilið Hjallatún um helgina. Heimilið fékk þá að gjöf þrjá öryggishnappa sem heimilisfólkið getur tekið með sér á gönguferðum. Á myndinni eru forráðamenn rauðakrossdeildarinnar ásamt Guðlaugu Guðmundsdóttur forstöðumanni Hjallatúns. Ljósm. Sigurður Hjálmarsson |
|
| BVT ehf semur við Atvinnuþróunarsjóð Suðurlands 21.11.2003 | |
|
Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands og BVT ehf hafa
gert með sér þjónustusamning sem kveður á um að BVT ehf tekur
að sér að vinna ráðgjafarverkefni fyrir viðskiptavini sjóðsins
í Vestur-Skaftafellssýslu. Mýrdælir og Skaftárhreppingar
eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu en reglur um aðstoð
sjóðsins er að finna á heimasíðu hans
www.sudur.is |
|
| Lýsing Víkurkirkju endurnýjuð 21.11.2003 | |
| Þessa dagana er unnið að endurnýjun utanhússlýsingar Víkurkirkju en upplýst kirkjan er eitt af kennileitum Víkurþorps þar sem hún gnæfir yfir byggðina. Glerfyrirtækið Íspan ehf, Grímur Guðmundsson og fjölskylda hefur ákveðið að gefa nýja flóðlýsingu. | |
| Mýrdalshreppur kaupir lóðir 21.11.2003 | |
|
Mýrdalshreppur hefur gengið frá kaupum á lóðum
af Kaupfélagi Árnesinga. Um er að ræða lóðir milli
Víkur- og Sunnubrautar sem Víkurbændur seldu Kaupfélagi
Skaftfellinga og Verslunarfélagi Vestur-Skaftfellinga árið
1954. Með lóðunum fylgdi gamla vöruskemman við
Sunnubraut og búast má við að hún verði auglýst til
brottflutnings innan tíðar. |
|
| Góður árangur hjá 7. bekk 21.11.2003 | |
|
7. bekkur Grunnskóla Mýrdalshrepps (GSM) náði
góðum árangri í samræmdum prófum. Meðaleinkunn í
stærðfræði var 8,5 meðan landsmeðaltal var 7,5. Í
íslensku var meðaleinkunn GSM 7,7 meðan landsmeðaltal er 7,5.
Til hamingju nemendur og starfsmenn. |
|
| Ný heimasíða 12.11.2003 | |
|
Körfuknattleikslið Drangs hefur sett upp heimasíðu.
Slóðin er
http://drangur.tripod.com |
|
| Ný heimasíða 12.11.2003 | |
|
Menningarfélag um Brydebúð hefur sett upp
heimasíðu. Slóðin er
http://www.brydebud.vik.is |
|
| Drangur á fljúgandi ferð í körfunni 10.11.2003 | |
|
Fyrsti heimaleikurinn fór fram um helgina í nýja íþróttahúsinu í Vík. Mikill áhugi var fyrir leiknum og fjölmenntu heimamenn á pallana og studdu sitt lið enda stóðu þeir vel undir væntingum og unnu Dímon frá Hvolsvelli með 104 gegn 62. Eftir 4 umferðir er Drangur í fyrsta sæti í sínum riðli með 6 stig ásamt ÍV frá Vestmannaeyjum en Drangur er með 115 stig í plús. Þjálfari Drangs er Björn Ægir Hjörleifsson. Mynd: Jónas Erlendsson
|
![]() |
| Drangur byrjar vel í körfunni 20.10.2003 | |
| Drangur vann ÍV í Vestmannaeyjum 94-63 í fyrsta leik sínum í 2. deildinni í körfu. Daginn eftir töpuðu þeir naumlega 67-69 seinni útileik sínum við ÍV. Næsti leikur Drangs verður á móti UMFH á Flúðum 26. október en fyrsti heimaleikurinn 8. nóvember. | |
| Ný bók 20.10.2003 | |
| Hilde Lene Aardal íbúi í Vík, hefur gefið út bókina The Mind´s Eye. Sjá nánar á heimasíðu Hilde http://www.hildeaardal.com | |
| Æskulýðs- og tómstundafulltrúi kominn til starfa 19.08.2003 | |
| Kjartan Kárason íþróttakennari er mættur til starfa sem æskulýðs- og tómstundafulltrúi. Starfið er hlutastarf á móti íþróttakennslu í grunnskólanum. Kjartan hefur vinnuaðstöðu á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austurvegi 17. | |
| Félagsmálastjóri ráðinn til starfa 18.08.2003 | |
| Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, sem Mýrdalshreppur er aðili að, hefur ráðið Mörtu Bergmann sem félagsmálastjóra. Skrifstofa félagsmálastjóra verður á Hvolsvelli en Marta mun hafa fasta viðveru á skrifstofu Mýrdalshrepps á ákveðnum tímum. Marta tekur til starfa í byrjun september og verða viðtalstímar auglýstir síðar. | |
| Ný brú á Afréttisá brátt tilbúin 18.08.2003 | |
| Nú líður að því að ný brú á Afréttisá verði tilbúin til umferðar en Bjarni Jón Finnsson sem rekur tjaldsvæðið í Þakgili á veg og vanda af framkvæmdinni. | |
| Leikskólinn opnar eftir sumarfrí 28.07.2003 | |
| Leikskólinn Suður-Vík opnaði í dag eftir sumarfrí. Starfsmenn áhaldahúss Mýrdalshrepps hafa tekið til hendinni á lóð leikskólans og er nú lóðin hin glæsilegasta eins og reyndar hús leikskólans, hið aldargamla fyrrum íbúðarhús í Suður-Vík. | |
| Útboð á skólaakstri 17.07.2003 | |
| Mýrdalshreppur hefur auglýst útboð á skólaakstri fyrir Grunnskóla Mýrdalshrepps fyrir skólaárin 2003-2004 og 2004-2005. Sjá tilkynningu hér að neðan. | |
| Æskulýðs- og tómstundafulltrúi 17.07.2003 | |
| Kjartan Kárason íþróttakennari hefur verið ráðinn í nýtt starf æskulýðs- og tómstundafulltrúa Mýrdalshrepps. Starfið er hlutastarf og mun Kjartan einnig sjá um íþróttakennslu fyrir grunnskólann. Kjartan kemur til starfa í ágústmánuði. | |
| Félagsmálastjóri 17.07.2003 | |
| Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, sem Mýrdalshreppur er aðili að, er að ganga frá ráðningu félagsmálastjóra. Gert er ráð fyrir að félagsmálastjórinn verði staðsettur á Hvolsvelli en hafi fasta viðveru á ákveðnum tímum á skrifstofu Mýrdalshrepps. Þar með styrkist mjög þjónusta Mýrdalshrepps á þessu mikilvæga sviði. | |
| Veðurblíða í Mýrdalnum 17.07.2003 | |
| Veðrið hefur heldur betur leikið við Mýrdælinga síðustu daga eftir dálítinn votviðriskafla þar á undan. | |
| Nýjar samþykktir í smíðum 17.07.2003 | |
|
Verið er að vinna að samþykkt um búfjárhald í
Mýrdalshreppi og lögreglusamþykkt. Drög að þessum
samþykktum eru nú aðgengileg hér á vefnum. Hugsanlegar
athugasemdir má senda á netfangið
sveitarstjori@vik.is
drög að samþykkt um búfjárhald........ drög að lögreglusamþykkt.... |
|
| Íslandsleikhús í Vík 5.-10. júlí. 04.07.2003 | |
| Leikhópurinn Íslandsleikhús 2003 dvelur í Vík dagana 5. - 10. júlí. Íbúar Mýrdalshrepps og ferðamenn geta á von í óvæntum uppákomum þessa daga. | |
| "Leirkrít og ljóðabrot" 04.07.2003 | |
| Guðrún Sigurðardóttir og Sigrún Lilja Einarsdóttir hafa opnað samsýningu á verkum sínum í Halldórskaffi, Brydebúð. Guðrún sýnir verk unnin úr leir og Sigrún Lilja pastelkrítarverk. Sýningin mun standa fram yfir Verslunarmannahelgi. | |
| Hjólabátar aftur gerðir út frá Vík. 30.06.2003 | |
| Dyrhólaferðir hafa nú staðsett hinn glæsilega hjólabát sinn við Víkurskála þannig ferðalangar geta nú aftur brugðið sér í siglingu frá Vík að Reynisdröngum eða Dyrhólaey. | |
| Framkvæmdum við Víkurkirkjugarð miðar vel áfram. 30.06.03 | |
| Skrúðgarðyrkjuverktakar eru við vinnu í Víkurkirkjugarði og leggja þar göngustíga og hlaða skjólveggi. Einnig er fyrirhugað að endurnýja girðingu á norður- og austurhliðum garðsins. | |
| Félagsmálaráðuneytið kveður upp úrskurð vegna skólaaksturs. 23.06.2003 | |
| Hinn 11. júní 2003 var kveðinn upp í félagsmálaráðuneytinu úrskurður vegna stjórnsýslukæru varðandi skólaakstur í Mýrdalshreppi. Þar kemur fram að ákvörðun sveitastjórnar Mýrdalshrepps um skipulag skólaaksturs í sveitarfélaginu, dags. 14. október 2002, skuli standa óhögguð. Úrskurðinn má sjá á slóðinni: http://felagsmalaraduneyti.is/interpro/fel/fel.nsf/pages/frettir-sv0046 | |
| Verslunin Kjarval endurnýjuð. 23.06.2003 | |
| Verslunin Kjarval hefur nú verið endurbætt. Skipt hefur verið um gólfefni, innréttingar og tæki. Verslunin er nú hin glæsilegasta. Verslunarstjóri er Sif Hauksdóttir. | |
| Vínbúð opnuð í Vík. 20.06.2003 | |
| ÁTVR hefur opnað vínbúð í Víkurskála. Vínbúðin er opin mán-fim kl. 17-18 og föstudaga kl. 16-19. | |
| Ferðamálafulltrúi. 20.06.2003 | |
|
Mýrdalshreppur hefur ráðið Atvinnu- og ferðamálafulltrúa í samvinnu við
sveitarfélögin í Rangavallasýslu. Hann heitir Eymundur Gunnarsson og hægt
er að hafa samband við hann i símum 4975020 og 8935020 eða með tölvupósti
eymundur@rang.is Fréttir frá Eymundi
má sjá á slóðinni
http://www.hvolsvollur.is/news.asp?id=589 Við bjóðum Eymund velkominn til starfa og væntum góðs af samstarfi við hann. |
|
| Upplýsingamiðstöðin í Brydebúð 13.06.2003 | |
| Upplýsingamiðstöðin er nú opin alla daga. Siminn er 4871395. | |