Eldri fréttir 2009

 
30.12.2009
Lausafé handsamað.

Það er lengi von á að finna kindur úti í Mýrdalnum, landslagið býður upp á að þær geti lengi leynst og oft kostar það töluverða vinnu og brölt að ná þeim.
Tveir göngugarpar gengu fram á tvær kindur framarlega í Heiðargili, og var þegar hóað saman mannskap til að ná þeim enda fyrsti snjór vetrarins fallinn og því harðnar fljótt á dalnum hjá útigöngufénaði.
Ferðin gekk vel og náðust báðar kindurnar heilar á húfi, en snara þurfti aðra kindina sem setti sig mjög tæpt í klettahillu. Kindurnar sem eru veturgömul ær og lambhrútur eru frá Ólafi Steinari Björnssyni og Bergþóru Ástþórsdóttur á Reyni í Mýrdal.
Texti og myndir: Jónas Erl.                                Fleiri myndir...
28.12.2009
Útlenski jólasveinninn lenti í Vík í Mýrdal!

Á vef Pressunnar þann 25. desember s.l. mátti lesa eftirfarandi frétt:
"Útlenski jólasveinninn, frændi íslensku jólasveinanna, virðist hafa komið hingað til lands nú fyrir jólin og lent í Vík í Mýrdal. Þetta sýna gervitunglamyndir og ratstjárupplýsingar NORAD, en þær hafa upplýst börn í heiminum um ferðir jólasveinsins í hálfa öld"
Sjá má fréttina í heild á
http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/norad-fylgist-med-ferdum-althjodlega-jolasveinsins-virdist-hafa-lent-i-vik-i-myrdal
 
Jólin - Jólin - Jólin

Jólaskemmtanir Víkurskóla voru haldnar í síðustu viku. Miðvikudaginn 16. desember héldu nemendur leikskólans sína skemmtun en þar komu jólasveinar ríðandi til byggða og heimsóttu börnin í Suður – Vík. Grunnskólinn hélt sína jólavöku fimmtudaginn 17. desember en þar borðuðu nemendur og starfsfólk jólamat í hádeginu og svo hófst hefðbundin dagskrá sem að sjálfsögðu endaði svo á því að dansað var í kring um jólatréð. Meðfylgjandi myndir segja meira en mörg orð.

Fleiri myndir...

17.12.2009
Lúsíutónar í Víkurkirkju

Sunnudaginn 13. desember s.l. stóð Tónskólinn fyrir Lúsíuhátíð í Víkurkirkju.
Sr. Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur sagði frá suppruna Lúsíu og Lúsíuhátíðum í Svíþjóð. Harpa Jónsdóttir kynnti Staffan hestasvein og heilagan Stefán og svo var söngur og tónlist í hávegum höfð, enda í öruggum höndum Kára Gestssonar og Kristins Jóhanns Níelssonar.
Þær voru yndislegar litlu Lúsíurnar sem gengu syngjandi inn kirkjugólfið með kertin sín í hálfrökkrinu og allir kirkjugestir sammála um að þetta hafi verið bæði áhrifarík og falleg stund í kirkjunni okkar.

Fleiri myndir...

16.12.2009
Víkurskóli skal hann heita

Á haustdögum óskaði skólastjóri eftir nöfnum á sameinaða skólastofnun.
Á fræðslunefndarfundi voru skólastjóra og deildarstjórum síðan falið að velja þrjár tillögur og leggja fyrir fræðslunefndarfund.
Á fræðslunefndarfundi þann 19. nóvember s.l. lágu fyrir fundinum 4 tillögur að nöfnum sem oftast komu fyrir, Víkurskóli, Barnaskólinn Vík, Mýrdalsskóli og Menntaskóli Mýrdalshrepps.
Nefndin var sammála um að velja nafnið Víkurskóli.
16. desember 2009
Á döfinni hjá Markaðsstofu Suðurlands

Sameiginlegur landshlutabæklingur og Vestnorden
Í september s.l. gaf Markaðsstofa Suðurlands út sameiginlegan landshlutabækling þar sem öll ferðaþjónustufyrirtæki eru grunnskráð, en það hafði ekki verið gert áður. Þessi „opinbera upplýsingahandbók“ er í líkingu við samskonar bæklinga frá markaðsstofum hinna landshlutanna og veitir erlendum og innlendum ferðamönnum um Suðurland upplýsingar um sveitarfélög landshlutans og helstu bæi, sögu, menningu og listir, afþreyingu, náttúru, gistingu og fleira.
Lesa meira...

Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir ánægjustundir á árinu sem er að líða.
Megi nýtt ár færa okkur gleði og farsæld.

Sveinn P., Helga H., Sævar og Inger

Ljósm.
Magdalena K.


Sveitarstjórn Mýrdalshrepps óskar íbúum og starfsfólki

gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

 

FLUGELDASALA VÍKVERJA

Verður í húsi sveitarinnar sem hér segir:

Mánudagur 28.12 kl: 16.00-20.00
Þriðjudagur 29.12 kl:16.00-20.00
Miðvikudagur 30.12 kl:14.00-21.00
Gamlársdag kl: 10.00-14.00

Þrettándinn 6. jan kl:16.00-19.00


Flugeldasýning um áramót.
Viðskiptavinum Víkverja stendur til boða eins og áður að greiða í sýningarpott
fyrir áramótasýningu í Vík.
Sýningin verður um kl 21.15 á gamlárskvöld, á meðan brennan er.

Víkverji


Íþróttamiðstöðin í Vík

Hátíðaropnun jólin 2009
 

Jólablað Fréttabúa er að koma úr prentun

Verður í lausasölu í Kjarval á Klaustri og í Vík
Ætti því að ná til áskrifenda (lesenda) fyrir jól.
Blaðið er fjölbreytt efni að vanda, bæði les- og myndefni.
Má þar m.a. nefna ítarlega umfjöllun um Prestsbakkakirkju
vegna 150 ára afmælis hennar.
Þar eru m.a. myndir af öllum prestum kirkjunnar frá upphafi nema einum.
Blaðið sem er 64 síður kostar kr. 2.000.-
 

Jólaball 2009

í boði Víkurskála, Snyrtistofunnar í Vík, Kjarvals í Vík og hljómsveitarinnar Granít

verður haldið í félagsheimilinu Leikskálum
sunnudaginn 27. desember kl. 16:00 - 18:00
Hljómsveitin Granít leikur jólalögin meðan við dönsum
í kringum jólartréð.
Von er á jólasveinum og kannski fleiri ættingjum þeirra og Björgunarsveitin Víkverji verður með sína árlegu flugeldasýningu
að loknu balli.
Kaffiveitingar, aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Nefndin

Tilkynning frá Grýlu!
Umboðsmaður jólasveinsins verður í húsi björgunarsveitarinnar Víkverja á Þorláksmessukvöld kl: 20.00-21.00.
Kveðja
Grýla


Guðsþjónustur í Mýrdal jólin 2009
Nánar...

 

Hljómsveitin Sixties verður á
Ströndinni v/Víkurskála
annan í jólum

HÁRGREIÐSLUSTOFAN Í VÍK

Kæru viðskiptavinir.

Nú styttist í jólin, munið að panta tímanlega!
Er með 20% afslátt af gjafaöskjum til jóla.
Ath! Að lokað verður milli jóla og nýárs.
Bestu kveðjur,
Þorbjörg
sími: 847-1858

Mýrdælingar og nærsveitungar !

Krakkarnir í 8. og 9. bekk Víkurskóla ætla að selja hýasintur til fjáröflunar fyrir námsferð til Danmerkur. Þau ætla að selja í búðinni, skálanum og bankanum föstudaginn 18. desember frá kl. 14.00 til kl. 18.00 (16.00 í bankanum) og laugardaginn 19. desember frá kl. 11.00 til 13.00 í búðinni og skálanum.
Hýasintan kostar 500 kr.
Hægt er að panta fyrirfram hjá mæðrum krakkanna (heimsending fyrir fyrirfram pantað):

Styrkjum krakkana til mennta og víðsýni á framandi slóð !!!

Fjáröflunarnefndin


 Íva s: 864-2188 iva@sudur.is
               Anna Birna s: 893-8962 annabirna@syslumenn.is
Linda s: 848-4949 lindalorange@simnet.is
Petra s: 866-0786 solheimar2@simnet.is
 

Íþróttaskólinn á laugardagsmorgnum er kominn í jólafrí.
Hann tekur svo aftur til starfa á nýju ári.
Takk fyrir samveruna á árinu sem er að líða.    

Maggi

Ljósm.M.Sæm.

Fleiri myndir...


Atburðadagatal Víkurskóla í desember
Lesa...

 

25.11.2009
40 ára afmæli Víkverja

Laugardaginn 21. nóvember s.l. var haldið upp á 40 ára afmæli björgungarsveitarinnar Víkverja.
Að sögn Ragnheiðar Högnadóttur var þetta var stórkostlegur dagur fyrir Víkverjafólk og gaman að sjá hversu margir sáu sér fært að koma.
Milli 150-170 gestir komu og þáðu kaffi.
Skrifað var undir samstarfssamning við Mýrdalshrepp um ýmsa þjónustu sem  björgunarsveitin veitir sveitarfélaginu og má þar nefna snjómokstur ...
Fleiri myndir og lesa meira ...

Samkvæmt samstarfssamningi sem Mýrdalshreppur gerði við Björgunarsveitina Víkverja, tekur Víkverji að sér snjómokstur gangbrauta frá íbúðarhúsum eldri borgara og öryrkja í Vík.
Gert er ráð fyrir mokstri frá anddyri að götu
og eftir atvikum frá sorpíláti.
Þeir sem áhuga hafa á að nýta sér þessa þjónustu hafi samband við skrifstofu Mýrdalshrepps á opnunartíma í síma 487-1210

Sveitarstjóri

Klappstýrusýning!

Jólasýning Klappstýruliðs Kötlu verður í íþróttahúsinu,
miðvikudaginn 16 desember kl. 18:00

Dans, gleði og óvæntar uppákomur!

Allir velkomnir

 

Ungmennafélagið Katla

Jólasýning
Klappstýruliðs Kötlu
í íþróttahúsinu
16. desember kl. 18:00
Allir velkomnir

santa-lucia-clipart

 Lúsíutónar í Víkurkirkju 

Tónskólinn stendur fyrir Lúsíuhátíð í Víkurkirkju
sunnudaginn 13. desember kl. 14:00

Frábær og óvenjuleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna
Lúsíuganga við kertaljós og söng
Sr. Haraldur M. Kristjánsson prófastur segir frá uppruna Lúsíu
Sabína Victoria Jonsson minnist Lúsíuhátíða í Svíþjóð
Harpa Jónsdóttir kynnir Staffan hestasvein og heilagan Stefán
Söngur og hljóðfæraleikur
Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir

Víkurskóli auglýsir til umsóknar tvær lausar stöður

Víkurskóli auglýsir til umsóknar tvær lausar stöður leikskólakennara
við leikskólann Suður-Vík.
Önnur er laus frá 14.12.2009 en hin frá og með 4.01.2010.
Ef ekki fást fagmenntaðir leikskólakennarar verða ófaglærðir starfsmenn ráðnir í staðinn.
Umsóknarfrestur er til 9. desember 2009

Umsækjendur eru hvattir til að snúa sér til undirritaðra til að fá frekari upplýsingar.

Magnús Sæmundsson skólastjóri Víkurskóla s:487-1242 skolastjori@vik.is
Halla Ólafsdóttir deildarstjóri leikskólans Suður - Vík s:487-1241 leikskoli@vik.is

 

RAGNHEIÐUR GRÖNDAL
í Víkurkirkju
þriðjudagskvöldið 8. desember n.k.
kl. 20:30
Miðaverð kr. 1.500
Meira...

Kirkjuskólinn í Mýrdal
alla augardaga
Kl. 11:15 í grunnskólanum í Vík
Fjársjóðskistan á sínum stað.
Allir hjartanlega velkomnir

Sóknarprestur

Jólasamvera kirkjuskólans í
Víkurkirkju

Kirkjuskólinn í Mýrdal

Jólasamvera kirkjuskólans í Mýrdal verður í Víkurkirkju næsta laugardag,
5. desember, kl. 11:15.

Athugið að þetta er síðasta samveran fyrir jól að þessu sinni.

Hlakka til að hitta ykkur öll í kirkjunni.

Sóknarprestur

Hljómsveitin Granít á “Vestfirsk bókakynning” og
á “Rolling Stones dansleik” á Cafe Catalinu 5. des.

Nánar...


Skaftfellingafélagið og Söngfélagið

standa fyrir aðventustund
sunnudaginn 6. desember 2009 kl. 15:00
í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178.
Nánar...

 

Hrútavinafélagið 10 ára
Afmælishátíð og bryggjuball á Hótel Selfossi

föstudaginn 4. desember n.k.

Hrútavinafélagið Örvar á Suðurlandi býður Sunnlendingum og öðrum til afmælisfagnaðar og bryggjuballs á Hótel Selfossi föstudaginn 4. desember nk.
Hátíðarsamkoma og skemmtun hefst kl. 21:00. Þar munu Hrútavinirnir að vestan, sem búa á Selfossi; þeir Ólafur Helgi Kjartansson frá Ísafirði og Hafliði Magnússon frá Bíldudal kynna og lesa úr nýjum bókum sínum.

Lesa meira ...

Jólatónleikar
Tónskóla Mýrdalshrepps
í félagsheimilinu Leikskálum
laugardaginn 5. desember
og hefjast kl.14:00

17.11.2009
Hráskinka frá Jónasi í Fagradal

Tilraun með hráverkaðan kindavöðva (hráskinku) gengur vel í reykhúsinu í Fagradal, eða allt samkvæmt áætlun.
Verkuninn tekur að lágmarki 2 mánuði og er tilraunin unnin í samvinnu við MATÍS.
Klárt fyrir Jól.

Minnum á Prjónakaffihúsið á Halldórskaffi fimmtudagskvöldið
3. desember n.k. kl. 20:00
Allir velkomnir og líka þeir sem ekki kunna að prjóna.
Gleymum ekki góðaskapinu í farteskinu
Kvenfélags Hvammshrepps

10.11.2009
Jónas vinnur til verðlauna

Jónas Erlendsson vann til fyrstu verðlauna (besta myndin) í ljósmyndakeppni fréttaritara Moggans.  Verðlaunamyndin sýnir þegar verið að reka sauðfé úr Hvítmögu yfir Sólheimaskriðjökul haustið 2008.  Ragnar Sævar Þorsteinsson bóndi á Brekkum í Mýrdal lítur ofaní eina af sprungum jökulsins.
 

Silfurleikar

Laugardaginn 21. nóvember s.l. sóttu 5 ungmenni frá USVS, Silfurleika ÍR í Laugardalshöllinni.
Mótið er nefnt SILFURLEIKAR til að minnast afreks ÍR-ingsins Vilhjálms Einarssonar sem vann silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourn í Ástralíu í 1956. 
Mótið sóttu Arnar Snær Ágústsson aldursforseti hópsins, Þorsteinn Björn Einarsson, Erna Guðrún Ólafsdóttir, Ólöf Sigurlína Einarsdóttir og Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir.

Þau voru sér og sínum til mikils sóma á mótinu og stóðu sig mjög vel.

Arnar Snær keppti í 3 greinum, 60m, þrístökki og 200m og lenti í 2. sæti í öllum greinunum. Hann fór 60m á 7,59 sek. stökk 12,75 í þrístökki og hljóp 200m á 24,04 sek.
Þorsteinn Björn keppti í kúlu og kastaði 11,25 m og endaði í 3 sæti.
Erna keppti í þrístökki og kúlu og Ólöf tók þátt í 60m og langstökki. Þær stóðu sig mjög vel báðar tvær þótt þær væru ekki á verðlaunapalli í þetta sinn.

Sigríður tók þátt í nýrri grein sem nefnist þrautabraut og þar er keppt í liðum undir liðsstjórum og er fyrir alla krakka 8 ára og yngri.

Krakkarnir stefna öll á Stórleika ÍR sem haldnir verða í Laugardalshöllinni í janúar 2010
Texti: Petra K.K/is og mynd: Petra K.K.

Myrdalshreppur.jpg     Íbúafundur

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur ákveðið að verða við áskorun 117 íbúa sveitarfélagsins og boða til íbúafundar þar sem kynnt verður tillaga til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun 2009-2013.  Í tillögunni er m.a. lagt til að búsvæði brekkubobba í austurhlíðum Reynisfjalls verði friðað.

Fundurinn verður í félagsheimilinu Leikskálum mánudaginn 30. nóvember n.k. og hefst kl. 20:30

Þeim sem vilja kynna sér tillöguna er bent á vef Alþings þar sem skjalið finnst á slóðinni:  http://www.althingi.is/altext/138/s/0224.html.  Nokkur eintök á pappírsformi eru til reiðu á skrifstofu Mýrdalshrepps.

Sveitarstjóri
 

Aðventuhátíð
í Víkurkirkju í Mýrdal


Nú ætlum við að breyta svolítið til og halda okkar árlegu aðventuhátíð að kvöldi fyrsta sunnudags í aðventu
29. nóvember n.k. í Víkurkirkju kl. 20:30.
Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.
Sérstakur gestur verður Mýrdælingurinn Halldór Unnar Ómarsson söngvari.

Eftir stundina í kirkjunni verða ljósin tendruð á jólatré Mýrdælinga á Guðlaugsbletti.
Fjölmennum á aðventuhátíð okkar allra.

Sóknarprestur

Nýtt Nýtt Nýtt
Klappstýrulið umf Kötlu


Mánudaginn 2. nóvember verður fyrsta æfingin hjá Klappstýruliði Kötlu.
Íþróttin, sem er blanda af dansi, fimleikum, sirkusþrautum og fleiru,
hentar jafnt strákum sem stelpum frá 4. bekk og upp úr.
Æfingar verða á mánudögum kl. 14:30 – 15:30 og
miðvikudögum kl. 15:30 – 16:30.
Þjálfarar eru Magdalena Katrín og Harpa Jónsd.
Skráning í síma 869-2722 og á netfanginu harpenstein@gmail.com
 

28.10.2009
Gullglyrna á prestssetrinu

Haraldur M. Kristjánsson sóknarprestur í Vík sendi okkur til fróðleiks og gamans mynd af "flækingi" við prestssetrið í Vík síðla dags þann 19. september s.l.
Erling Ólafsson skordýrafræðingur staðfesti við Harald að hér væri á ferðinni ,,gullglyrna" sjá nánar á
http://www.ni.is/poddur/flaekingar/nr/973

Ljósm.Har.M.Kr.

21.10.2009
HMF Sindri 60 ára

Jónas Erlendsson tók myndirnar um síðustu helgi, en þá hélt hestamannafélagið Sindri upp á 60 ára afmælið sitt, yngstu félögunum var boðið upp á pitsu og bingó á ströndinni í Víkurskála á föstudagskvöldinu, svo var árshátíð félagsins á Eyrarlandi í Reynishverfi á laugardagskvöldinu.

Fleiri myndir ...

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands

verður með viðveru í Mýrdalshreppi mánudaginn 23. nóvember n.k. á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austurvegi 17 milli klukkan 10 og 12. Endilega nýtið tækifærið að hitta ráðgjafa í heimabyggð til að ræða hugmyndir og reifa leiðir til atvinnuþróunar.
Hægt er að panta tíma í síma 480-8210

Auglýsing...

Kirkjuskólinn í Mýrdal

 

Munið samveru kirkjuskólans í Mýrdal

í grunnskólanum í Vík næsta laugardag kl. 11:15

 

Hlakka til að hitta ykkur.

 

Sóknarprestur

Basar  
Okkar árlegi jólabasar verður á Hjallatúni laugardaginn 21. nóvember nk.
Opið verður frá 13:00 til 15:00 í borðstofu á efri hæð.
Kaffi á könnunni. Allir hjartanlega velkomnir.
Félagsstarfið Hjallatúni

Björgunarsveitin Víkverji
40 ára

Björgunarsveitin Víkverji í Vík í Mýrdal heldur n.k laugardag upp á 40 ára afmæli sveitarinnar auk 70 ára söguafmælis slysavarna í Mýrdal.
Af þessu tilefni verður sveitin með opið hús að Smiðjuvegi 15 í Vík frá kl 14-16 á laugardaginn. Þá býðst gestum að skoða nýuppgert og endurbætt húsnæði sveitarinnar.
Léttar veitingar verða í boði og eitthvað skemmtilegt að sjá fyrir fólk á öllum aldri.
Allir velkomnir.

Nýtt fréttabréf

Tónskóli Mýrdælinga


Fréttabréf október 2009

Lesa...

Foldarskart í Þjóðminjasafninu

Fimmtudaginn 15. október var sýningin Foldarskart opnuð í Þjóðminjasafni Íslands.
Á sýningunni má sjá ýmis verk Hörpu "okkar" Jónsdóttur, en hún sigraði nýverið í keppninni “Þúsund frábærar húfur”, eða “1000 Fabulous Knit Hats” á vegum útgáfufélagsins Rockport Publishers.

Íslensk náttúra hefur veitt Hörpu Jónsdóttur innblástur við gerð verka sinna.
Fíngerður smágróður, fjörusteinar og birtan við hafið endurspeglast í hlutum sem eru
fínlegir og grófgerðir í senn.

Verkin á sýningunni eru flest unnin á árunum 2008-2009.
Þau eru öll úr þæfðri íslenskri ull og útsaumuð ýmist með bómull eða hörþræði.

Harpa er kennari, rithöfundur og áhugaljósmyndari. Hún hefur fengist við hannyrðir og textílvinnu frá barnæsku. Hún hefur sýnt verk sín í heimabyggð en þetta er fyrsta sýning hennar í höfuðstaðnum

Nýtt nafn á sameiginlegan skóla

Kæru Mýrdælingar!
Nú stendur yfir keppni um tillögur að nafni á sameiginlegan leik-, tón-, og grunnskóla okkar Mýrdælinga. Hægt er að skila inn tillögum í kjörkassa, annað hvort í grunnskólanum eða leikskólanum, til mánaðarmóta.

Skólastjórnendur og Fræðslunefnd
 

Safnahelgi

Safnahelgi verður haldin í annað sinn á Suðurlandi helgina 5. -8. nóvember.  Af því tilefni verður opið föstudagskvöldið 6. nóv. á Halldórskaffi þar sem gestir geta notið lifandi tónlistar frá Tónskóla Mýrdælinga.

Laugardaginn 7. nóv.  verður opið frá kl. 15:00 – 17:00 í Brydebúð, menningarsetri okkar  Mýrdælinga.  Þar gefst gestum  kostur á að skoða sýningarnar  „ Gott strand eða vont....“ og Mýrdalur - Mannlíf og Náttúra og Sigrúnarstofu.  

Kl. 15:45  mun Tónskóli Mýrdælinga flytja tónlist og Harpa Jónsdóttir vera með upplestur.  

Kakó/kaffi og vöfflur á Halldórskaffi á frábæru safnaverði.

 

Um kvöldið verður síðan Fýlaveisla á Ströndinni.

 

Velkomin á safnahelgi í Vík.

 

Víkurkirkja í Mýrdal

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju á Allra heilagra messu nk. sunnudag 1. nóvember kl. 14:00.

Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.
Fermingardrengirnir sérstaklega hvattir til að mæta með foreldrum sínum.

Sóknarprestur

Kirkjuskólinn í Mýrdal

 

Minni á samveru Kirkjuskólans í Mýrdal í grunnskóla Mýrdalshrepps

næsta laugardag 7. nóvember 2009   kl. 11:15.

 

Hlakka til að hitta ykkur.

 

Sóknarprestur

 

Skeiðflatarkirkja í Mýrdal

 

Guðsþjónusta verður í Skeiðflatarkirkju á kristniboðsdegi íslensku Þjóðkirkjunnar

nk. sunnudag 8. nóvember kl. 14:00.

 

Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.

 

Fermingardrengirnir sérstaklega hvattir til að mæta með foreldrum sínum.

 

Sóknarprestur

 

Safnahelgi á Suðurlandi 5.-8. nóvember 2009

Matur og menning úr héraði

Safnahelgi á suðurlandi - dagskrá

Söfn um allt Suðurland og í Vestmannaeyjum bjóða upp á fjölbreytta menningardagskrá helgina 5. – 8. nóvember 2009. Yfirskrift dagskrárinnar verður Safnahelgi á Suðurlandi með undirtitlinum Matur og menning úr héraði því auk hins sögulega og menningarlega hluta dagskrárinnar verður minnt á gamlar og nýjar hefðir í matargerðarlist í héraðinu. Það eru Samtök safna á Suðurlandi og Matarkista Suðurlands sem standa að dagskránni með hátt í eitt hundrað aðilum. Verkefnið nýtur stuðnings Menningarráðs Suðurlands.
 

 

Helgistund á Hjallatúni

 

n.k. sunnudag 1. nóvember 2009  kl. 15:00.

Félagar úr Samkór Mýrdælinga leiða söng undir stjórn Kára Gestssonar organista.

Ættingjar og vinir heimilismanna hjartanlega velkomnir.

 

Sóknarprestur

Fýlaveisla


Fýlaveislan verður á Ströndinni v/Víkurskála laugardagskvöldið 7. nóvember n.k. kl 20.00
Á borðum verður fýll, kartöflur, rófur og smjör, einnig verður í boði hangikjöt og uppstúfur.
Rammíslenskur og skaftfellskur forréttur verður í boði áður en Fýllinn verður borin á borð.
Þjóðþekktir skemmtikraftar stíga á svið og endað verður á lifandi tónlist fram eftir nóttu.

Miðaverð er 3,500,-
Miðapantanir eru í s.487-1230
 

Kynningarfundur um tillögur hættumatsnefndar Mýrdalshrepps á "hættu vegna ofanflóða í Vík í Mýrdal" verður haldinn á morgun þriðjudaginn 27. okt. kl. 18-19 í Leikskálum.
Nýútgefinn bækling má sjá hér

Sveitarstjóri

Vel  heppnuð  Regnbogahátíð





Ljósmyndir Jónasar Erl. frá hátíðinni


Ljósmyndir Þóris N. Kjartanssonar frá hátíðinni

 

Fýlaveisla hjá Skaftfellingafélaginu

Hin feyki vinsæla fýlaveisla verður að vanda framreidd  fyrsta vetrardag, laugardaginn 24. október 2009 og hefst með borðhaldi kl. 20.
Loku verður skotið frá dyrum upp úr kl. 19 og búist við örtröð þá þegar.  Nægur fýll náðist að þessu sinni, var tímanlega lagður í salt svo allt ætti að verða til reiðu í tæka tíð.

Lesa meira...

Reyniskirkja í Mýrdal

Guðsþjónusta verður í Reyniskirkju nk. sunnudag 25. október kl. 14:00.

Almennur safnaðarsöngur undir stjórn Kristínar Björnsdóttur organista.
Fermingarstrákar næsta vors í Mýrdal sérstaklega hvattir til að mætameð foreldrum sínum.

Sóknarprestur

Skírn í Kirkjuskólanum í Mýrdal

Minni á samveru kirkjuskólans í Mýrdal í grunnskóla Mýrdalshrepps í Vík 

næsta laugardag 24. október 2009   kl. 11:15.
 

Í þessari samveru verður lítil stúlka skírð og allir hjartanlega velkomnir
að taka þátt í þeim hátíðlega atburði.

 

Hlakka til að hitta ykkur hress og kát

 

Sóknarprestur

Regnboginn
List regnbogilogo.bmpí fögru umhverfi

Undirbúningsnefnd Regnbogans þakkar öllum þeim fjölmörgu
sem lögðu hönd á plóginn til að gera veislu liðinnar helgi mögulega.

 Fyrirtæki, sjóðir og einstaklingar sem lögðu fram styrki til að fjármagna hátíðina og krafta sína við undirbúning, allir listamenn og handverksfólk sem tóku þátt í dagskránni og síðast en ekki síst heimamenn og gestir sem mættu á viðburði og nutu þess sem boðið var upp á,
hafið öll heila þökk fyrir frábæra helgi.

 „Þar sem kærleikur og snilli taka höndum saman getur þú vænst meistaraverks“
(höf.ókunnur)

Anna, Kristinn, Orri, Sif og Þorgerður

02.10.2009
Harpa vann bandaríska húfukeppni

Harpa Jónsdóttir listamaður með meiru vann alþjóðlega hönnunarkeppni á dögunum.  Úrslitin voru gerð opinber í gær.  Keppnin bar yfirskriftina 1000 frábærar húfur!
Við Mýrdælingar fengum að sjá þessa húfu á Regnbogahátíðinni fyrir 2 árum þegar hún sýndi handverk sín í Leikskálum.
Harpa verður einnig með listaverkin sín í Leikskálum á menningarhátíðinni þetta árið.
Nánar má lesa um keppnina á heimasíðu Hörpu vestanpósturinn.
Á myndinni skartar Þórhildur Steinunn Kristinsdóttir dóttir Hörpu vinningshúfunni.
02.10.2009
Undirbúningi nemenda að ljúka

Undirbúningi nemenda grunnskólans er að ljúka í tengslum við menningarhátíðina Regnbogann.
Leiklistarþema nemendanna er Hjörleifshöfði og þeir fóstbræður Ingólfur og Hjörleifur.  Sagan segir að f
óstbróðir Ingólfs Arnarssonar, fyrsta landnámsmannsins, hét Hjörleifur Hróðmarsson. Þeir urðu samferða til Íslands frá Noregi en bar hvorn frá öðrum, þannig að Ingólfur hafði vetursetu á Ingólfshöfða í Öræfum en Hjörleifur á Hjörleifshöfða. Næsta vor drápu þrælar Hjörleifs hann og frjálsa menn hans og flúðu á skipinu til Vestmannaeyja með kvenfólkið. Þar fann Ingólfur þá og kom þeim fyrir kattarnef. Hjörleifshaugur er svo sagður vera uppi á höfðanum.        Fleiri myndir...
29.09.2009
Undirbúningur fyrir Menningarhátíð

Nú er undirbúningur Menningarviku í tengslum við Regnbogann um næstu helgi kominn af stað í Grunnskólanum eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.
Þessa vikuna er hefðbundin kennsla brotin upp og aðaláherslan lögð á menningu og listir s.s. leiklist, myndlist og tónlist. Vigdís Másdóttir leikkona kom af því tilefni með leiklistarnámskeið fyrir grunn- og leikskóla og var ákveðið að nemendur 9. - 10. bekkjar væru í burðarhlutverkum þetta árið.
Svona fjölbreytni er nemendum mikils virði og á án efa eftir að skila sér vel til samfélagsins. Nú er bara að fjölmenna á dagskrárliði hátíðarinnar um næstu helgi og muna að maður er manns gaman. ms/is

Fleiri myndir...

21.09.2009
Mýrdælingur heiðraður á Stokkseyrarbryggju

Stokkseyrarbryggja hefur á síðustu fimm árum fengið nýtt og verðugt hlutverk eftir að útgerð lagðist þar af síðla á síðustu öld og færðist til Þorlákshafnar.

Nú er Stokkseyrarbryggja vettvangur mannlífs og menningar af ýmsu tagi eftir að Hrútavinafélagið Örvar á Suðurlandi fann bryggjuna í fjörunni, gleymda flestum og tóku Hrútavinir bryggjuna í fóstur og eiga hana nú skuldlausa með öllu og án veðsetninga. Glæsilegt svið hefur verið byggt á bryggjunni sem þolir veður og brim að vetri. Þá er fremsti hluti bryggjunnar lendingarstaður fyrir þyrlur Landhelgisgæslunnar þegar við á.

Lesa meira og skoða myndband...

Ljósm. Harpa J.

23.09.09
Tillaga að aðalskipulagi send Skipulagsstofnun
Tillaga að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 var kynnt á almennum íbúafundi sem var haldinn í Vík 10. september 2009 og hefur nú verið send Skipulagsstofnun til athugunar.  Sjá nánar..........
 

Regnboginn
Skreytum bæinn í regnbogans litum! 
Nú notum við hugmyndaflugið.....
Nánar...

Regnbogamarkaður
Ertu snillingur að prjóna, sauma, hekla, smyrna, baldýra, orkera, skera út eða rýja? Kanntu að búa til fallegar myndir, fínlega eða flotta skartgripi, töff belti, glæsilega lampa eða eitthvað allt annað?
Átt þú skemmtilegt dót í geymslunni sem gaman væri að koma í verð? Kannski skrautlega kjóla, vesti af afa eða notaleg neondress?
Það sem þér finnst drasl getur öðrum fundist hreinasta gersemi.
Lesa meira...

Regnboginn
List í fögru umhverfi
Menningarveisla
2. - 4. október 2009



Ávarp nefndarinnar

Ítarleg dagskrá

Sýningar og viðburðir

Einstök börn


Víkurdeild Rauða krossins í samstarfi við kirkjuna,
stendur fyrir fræðsluerindum um:

- sálrænan stuðning og viðbrögð við áföllum -

- sorg og sorgarviðbrögð -

í Víkurkirkju 15. október n.k. kl.17:00
Nánar...

Framundan hjá
Skaftfellingafélaginu

25.08.2009
Guðlaugsbletturinn breytir um svip

Ímynd Guðlaugsblettsins er óðum að breytast.  Tré af ýmsum stærðum og gerðum hafa nú verið sett niður og vonandi ná þau að skjóta rótum.
Ýmsir hafa komið að þessum flutningi trjáa og hafa heilu "björgin" einnig verið flutt á blettinn.  Auður Ottesen hefur veg og vanda að útliti Guðlaugsblettsins og verður nánar fjallað um þessa útlitsbreytingu á næstu dögum.

Nýjar myndir
Páls J. Péturssonar

Víkurkirkja í Mýrdal -
Gestir frá Selfossi

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju nk. sunnudag 11. október 2009, kl. 14:00.

Kór Selfosskirkju kemur í heimsókn og syngurí guðsþjónustunni, ásamt Samkór Mýrdælinga.
Undirleikarar og stjórnendur eru Jörg Sondermann organisti Selfosskirkju og
Kári Gestsson organisti Víkurkirkju.

Fjölmennum og tökum vel á móti góðum gestum.

Fermingardrengir prestakallsins næsta vor, eindregið hvattir til að mæta með foreldrum sínum
og forráðamönnum.

Sóknarprestur

Prjónakaffihúsið á Halldórskaffi kl. 20:00
Nú byrjum við að hittast aftur og eigum góðar stundir saman.
Fyrsti hittingur 24. september, þá 8. og 22. október og 5. og 19. nóvember og 11. desember.
Allir velkomnir og líka þeir sem ekki kunna að prjóna.
Gleymum ekki góðaskapinu í farteskinu
Kvenfélag Hvammshrepps


Regnboginn
List regnbogilogo.bmpí fögru umhverfi
Menningarveisla
 

Góða skemmtun og sjáumst á

Regnbogahátíð

Íþróttaskóli barnanna fellur niður
laugardaginn 3. október n.k.
vegna undirbúnings menningarviku
Sjáumst aftur laugardaginn 10. október í Íþróttahúsinu

Maggi

Íþróttaskóli barnanna hefur göngu sína

í Íþróttahúsinu í Vík laugardaginn 26. september n.k.
Yngri hópur (3-5 ára) verður frá 9:00 - 9:40 og
sá eldri (6-9 ára) frá 10:00-10:40.
Umsjónarmaður er Maggi Sæmunds og eru allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Þess má svo einnig geta að Kirkjuskólinn verður svo kl 11:15 í skólanum líkt og verið hefur.

Dagana 6. - 30. september 2009
verður Kolbrún Hjörleifsdóttir með  myndlistarsýningu á Kaffi Loka
á Lokastíg 28 í Reykjavík. 
Verkin vinnur Kolbrún úr Íslenskri ull.

Sýningin ber yfirskriftina Í örmum alheimsins

Regnboginn
List í fögru umhverfi
Nánar...

Regnboginnlist í fögru umvherfi
Helgina 2. – 4. okt. verður haldin menningarveisla í Vík
þriðja árið í röð. Með menningarveislunni viljum við koma á fót fjölbreyttri menningardagskrá sem íbúum og gestum er boðið að upplifa og njóta.
   Nánar...

Smölun heimalanda

Athygli er vakin á ákvæðum fjallskilasamþykktar Vestur-Skaftafellssýslu
nr. 360/2006 þar sem segir m.a:

Í 18. gr:
Hver bóndi er skyldur að smala land sitt á hausti samhliða leitum, ef sveitarstjórn mælir svo fyrir. Sama gildir um eigendur eyðibýla þó þeir eigi þar ekki fjárvon. Hlýði umráðamaður lands ekki fyrirmælum sveitarstjórnar ber honum að greiða smölunarkostnað eftir mati sveitarstjórnar.
Í 23. gr:
Hver eigandi eða umráðamaður lands er skyldur til að smala heimaland sitt eigi síðar en viku fyrir auglýstan hrútafellingardag og það eins þó landeigandi eða umráðamaður eigi þar ekki fjárvon sjálfur. Vanræki einhver að smala heimaland sitt, getur sveitarstjórn látið smala það á hans kostnað, og greiðir hann að auki sekt samkv. ákvæðum 20.gr.

Sveitarstjóri

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands

verður með viðveru í Mýrdalshreppi mánudaginn 21. sept. n.k. á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austurvegi 17 milli klukkan 10 og 12. Endilega nýtið tækifærið að hitta ráðgjafa í heimabyggð til að ræða hugmyndir og reifa leiðir til atvinnuþróunar.
Hægt er að panta tíma í síma 480-8210

Auglýsing...

Líkams- og heilsurækt
12 vikna námskeið
Fyrir konur og karla frá og með 7. sept. 2009

Nánar...

22858575 22852950 (`@````````` 266 263 5 110183775 110178150
27.08.2009
Ný skilti

Myndarleg skilti prýða nú íþróttamiðstöð okkar Mýrdælinga að norðan- og austanverðu. Skiltin eru gjöf Guðnýjar Guðnadóttur. Guðný hefur verið óþreytandi að ýta á eftir því að skiltin væru framleidd og sett upp og kórónaði framtak sitt með því að kosta framleiðslu þeirra. Skiltin eru hönnuð af Victori Berg sem hér var íþróttafulltrúi og framleidd af fyrirtækinu Gullroða hér í sveit. 
Guðný hefur eins og margir vita áður sýnt hug sinn til stofnana sveitarfélagsins í verki. Þess er skemmst að minnast að hún færði á vormánuðum tónskólanum gjafabréf að upphæð 70.000 kr. og áður færði hún og hennar fólk grunnskólanum flaggstöng þá sem prýðir aðkomu hússins.
 
 

Framtíð íslensks landbúnaðar

Fyrirhugað er að halda málþing um stöðu og framtíð landbúnaðar og byggðar í sveitum mánudaginn 14. september 2009 í Norræna húsinu í Reykjavík.
Þar verða kynntar niðurstöður úr viðamiklu rannsóknaverkefni um þessi efni, sem unnið hefur verið að við Háskóla Íslands undanfarið og ber heitið "Litróf landbúnaðarins".

Lesa meira...

Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2009-2025

Kynningarfundur

Fimmtudaginn 10. september nk. verður haldinn almennur kynningarfundur skv. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga á tillögu að aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025.
Fundurinn verður í félagsheimilinu Leikskálum í Vík og hefst kl. 20:00.

Sveitarstjóri

Vík í Mýrdal

Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar.

Sameinaður leik-, grunn- og tónskóli Mýrdalshrepps:

·   Tvær stöður leikskólakennara / leiðbeinanda.

·   Staða skólaliða.

Umsóknarfrestur er til 9. september

Mýrdalshreppur


 

Nánari upplýsingar og móttaka umsókna:
Magnús Sæmundsson     skólastjóri            s: 487-1242   893-1965
skolastjori@vik.is
Guðlaug Guðmundsdóttir hjúkrunarforstjóri s: 487-1348   864-1348 hjallatun@vik.is

Mýrdalshreppur   -   Austurvegi 17   -   870 Vík    -      s: 4871210     -      www.vik.is

01.09.2009
Arnar Snær Íslandsmeistari í langstökki og setti 3 héraðsmet

Á MÍ/Meistaramóti Íslands 15-22 ára sem haldið var á Kópavogsvelli um s.l. helgi var Arnar Snær Ágústsson meðal keppenda og eini keppandi USVS þar sem heima í héraði var Íþróttahátíð á sama tíma.  Arnar Snær gerði sér lítið fyrir og setti 3 héraðsmet.  Á mótinu lenti hann í 2. sæti í þrístökki og stökk 12,50 m og sló þar með héraðsmet Gísla Guðbergssonar 11,34 m frá árinu 1993.
Í 200m hlaupi lenti Arnar í 5. sæti með 24,51 sek en fyrir átti Karl Brydde 25,50 sek frá 1988. Í langstökki skellti Arnar sér á gullið með 5,95 m löngu stökki og sló þar með héraðsmet Gunnars Péturs Sigmarssonar 5,60 m frá árinu 2002.
Þess má geta að USVS valdi Arnar Snæ sem íþróttamann ársins 2008 á ársþingi þeirra í vor, og skv. ofanrituðu er hann vel að þeim titli kominn.
Mýrdælingar geta verið stoltir af þessu frábæra unga fólki sem setur markið hátt.

Frá ársþingi USVS þegar Arnar (tv) var valinn íþróttamaður ársins 2008

Íþróttamiðstöðin í Vík
Stundarskrá 2009-2010

01.09.2009
Íþróttahátíð USVS


Íþróttahátíðin fór fram á Víkurvelli um síðastliðna helgi og voru 64 keppendur skráðir til leiks frá 3 aðildarfélögum USVS.
Veðrið lék við keppendur og mótsgesti og ekki laust við léttan sólbruna á nokkrum andlitum.
Hátíðin var í umsjón umf. Kötlu, umf Skafta og umf Ármanns.
Grímur Sævar Kristjánsson íþrótta- og tómstundafulltrúi Mýrdalshrepps var mótsstjóri og Ragnheiður Högnadóttir nýráðinn framkvæmdastjóri USVS var þulur.
Sjá nánar á heimasíðu usvs.is
Úrslit mótsins má sjá á heimasíðu fri.is
01.09.2009
USVS óskar eftir aðstoð

Bikarkeppni FRI 16 ára og yngri verður haldin á Víkurvelli 5. september n.k. í umsjón USVS. Mót sem þetta kallar á vinnu margra, þannig að allir sjálfboðaliðar eru vel þegnir. Þeir sem að geta hugsað sér að starfa við mótið á einn eða annan hátt vinsamlegast hafið samband við Ragnheiði s: 663-1577, Sævar s: 895-1172 eða á usvs@mmedia.is

KÖTLUHLAUP 2009
Laugardaginn 5. september 2009

Laugardaginn 5. september kl. 11:00 verður haldið í fimmta sinn
“Kötluhlaup” í Vík í Mýrdal.
Mýrdalshreppur, Umf. Katla og Björgunarsveitin Víkverji sjá um framkvæmd hlaupsins.
Meira...

   
17.08.2009
Árlega koma hingað til lands all mörg pör og láta pússa sig saman úti í guðsgrænni náttúrinni.
Jónas Erlendsson hefur tekið myndir við nokkrar þessara giftinga og tók að þessu sinni myndir annars vegar við Seljalandsfoss og hinsvegar við Skógafoss. Í báðum tilfellum gifti fulltrúi sýslumannsins á Hvolsvelli pörin.

Fleiri myndir...

Fleiri myndir ...

14.8.2009
Ályktun stjórnar SASS

Tvöföldun Suðurlandsvegar verði sett í forgang
Á fundi stjórnar SASS í dag, 14. ágúst, var fjallað um forgangsröðun vegaframkvæmda vegna hugsanlegrar fjármögnunar lífeyrissjóða.

Eftirfarandi ályktun var samþykkt:

STÖRF Í BOÐI

Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:

Sameinaður leik-, grunn- og tónskóli Mýrdalshrepps:

• Staða skólaliða.
• Tvær stöður leikskólakennara / leiðbeinanda

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hjallatún:

• 70% staða við aðhlynningu.

Laun skv. kjarasamningi LN og viðkomandi stéttarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 2009

Nánari upplýsingar og móttaka umsókna:

Magnús Sæmundsson skólastjóri s: 487-1242 / 893-1965
skolastjori@vik.is
Guðlaug Guðmundsdóttir hjúkrunarforstjóri s: 487-1348 / 864-1348 hjallatun@vik.is

Mýrdalshreppur   -   Austurvegi 17   -   870 Vík    -      s: 4871210     -      www.vik.is

Íþróttamiðstöðin í Vík
Sumaropnun 2009

Íþróttahátið USVS

Sem frestað var sunnudaginn 23. ágúst s.l. vegna veðurs verður haldin
laugardaginn 29. ágúst n.k.
Skráningar þurfa að hafa borist í síðasta lagi fimmtudaginn 27. ágúst kl:17.00
til formanna aðildarfélaga eða á usvs@mmedia.is
Aldursflokka og greinar má sjá á heimasíðu usvs.is

Tímaseðill...

Heimsókn GSM í FABLAB smiðjuna

Þann 13. maí s.l. fóru nemendur 9. og 10. bekkjar grunnskóla Mýrdalshrepps í heimsókn í FAB LAB smiðjuna í Vestmannaeyjum.
Ferðin var farin til að kynnast starfssemi smiðjunnar og vinna með eigin hugmyndir.
Fréttamenn RÚV í Vestmannaeyjum gerðu frétt um þennan flotta hóp.
 
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4467271/2009/06/20/10/.

Lesa meira um FAB LAB

30.07.2009
450 km að baki

Myndir þessar tók Jónas Erlendsson þegar átta göngugarpar komu til Víkur í Mýrdal þann 30. júlí s.l. og luku þeir 450 km. þvert yfir landið í Víkurfjöru í Vík í Mýrdal.
Fleiri myndir...

 
15.07.2009
Nýtt ferðaþjónustufyrirtæki - Katlatrack

Lítið ferðaþjónustufyrirtæki hefur litið dagsins ljós á planinu við Víkurskála í Vík.
Það er Guðjón Guðmundsson sem hefur veg og vanda að stofnun fyrirtækisins.
Boðið er upp á á jöklaferðir þar sem farið er um Kötluslóðir inn að Kötlujökli,  þar sem sett eru upp járn og gengið um jökullinn.
Að auki er í boði útsýnisferð með leiðsögn um Vík og næsta nágrenni ásamt ferðum um Mýrdalinn eftir óskum hvers og eins.
Hægt er að nálgast allar upplýsingar hjá Guðjóni í síma 849-4404 og á netfanginu 
katlatrack@gmail.com

Ljósm. Guðjón Guðmundsson

Atvinna í boði á Hjallatúni

Starfsfólk vantar til starfa við aðhlynningu
á Hjallatún frá 1. sept og 1. okt. nk.
Vaktavinna starfshlutfall er 60 – 90%
eða eftir samkomulagi.


Allar upplýsingar fást hjá Guðlaugu
í síma: 487-1348 eða 868-1181

Húseignin Sunnubraut 6 í Vík er til sölu

Húsið er 178 fm.  Þar af 38 fm bílskúr. Byggingarár 2006
Upplýsingar gefa Ólafur í síma 892-9785 og Guðrún Hildur í síma 861-1285

 
Fjallgöngudeild Skaftfellingafélagsins hefur ákveðið að klára það sem ákveðið var í fyrra þ.e. að ganga á Eggjarnar í Skaftafellsfjöllum.
Ákveðið hefur verið að fara laugardaginn 15. ágúst. Þeir sem hafa hug á að taka þátt í göngunni er beðnir að senda póst á skaft@skaft.is fyrir 13. ágúst.
Nánari upplýsingar verða settar inn þegar nær dregur á www.skaft.is

Sjá nánari leiðarlýsingu

Leikhópurinn Lotta sýnir í Vík 16. ágúst nk.

Sunnudaginn 16. ágúst mun Leikhópurinn Lotta vera í Vík í Mýrdal með nýjustu leiksýningu sína Rauðhettu.
Sýnt verður á tjaldsvæðinu og hefst sýningin klukkan 13:00. 
Sýnt er utandyra og er því um að gera að klæða sig eftir veðri og taka með sér teppi til að sitja á og hlýja sér ef kalt er í veðri. 
Meira...

Mynd frá fyrri sýningu

Frá Ferðafélagi Mýrdælinga:

Huldufjöll n.k. laugardag 15. ágúst
 

Farið verður frá bankaplaninu í Vík kl. 08:00 með viðkomu á tjaldsvæðinu í Þakgili. Farið verður á einkabílum inn á Rjúpnagilsbrúnir í Höfðabrekkuafrétti. Þaðan gengið norðan Rjúpnafells í Huldufjöll,  þaðan niður eftir Höfðabrekkujökli.
Áætlaður göngutími 7 – 9 klst. Búnaður: Jöklajárn og göngustafir.
Verð fyrir félagsmenn kr. 2000.- og 2500.- fyrir aðra.
Getum leigt mannbrodda eins og birgðir leyfa á kr. 2000 parið. 
Göngustjórar: Grétar Einarsson 863-7343 og Jón Hjálmarsson 894-8859.
Skráning á: myrdalur@gmail.com fyrir 13. ágúst n.k.

Sjá myndir frá ferð í Huldufjöll teknar af Grétari Einarssyni

Jarðfræðigarður – Geopark

 

Fimmtudaginn 13. ágúst næstkomandi mun verða haldinn kynningarfundur um hugmyndir að  jarðfræðigarði (geopark) á svæði sem nær yfir hluta Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu.
Á fundinum verður jarðfræði svæðisins kynnt ásamt hugmyndinni að jarðfræðigarði á svæðinu.
Einnig verður á fundinum ráðgjafi frá European Geopark Network, Patrick McKeever, sem mun kynna starfsemi samtakanna um evrópska jarðfræðigarða. Gert er ráð fyrir góðum tíma í fyrirspurnir fundargesta.

 

Fundurinn verður haldinn eins og áður segir fimmtudaginn 13. ágúst
í félagsheimilinu Leikskálum í Vík, klukkan 14:00.

 

Hvetjum alla til að mæta, sérstaklega aðila í ferðaþjónustu á svæðinu.

 

Stjórn átaksverkefnis Háskólafélags Suðurlands

„Net þekkingar frá Markarfljóti að Skeiðarársandi“

20.07.2009
Bleikjuseiði frá Hólum.

Í síðustu viku fór Jónas Erlendsson í Fagradal heim að Hólum í Hjaltadal og til baka aftur samdægurs.  Ferðin var farin til að ná í um 8000 bleikjuseiði sem þeir Hólamenn buðu honum til kaups.  Jónas þáði það með þökkum þar sem aldrei hefur verið eins mikil eftirspurn eftir Fagradalsbleikju og nú í sumar. Hólafiskurinn kemur til slátrunnar 2011 og er ágæt viðbót við það sem til er.
Jónas tók þessar myndir úr ferðinni.
Nánar má sjá grein í MBL föstudaginn 17. júlí s.l.
Fleiri myndir ...

Tilkynning til ferðaþjónustuaðila á Suðurlandi 

Ferðaþjónustuaðilar á Suðurlandi eru vinsamlega beðnir að athuga að skilafrestur vegna þátttöku í sameiginlegum landshlutabæklingi um Suðurland á vegum Markaðsstofu Suðurlands er 10. ágúst nk.
Nánari upplýsingar fást hjá forstöðumanni stofunnar í s. 864-7011 eða
sudur@visir.is

SKÓLASTJÓRI

Staða skólastjóra sameinaðs leik-, grunn- og tónskóla Mýrdalshrepps er laus til umsóknar. 

Starfssvið: 

·         Skipulagning og undirbúningur nýrrar stofnunar. 

·         Fagleg forusta og skólaþróun.

·         Stjórn og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlunum og rekstri.

·         Stjórnun starfsmannamála.

 Menntunar- og hæfniskröfur:

·         Leyfisbréf til kennslu á leik- og/eða grunnskólastigi.

·         Menntun og/eða reynsla af stjórnun og rekstri skv. lög nr. 87/2008.

·         Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð.

·         Lipurð í mannlegum samskiptum.

·         Metnaður og einlægur áhugi á skólastarfi, reynsla af kennslu og vinnu með börnum og unglingum.

 

Laun skv. kjarasamningi LN og KÍ vegna SÍ eða FL.

 

Umsóknarfrestur er til 7. ágúst.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Sveinn Pálsson sveitarstjóri s: 864-4647 sveitarstjori@vik.is

 

13.07.2009
Hrútavinasamband staðfest og vinir frá Vík sækja heim bryggjuhátíð á Stokkseyri!

Bryggjuhátíð verður á Stokkseyri dagana 17. til 20. júlí n.k. og er hátíðin 5 ára en fyrsta hátíðin var 2004 og hátíðin ár því sú sjötta.
Hátíðin hefur haft sem undirtitil “Brú til brottfluttra” ...

Lesa meira ...
06.07.2009
Ferðamannasumar í Fagradal

Það sem af er sumri hafa komið hátt í 400 ferðamenn til að skoða fiskeldi Fagradalsbleikju ehf. og eru hópferðabifreiðar daglegt brauð.
Á myndinni er hópur sem kom í einn morgunn í júní frá Jersey.

Sjá nánar, Opinn landbúnað á http://www.bondi.is/Pages/232

 
17.06.2009
Aðalskipulagsgögn uppfærð.

Aðalskipulagstillaga hefur nú verið send lögformlegum umsagnaraðilum. 
Nánari upplýsingar og gögn eru aðgengileg hér.
06.07.2008
100 ára afmælisdagur

Það er ekki á hverjum degi sem haldið er upp á 100 ára afmæli en af því tilefni bauð Ólafur Pétursson á Giljum í Mýrdal til veislu afmælisdaginn 12. júní s.l.
Veislan var haldin að Hótel Höfðabrekku.
Margmenni var í afmælinu og mikil gleði á þessum tímamótum.
Sveinn Pálsson sveitarstjóri okkar Mýrdælinga færði afmælisbarninu f.h. Mýrdalshrepps, glerlistaverk eftir Guðrúnu Sigurðardóttur en á listaverkinu má sjá bæinn Giljur í Mýrdal.

Myndir...

Vefstjórinn er í sumarleyfi
27. júlí til og með 7. ágúst n.k.
Ef þú þarft að koma frétt eða tilkynningu á heimasíðuna vinsamlegast sendu á netfangið sveitarstjori@vik.is

Njótið sumarsins
Inger

12.06.2009
Ólafur Pétursson 100 ára í dag.

Ólafur Pétursson fyrrverandi bóndi á Giljum í Mýrdal er 100 ára gamall í dag og af þessu tilefni tekur hann á móti gestum á Hótel Höfðabrekku í dag milli kl. 18 og 21.
Myndirnar voru teknar af Jónasi Erlendssyni í vikunni.
Nánar í MBL í dag.

Fleiri myndir...




Myndir: Kristín Marti Kasparsdóttir

08.06.2009
Ferming í Víkurkirkju

Hvítasunnudagur rann upp bjartur og fagur og gaf tóninn fyrir komandi sumar.  Í Víkurkirkju voru fermd 6 börn þennan dag. Prestur var sr. Haraldur M. Kristjánsson og Samór Mýrdælinga söng undir stjórn Kára Gestssonar organista.

Á myndunum sjáum við f.v. í efri röð Þór Jónsson, Friðbert Elí Gíslason og Ægi Mána Hauksson.  Í neðri röð f.v. eru Alda Sól Hauksdóttir, Emilía Ósk Lorange og Kristín Erla Benediktsdóttir.
02.06.2009
Prófalok

Á Sunnubrautinni í Vík fann Hún Harpa Jónsdóttir þessa prúðbúnu pilta.  Þegar farið var að inna þá eftir tilefninu kom í ljós að þar sem síðasta prófið var á dagskrá í grunnskóla Mýrdadalshrepps ákváðu þeir að gera sér dagamun og prúðbúast. 
F.v. Gunnar Ólafsson, Hlynur Guðmundsson, Gunnþór Bergsson, Birkir Grétarsson, Bergþór Bergsson, Ragnar Kristinsson, Elvar Orri Jóhannsson og Viktor Sigurjónsson.

Mynd: Harpa J.

02.06.2009
Tombóluskvísur

Þessar skvísur héldu tombólu einn föstudaginn og söfnuðu 7470 krónum.
Peningana ætla þær til styrktar Barnaspítala Hringsins.
Þær heita eftir röð f.v: Birna Sólveig, Sigurjóna, Ólöf og Guðrún Lilja.

Mynd: Anna B.B.

25.05.2009
Hvíldinni fegnir

Hópur hestamanna sem ætlar að sundríða straumvötn á Suðurlandi kom í Heiðardal í Mýrdal s.l. laugardagskvöld. Þeir lögðu upp frá Hörgslandi á Síðu um morguninn og eru að ljúka 80-90 km dagleið. Ferðin hefur gengið að óskum.
Hermann Árnason, sem fer fyrir hópi sjö reiðmanna á 44 hestum, sagði að ferðin hafi gengið að óskum. Sum vatnanna hafa líklega aldrei verið sundriðin áður, eins og t.d. ós Jökulsár á Breiðamerkursandi. Einnig hafa þeir lagt að baki m.a. Hornafjarðarfljót, Kolgrímu, Fjallsá, Skeiðará, Gígju, Núpsvötn, Skaftá, Kúðafljót og nú Múlakvísl.
Sjá nánar á www.mbl.is

Fleiri myndir...
 
22.05.2009
Jökulsárlón sundriðið

Jónas Erlendsson var árrisull þegar hann tók þessar myndir kl. fjögur í fyrrinótt við útfall Breiðamerkurslóns á Breiðamerkursandi. Þar sundreið hópur hestamanna, að sögn heimamanna í fyrsta sinn yfir Breiðamerkurlón, en þjóðleiðin var á jökli fyrir innan lónið. Ferðinni er farin frá Höfn í Hornafirði til Selfoss og á að fara yfir öll vatnsföll á leiðinni.
Ætlað er að klára ferðina um Hvítasunnuhelgina.

Fleiri myndir...          Myndir frá Jökulsárlóni kl. 5 í morgun
   
11.05.2009
Sýslumaðurinn í Vík og Umferðarstofa eru Stofnanir ársins 2009.

Niðurstöður úr könnuninni á Stofnun ársins 2009 voru kynntar á Nordica föstudaginn 8. maí  s.l. en þetta er í fjórða sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Í hópi minni stofnana fékk Sýslumaðurinn í Vík hæstu einkunn, eða 4,75 í heildareinkunn af 5 mögulegum. Þetta í annað sinn sem embættið hlýtur verðlaunin. 

Lesa meira...
Umfjöllun mbl 13.05.2009


Ýmsir viðburðir eru á dagskrá Skaftfellingafélagsins á næstunni.

Lesa meira...
 

Gæsavatn - Gæsavatn !
Ferðafélag Mýrdælinga efnir til dagsgöngu að Gæsavatni laugardaginn 13. júní n.k. Brottför frá bankaplaninu kl. 10.00.
Göngugjald er kr. 500.- fyrir félagsmenn og kr. 700 fyrir utanfélagsmenn.
Göngustjóri er Jón Hjálmarsson. Áætlað er að gangan taki 5 - 6 klst.
Eigum skemmtilegan dag í fallegu umhverfi með góða skapið
og nesti í farteskinu, ásamt góðum skóm á fótum!

 

Hárgreiðslustofan Vík auglýsir:
Verð í sumarfríi frá
11. júní til og með 19. júní.
Kveðja,  Þorbjörg

Vefstjórinn er í sumarleyfi frá 15. júní - 3. júlí n.k.

Njótum sumarsins :)
Kveðja
Inger

Víkurkirkja - Lýðveldisdagurinn

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju 17. júní 2009 kl. 13:00 í tengslum við hátíðahöldin.
Prestur er sr. Haraldur M. Kristjánsson prófastur
Organisti er Kári Gestsson sem leiðir almennan safnaðarsöng
Fjölmennum til guðsþjónustu og göngum í skrúðgöngu frá kirkjunni niður á hátíðarsvæðið að henni lokinni.
Ræða, fjallkona, kraftakeppni og mfl.

Haraldur M. Kristjánsson
 

04.05.2009
Rauðhálsar komu sáu og sigruðu loksins

Raularinn var haldinn að Höfðabrekku miðvikudagskvöldið 30. apríl s.l. með fríðu fylgi keppenda.
7 keppendur háðu keppnina að þessu sinni.  Rauðhálsar, Gunnar Gunnarsson (grýlurnar), Útrásarvíkingarnir, Lotta, Mafía Íslands, Kóngurinn og Bisnessmennirnir.
Rauðhálsar skipaðir þeim Sigurði Gými, Palla á Heiði, Jóhanni Vigni og Vigfúsi Hróbjarts komu sáu og sigruðu bæði "besta flytjandann" og "bestu sviðsframkomuna".
Rauðhálsar fluttu hreint frábæran frumsaminn texta sem sagði frá þeirra áralöngu tilraunum til að sigra Raularann en alltaf þurftu þeir að lúta í lægra haldi, ýmist fyrir sýslumanninum eða berum rössum svo eitthvað sé nefnt.
Kristín Marti lenti svo 1. sætinu örugglega sem "besti umboðsmaðurinn" fyrir Gunnar Gunnarsson.


Fleiri myndir ...
 

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands

Starfsmaður Atvinnuþróunarfélags Suðurlands verður með viðveru í Vík í Mýrdal, mánudaginn 8. júní n.k. á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austurvegi 17
milli kl. 10 og 12.
Nýtið tækifærið að hitta ráðgjafa í heimabyggð til að ræða hugmyndir
og leiðir til atvinnuþróunar

Allir velkomnir!

Auglýsing Atvinnuþróunarfélags Suðurlands

Sirkuslistafólk í Vík mánudaginn 8. júní 2009
Verða með sýningu í Félagsheimilinu Leikskálum kl. 21:00.
Aðgangseyrir skal greiða í reiðufé og er 1000 kr. fyrir 16 ára og eldri.
Frítt fyrir þá sem eru 15 ára og yngri.

Námskeið
Öllum börnum og unglingum er boðið á námskeið þeim að kostnaðarlausu frá klukkan 17:00-18:30 sama dag.
Námskeiðið fer fram annað hvort innandyra
eða utan við íþróttamiðstöðina

 

               Nánar...           

Starfsfólk í sumarafleysingar
 

Duglega og drífandi starfskrafta vantar til sumarafleysinga.
Meira...

Safnkirkjan í Skógum - ferming
Hvítasunnudagur, 31. maí 2009 kl. 15:00

Fermdir verða:
Magnús Örn Sigurjónsson Eystri-Pétursey, 871 Vík
Einar Sigurðsson Sigtúni 2, 870 Vík

Prestur: Haraldur M. Kristjánsson

Organisti er Kári Gestsson.
Almennur safnaðarsöngur.

 

Víkurkirkja í Mýrdal - ferming
Hvítasunnudag 31. maí 2009
kl. 13:00

Fermd verða:
Alda Sól Hauksdóttir Mýrarbraut 13, 870 Vík
Emilía Ósk Lorange Austurvegi 25, 870 Vík
Friðbert Elí Gíslason Austurvegi 17, 870 Vík
Kristín Erla Benediktsdóttir Sólheimakoti, 871 Vík
Þór Jónsson Mánabraut 8, 870 Vík
Ægir Máni Hauksson Mýrarbraut 13, 870 Vík

Prestur:  Haraldur M. Kristjánsson
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn
Kára Gestssonar organista

cid:4C693A6D-541F-4D8E-AAED-938F0DFE8646@local

Víkurkirkja í Mýrdal
Uppstigningardagur - Dagur aldraðra

Almenn guðsþjónusta verður í Víkurkirkju í Mýrdal á uppstigningardegi,
fimmtudaginn 21. maí nk.  kl. 14:00.

Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.

Uppstigningardagur er dagur aldraðra í Þjóðkirkjunni og eldri borgurum Mýrdalshrepps og nágrennis, sérstaklega boðið til kirkju af því tilefni.

Ákveðið hefur verið að bjóða upp á akstur til guðsþjónustunnar og er þeim sem áhuga hefðu á
að þiggja akstur til og frá kirkjunni bent á að snúa sér til
Ragnheiðar Högnadóttur formanns Samkórsins í s. 663-1577

Eftir guðsþjónustuna býður sóknarnefnd Víkursóknar öllum viðstöddum
að þiggja kaffi og veitingar á Ströndinni, veitingasal Víkurskála.


Eigum saman góða stund í kirkjunni á degi aldraðra og drekkum svo kaffi á eftir.
Allir hjartanlega velkomnir.

Sr. Haraldur M. Kristjánsson

Tónleikar Tónskóla Mýrdælinga

Klassískir vortónleikar
Hefðbundnir vortónleikar skólans verða haldnir í Leikskálum

miðvikudaginn 20. maí kl. 18:00.
Á efnisskránni, sem er órafmögnuð, er fjölbreytt tónlist sungin
og leikin á píanó, fiðlu og gítar.

Þematónleikar
Þematónleikar skólans verða haldnir í Leikskálum
miðvikudaginn 20. maí kl. 20:00.
Þemað er tvískipt í ár, hljómsveitir og sköpun. Nemendur í 8. bekk stíga á stokk með hljómsveitarspili og söng, en elstu nemendurnir koma víða við og kynna og flytja aðallega eigin lög.
Tónleikarnir eru með óhefðbundnu og skapandi sniði.

Allir hjartanlega velkomnir

Íþróttamiðstöðin í Vík

Íþróttamiðstöðin verður lokuð frá og með 11. - 15. maí.
Opnum aftur laugardaginn 16. maí kl. 10:00

Sævar Kristjánsson

Aðalfundur Rauða kross Íslands
verður haldinn í Vík í Mýrdal þann
16. maí næstkomandi.
Gert er ráð fyrir miklu fjölmenni á fundinn alls staðar að af landinu.
Fundurinn hefst kl. 9 að morgni með setningu Önnu Stefánsdóttur formanns Rauða krossins.
Þá flytja ávörp Sveinn Pálsson sveitarstjóri Mýrdalshrepps og Sveinn Þorsteinsson formaður Víkurdeildar.
Að því loknu verða veittar viðurkenningar til sjálfboðaliða og verkefna Rauða krossins.
Lesa meira ...

 

Þematónleikar
Yngstu sveitir, miðrokkarar og eldri sköpun
Þematónleikar skólans verða haldnir í Leikskálum
miðvikudaginn 13. maí n.k. kl. 17:00
Þemað er tvískipt í ár, samspil og sköpun.  Það á fyrst og fremst um nemendur sem býðst bara hálft nám en fá tækifæri endrum og sinnum til að æfa saman.  Yngstu nemendahópar (hljómsveitir) og miðrokkarar koma fram kl. 17:00 en elsti hópur sem koma átti fram kl. 20:00 er frestað fram til 20. maí n.k. vegna Vestmannaeyjaferðar elstu nemenda grunnskólans.

Skólastjóri

Sumarhátíð leikskólans í Suður-Vík

Sumarhátíð leikskólans Suður-Víkur var haldin í Leikskálum Sumardaginn fyrsta. Börnin voru bara tæra snilldin og stóðu sig frábærlega bæði í leik og söng.
Þau sungu öll saman nokkur lög við undirleik Kristins Níelssonar. Einnig sungu tvær dömur einsöng og var eins og þær hefðu ekki gert annað en að syngja í míkrafón. Elstu börnin settu upp leikþátt um Kiðlingana sjö með aðstoð Hjördísar Rutar og þar stóðu þau sig líka frábærlega. Foreldrafélag leikskólans og kvenfélagið Ljósbrá slógu saman og færðu okkur frábærar gjafir; tvær fartölvur og Boardmaker forrit. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir þessar rausnarlegu gjafir sem eiga eftir að nýtast okkur mjög vel. Fartölvurnar gera okkur kleift að vera í meira sambandi við foreldra og gefa þeim kost á að fylgjast betur með daglegum störfum barnanna.

Með sumar kveðjum úr Suður-Vík


Texti og myndir:
Halla Ólafsdóttir

24.04.2009
Fjórlemba í Fagradal

Í vikunni bar ærin Capri fjórum lömbum í fjárhúsunum í Fagradal. Ekki kom það á óvart þar sem hún var líka með fjórum lömbum í fyrravor. Faðir lambanna er Rór Kveiksonur. Óhætt er því að segja að frjósemin fari vel af stað þetta vorið.

Fleiri myndir...
 
22.04.2009
Hvalreki í Reynisfjöru

Myndirnar tók Jónas Erlendsson í gærdag í Reynisfjöru í Mýrdal en þar fannst þessi hvalur rekinn í gærmorgun sem reyndist vera Andarnefja 9 m að lengd.
Á meðfylgjandi mynd er Jón Hjaltason að skoðar hvalrekann.
Fleiri myndir...
 
20.04.2009
Viðvörunarskilti komið upp í Reynisfjöru

Vegna slyshættu í Reynisjöru í Mýrdal hefur verið sett upp skilti sem varar ferðamenn við að fara of nærri sjónum.
Árið 2007 drukknaði 75 ára kona í Reynisfjöru þrátt fyrir að leiðsögumaður hafi verið búinn að vara fólk við hættunni af sjónum.

Lesa meira...

Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Víkverja


Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Víkverja verður haldinn í húsnæði sveitarinnar að Smiðjuvegi í Vík, þriðjudaginn 12. maí 2009 kl 20:30.

Nýir félagar velkomnir í hópinn.
Dagskrá
 

Golfarar athugið
Aðalfundur GKV verður haldinn í klúbbhúsinu (Péturshöll)
miðvikudaginn 6. maí n.k. kl. 20:00

Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórn GKV

Raularinn
30. apríl 2009 - Raularadagur

Í dag er Raularadagur og stóra stundin að renna upp.  (Spurning um hvort lögleiða eigi daginn sem opinberan frídag)
Í morgun var svo boðið upp á drekkhlaðið kökuhlaðborð að hætti Kaupþingskvenna hér í Vík.
Einn umboðsmanna hefur auglýst upplestur í Kaupþingi kl. 12:15 í dag.
Vefstjórinn ætlar í skoðunarferð í hádeginu og smellir þá nokkrum myndum af herlegheitunum.
Eitthvað er þó rólegra yfir auglýsingum umboðsmanna þetta árið.  Fyrstur til að auglýsa var umboðsmaður Gunnars Gunnarssonar.  Í kjölfarið fylgdi svo umboðsmaður Útrásarvíkinganna og svo umboðsmaður Lottu.
Nú er að sjá hvort ekki bætast við auglýsingar, ekki seinna vænna.
Splunkunýjar myndir ....                      Myndir frá Hörpu Jóns...

Raularinn 2009

 

Hótel Höfðabrekku

 

fimmtudaginn 30. apríl

   Nýtt                Meira...              Auglýsingar umboðsmanna

20.04.2009
Sauðburður hafinn í Fagradal

Sauðburður er hafinn í Fagradal.
Eftir hádegi í gær fengu þau Jónas og Ragna góða heimsókn í fjárhúsin þegar nágrannar þeirra á Höfðabrekku komu til að líta á nýfædd lömbin.
Af því tilefni voru þessar myndir teknar.                                      Fleiri myndir...

15.04.2009
Frumsýning Eldmessu

Um páskahelgina var frumsýnd í félagsheimilinu Kirkjubæjarklaustri ný kvikmynd, Eldmassa sem fjallar um Skaftárelda og móðuharðindin.
Eftir frumsýninguna voru svo flutt tónlistaratriði. Þar komu fram: Samkór Mýrdælinga, Sólstofukvintettinn og Kvennakór Mýrdælinga.



Fleiri myndir

30.03.2009
Arnar Snær er íþróttamaður ársins 2008 og Ármann Daði er efnilegastur íþróttamanna 2008 hjá USVS

Á 39. sambandsþingi USVS (Ungmennasamband Vestur-Skaftfellinga) þann 28. mars s.l. var valinn íþróttamaður ársins 2008 og efnilegasti íþróttamaður ársins 2008.

Að þessu sinni voru tilnefnd í íþróttamann ársins þau:
Arnar Snær Ágústsson umf Kötlu og Harpa Ósk Jóhannesdóttir umf Skafta.
Arnar Snær hlaut titilinn íþróttamaður ársins og er vel að titlinum kominn.
Í efnilegasta íþróttamanninn voru tilnefnd þau:
Ármann Daði Gíslason frá umf Skafta, Friðbert Elí Gíslason umf. Kötlu og Jóna Þórey Árnadóttir hmf Sindra. Það var svo Ármann Daði Gíslason sem hampaði titlinum efnilegasti íþróttamaðurinn.
Til gamans má geta þess að í matarhléi á þinginu var tónlistaratriði. Í því atriði var Elvar Orri Jóhannsson á gítar.  Hann var íþróttamaður ársins 2007 hjá USVS.  Arnar Snær Ágústsson, íþróttamaður ársins 2008 og Magdalena Katrín Sveinsdóttir en hún var tilnefnd til efnilegasta íþróttamannsins vegna ársins 2007.
Meira frá þinginu...

Ljósm. Halldóra Gylfadóttir
 

26.03.2009
Bókhald sendiráða hjá Sýslumanni

Embætti sýslumannsins í Vík hefur tekið að sér að færa bókhald nokkurra sendiráða fyrir hönd utanríkisráðuneytisins.
Þetta verkefni felst í færslu bókhalds sendiráðanna í bókhaldskerfi ríkisins, merkingu fylgiskjala og afstemmingu reikninga. Ragnheiður Högnadóttir aðalbókari embættisins, sem hefur yfirumsjón með verkinu, er þegar byrjuð færslu bókhalds fyrir sendiráð Íslands í Ottawa og skrifstofu Íslands hjá NATO í Brussel.
Meira...
 

Föstudagurinn 13.03.2009
10. bekkingar GSM auglýsa Mýrdalinn

Vefstjóranum barst póstur í gær frá kynningarstjóra Bylgjunnar, þar sem hann hrósaði krökkunum í hástert.  Pósturinn innihélt auglýsingu er 10. bekkingar bjuggu til, en þau eru í starfsfræðsluferð í Reykjavík þessa dagana.
Auglýsinguna má nálgast hér

   

Minnum á Prjónakaffihúsið á Halldórskaffi kl. 20:30
Næstu hittumst við 19. mars, 2. og 16. apríl og 7. maí

Góða skapið verður með í farteskinu, ekki skilyrði að prjónarnir fylgi.
Allir velkomnir - karlar og konur
Kvenf. Hvammshrepps

16.04.2009
Kjörskrá vegna Alþingiskosninganna 25. apríl 2009 liggur frammi á skrifstofu Mýrdalshrepps frá og með 17. apríl.

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps
 

Hundahreinsun í Mýrdalshreppi

Í samræmi við reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002 og samþykkt Mýrdalshrepps um hunda- og kattahald í Mýrdalshreppi nr. 757/2008 eru hundaeigendur boðaðir með hunda sína til hreinsunar miðvikudaginn 22. apríl n.k. kl. 17-18 í áhaldahúsið, Suðurvíkurvegi 3

Sveitarstjóri

Helgihald í Mýrdal á næstunni

Víkurkirkja

Reyniskirkja

Sólheimakapella

Skeiðflatarkirkja

Víkurkirkja í Mýrdal
Hvítasunnudag 31. maí 2009 kl. 13:00

Fermd verða:
Alda Sól Hauksdóttir Mýrarbraut 13 870 Vík
Emilía Ósk Lorange Austurvegi 25 870 Vík
Friðbert Elí Gíslason Austurvegi 17 870 Vík
Kristín Erla Benediktsdóttir Sólheimakoti 871 Vík
Þór Jónsson Mánabraut 8 870 Vík
Ægir Máni Hauksson Mýrarbraut 13 870 Vík

Prestur:  Haraldur M. Kristjánsson

Skógakirkja
Hvítasunnudagur, 31. maí 2009 kl. 15:00

Fermdir verða:
Magnús Örn Sigurjónsson Eystri-Pétursey 871 Vík
Einar Sigurðsson Sigtúni 2 870 Vík

Prestur: Haraldur M. Kristjánsson

Auglýsir námskeið í sálrænum stuðningi sem haldið verður í Vík
16. apríl n.k.

Hér að neðan er stutt lýsing á námskeiðinu:

Viðbrögð við áföllum
Farið yfir leiðbeiningarbækling fyrir hjálparliða
Sálræn skyndihjálp
Leiðbeiningar fyrir hjálparliða og fagfólk um fyrstu viðbrögð vegna alvarlegra atburða/áfalla
Verklag á stórslysa- og hamfarasvæðum
Hagnýt dæmi

Leiðbeinandi er Margrét Blöndal hjúkrunarfræðingur
Áfallamiðstöð
vegna slysa, ofbeldis og hamfara
Skráning fer fram hjá
vik50@simnet.is

Árshátíð

Grunnskóla Mýrdalshrepps

miðvikudaginn 1. apríl 2009
í Leikskálum og hefst kl. 19:30

meira..

Sýndu hvað í þér býr
Námskeið í félagsmálafræðslu í Vík 24. mars n.k.

Námskeið í félagsmálafræðslu verður haldið í Grunnskóla Mýrdalshrepps
24. mars n.k.  Námskeiðið byrjar 18:00 og stendur til 22:00.
Kennari á námskeiðinu er Sigurður Guðmundsson.
Lesa meira...

cid:image003.jpg@01C99B23.3A3F2FF0
 

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands

verður með viðveru í Mýrdalshreppi þriðjudaginn 24. mars n.k. á skrifstofu félagsins, Austurvegi 15 (BVT) milli klukkan 10 og 12. Endilega nýtið tækifærið að hitta ráðgjafa í heimabyggð til að ræða hugmyndir og reifa leiðir til atvinnuþróunar.

Nánar...

Kirkjuskólinn í Mýrdal
er alla laugardaga í grunnskóla Mýrdalshrepps  kl. 11:15 - 12:00
Meira...

Samband Vestur-Skaftfellskra kvenna
SVSK

auglýsir námskeið í ræktun matjurta, ávaxta- og berjatrjáa
22. mars í Herjólfsstaðaskóla.
Námskeiðið hefst kl. 12 á hádegi og er ca. 5 klukkutímar.
Kennarar verða Auður Ottesen og Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingar.
Skráning hjá Málfríði í síma 487-1228 og Rannveigu í síma 487-4651 fyrir 14. mars n.k.
Stjórn SVSK

Nemendur ML setja upp
"Með fiðring í maga"

Sýningar félagsheimilinu Leikskálum í Vík
föstudagskvöldið 20. mars n.k. kl. 20:00
Meira...

 Tónaflóð – list í fögru umhverfi 

 
Flygilsjóður Mýrdælinga

Verður með tónleika og kaffisölu í félagsheimilinu Leikskálum í Vík, laugardaginn 21. mars kl. 13 – 17.

Dagskrá

Kirkjuskólinn í Mýrdal

Samveran fellur niður næsta laugardag vegna útfarar Jóns Þórs Gunnarssonar.

Haraldur M. Kristjánsson
sóknarprestur
 

Jón Þór Gunnarsson
Skeljatanga 21
Mosfellsbæ

sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 6. mars s.l. verður jarðsunginn frá Víkurkirkju, Vík í Mýrdal, laugardaginn 14. mars kl. 14:00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á menntunarsjóð barna hans, banki 0331-13-300800 kt: 120273-5239

Skaftfellingamessa

Sunnudaginn 15. mars kl. 14:00 verður haldin Skaftfellingamessa í Breiðholtskirkju. Þar munn Sr. Sigurður Kr. Sigurðsson prestur Hornfirðinga flytja predikun. Sr. Einar G. Jónsson á Kálfafellstað og Fjalarr Sigurjónsson fyrrum prestur á sama stað verða líka við messuna.
Lesa meira...

 

Aðalfundur


RKÍ Víkurdeild heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 10. mars n.k. kl. 20:00 á Halldórskaffi.
Dagskrá fundarins:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál

Kaffiveitingar í boði deildarinnar
Allir velkomnir
Stjórn Víkurdeildar

27.02.2009
Kerlingadalsá brýtur sér leið
Eins og sést á myndinni þá hefur Kerlingadalsá í Mýrdal brotið stórt skarð í varnargarð upp af brúnni á þjóðvegi eitt. Þegar garðurinn fer í sundur skellur áin með fullum þunga á óvörðum þjóðveginum austan við Vík í Mýrdal. Texti og mynd Jónas Erl.
27.02.2009
Betri byggð fundar
Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri hélt framsögu á fundi Betri byggðar í Mýrdal, sem haldinn var á Ströndinni í Víkurskála 25. febrúar s.l.
Mjög góð mæting var á fundinum. Meira...  Texti og myndir Jónas Erl.    Fleiri myndir
26. febrúar 2008
Frábærir búningar á öskuballi félagsmiðstöðvarinnar OZ


Frábær þátttaka var á hinu árlega öskuballi félagsmiðstöðvarinnar OZ.
Börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega og eins og fyrri ár var mikið lagt í búninga og hönnun, enda eru hugmyndir Mýrdælinga óþrjótandi. Dómnefndin var ekki öfundsverð af því að dæma flottustu og frumlegustu búningana.
Þó endaði með því að hún kom sér saman um vinningshafana.
Lesa meira og fleiri myndir...
25.02.2009
ÖSKUDAGUR

Ýmsar kynjaverur eru á ferli þessa stundina og er enginn óhultur.
Þessar kynjaverur eiga það þó sammerkt að ferðast á milli fyrirtækja og syngja hástöfum.  Að því búnu þiggja þær góðgæti og hverfa á braut.        Fleiri myndir...
24.02.2009
Þröngt sátu sáttir á Eyrarlandi

Líklegt þykir að aldrei hafi verið jafn margir á þorrablóti á Eyrarlandi um s.l. helgi en talið er að milli 140 og 150 manns hafi sótt blótið.
Nefndina skipuðu: Ragnhildur og Guðbergur á Lækjarbakka, Guðrún Sig. og Guðmundur Emil og Palli og Elísabet (á Reyni).  Magnús Kjartansson sá um að mikið var sungið og enn meira dansað.  Menn og konur skemmtu sér svo konunglega fram eftir nóttu.

Myndir...

 

19.02.2009
"Búast við auknu sandfoki"
 
er yfirskrift á grein eftir Helga Bjarnason í Morgunblaðinu í dag fimmtudag.
Í greininni kemur fram að vegna landbrots í Víkurfjöru færist sjórinn tíu metra í átt að húsum í Víkurþorpi á ári og að óðum styttist í íþróttavöllinn.

Greinin í heild sinni...

Ljósmyndir: Jónas Erlendsson
Grein: Helgi Bjarnason

19.02.2009
OZ á Samfés

Á morgun föstudag leggur flottur hópur unglinga á aldrinum 13 - 15 ára upp í ferð til Reykjavíkur á Samféshátíð sem haldin verður í Laugardalshöllinni. Samféshátíðin er stærsti viðburður félagsmiðstöðva á Íslandi. Hátíðin samanstendur af dansleik og söngkeppni. Í ár er talið að 4.500 ungmenni verði þar samankomin og er það fjölgun um 500 frá því í fyrra.
Hátíðin hefst með dansleik á föstudagskvöldinu og er meðal hljómsveita Páll Óskar, Veðurguðirnir, Dr. Spock og Bloodgroup. Einnig koma fram 4 efnilegar unglingahljómsveitir úr félagsmiðstöðvum landsins. 
Á laugardaginn er svo söngkeppnin frá 13:00 til 16:00.  30 lög keppa til úrslita og í ár á Félagsmiðstöðin OZ keppanda.  Magdalena Katrín Sveinsdóttir stígur þá á svið með 15 ára gamalt lag, Zombie með hljómsveitinni Cranberries. 
Keppnin verður í beinni útsendingu rásar 2.

Við óskum krökkunum góðrar skemmtunar og Magdalenu góðs gengis.
Myndband Magdalenu frá því á undankeppninni fyrr í vetur má finna á slóðinni:
http://www.youtube.com/watch?v=ixK7cjO62-I

myrdalur.is

18.02.2009
Ný vefsíða

Samtök íbúa og hagsmunaaðila í Mýrdal hafa sett upp heimasíðu til að upplýsa almenning, atvinnulíf og stjórnvöld innan og utan héraðs um möguleg áhrif og breyttrar legu þjóðvegar um Mýrdalinn.  Með því vilja samtökin ennfremur stuðla að auknum rannsóknum á svæðinu og fyrirbyggja óafturkræft tjón á náttúruverðmætum, menningarminjum og fasteignum á svæðinu.
16.02.2009
Magnaðar myndir.

Þórir N. Kjartansson er einn af ljósmyndurum sem á fuglamyndir á sýningu Fuglaverndar sem opnuð var föstudagskvöldið 13. febrúar s.l. í safnaðarheimili Dómkirkjunnar.
Sýningin mun síðar verma veggi Kjarvalsstaða og hugsanlega í sumar í þjónustumiðstöðina í Skaftafelli.

Fleiri myndir...

Skrifstofa Mýrdalshrepps verður lokuð föstudaginn 6. mars 2009

Sveitarstjóri

Menningarráð Suðurlands auglýsir viðveru menningarfulltrúa

Menningarfulltrúi okkar, Dorothee Lubecki verður með
viðtalstíma og handleiðslu við umsóknargerð
þriðjudaginn 3. mars kl. 13:30-15:00
á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austurvegi 17 í Vík
 

Víkurkirkja í Mýrdal

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar
nk. sunnudag, 1. mars 2009  kl. 14:00.
Allur tónlistarflutningur í höndum nemenda og kennara á gospel námskeiði í Vík
sem Óskar Einarsson tónlistarmaður stjórnar.
Fjölmennum til guðsþjónustu og tökum virkan þátt.
Öll fermingarbörn og foreldrar í Mýrdal
sérstaklega hvött til að mæta.
Sóknarprestur

Gospelnámskeið

verður haldið í Vík dagana 27. og 28. febrúar
og 1. mars n.k.
Kennari verður hinn góðkunni Óskar Einarsson.  Skráning er hafin.
Þeir sem hafa áhuga, skrái sig sem fyrst í síma:
 892-4368 Sif og 865-0307 Anna Bj.

Undirbúningsnefndin

Mynd tekin af hornafjordur.is

Svart leðurstígvél no. 39 fannst á bílastæði við Víkurkirkju
sunnudaginn 1. febrúar 2009.
Sædís Íva s: 864-2188

Betri byggð í Mýrdal

boðar til íbúafundar að Ströndinni Víkurskála 25.feb. kl:21:00.
Gestur fundarinn er Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri.
Nýir félagar boðnir velkomnir.

Stjórnin

Öskudagsball OZ

öskudag 25. febrúar 2009
verður hið árlega öskuball OZ haldið í leikskálum


Dagskrá
19:15 Húsið opnar
19:30 Dagskrá hefst
21:00 Dagskrá lýkur

Aðgangseyrir:
500 kr. án grímubúnings
300 kr. fyrir grímuklædda
Frítt fyrir 5 ára og yngri

   

Atvinna í boði á Hjallatúni.

Duglega og drífandi starfskraft/a vantar í aðhlynningu
á Hjallatún sem fyrst.
Vaktavinna starfshlutfall er 70% og 60%
eða eftir samkomulagi.
Þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.

Einnig vantar okkur öflugt starfsfólk í sumarafleysingar
í aðhlynningu, ræstingu og í eldhús.

Allar upplýsingar fást hjá Sigríði
í síma: 487-1348 eða 864-1348

 


Nýtt sölugallerí opnar á Korputorgi og
Guðrún Sigurðardóttir listakona frá Vík sýnir verk sín ásamt öðru listafólki í nýju 1000m2 galleríi á Korputorgi í Reykjavík.

Meira...

leirbrotoggler.is

art2b.is

10.02.2009
Afmæliskaffi hjá Björgunarsveitinni Víkverja

Þann 8. febrúar 1939 var Slysavarnardeildin Vonin, forveri Björgunarsveitarinnar Víkverja, stofnuð hér í sveit. Síðan eru liðin 70 ár með ýmsum breytingum.
Af því tilefni var boðið til sunnudagskaffis í húsi björgunarsveitarinnar.
Gestum var boðið að skoða aðstæður sveitarinnar og farið var með yngstu gestina á rúntinn í snjóbílnum.
Af þessu tilefni gaf sveitarstjórn Mýrdalshrepps björgunarsveitinni gjafabréf að upphæð 70.000
Fleiri myndir...
10.02.2009
Myndlistasýning leikskólans Suður-Víkur

Dagur leikskólans var haldinn í fyrsta skipti 6. febrúar á síðasta ári, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.  Ákveðið var að halda upp á daginn ár hvert og auka þannig jákvæða umræðu um leikskólann og kynna starfið út á við. 
Af því tilefni var sent út fréttabréf leikskólans Suður-Víkur í febrúarmánuði á öll heimili í Mýrdalshreppi.
Einnig var opnuð af þessu tilefni myndlistasýning barnanna á Sýsluskrifstofunni í Vík. Sýningin er opin á skrifstofutíma og verður út febrúarmánuð.

Fleiri myndir...
 

Frá RKÍ Víkurdeild


Fyrirhugað er að halda Fjöldahjálparstjóranámskeið
(námskeið í móttöku og skráningu á fólki á neyðarstundu)
þriðjudaginn 17. febrúar n.k. kl. 17:00 - 22:30
ef næg þátttaka fæst.
Skráning fer fram hjá formanni deildarinnar í síma 868-6441
eða á netfangið vik50@simnet.is
Námskeiðið er öllum opið og námskeiðsgjald er greitt af RKÍ Víkurdeild
 

10.02.2009
Vel blótað á Ketilsstöðum.

Laugardaginn 7. febrúar s.l. var Þorra blótað á Ketilsstöðum.
Margt var um manninn og allir í gírnum að skemmta sér og öðrum. Nefndina skipuðu: Steini og Magga á Vatnsskarðshólum, Sigga Stína og Hróbjartur, Dóra og Sindri, Þórhildur Jónsdóttir og Ásmundur Sæmundsson.
Í nýja nefnd voru skipuð: Sæunn og Eyþór á Skeiðflöt,  Kristín og Sigurjón í Eystri-Pétursey, Siggi og Sigrún á Hvoli, Ólafur á Eystri-Sólheimum og Atli Guðjónsson í Nykhól. 

Fleiri myndir

09.02.2009
Framhaldsnám í tréútskurði

Um s.l. helgi stíð Handverkshúsið fyrir framhaldsnámskeiði hjá Jóni Adolf Steinólfssyni útskurðarmeistara.  Námskeiðið sóttu 9 manns og var góður rómur gerður að þessu áframhaldi. Stefnt er að því að Jón Adolf komi aftur að ári.
Námskeiðið var haldið í verkmenntahúsi grunnskólans. Unnið var með linditré sem er mjúkur viður og góður til útskurðar. 
Jón Adolf er listamaður af Guðs náð.  Það sést vel þegar skoðuð er heimasíða hans http://www.jonadolf.com Járnin voru munduð af mikilli fagmennsku þegar vefstjórinn leit við í stutta heimsókn.


Fleiri myndir...

Skeiðflatarkirkja í Mýrdal - Biblíudagurinn

Guðsþjónusta verður í Skeiðflatarkirkju
n.k. sunnudag, 15. febrúar 2009 kl. 14:00.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn
Kára Gestssonar organista.

Fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega hvött
til að mæta.
Sóknarprestur

Íbúafundur um skipulagsmál

verður haldinn í félagsheimilinu Leikskálum í Vík
fimmtudaginn 12. febrúar nk. kl 20:00.

Fulltrúar Vegagerðarinnar kynna hugmyndir um veglínur Suðurlandsvegar um Mýrdal.       
Fulltrúar Siglingastofnunar kynna áætlanir um sjóvarnir í Víkurfjöru.
Skipulagsfulltrúi kynnir stöðu aðalskipulagstillögu.

Kaffihúsakvöld hjá félagsmiðstöðinni
í kvöld kl. 19:30 - 21:00
í Leikskálum

Senn líður að því að eldri hópur félagsmiðstöðvarinnar OZ fari á úrslitakeppni Samfés
sem haldin verður í Laugardalshöllinni laugardaginn 21. febrúar n.k., en Samféshátíðin er stærsti viðburður félagsmiðstöðva á Íslandi. Hátíðin samanstendur af dansleik og söngkeppni.
Þar eiga Mýrdælingar keppanda, því Magdalena Katrín Sveinsdóttir mun stíga á svið
og flygja lagið Zombie eftir að hafa komist áfram í landshlutakeppninni
sem haldin var á Selfossi fyrr í vetur.
Í fjáröflunarskyni ætla krakkarnir að vera með Kaffihúsakvöld í kvöld
10. febrúar
milli kl. 19:30 og 21:00 í Leikskálum.
Þar mun Magdalena einnig stíga á svið og flytja lagið sitt.
Brjóttu upp hversdagsleikann með því að hlýða á okkar ungu og efnilegu söngkonu
og þáðu veitingar gegn vægu gjaldi.
Eittþúsund krónur fyrir fullorðna og fimmhundruð fyrir 12 ára og yngri.
Sjáumst, Sævar Kristjánsson íþróttafulltrúi

04.02.2009
Skíðaferðalag

Það skín tilhlökkun úr andlitum þessara stelpna í 5. og 6. bekk grunnskólans. 
Í morgunsárið var haldið í skíðaferðalag í Bláfjöll með 5. - 10. bekk GSM.
1. - 4. bekkur halda síðan í birtingu á Norðurvíkur-túnið í sitt sleðaferðalag.

Kirkjuskólinn í Mýrdal

Munið eftir samveru Kirkjuskólans
næsta laugardag kl. 11:15 - 12:00 í grunnskóla Mýrdalshrepps.
Nýjar bækur með skemmtilegum sögum.

Hlakka til að hitta ykkur.

sr. Haraldur M. Kristjánsson

Tréútskurður í Vík
Jón Adolf útskurðarmeistari kemur aftur til Víkur
og kennir tréútskurð.

Námskeiðið er fyrir byrjendur og þá sem hafa reynslu
eða hafa áður farið á útskurðarnámskeið.

Áslaug Halla Vilhjálmsdóttir tekur við skráningum
og veitir nánari upplýsingar í síma: 487-1163 eða 865-7047
Nánar...

http://www.jonadolf.com

Sunnudagskaffi hjá Víkverja

Þann 8. febrúar 1939 var Slysavarnardeildin Vonin, forveri Björgunarsveitarinnar Víkverja, stofnuð hér í sveit.
Síðan eru víst liðin 70 ár þótt ótrúlegt sé.
Af því tilefni og til að sýna þakklæti okkar verðum við með
opið hús sunnudaginn 8. febrúar kl. 15.00.
 Þar býðst gestum að skoða hvað við erum að gera í húsinu okkar
og þiggja hjá okkur sunnudagskaffi.
Óvæntar uppákomur ef veður leyfir
Hlökkum til að sjá ykkur

Stjórn Víkverja

Þorrablót Ketilsstöðum
haldið laugardaginn 7. febrúar 2009
Húsið opnar kl. 20:00 og borðhald hefst kl. 20:30
Vinsamlegast sækið pantaða miða milli kl. 20:00 og 21:00
fimmtudagskvöldið 5. febrúar n.k.
Miðaverð kr. 5.000
Þorranefndin

Kvenfélag Hvammshrepps
auglýsir:

Spilakvöldin  Prjónakaffihúsið  Þorrablót aldraðra

Myndir:
Unna Björg Ögmundsdóttir

29.01.2009
Þorrablótsgestir með mesta móti í Vík

Laugardaginn 24. janúar var Þorrablót Víkurbúa og vina haldið í Leikskálum í Vík.  Gestir voru með mesta móti eða 224.  Formaður nefndarinnar, Þorgerður Einarsdóttir, sefaði ótta margra, í setningu blótsins, með því að upplýsa að þetta væri EKKI síðasta þorrablótið þrátt fyrir "kreppu". 
Umgjörð blótsins var öll á "gamla mátann" og héngu í loftinu orf, ljáir, stígvél, brúsar, hrífur og fleiri skemmtilegir nytjahlutir.
Af mörgu var að taka og heiðruðu Bogi og Örvar m.a. samkomuna með nærveru sinni.  Á blótinu fengust einnig upplýsingar um hvers vegna styttan "FÖR" hefur snúið sér um 5 gráður.  Ástæðuna má rekja til þessa að ákveðið var að snúa henni frekar til vina okkar í Færeyjum, sem reynst hafa íslendingum vinir í raun.
Hljómsveitin Granít sem skipuð er heimamönnum spilaði svo fyrir dansi fram eftir nóttu með dyggri aðstoð Auðberts Vigfússonar á harmonikku.
Góður rómur var gerður að blótinu og er ekki laust við að tímabært sé að telja niður fyrir næsta blót.
Nefndina skipuðu:             Þorrablótsnefnd 2010 skipa:               Fleiri myndir....
28.01.2009
Þorra blótað á leikskólanum.

Í dag er Þorrablót hjá leikskólanum Suður-Vík og af því tilefni sendi Hjördís Rut þessar myndir.  Í morgunsárið léku börnin sér með leggi.

21.01.2009
Íbúafundur um skólamál

Fræðslunefnd Mýrdalshrepps og Atvinnuþróunarfélag Suðurlands héldu opinn íbúafund um skólamál í Félagsheimilinu Leikskálum í Vík laugardaginn 17. janúar s.l.  Fundurinn var boðaður til að fá hugmyndir og álit íbúa á því hvernig best sé að móta  Draumskóla Mýrdalshrepps
Fyrirlesarar voru eftirfarandi:

Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Salaskóla sem hefur skoðað mismunandi kennsluhætti í íslenskum og finnskum skólum og hvernig sé hægt að gera íslenska skóla að betri og áhugaverðari vinnustað fyrir bæði nemendur og kennara.

Kolbrún Hjörleifsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Mýrdalshrepps.

Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar.
  Margrét Pála hefur verið frumkvöðull í þróun skólastarfs í gegnum Hjallastefnuna.
Halla Ólafsdóttir, skólastjóri Leikskóla Mýrdalshrepps.

Björn Þráinn, framkvæmdastjóri fræðslusviðs Mosfellsbæjar.
Mosfellsbær hefur verið í mjög áhugaverðum tilraunum með aukna samfellu á milli leik- og grunnskóla.  Þar á meðal má nefna sérstaka 5 ára leikskóladeild við Varmárskóla frá 2004 og Lágafellsskóla frá 2005 undir stjórn leikskólanna.  Nýjasta verkefnið er Krikaskóli sem er skóli frá 1 árs til 9 ára.

Kristinn Níelsson, skólastjóri Tónskóla Mýrdalshrepps.

Fundurinn var afar góður en mæting benti ekki til almenns áhuga á málefninu.

13.01.2009
Þeir eru ekki alveg sigraðir "gömlu brýnin"

Milli jóla og nýárs var blásið til körfuboltaleiks í Íþróttahúsinu í Vík.  Þar komu saman "gamlir" leikmenn Drangs í Vík í Mýrdal.
Tilefnið var að safna peningum fyrir Jón Þór Gunnarsson frá Vík, en hann glímir nú við erfið veikindi. Leikfyrirkomulagið var, ungir á móti gömlum og léttleikinn í fyrirrúmi. 30 ára og eldri voru frekar seinir í gang og ungir leiddu allan fyrri hálfleikinn. Gömlu mennirnir hrukku þó loksins í gírinn í fjórða leikhluta og með dyggum stuðningi áhorfenda, ásamt smá aðstoð frá dómara og stigavörðum, lönduðu þeir sigri 88-77.

Lesa meira...
29.12.2008
Víða leynist áhættufé.

Laugardaginn 20. desember s.l. fóru þeir félagar á fjórhjólum að leita kinda; Karl Pálmason bóndi í Kerlingardal og frístundabændurnir Sigurður Hjálmarsson og Emil Sæmundsson.
Fundu þeir eina kind í Össurheiði á Höfðabrekkuheiðum sem þeim tókst að handsama. Þetta reyndist vera veturgömul kind frá Karli Pálmasyni.
Eftir fangbrögðum Sigurðar Hjálmarssonar við kindina að dæma er þetta sannkallað áhættufé, eins og hann orðaði það sjálfur.
23.12.2008
Fjárhagsáætlun 2009.

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps vinnur sameiginlega að fjárhagsáætlun fyrir árið 2009 og var hún til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar þann 18. desember.  Vegna áfalla í efnahag þjóðarinnar er gert ráð fyrir töluverðri tekjuminnkun frá yfirstandandi ári samhliða almennum kostnaðarhækkunum og hárri verðbólgu.   meira......
Kolbrún Hjörleifsdóttir í örmum alheimsins

Dagana 2. desember 2008. - 31. janúar 2009, sýnir Kolbrún Hjörleifsdóttir, skólastjóri grunnskóla Mýrdalshrepps,  myndverk unnin úr Íslenskri ull, á Geysi bistro/bar Aðalstræti 2 í Reykjavík.
Sýningin ber yfirskriftina Í örmum alheimsins - ull er gull.
Lesa meira...
 

Þorrablót Víkurbúa

verður haldið félagsheimilinu Leikskálum
laugardaginn 24. janúar n.k.

Víkurbirtingur 1. tbl.
Víkurbirtingur 2. tbl.
Víkurbirtingur 3. tbl.
Málgagn nefndarinnar

Hjallatún í Vík

Helgistund verður á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hjallatúni í Vík n.k. sunnudag, 18. janúar kl. 15:00.
Félagar úr Samkór Mýrdælinga syngja undir stjórn Kára Gestssonar organista.

Sr. Haraldur M. Kristjánsson

Víkurkirkja í Mýrdal

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju í Mýrdal n.k. sunnudag, 18. janúar 2009 kl. 14:00.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.
Væntanleg fermingarbörn næsta vors sérstaklega hvött til að mæta með foreldrum og forráðamönnum.
Fjölmennum til kirkju.
Sr. Haraldur M. Kristjánsson