Eldri fréttir 2010

 
 

Regnboginn- list í fögru umhverfi
Undirbúningsnefnd Ragnbogans þakkar öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóginn til að gera hátíð liðinnar helgarinnar mögulega.
Fyrirtæki, sjóðir og einstaklingar sem lögðu fram styrki til að fjármagna hátíðina, allir listamenn og handverksfólk sem tóku þátt í dagskránni og síðast en ekki síst heimamenn og gestir sem mættu á viðburði og nutu þess sem boðið var upp á, hafið öll heila þökk fyrir frábæra helgi.
Á lista yfir styrktaraðila í bæklingi Regnbogans féll niður nafn Dyrhólaeyjarferða og er beðist velvirðingar á því.

Sif, Helga og Þorgerður
 

Reyniskirkja í Mýrdal
Guðsþjónusta verður í Reyniskirkju n.k. sunnudag, 17. október kl. 14:00.
Kristín Björnsdóttir organisti leiðir almennan safnaðarsöng.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega hvött til að mæta.
Fjölmennum.
Sóknarprestur
 
15.10.2010
Fýlaveisla Skaftfellingafélagsins.
 

Hin feikivinsæla fýlaveisla verður í Skaftfellingabúð fyrsta vetrardag, laugardaginn 23. október 2010 og hefst með borðhaldi kl. 20.

Húsið verður opnað upp úr kl. 19.

Lesa meira...

 


Boðað er til fundar í Vík með starfsfólki í heilsugæslu, yfirmönnum sveitarfélagsins, yfirmönnum á vinnustöðum, trúnaðarmönnum á vinnustöðum, fulltrúa TR og öðrum sem áhuga hafa.  
 
Fundartími og staður:
Miðvikudaginn 20/10 kl. 15-16
 í félagsheimilinu Leikskálum í Vík

Nánar...

 


Mýrdalshreppur auglýsir framtíðarstarf í íþróttamiðstöð
 

Mýrdalshreppur auglýsir lausa stöðu starfsmanns við Íþróttamiðstöðina í Vík. 
Umsækjandi þarf að vera 18 ára eða eldri. Skrifleg umsókn berist skrifstofu Mýrdalshrepps í síðasta lagi mánudaginn 18. október nk.
Umsóknareyðublöð má finna á heimsíðu Mýrdalshrepps hér hægra megin á síðunni undir "eyðublöð og gjaldskrár" en fást einnig á skrifstofu Mýrdalshrepps.
Laun samkvæmt kjarasamningum Starfsgreinasambands Íslands og
Launanefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Sævar Kristjánsson íþróttafulltrúi í síma 895-1172

tomstundafulltrui@vik.is



 


21.09.2010
Óviðjafnanleg litadýrð

Litadýrðin eitt kvöldið í síðustu viku var óviðjafnanleg og Þórir N. Kjartansson var einn þeirra sem notaði tækifærið og smellti af þónokkrum myndum og úr varð þessi ótrúlega 180° Panorama mynd sem er samsett úr 7 myndum.
Þennan sama dag (þriðjudag) hafði verið óvenjuhvasst og mikill lofthiti, (Gaman væri að fá á þessu skýringar) og niðurstaðan er sérkennilegri og skrautlegri en hægt er að koma í orð

Ef smellt er á smærri myndina fæst stærri mynd  

Samningur um sameiginlegt þjónustusvæði undirritaður

Á ársþingi SASS var undirritaður samningur 13 sveitarfélaga á Suðurlandi um sameiginlegt þjónustusvæði fyrir fatlaða, en um næstu áramót flytjast málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.  Þjónustusvæðið nær til allra sveitarfélaganna í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og V- Skaftafellssýslu. Samningurinn er ítarlegur og felur í sér að framkvæmdin verður í höndum einstakra sveitarfélaga en Sveitarfélagið Árborg mun sjá um ráðgjöf og sameiginleg þjónustuúrræði fyrir svæðið allt.  Yfirstjórn samningsins verður þó í höndum stjórnar þjónustusvæðisins en hana skipa  þeir fimm fulltrúar í stjórn SASS sem koma frá sveitarfélögum á þessu svæði.
Tekið af sass.is
Sjá samninginn í heild sinni
Smölun heiða.
21.09.2010
Myndirnar eru teknar í smölun þegar Dala- og Heiðarheiði voru smalaðar um síðustu helgi. 

Fleiri myndir...
17.09.2010
Elfa Dögg nýr formaður SASS

Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi D-listans í Árborg, var í morgun kjörin nýr formaður Sambands sunnlenskra sveitarfélaga en þing sambandsins var haldið á Selfossi 13. og 14. september s.l.
Elfa Dögg sóttist eftir embættinu og segir hún að mörg stór mál séu framundan sem varða hagsmuni sveitarfélaganna. „Stærsta málið í dag er auðvitað yfirfærsla á málefnum fatlaðra til sveitarfélaganna. Samgöngumál eru líka ofarlega á baugi hjá Sunnlendingum auk þess sem ennþá er verið að vinna úr málum tengdum eldgosinu í Eyjafjallajökli.“

Elfa tekur við af Sveini Pálssyni, fyrrverandi sveitarstjóra í Mýrdalshreppi, sem nú er sveitarstjóri Dalabyggðar. Aðrir í nýrri stjórn SASS eru Aðalsteinn Sveinsson úr Flóahreppi, Reynir Arnarson á Höfn, Elliði Vignisson í Vestmannaeyjum, Elín Einarsdóttir í Mýrdalshreppi, Sigríður Lára Ásbergsdóttir í Ölfusi og Guðfinna Þorvaldsdóttir, Rangárþingi ytra.

Ljósm.
Guðm. Karl


Tekið af vef sunnlenska.is


 


Regnboginn- list í fögru umhverfi

 

Menningarveisla í Mýrdal

1.-3.október 2
010
 


Athygli er vakin á að heimsfrumsýning


 
Skaftfellingur Saga er í íþróttahúsinu

laugardaginn 2. október kl. 13:30




Dagskrá

Bæklingur Regnbogahátíðar er borinn í hús þriðjudaginn 28. september


Regnboginn
List regnbogilogo.bmpí fögru umhverfi
Menningarveisla
 

Góða skemmtun og sjáumst á

Regnbogahátið

Víkurkirkja í Mýrdal


Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju í tilefni af menningarhátíðinni Regnboganum,

n.k. sunnudag 3. október,  kl. 11:00.

Sálmar og söngvar eftir Skaftfellska höfunda.

Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista. 

Fjölmennum til kirkju.

 

Sóknarprestur
 

Kirkjuskólinn í Mýrdal

Minni á samveru Kirkjuskólans í Mýrdal,

nk. laugardag, 2. október kl. 11:15 - 12:00 í Víkurskóla.

Hlakka til að hitta ykkur.

 

Sóknarprestur

Göngum til góðs
Laugardaginn 2. október blæs Rauði kross Íslands til landssöfnunarinnar Göngum til góðs til styrktar
alþjóðaverkefnum sínum.

Nánar

15.09.2010
Ótrúleg litadýrð

Jónas Erlendsson sendi okkur þessar frábæru myndir sem hann tók þriðjudagskvöldið 14. september s.l. Á myndunum glittir í Höfðabrekku og Kerlingardal.
Þennan sama þriðjudag hafði verið dálítið far á logninu hér í Mýrdalnum og blasti þessi litadýrð við Mýrdælingum um kvöldið

Fleiri myndir

10.09.2010
"Sjómenn á Kanaríeyjum kaupa íslensk ullarnærföt"

Þessi fyrirsögn eftir blaðamanninn Erlu Hlynsdóttur, blasir við þegar opnað er á heimasíðu visir.is í dag 10. september 2010.
Í greininni kemur fram að sjómennirnir hafi pantað 400 sett af föðurlandi og 900 pör af ullarsokkum og af því tilefni vinni Þórir N. Kjartansson, framkvæmdastjóri Víkurprjóns hf., að því hörðum höndum að afgreiða stærstu pöntun sem hann hefur fengið í áraraðir en sjómenn á Kanaríeyjum bíða nú eftir pöntuninni.
Sjá greinina í heild á visir.is

Ljósm.
Víkurprjón


Regnboginn- list í fögru umhverfi

 

Menningarveisla í Mýrdal

1.-3.október 2
010

Kæru íbúar!
 

Undirbúningur er nú í fullum gangi að menningarveislunni Regnboginn - list í fögru umhverfi sem haldin verður í Vík dagana 1.-3. október.  Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá listviðburða frá föstudegi til sunnudags.

Nánar


Regnbogastjarna

 
Suðurlands 2010

Sönghópar nú er tækifærið!
Spennandi kórakeppni verður haldin helgina 1. og 2. október 2010 í Vík í Mýrdal á Menningarhátíðnni - Regnboginn List regnbogilogo.bmpí fögru umhverfi
Þema keppninar er Íslensk dægurlög.

Nánar

Sólheimakapella í Mýrdal

Í tilefni af 50 ára vígsluafmæli Sólheimakapellu í Mýrdal verður efnt til hátíðarguðsþjónustu í kapellunni nk. sunnudag 26. september 2010, kl. 14:00.

 

Kristín Björnsdóttir í Sólheimakoti, sem er organisti kapellunnar, l
leiðir almennan söng kirkjugesta.

 

Einar Þorsteinsson meðhjálpari í Sólheimahjálegu rekur sögu kapellunnar.
Kári Gestsson organisti og Kristinn Jóhann Níelsson skólastjóri tónskóladeildar Víkurskóla, leika saman á orgel og fiðlu.

 

Eftir guðsþjónustuna býður heimilisfólkið í Sólheimahjáleigu til kaffidrykkju á heimili sínu.

 

Allir velunnarar Sólheimakapellu í Mýrdal hvattir til að fjölmenna
og eiga góða stund saman af ánægjulegu tilefni.

 

Fyrir hönd Sólheimakapellu,

 

Haraldur M. Kristjánsson

sóknarprestur

Kirkjuskólinn í Mýrdal
Fyrsta samvera Kirkjuskólans í Mýrdal verður í Víkurskóla í Vík
n.k. laugardag, 25. september 2010, frá kl. 11:15 - 12:00.
Söngur, fræðsla, litastund og sitthvað fleira.
Verum nú sérstaklega dugleg að sækja samverurnar í vetur.
Hlakka mikið til að hitta ykkur.
Kær kveðja
Sóknarprestur

07.09.2010
Smölun á gosfé

Jónas Erlendsson sendi okkur þessar myndir sem teknar voru þegar gosfénu var smalað í Meðallandi nú í haust.                  Fleiri myndir...

06.09.2010
Fámennt en góðmennt í Kötluhlaupi

Þátttakendur í Kötluhlaupi laugardaginn 4. september síðastliðinn voru 8 talsins. Að sögn Sævars Kristjánssonar íþróttafulltrúa hjá Mýrdalshreppi hefur veðrið líklega haft einhver áhrif á þátttökuna. Íþróttafulltrúinn smellti mynd af þátttakendum hlaupsins. F.v. Carina Margareta Ek, Einar Guðnason, Victoria Jonsson, Guðný Guðnadóttir, Magnús Sæmundsson, Jóhann Ari og Gylfi Arinbjörn Magnússynir. Á myndina vantar Guðna Einarsson.
 
26.07.2010
Áheitagangan tókst vel í alla staði

Þann 18. júlí s.l. stóð Ferðafélag Mýrdælinga fyrir áheitagöngu til fjáröflunar endurbyggingar Deildarárskóla sem stendur undir Barði í Höfðabrekkuafrétti.
22 hófu gönguna við Deildará og luku henni allir. Gangan tók um 6,5 klst. og söfnuðust 242.700 kr. Ferðafélagið vill þakka fyrirtækjum og einstaklingum sem hétu á gönguna svo og þeim sem gengu og öllum öðrum sem hjálpuðu til á einhvern hátt.       Sjá nánar á  Vef ferðafélags Mýrdælinga

Ljósm. Sig.Hj.
Fleiri myndir

15.07.2010
"Fjársjóðir Suðurlands" fylgja Fréttablaðinu


Með Fréttablaðinu í dag 15. júlí fylgir upplýsingarit um Suðurland.
Viðtal er við nokkra ferðaþjónustuaðila í Mýrdalshreppi og einnig ítarlegur listi með þjónustuaðilum.
Sjá nánar á slóðinni:
http://vefblod.visir.is/index.php?s=4225&p=96251


Ásgeir Magnúss.

22.07.2010
Gengið frá ráðningu nýs sveitarstjóra Mýrdalshrepps

Á 463. fundi sveitarstjórnar var samþykkt að ganga frá ráðningarsamningi við Ásgeir Magnússon um stöðu sveitarstjóra Mýrdalshrepps.  Ásgeir kemur til starfa 3. ágúst n.k.

Nýr opnunartími upplýsingamiðstöðvar í Vík

Upplýsingamiðstöð Suðurlands

Upplýsingamiðstöð ferðamála/Tourist information center
Víkurbraut 28
sími 487-1395
info@vik.is

Frá 1. september er opið alla daga frá kl. 13:00 - 16:00
 

Skeiðflatarkirkja í Mýrdal

Guðsþjónusta verður í Skeiðflatarkirkju í Mýrdal
sunnudaginn 12. september nk. kl. 14:00.

Samkór Mýrdælinga leiðir söng undir stjórn Kára Gestssonar organista.

 

Fjölmennum til kirkju.

 

Sóknarprestur

"Kötluhlaup"

Laugardaginn 4. september 2010

Laugardaginn 4. september kl. 11:00 verður haldið í sjötta sinn
“Kötluhlaup” í Vík í Mýrdal.
Mýrdalshreppur, Umf. Katla og Björgunarsveitin Víkverji sjá um framkvæmd hlaupsins. Hægt er að ganga og hlaupa vegalengdirnar sem í boði eru.

Upphaf Kötluhlaupsins
Gylfi Júlíusson hætti eftir áratuga starf sem rekstarstjóri Vegagerðarinnar í Vík og þar sem hann var alltaf að bíða eftir Kötluhlaupi, ákváðu nokkrir Vegagerðarstarfsmenn að hlaupa svokallað Kötluhlaup þ.e. frá Kúðafljóti til Víkur um 42 km, honum til heiðurs. Fyrstu tvö árin var Vegagerðin í Vík framkvæmdaraðili hlaupsins.
 

Nánar

Umf.
Katla


Víkurkirkja í Mýrdal
Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju nk. sunnudag, 5. september kl. 14:00.

Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.

 

Sóknarprestur

Hjallatún í Vík
Helgistund verður á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hjallatúni í Vík
nk. sunnudag, 5. september kl. 15:00.
Félagar úr Samkór Mýrdælinga leiða söng undir stjórn Kára Gestssonar organista.

Sóknarprestur

Menningarminjadagur Evrópu haldinn sunnudaginn 5. september n.k.
Þema dagsins er að þessu sinni sjávar- og strandminjar og af því tilefni mun Uggi Ævarsson minjavörður Suðurlands leiða gesti um Reynisfjöru og nágrenni með dagskrá sem nefnist
"um að ýta og lenda í brimsjó fyrir söndum"

Menningarminjadagur Evrópu hér á landi verður haldinn sunnudaginn 5. september n.k. Þema dagsins að þessu sinni er sjávar- og strandminjar. Uggi Ævarsson minjavörður Suðurlands leiðir gesti um Reynisfjöru og nágrenni með dagskrá sem nefnist Um að ýta og lenda í brimsjó fyrir söndum. Þar mun Uggi fjalla um útræði í Reynisfjöru auk þess sem skoðaður verður Bæjarhellir (einnig nefndur Baðstofuhellir) en hann tengist sögu síra Jóns Steingrímssonar eldklerks. Mæting er við bílastæðið við Reynisfjöru kl. 14:00.


Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Dagskrá menningarminjadagsins má finna í heild á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins, www.fornleifavernd.is

Röddin 2010
Alvöru söngkeppni fyrir 12 til 16 ára

Nú geta unglingar á aldrinum 12 til 16 ára látið ljós sitt skína og tekið þátt í Röddinni.
 


Ljósm. Röddin

22.07.2010
Röddin 2010 og Magdalena er komin í undanúrslit.

4 ungmenni úr Mýrdalnum, þau Magdalena Katrín Sveinsdóttir 16 ára, Þórhildur Steinunn Kristinsdóttir 12 ára, Ástþór Jón Tryggvason 12 ára og Thelma Lind Sigurhansdóttir 14 ára taka þátt í söngkeppninni Röddinni 2010.
Þær Þórhildur og Thelma halda ótrauðar til keppni á Selfossi um næstu helgi en Ástþór ætlar að keppa í Reykjavík þar sem héraðsmót USVS er haldið sömu helgi.
Magdalena Katrín keppti á Neskaupsstað um s.l. helgi og komst áfram í undanúrslitin sem fram fara í Reykjavík 11. ágúst n.k.  Á Neskaupsstað var á fimmta tug keppenda í áheyrnarprufum og var Magdalena ein af þremur sem komst áfram.  Hinir tveir keppendurnir voru stórefnilegar piltar frá Eskifirði. En afhverju keppti Magdalena á Neskaupsstað?
"Jú, það var ekki um annan dag að ræða, þar sem ég er að vinna sama dag og keppnin er haldin á Selfossi, svo að fjölskyldan bjó bara til útilegu úr þessu" sagði Magdalena. Hún sagði jafnframt að þetta væri frábær reynsla að fara í gegnum og hrósaði þeim Siggu Beinteins og Maríu í hástert.
Magdalena, Þórhildur og Ástþór voru með opna æfingu í Víkurskóla í síðustu viku fyrir vini og vandamenn og sýndu þar hvað í þeim býr. Harpa Jónsdóttir móðir Þórhildar hefur verið óþreytandi að aðstoða Magdalenu og Þórhildi við undirbúninginn og tók þessar myndir af keppendum og frá æfingunni. Gangi ykkur vel á Selfossi og í Reykjavík flottu krakkar!!!                                           Myndir frá keppninni á Neskaupsstað


Ljósm.Harpa J.


Ljósm.Harpa J.

Ferðaáætlun
Ferðamálafélags Skaftárhrepps sumarið 2010


Æfingar hjá Umf. Kötlu


Mánudaga og miðvikudag - fótbolti kl. 19:30 - 21:00
Þriðjudag og fimmtudag - frjálsar kl. 19:30 - 21:00
Nánari upplýsingar veitir Þorgils í síma 845-6252
Ath. ekki er æfing 17. júní
 

13. unglingalandsmót UMFÍ
haldið í Borgarnesi um verslunarmannahelgina

Heimamenn bíða spenntir.
Undirbúningur fyrir unglingalandsmótið í Borgarnesi gengur vel en mótið verður um verslunarmannahelgina. Síðustu vikurnar hafa staðið yfir lagfæringar og viðhald á mannvirkjum þar sem viðburðir mótsins munu fara fram.
Ungviðið í Borgarnesi bíður spennt eftir mótinu en það var létt yfir krökkunum í blíðviðrinu í gær.
Glæsileg íþróttamannvirki eru til staðar í Borgarnesi. Íþróttaleikvangurinn er vel staðsettur og við hlið hans eru knattspyrnuvellir, sundlaug og íþróttahús. Önnur íþróttamannvirki eru í bænum eða næsta nágrenni. Tjaldstæði keppenda verður rétt utan við bæinn en boðið verður uppá góðar samgöngur að keppnissvæðunum. (Tekið af ulm.is)

USVS stefnir að myndarlegri þátttöku eins og undanfarin ár.  Tengiliður USVS er Harpa Ósk Jóhannesdóttir og mun hún halda utan um skráningar og aðstoð í því sambandi. Sjá nánar á usvs.is

Umf. Katla hefur svo ákveðið af miklum myndarskap að niðurgreiða gjöld sinna þátttakenda um helming þ.e. Umf. Katla greiðir 3.000 krónur fyrir hvern keppanda.



Leikskólakennarar athugið!
Laus staða leikskólakennara við Víkurskóla, Vík í Mýrdal.
Gott húsnæði í boði og spennandi uppbygging framundan á fallegum
og fjölskylduvænum stað.

Umsóknir berist undirrituðum á netfangið skolastjori@vik.is
Magnús Sæmundsson skólastjóri Víkurskóla.
 

Ingibjörg Rán sýnir á Halldórskaffi

Listaverkasýning verður opnuð á Halldórskaffi í Vík í Mýrdal,
á olíuverkum Ingibjargar Ránar Guðmundsdóttur.
Ingibjörg býr og starfar í Kaupmannahöfn en kenndi m.a. í Vík 1993-94.
Árið 1987 kenndi hún í Grundarfirði en þaðan eru margar myndanna.
Viðfangsefni Ingibjargar er náttúra Íslands og yfirskrift sýningar hennar er „Draumalandið“
Sýningin verður sett upp 29. júlí n.k. og mun standa yfir í einn mánuð:
Opnunartími á Halldórskaffi er 11-23 sunnudaga – fimmtudaga en 11-01 föstudaga og laugardaga.
 

Vefstjóri vik.is verður í sumarleyfi
frá 30. júlí til og með 25. ágúst n.k.

Njótið lífsins :)
Inger

Super Mama Djombo
í Vík

Einstakir tónleikar á Halldórskaffi sunnudagskvöldið 1. ágúst nk. kl. 22
Átta manna hljómsveit frá Guineu Bissau, Super Mama Djombo,
kemur og flytur okkur afríska tónlist.
Aðgangseyrir kr 1000.

Mætum og fögnum góðum gestum frá fjarlægum slóðum. Auk þess að heimsækja okkur verður flokkurinn með tónleika í fjölskyldugarðinum í Reykjavík og á tónleikastöðum og kaffihúsum í höfðustaðnum, í Borgarnesi og á Akureyri. 

 

13.07.2010
Nýr sveitarstjóri Mýrdalshrepps

Ásgeir Magnússon fráfarandi forstöðumaður skrifstofu Samtaka iðnaðarins á Akureyri hefur ákveðið að ganga til samninga við hreppsnefnd Mýrdalshrepps um stöðu sveitarstjóra í Mýrdalshreppi.
Ásgeir hefur víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum, var um skeið bæjarstjóri í Neskaupstað og sat einnig í bæjarstjórn Akureyrar. Þá hefur hann starfað sem Iðnráðgjafi Austurlands og framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjarfjarðar og framkvæmdastjóri Foldu hf. auk stjórnarsetu í fjölmörgum fyrirtækjum.
Ásgeir er kvæntur Ásthildi Lárusdóttur og eiga þau þrjú uppkomin börn og sex, bráðum sjö barnabörn.
Gert er ráð fyrir að Ásgeir hefji störf í byrjun ágúst.


Atvinna / aukavinna
 

Starfsfólk vantar í ræstingu á Hjallatúni frá 16. ágúst nk.
Um er að ræða 70 % stöðu.
Einnig möguleiki á minna hlutfalli, t.d. ákveðnum dögum í viku.

Áhugasamir hafi samband við Guðlaugu
í síma 487-1348 eða 868-1181

29.06.2010
Skaftárhlaup

Jónas Erlendsson ljósmyndari með meiru sendi okkur þessar myndir af Skaftárhlaupi.   Fleiri myndir ...

Heymiðlun vegna eldgossins
 

Á vegum samtaka bænda og sveitarfélaganna Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps hefur verið sett á fót heymiðlun með það að markmiði að tryggja þeim bændum sem ekki hafa aðstöðu til þess að afla þeirra viðbótarheyja sem þarf vegna tjónsins af völdum gossins aðgang að góðu heyi.

 

Sveinbjörn Jónsson (sími 862-1814) mun annast heymiðlunina en Runólfur Sigursveinsson hjá BSSL og Borgar Páll Bragason hjá BÍ
verða faglegir ráðgjafar.

Gisting í Vík

Heimagisting Eriku

Heimagisting Eriku - notaleg íbúð með frábæru útsýni
Gisting með morgunmat og eða svefnpokapláss
Opið allt árið
Erika Irmgard Pauler
Sigtúni 5, 870 Vík
Sími + 354-487-1117  GSM + 354-693-5891
netfang erika50@simnet.is


Íþróttahátíð USVS
verður á Víkurvelli laugardaginn 24. júlí n.k.

Sjá nánari dagskrá á usvs.is
 


Íþróttahátíð USVS

verður á Víkurvelli laugardaginn 24. júlí n.k.

Á sambandsþingi í mars sl. var samþykkt að gera róttækar breytingar á Íþróttahátíðinni og er verið að vinna að breytingum á reglugerð því tengdu.
Í ár er USVS 40 ára og því er stefnan að halda veglaga hátíð í tilefni afmælisins.
Sjá nánar á vef sambandsins usvs.is


Hárgreiðslustofan í Vík verður lokuð vegna sumarleyfis
12.- 26. júlí n.k.
Bestu kveðjur
Þorbjörg s:847-1858
 

Ferðafélag Mýrdælinga auglýsir
áheitagöngu þann 18. júlí n.k.

Sjá nánar...

24.06.2010
28 umsóknir um stöðu sveitarstjóra Mýrdalshrepps

Á dögunum var auglýst staða sveitarstjóra Mýrdalshrepps og var 21. júní síðasti dagur til að senda inn umsókn.
Skemmst er frá því að segja að 28 umsóknir bárust og vinnur nú ný sveitarstjórn í að yfirfara umsóknirnar.

Umsækjendur eru:
 

Tónleikar Klarup stúlknakórs frá Danmörku
í kvöld 12. júlí kl. 20:00


Klarup stúlknakór er meðal bestu stúlknakóra í Danmörku, í kórnum eru 35 stúlkur á aldrinum 14 til 25 ára og eru í ár að fagna 30 ára starfsafmæli.
Þetta er kór sem byggir á norrænni sönghefð, og syngur kórinn aðallega norræna tónlist og klassíska kirkjutónlist. Kórinn hefur sungið með sinfóníuhljómsveit Álaborgar og einnig með hljómsveit danska útvarpsins.
Árið 2002 sungu þær meðal annars með Jean Michel Jarres á tónleikum sem nefndir voru “Aero” sem var sjónvarpað víða um heim.
Kórinn hefur ferðast víða um heim, síðasta ferð þeirra var 2008 til Canada.
Kórinn heldur tónleika á eftirtöldum stöðum:
Grafarvogskirkja - Þriðjudag 6. júlí kl. 20.00
Skálholtskirkja - Miðvikudag 7. júlí kl. 20.00
Selfosskirkja - Laugardag 10. júlí kl. 17.00
Víkurkirkja - mánudag 12. júlí kl 20
Norræna húsið - Þriðjudag 13. júlí kl. 20
 

Sáð í Sólheimasandinn

Tekið af mbl.is

Landgræðsla ríkisins, með stuðningi Vegagerðarinnar og heimamanna, hefur hafið aðgerðir til að hefta öskufok á Sólheimasandi í Mýrdal. Tilbúinn áburður verður borinn á og grasfræblöndu sáð og er vonast til þess að árangur sjást strax í sumar.

Lesa meira og fleiri myndir...

Snyrtistofan í Vík

Verður lokuð vegna sumarleyfis frá 16. júní til 15. júlí n.k.

Kveðja Margrét s: 868-3642


Frá sóknarprestinum í Vík

 

Verð í sumarleyfi til 19. júlí nk.

Vinsamlega snúið ykkur til séra Ingólfs Hartvigssonar

á Kirkjubæjarklaustri á meðan.

Sími hans er 487-4618.

 

Haraldur M. Kristjánsson

 

Íþróttaskóli umf Kötlu

Íþróttaskólinn verður með tveggja vikna námskeið í Íþróttamiðstöðinni Vík frá 5. - 16. júlí fyrir börn fædd 1999 - 2005. Unnið verður í tveimur hópum.

Farið verður í leiki, sund, göngur og svo munu krakkarnir fá að kynnast alvöru sirkuskúnstum en meðal leiðbeinenda á námskeiðinu verður ungur maður sem hefur numið sirkuslistir í Svíþjóð.

Tími frá 9: 30 - 12 og námskeiðið kostar kr 6000 fyrir báðar vikurnar.

Skólastjóri íþróttaskólans er Magnús Sæmundsson íþróttakennari

Upplýsingamiðstöð Suðurlands
Upplýsingamiðstöðin í Vík vekur athygli á að senn lýkur átakinu
"Inspired by Iceland".
 

Lokahnykkurinn eru stórtónleikar sem fengið hafa nafnið ''Iceland Inspires''  og munu þeir fara fram að Hamragörðum undir Eyjafjöllum fimmtudaginn 1. júlí. Að Hamragörðum koma m.a. fram Spiritualized með íslenskri strengjasveit og kór, Seabear, Amiina, Dikta, Steindór Andersen, Lay Low, Hilmar Örn Hilmarsson, Mammút, Páll á Húsafelli og Parabólur ásamt fleirum. Það má lesa um það nánar hér.

 

Music meet Nature : Nature meet Music

Um er að ræða 3 tíma tónlistarveislu frá kl. 20 til kl. 23.

Umgjörðin er hrá og einföld og sannkölluð úti-sveitaskemmtun.

Þeir sem áhuga hafa þ.m.t. ferðaþjónustuaðilar og handverksfólk er hvatt til að nýta þetta tækifæri og þá markaðssetningu sem er að fara af stað í tengslum við þennan viðburð, s.s. tilboð á gistingu, veitingum, handverk ofl.

Starfsfólk Upplýsingamiðstöðvarinnar í Vík

 

07050164
Stórtónleikarnir fluttir til Reykjavíkur

Eins og eflaust margir hafa heyrt í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi hafa tónleikarnir "Iceland Inspires" sem halda átti á Hamragörðum verið færðir til Reykjavíkur
nánar tiltekið í Hljómskálagarðinn.
Þar setti veðrið strik í reikninginn og þá sérstaklega með tilliti til tækjabúnaðar sem fylgir tónleikunum. Þetta er að sjálfsögðu afskaplega leiðinlegt
en þótt máttur okkar sé mikill breytum við ekki veðrinu.
Það er þó bót í máli þar sem um er að ræða viðburð sem sýna á veraldarvefnum og mikið lagt upp með að kynna það erlendis, að sýndar verða myndir af okkar svæði á meðan á tónleikunum stendur í netútsendingunni.

Upplýsingamiðstöð Suðurlands
Starfsfólk Upplýsingamiðstöðvarinnar

 


Viðtalstímar Bjargráðasjóðs á Hvolsvelli


Árni Snæbjörnsson, framkvæmdastjóri Bjargráðasjóðs, verður til viðtals á skrifstofu Búnaðarsambandsins á Hvolsvelli í þessari viku, þ.e. þriðjudag 22. júní og miðvikudag 23. júní
frá kl. 10.00 til kl. 16.00 báða dagana.
Þeir sem orðið hafa fyrir tjóni vegna eldgossins í Eyjafjallajökli geta komið og rætt málin við Árna.
 

Jónsmessuganga

Miðvikudaginn 23. júní 2010
Mæting á bankaplanið í Vík kl. 20:00 með miðnæturnesti.
Ekið þaðan að gamla afréttarkofanum í Ausubólshólum í Kerlingardalsafrétti.
Gengið verður um Ausubólshóla inn undir Kerlingar og inn í Raufargil.
Í bakaleið verður stoppað í Deildarárskóla og þar snætt nestri áður en ekið verður heim.
Upplýsingar gefur Sigurður í síma 8690170.

Ferðanefnd Ferðafélag Mýrdælinga
 

Sveitarstjóri í Mýrdalshreppi,
Vík í Mýrdal

Starf sveitarstjóra í Mýrdalshreppi er laust til umsóknar.
Mýrdalshreppur er öflugt, 500 manna sveitarfélag í einni fallegustu sveit landsins.
Í sveitafélaginu er gott mannlíf, öflugt félagsstarf, örugg heilsugæsla og öll almenn þjónusta. Í Vík er rekinn sameinaður grunn,-leik- og tónskóli þá er sundlaug,
 íþróttahús og golfvöllur til staðar.

Við leitum eftir áhugasömum og framsýnum einstaklingi sem hefur metnað til að takast á við krefjandi og spennandi verkefni í sveitarfélaginu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánar...

Fjölskyldan á fjallið
USVS
stendur fyrir fjölskyldugöngu á Reynisfjall
sunnudaginn 20. júní n.k.  kl 14:00,  lagt af stað frá Kjarval.
Ferðin er hluti af verkefni UMFÍ - fjölskyldan á fjallið -  Sjá nánar á www.ganga.is
Ungmennasambandið ætlar að setja upp gestabók á fjallinu þar sem göngufólk sumarsins getur skráð nafn sitt. Í haust verður svo dregið úr öllum nöfnum úr gestabókinni og heppnir göngugarpar hljóta útivistarverðlaun

USVS

Frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vík

Starfsfólkið á heilsugæslustöðinni í Vík hvetur þá sem vilja og finna hjá sér þörf fyrir að ræða málin í því sérstaka ástandi sem fylgir eldgosi í Eyjafjallajökli til að hafa samband.
Helga og Sigurgeir
 

Kvennahlaup ÍSÍ


verður haldið laugardaginn 19. júní n.k. í Vík í Mýrdal
Hlaupið byrjar kl. 11:00 við íþróttamiðstöðina og eru vegalengdirnar 3, 5 og 10 km.
Skráningargjald er 1.250 krónur og er bolur og verðlaunapeningur innifalinn.
Frítt í sund að hlaupi loknu
 


17. júní gleði

Nú líður að sautjánda degi júnímánaðar og þá verður gaman


Dagskráin hefst með skrúðgöngu frá kirkjunni kl. 13:30.  Sala á fánum og blöðrum verður við kirkjuna frá kl. 13:00 til 13:30.  Þaðan er gengið niður á íþróttavöll þar sem mikil skemmtun tekur við; hoppukastali, trampolín, klappstýrur, kraftakeppni, teymt verður undir börnum, þrautabraut og fleira. 
Fjallkonur líta við og lesa vel valin orð til gesta.  Frítt verður í sund allan daginn.
Frábærar veitingar verða til sölu í íþróttahúsinu og er verðið fyrir manninn litlar 500 krónur ( frítt fyrir grunnskólaaldur og yngri)

Umf Katla

Skrifstofa Mýrdalshrepps er lokuð föstudaginn 18. júní n.k.

Sveitarstjóri

Úrslit sveitarstjórnarkosninga 2010

Alls voru talin 344 atkvæði

B-listi Framfarasinna hlaut 198 atkvæði
E-listi Einingar hlaut 89 atkvæði
H-listi Hamingjusamra hlaut 49 atkvæði
Auðir seðlar voru 8

Sjá nánari skiptingu

Kjörstjórn Mýrdalshrepps

Í hreinsunarátakinu urðu afgangs skóflur, hjólbörur og hin ýmsu verkfæri sem eigendur geta nálgast hjá Braga í Áhaldahúsi Mýrdalshrepps.

Á sama tíma saknar Áhaldahúsið álstiga sem glataðist á sama tíma

Kynningar- og umræðufundur um Landeyjarhöfn
og málefni tengd henni.
Staða framkvæmda, framtíðarhorfur, tækifæri ofl.
Haldinn á Hvolsvelli fimmtudaginn 10. júní kl. 20:30
Fundurinn er öllum opinn
Nánar...

Hárgreiðslustofan í Vík verður lokuð vegna sumarleyfis vikuna 7.- 11. júní n.k.

Kveðja Þorbjörg
847-1858

Golfnámskeið

Byrjendanámskeið verður haldið sunnudaginn 13. júní frá kl: 10 – 12 á golfvellinum í Vík.
Kennari verður Karl Ómar Karlsson IPGA-kennari og er aðgangur ókeypis.
Hægt er að fá kylfur lánaðar á staðnum.
Eftir hádegið verður boðið upp á para og einstaklingstíma gegn vægu gjaldi.

Við viljum minna golfara á vinnukvöldið sem verður fimmtudaginn 10. júní kl: 19:00.
Mótaröðin hefst þriðjudaginn 15. júní kl: 20:00 og keppt verður í höggleik.

Nánari upplýsingar í síma 8611779

Stjórn GKV


Stórdansleikur

í félagsheimilinu Leikskálum í Vík þann 12. júní n.k.
Hljómsveitin Næði - Miðaverð kr. 2.000
Aldurstakmark 16 ára
 

Karlakórinn
Söngbræður


Karlakórinn Söngbræður úr Borgarfirði heldur tónleika laugardaginn 12. júní n.k. í Víkurkirkju kl. 15:00 og
í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri kl. 20:30.
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá
Aðgangseyrir kr. 2.000,-
 

10.05.2010
Hreinsun í Vík

Myndirnar tók Jónas Erlendsson af hreinsun Víkurþorps um helgina.  Hreinsibílarnir voru nánast á ferðinni sleitulaust frá föstudegi og fram á sunnudagskvöld og reiknaðist til að um 40 tonnum af ösku hafið verið sópað upp af götum þorpsins um helgina.
Í Leikskálum var opnuð fjöldahjálparstöð og verður opið þar daglega frá kl. 11:30 til 13:30 og boðið upp á léttan hádegisverð. Í dag til að mynda var á borðum ljúffeng kjötsúpa og er talið að milli 60 og 70 manns hafi komið saman og átt notalega samverustund.  Kvenfélagskonur láta sitt ekki eftir liggja og eru búnar að standa vaktina alla helgina ásamt öllum þeim fjölmörgu sem koma að hjálparstarfinu.


 
Fleiri myndir...


Aðalfundur Ferðafélags Mýrdælinga verður haldinn í Leikskálum
þriðjudaginn 8. júní 2010 kl. 20:30

Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.

Stjórnin
 

Hreinsun vegna öskufalls
Húseigendur sem hyggjast hreinsa þök, þakrennur, gangbrautir og bílastæði eru beðnir að gæta þess að askan berist ekki í frárennsliskerfi og aftengja þakniðurföll frá kerfinu meðan hreinsun stendur yfir.
Þeir húseigendur sem eiga erfitt með hreinsun húsa sinna að utanverðu geta haft samband við skrifstofu sveitarfélagsins. Hugsanlegt er að sjálfboðaliðar fáist til slíkra verka reynist þörf fyrir.

Sveitarstjóri
 


Vinnuskóli sumarið 2010
Unglingar fæddir   1994, 1995, 1996 og 1997  með lögheimili í Mýrdalshreppi,
eiga rétt á vinnu í vinnuskólanum í sumar. Unnið verður virka daga frá 8.30-12.00 og 13.00 – 16.30. Unglingar fæddir 1997 vinna 4 tíma á dag.

Skráning á skrifstofu hreppsins virka daga frá 10:00-12:00 og 13:00-15:00 til  28.05.2010.  Nánari upplýsingar á skrifstofunni eða í síma 487-1210.

Sveitarstjóri
 

Fréttatilkynning
Eldgosið í Eyjafjallajökli

Ert þú aflögufær um hey?
Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli hefur skapast óvissa um fóðuröflun á öskufallssvæðinu í sumar. Fyrirsjáanlegt er að talsvert viðbótarhey þarf inn á svæðið og því er nauðsynlegt að tryggja nægar heybirgðir fyrir haustið.
Lesa meira...


Starfsmaður í upplýsingamiðstöð
Starfsmann vantar í upplýsingamiðstöð ferðamanna 1.-10. júní og 16.-29. ágúst 2010. Einnig aðra hverja helgi (föstudag-sunnudag) á tímabilinu þar á milli.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Mýrdalahrepps.

Sveitarstjóri
 


Frá Kjörstjórn Mýrdalshrepps
Vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí 2010

Kjörfundur hefst kl. 10 árdegis og lýkur kl. 21:00
Kosið verður í Víkurskóla.
Talning hefst eftir að kjörfundi lýkur.

Kjörstjórn
 

Sveitarstjórnarkosningar 2010
í Mýrdalshreppi


Kynningarfundur framboða til sveitarstjórnar Mýrdalshrepps
verður haldinn í Leikskálum n.k. miðvikudag
26. maí kl.20:30.


Allir velkomnir
Kaffi á könnunni
 


Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga
í Mýrdalshreppi
sem fara fram 29. maí n.k. rann út s.l. laugardag
3 framboðslistar litu dagsins ljós

B-listi Framfarasinna

E-listi Einingar
H-listi Hamingjusamra
 


Kjörskrá Mýrdalshrepps
vegna sveitarstjórnarkosninganna 29. maí 2010 liggur frammi á skrifstofu Mýrdalshrepps frá 19. maí til 29. maí. Skrifstofan er opin mánudaga - föstudaga kl. 10-12 og 13-15.
Sveitarstjóri Mýrdalshrepps
 


Tilkynning til íbúa

Þjónustumiðstöðin í Leikskálum er opin á milli kl.11:30-13:30 
Opnun um hvítasunnuhelgi 
Opnun vikuna 24.-30. maí 2010

 

Tilkynning til íbúa

 

Ríkislögreglustjóri, í samvinnu við  Mýrdalshrepp og Rauða krossinn, opna  þjónustumiðstöð í Félagsheimilinu Leikskálum mánudaginn 10. maí.

Í Þjónustumiðstöð geta íbúar leitað eftir aðstoð með vinnu, úrlausn  verkefna og svör við spurningum sem upp kunna að koma er tengjast gosinu.

Þjónustumiðstöðin verður opin frá kl.11:30-13:30 alla daga meðan þörf er á.  
Boðið verður upp á léttan hádegisverð.                         

 

Utan opnunartíma má hafa samband í síma: 847-5715

 

Á næstunni verða sérfræðingar til viðtals í Þjónustumiðstöðinni og verður það auglýst nánar á næstunni.

 

Reyniskirkja í Mýrdal - ferming

Fermingarguðsþjónusta verður í Reyniskirkju í Mýrdal á hvítasunnudag,
23. maí 2010,  kl. 13:30.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.

Fermdir verða:
Einar Guðnason, Þórisholti, 871 Vík
Ríkharður Sigurjónsson, Mánabraut 12, 870 Vík
Þorgeir Guðnason, Þórisholti,  871 Vík
 
Haraldur M. Kristjánsson
sóknarprestur

Íþróttaskólinn á laugardögum kl. 10:00
í íþróttamiðstöðinni

Íþróttamiðstöðin auglýsir lengri laugardaga
Nánar...

Ferð viðbragðsteymis ferðaþjónustunnar á öskusvæðin
Rangárþing eystra og Mýrdalur
Þriðjudaginn 18. maí 2010

09.00 Brottför frá BSÍ
10.30 Hvolsvöllur – Stutt stopp - rætt við fulltrúa almannavarna, sveitarstjórnarmenn.
11.00 Skoðunarferð: Fljótshlíð – Seljalandsfoss
13.00 Vík - Hádegisfundur með ferðaþjónustuaðilum og forsvarsmönnum í Leikskálum Vík Mýrdal.
14.00 Skoðunarferð: Reynisfjara – Sólheimajökull – Skógar
16.00 Hótel Anna, Moldnúpi: Fundur með ferðaþjónustuaðilum og forsvarsmönnum í Rangárþingi eystra.
17.30 Stutt stopp - Hótel Rangá

Fundir í Vík og Hótel Önnu. Fulltrúi frá Almannavörnum og sveitarstjórnum verður á hvorum stað og verða með stutt innlegg um stöðu mála.
Á fundunum mun viðbragðsteymið skýra frá hlutverki sínu. Einar Karl mun kynna markaðsátak stjórnvalda og ferðaþjónustunnar.
Lagt er upp með að fundirnir verið óformlegir og eftir stutt innlegg ofantaldra aðila gefist ferðaþjónustuaðilum færi á að koma með spurningar og spjalla stöðu mála og framtíð.

Við hvetjum alla ferðaþjónustuaðila sem tök eiga á til að mæta
 

Aðalsafnaðarfundur Víkursóknar

Aðalsafnaðarfundi Víkursóknar fyrir árið 2010
sem vera átti í Víkurkirkju að kvöldi uppstigningardags, 13. maí nk.
er frestað til mánudagskvöldsins 17. maí nk. kl. 20:30.
Fundurinn verður í Víkurkirkju.
Venjuleg aðalfundarstörf.

Sóknarnefnd
 

Síðustu daga hafa Mýrdælingar fengið að kenna á öskufalli frá Eyjafjallajökli og er ástandið víða orðið nokkuð þrúgandi, sérstaklega meðal bænda og ferðaþjónustuaðila.
Á fundi vettvangsstjórnar í Vík í gær var ákveðið að freista þess
að fara í hreinsunarátak um helgina. 
Markmiðið er að hreinsa sem flest íbúðarhús í sveitarfélaginu. 
Þegar höfum við notið mikillar aðstoðar sjálfboðaliða við sauðburð og einnig við smíðavinnu.  Nú biðlum við til þeirra sem væru til í að taka þátt í þessu
um helgina þ.e.laugardag og sunnudag. 
Stefnt er að því  byrja starfið á laugardagsmorgun á milli kl. 09 og 10 um morguninn.  Þeir sem hafa hug á að aðstoða okkur í þessu verkefni eru beðnir um að hringja í 112 og fá þá samband við þjónustumiðstöðina í Vík og geta skráð sig þar.
Þjónustumiðstöðin vill þakka öllum þeim sem hafa komið að hjálparstarfi í þessari viku.  Það starf hefur verið ómetanlegt.

Með kærri kveðju,

Guðmundur Ingi Ingason
yfirmaður þjónustumiðstöðvar,
almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra í Vík

s: 847-5715

Hlaupanámskeið í Vík Sunnudaginn 16. maí n.k.

Torfi H. Leifsson umsjónarmaður Hlaup.is verður með námskeið í Vík
sunnudaginn 16. maí frá kl. 13-18
Námskeiðið kostar 7.500 kr. fyrir félagsmenn Kötlu en annars 11.500 kr.

Upplýsingar og skráning í síma 868-3642

Sumarhátíð Leikskólans Suður-Víkur

Sunnudaginn 16.maí í Leikskálum kl: 14:00

Söngur og leikþættir, góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna, ömmur og afa.

Foreldrafélag leikskólans verður með kaffisölu til fjáröflunar fyrir félagið.

Verð: Fullorðnir 1000

Börn: 7-16 ára 500

Frítt fyrir 6 ára og yngri

Hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur góðann dag.
Börn og starfsfólk Suður-Vík Og Foreldrafélagið

10.05.2010
Öskufallsmyndir

Jónas Erlendsson tók þessar myndir af öskufalli í Vík um helgina. M.a. þegar verið var að koma hrossum austur á Síðu í Skaftárhreppi.     Fleiri myndir ...

Öskufall í Vík

07.05.2010

Heldur nöturlegt var um að litast í morgunsárið í Vík í Mýrdal og ekki margt sem minnir á vorið sem nú liggur undir öskulagi. Þrátt fyrir það syngja fuglarnir sem aldrei fyrr.

Fólki er bent á að halda sig innandyra sbr. yfirlýsingu Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.

Fólk er beðið um að aka hægt um götur Víkur þar sem askan þyrlast upp við minnstu hreyfingu.


Fleiri myndir...

Kvenfélag Hvammshrepps auglýsir Stórbingó
13. maí kl. 20:30

Kvenfélag Hvammshrepps stendur fyrir Stórbingói í Leikskálum
13. maí n.k. kl. 20:30 til styrktar  kaupum á augnskoðunartæki
fyrir  Heilsugæslustöðina í Vík.
Meðal vinninga eru rafmagnstæki frá Heimilistækjum, hestaferð frá Skálakoti, sigling og gisting vítt og breitt um landið ásamt mörgum fleiri góðum vinningum.
Nánar auglýst síðar
Kvenfélag Hvammshrepps

Uppstigningardagur - Skeiðflatarkirkja í Mýrdal - Eldri borgarar

Í tilefni af degi eldri borgara í Þjóðkirkjunni verður guðsþjónusta
í Skeiðflatarkirkju í Mýrdal á uppstigningardag,
fimmtudaginn 13. maí nk. kl. 14:00

Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar.

Eftir guðsþjónustuna bjóða allar sóknirnar í Mýrdal viðstöddum til kaffidrykkju
á Hótel Dyrhólaey.
Þar mun Samkórinn einnig syngja nokkur lög.

Fjölmennum til guðsþjónustunnar og gerum daginn eftirminnilegan
líkt og á síðasta ári.

Sóknarprestur

Söngfélag Skaftfellinga
Söngfélag Skaftfellinga í Reykjavík og kórinn Östergök frá Lundi í Svíþjóð verða með tónleika í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri
fimmtudaginn 13. maí kl. 16:00.  Flutt verða íslensk og erlend sönglög. 
Stjórnandi Söngfélags Skaftfellinga er Friðrik Vignir Stefánsson og Vignir Þór Stefánsson spilar á píanóið.  Stjórnandi Östergök er Karin Kallen.
Aðgangur kr. 1.000
Allir velkomnir
Nánar...

27.04.2010
Öskufallsmyndir Jónasar
Jónas Erlendsson sendi okkur þessar óhugnanlegu en jafnframt stórkostlegu myndir af öskufalli á dögunum.  Myndirnar segja meira en mörg orð. 
Fleiri myndir..

Fundist hefur "Bluedio" Blootooth Headset
af gerðinni Nokia Model N75
"Head-settið" fannst á einni dælunni á bensínstöð Orkunnar hér í Vík.
Eigandi getur vitjað þess á opnunartíma skrifstofu Mýrdalshrepps
frá kl. 10:00 - 15:00 virka daga

30.04.2010
Sundlaugin opnuð
Sundlaugin hefur nú verið hreinsuð eftir öskufallið og verður opnuð á morgun laugardag kl. 10:00.  Sjá opnunartíma
                                              Opnunartímar íþróttamiðstöðvar...

Aðalsafnaðarfundur Víkursóknar 2010

Aðalsafnaðarfundur Víkursóknar verður haldinn
í Víkurkirkju, að kvöldi uppstigningardags,
13. maí 2010 kl. 20:00

Venjuleg aðalfundarstörf

Sóknarnefnd

Íbúafundur

 

Íbúafundur vegna áhrifa öskufalls frá Eyjafjallajökli verður haldinn í Leikskálum mánudagskvöldið 10. maí kl. 20:30


Á fundinn mæta:

·        Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur

·        Elsa Ingjaldsdóttir, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands

·        Þorsteinn Jóhannsson, svifryksfræðingur UST

·        Guðrún Sigmundsdóttir, settur sóttvarnarlæknir

·         Fulltrúar Almannavarna og Ríkislögreglustjóra

 

07.05.2010 kl. 08:00
Áríðandi Tilkynning frá Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands
Talsvert mikið öskufall hefur verið í Vík í Mýrdal í gærkvöldi og nótt.
Mælingar á svifryki sýndu talsverða hækkun í gærkvöldi og sólarhringsmeðaltal gærdagsins, 6.maí, var 418µg/m3 sem er langt yfir heilsuverndarmörkum. Nokkur klukkutímagildi í nótt voru með þeim hæstu sem mælst hafa frá því farið var að mæla svifryk á Íslandi. Fólki er eindregið ráðlagt að halda sig innandyra við þessar aðstæður.
Ef nauðsynlegt er að fara úr húsi er brýnt að nota rykgrímu og þétt hlífðargleraugu. Nauðsynlegt er að gera ráðstafanir til að þétta hurðir og glugga og hækka hitastig í íbúðum svo askan berist síður inn.

Á slóðinni www.kort.vista.is er hægt að skoða magn svifryks í lofti hverju sinni og eru íbúar svæðisns eindregið hvattir til að gera slíkt.

Umhverfisstofnun og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
 

07.05.2010 kl. 13:00
Rauði Krossinn hefur nú þegar opnað fjöldahjálparstöð í félagsheimilinu Leikskálum og verður hún opin fram eftir degi.
Fólk sem ætlar að fara burtu úr sveitarfélaginu er beðið um að skrá sig í fjöldahjálparstöðinni eða í síma 868-6441 áður en farið er.


 

Gengið á Hjörleifshöfða

Fyrsta gönguferð ársins verður fimmtudagskvöldið 6. maí 2010
Gengið verður á Hjörleifshöfða
Mæting á bankaplanið í Vík kl. 20:00

Ferðanefnd Ferðafélags Mýrdælinga


Skólahald í grunnskóla fellur niður í dag vegna öskufalls!
Foreldrar barna í leikskóla eru beðnir um að halda þeim heima
í dag af sömu ástæðum.

Skólastjóri

 


07.05.2010
Íþróttamiðstöðin verður lokuð föstudag, laugardag og sunnudag
vegna öskufalls

Íþróttafulltrúi
 

Gefnir hafa verið út nýir bæklingar með leiðbeiningum um viðbúnað fyrir, eftir og á meðan á öskufalli stendur.
Þá má lesa á upplýsingavef um eldgos hér ofarlega
hægra megin á síðunni


Fólk er beðið um að aka hægt um götur Víkur þar sem askan þyrlast upp við minnstu hreyfingu.

 

21.04.2010
Hreinsun hafin
Byrjað er að hreinsa Víkurþorp eftir öskufallið.  Skólalóðir og skólahúsnæði hefur verið hreinsað og byrjað verður að hreinsa götuniðurföll og gangstéttar í dag.  Á föstudag verða götur hreinsaðar með sérútbúnum götuþvottabíl.

Húseigendur sem hyggjast hreinsa þök og þakrennur eru beðnir að gæta þess að askan berist ekki í frárennsliskerfi Víkur og aftengja þakniðurföll frá kerfinu meðan hreinsun stendur yfir.

 

23.04.2010
Vettvangsstjórn Almannavarna í Vík
Vettvangsstjórn Almannavarna hefur verið með opið hús í Leikskálum daglega frá því laugardaginn 17. apríl sl. vegna eldgoss í Eyjafjallajökli.

Á fundi fyrr í dag mat vettvangsstjórn ekki nauðsynlegt að halda þessu áfram að óbreyttu.  Íbúar eru hvattir til að snúa sér til heilsugæslunnar eða skrifstofu sveitarfélagsins séu þeir í þörf fyrir aðstoð.

f.h. vettvangsstjórnar, Sveinn Pálsson sveitarstjóri

 

21.04.2010
Vettvangsstjórn - opið hús í Leikskálum
Vettvangsstjórn Almannavarna hefur verið með opið hús í Leikskálum daglega frá því laugardaginn 17. apríl sl. vegna eldgoss í Eyjafjallajökli.

Í dag, miðvikudaginn 21. apríl eru erlendir starfsmenn fyrirtækja sérstaklega boðnir velkomnir í Leikskála milli kl. 17 og 18. Fulltrúar úr vettvangsstjórn munu fara yfir stöðu mála, gera grein fyrir viðbragðsáætlunum og svara spurningum eftir bestu getu.

Samskiptamál verður enska.
 
20.04.2010
Góð mæting á íbúafund
Tæplega 200 manns mættu á íbúafund sem haldinn var í Leikskálum í gær.  Ríkislögreglustjóri, deildarstjóri almannavarnadeildar, lögreglustjóri, héraðsdýralæknir voru mættir ásamt starfsmönnum frá Veðurstofu, Heilbrigðiseftirliti og Bjargráðasjóði og fulltrúa Rauða kross Íslands.  Farið var yfir stöðu mála og spurningum fundarmanna svarað.

Skólahald féll niður í Víkurskóla í dag meðan unnið var að þrifum og skipulagi viðbragða.

Opið hús verður í Leikskálum í dag milli kl. 17 og 18.

 

 

18.04.2010
Opið hús í Leikskálum. 
Töluvert öskufall var  í Mýrdal á föstudagskvöldið og aðfaranótt laugardags.  Opið hús var í Leikskálum laugardag og sunnudag þar sem fulltrúar úr vettvangsstjórn Almannavarna í Vík kynntu m.a. hvar upplýsingar um viðbrögð er að finna.  Um 50 manns mættu á fundinn á laugardaginn en mun færri á sunnudag.  Gert er ráð fyrir fundi á mánudag þar sem mæta m.a. jarðvísindamenn, dýralæknir o.fl.   

 

21.04.2010
Raularanum frestað
Vegna náttúruhamfara hefur verið ákveðið að fresta Raularanum um óákveðinn tíma.

 

19.04.2010
Skólahald fellur niður vegna veðurs
Skólahald fellur niður í Víkurskóla, grunn, leik- og tónskóla í dag vegna veðurs.  Stíf norðanátt er í Mýrdal og mikið kóf vegna öskunnar sem féll fyrir helgina.
Sundlaugin er einnig lokuð og verður þar til náðst hefur að hreinsa hana. 

Vatnsveitur - frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands mun vera með viðveru eftir helgina bæði á Klaustri og Vík þar sem fólk getur komið með vatnssýni til okkar og við mælt leiðni og sýrustig í vatninu og þannig metið ástand þess. Við komum einnig til með að mæla flúor fyrir þá sem vilja en það er ekki ástæða til að gera slíkt í öskufallinu miðju. Við leggjum áherslu á að flúor ætti ekki að finnast í neysluvatni þar sem frágangur er góður og vatnsból lokuð.

Hjá okkur eru á skrá öll starfsleyfisskyld vatnsból á svæðinu (þe. stærri vatnsveitur og vatnsból hjá mjólkurframleiðendum) en við höfum ekki vitneskju um einkavatnsból eða frágang þeirra.
 

07.04.2010
Marinó og Ríkharður fermast hjá besta presti í heimi!

Í fréttablaðinu laugardaginn 27. mars s.l. nánar tiltekið í fermingarhluta blaðsins er viðtal við þá félaga Ríkharð Sigurjónsson og Marinó Frey Steinþórsson en þeir eru meðal þeirra átta drengja sem fermast í Mýrdalnum í vor.
Viðtalið er hið skemmtilegasta og fer það hér á eftir.
Lesa viðtalið...

Ljósm. Harpa Jónsdóttir

07.04.2010
Klappstýrur hittast

Klappstýrur okkar Mýrdælinga, 13 talsins, lögðu land undir fót, fyrsta dag páskafrís og heimsóttu klappstýrulið Kjalnesinga.  Harpa Jónsdóttir og Magdalena Katrín Sveinsdóttir þjálfarar klappstýranna fóru með hópinn í æfingabúðir ásamt nokkrum foreldrum.  Hópurinn gisti í grunnskólanum á Kjalarnesi og æfði í íþróttahúsinu. Þar lögðu bæði liðin mikið á sig og kenndu hvort öðru listirnar.  Harpa var búin að skipuleggja ferðina og var m.a. komið við í Hveragerði og jarðskjálftahermir sóttur heim. Ferðin endaði svo í Keiluhöllinni í miklu fjöri eftir velheppnað ferðalag.

Sjá fleiri myndir...                         Ljósmyndir: Harpa Jónsdóttir

Vortónleikar Söngfélags Skaftfellinga
verða haldnir í Seltjarnarneskirkju 
sunnudaginn 2. maí 2010 kl. 14:00

Nánar...

Klappstýrusýning
í Íþróttahúsinu
miðvikudaginn 28. apríl
kl. 18:00

Vorsýning Klappstýruliðs Kötlu verður í Íþróttaahúsinu,
miðvikudaginn 28 apríl kl. 18:00

Hinir stórglæsilegu Víkur-Mýrdalsstrokkar (buff) verða til sölu.
Allur ágóði af sölunni rennur búningasjóð.
Verð aeins 1700 kr. stykkið.

Dans og gleði, aðgangur ókeypis og allir velkomnir

Ungmennafélagið

07.04.2010
Gosmökkur og norðurljós
Þórir N. Kjartansson sendi okkur mynd til viðbótar og sagði hana líklega þá fyrstu sem tekin er bæði af gosmekkinum og norðurljósum.  Myndin er tekin af Hraunhólnum.

06.04.2010
Gosmyndir Þóris
Þórir Kjartansson sendi þessar frábæru myndir sem hann tók á ferðalagi á gosstöðvar.

Fleiri myndir...

Nafnasamkeppni á Geopark

Sjá mynd í fullri stærð


Sveitarfélögin Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur og Rangárþing eystra ásamt fulltrúum ferðaþjónustuaðila á svæðinu, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Háskólafélags Suðurlands, Markaðsstofu Suðurlands og Stofnunar fræðasetra Háskóla Íslands hafa að undanförnu unnið að því verkefni að gera svæðið að Geopark. Umrætt svæði nær yfir allt landsvæði þessara þriggja fyrrgreindra sveitarfélaga.
Nánar...        

Hvað er Geopark?  

Auglýsing sveitarstjórnar um afgreiðslu

Aðalskipulags Mýrdalshrepps 2009-2025

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur samþykkt tillögu að Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025. Tillagan var auglýst 22. desember 2009 og lá fram til kynningar til 19. janúar sl.  Frestur til að skila athuga­semdum rann úr 2. febrúar sl. og bárust um 40 athugasemdir. 

Sveitarstjórn hefur afgreitt athugasemdirnar og sent þeim sem gerðu athugasemdir umsögn sína.  Gerðar voru nokkrar minni háttar breytingar á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu hennar. Þeir sem óska nánari upp­lýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til Gísla Gíslasonar skipulagsfulltrúa Mýrdalshrepps í síma 4875307, netfang: gisli@steinsholtsf.is.

Sveitarstjóri Mýrdalshrepps

Aðalskipulag 2009-2025
 


Mýrdalshreppur óskar eftir tilboðum í endurnýjun þaks og veggja hússins að Víkurbraut 17 í Vík, Skaftfellingsbúðar.
Útboðsgögn fást keypt á skrifstofu Mýrdalshrepps á kr. 2.000,-
frá fimmtudeginum 15. apríl 2010.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 13:00 föstudaginn 23. apríl n.k. og verða þau þá opnuð.  Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Sveitarstjóri
 

Raularinn 2010
verður haldinn í Leikskálum

Nánar...

Hundahreinsun frestað

Fyrirhuguð hundahreinsun sem vera átti í dag fimmtudag 15. apríl er frestað af óviðráðanlegum orsökum til
þriðjudagsins 20. apríl n.k. kl. 17:00 - 18:00

Sveitarstjóri

Hundahreinsun í Mýrdalshreppi

Í samræmi við reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002 og samþykkt Mýrdalshrepps um hunda- og kattahald í Mýrdalshreppi nr. 757/2008 eru hundaeigendur boðaðir með hunda sína til hreinsunar 
fimmtu
daginn 15. apríl nk. kl. 17-18
í áhaldahúsið, Suðurvíkurvegi 3.

Sveitarstjóri

26.03.2010
Gosmyndir Jónasar í Fagradal
Jónas Erlendsson fór í snjósleðaferð með félögum sínum Grétari Einarssyni rófubónda í Þórisholti, Sigurjóni Eyjólfssyni bónda í Pétursey og "ísfólkinu" Benedikt Bragasyni og Andrínu G. Erlingsdóttur sem reka snjósleðaferðir á jökli, á gosstöðvar seinnipartinn í gær fimmtudag. Ótrúlegar myndir má sjá hér      Myndbandsupptaka
 

Víkurkirkja í Mýrdal
ferming 18.04.2010

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju nk. sunnudag,
18. apríl 2010, 
kl. 13:30

 

Ferming og altarisganga.

Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista
 

Fermdir verða:

Bjarki Þór Ágústsson, Hátúni 6,  870 Vík
Fjölnir Grétarsson, Sigtúni 1,  870 Vík

Ríkharður Sigurjónsson, Mánabraut 12,  870 Vík

Þröstur Bjarni Eyþórsson, Austurvegi 15,  870 Vík

 

Sóknarprestur

Eldgos í Eyjafjallajökli - Íbúafundir

Efnt hefur verið til íbúafunda á svæðinu næstu daga. Þar munu yfirvöld fara yfir stöðu mála með íbúum ásamt almannavarnanefnd í héraði, dýralækni, veðurfræðingi, jarðvísindamanni og fleiri sérfræðingum og fulltrúum stofnana.

Fundirnir eru sem hér segir:
Mánudagur 19. apríl
kl. 10.30    Félagsheimilið Gunnarshólma
kl. 14.00    Félagsheimilið Heimaland
kl. 16.30    Leikskálar, Vík
kl. 20.30    Kirkjuhvoll, Kirkjubæjarklaustri

Þriðjudagur 20. apríl
kl. 14.00    Laugaland Holtum
kl. 18.00    Akoges salurinn, Vestmannaeyjum

Miðvikudagur 21. apríl
kl. 17.00    Grunnskólinn Hellu
kl. 20.00    Hvollinn Hvolsvelli

 

21.04.2010
Sumarhátíð Leikskólans frestað
Vegna óviðráðanlegra orsaka er Sumarhátíð
Leikskólans Suður-VíkurMCj04382050000[1] frestað um óákveðinn tíma. Hún verður því ekki í dag fimmtudaginn 21.apríl eins og til stóð.
 
 

 

 

MCj04382050000[1]                    Gleðilegt sumar   Starfsfólk skrifstofu

Skrifstofa Mýrdalshrepps verður lokuð föstudaginn 23. apríl.
Sveitarstjóri

Mýrdalshreppur óskar eftir starfsfólki
í eftirtalin störf:

     
      *      
Sumarstarfsfólk í upplýsingamiðstöð  – tungumálakunnátta nauðsynleg
      *      Sumarstarfsfólk í sundlaug – eldri en 18 ára
      *      Starfsfólk í heimaþjónustu – sumarstarf eða framtíðarstarf
      *      Flokkstjóra í vinnuskóla - eldri en 18 ára, bílpróf

Skriflegar umsóknir berist skrifstofu Mýrdalshrepps í síðasta lagi
mánudaginn 12. apríl n.k.
Umsóknareyðublöð eru hér vinstra megin á síðunni merkt "eyðublöð og gjaldskrár"
og fást einnig á skrifstofunni.
Upplýsingar á skrifstofu Mýrdalshrepps eða í síma 487-1210

Sveitarstjóri Mýrdalshrepps

Hreinsun rotþróa

Hreinsun rotþróa í dreifbýli Mýrdalshrepps er í undirbúningi. Starfsmenn áhaldahúss munu á næstunni fara um sveitarfélagið og skrá stærð og staðsetningu rotþróa og skoða aðkomu að þeim.
Þess er vænst að fasteignaeigendur og ábúendur aðstoði starfsmennina með upplýsingagjöf.

Sveitarstjóri
 

Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Víkverja

Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Víkverja verður haldinn á Halldórskaffi
sunnudaginn 11. apríl kl. 16.00.

vikv.jpgNýir félagar velkomnir í hópinn.

Dagskrá:

Venjuleg aðalfundarstörf.

Inntaka nýrra félaga

Kosning stjórnar

Önnur mál.

Stjórn Bjsv. Víkverja

24.03.2010
Rýmingaræfing í Víkurskóla

Í gær þriðjudag var blásið til rýmingaræfingar í Víkurskóla vegna hugsanlegs Kötlugoss.  Rýmingaræfingar eru haldnar reglulega og verður önnur æfing sett upp innan tíðar og þá óundirbúin. Björgunarsveitarmenn úr Víkverja aðstoðuðu við æfinguna.
Að sögn Magnúsar Sæmundssonar skólastjóra gekk æfingin í alla staði mjög vel og taldi hann það forréttindi að fá að taka þátt í svona æfingu með krökkunum, því þau eldri aðstoðuðu þau yngri og pössuðu m.a. upp á að gengið væri á réttum hraða fyrir þau yngri.  Magnús vill koma á framfæri þökkum til nemenda, starfsfólks og Björgunarsveitarinnar Víkverja sem liðsinnti þeim í gær. "Allir stóðu sig með stakri prýði, sýndu rósemi, stillingu og síðast en ekki síst samhug. Byrjað var á að rýma skólann og svo gengið upp til Suður-Víkur þar sem allir voru skráðir. Veðrið var okkur ekki beint hliðhollt en segja má að það hafi gert æfinguna enn meira krefjandi, einkum og sér í lagi fyrir yngstu nemendurna. Allt fór þó vel sem er fyrir mestu og þetta mun án efa skila sér á góðan hátt þegar fram í sækir" sagði Magnús að lokum.
Ljósmyndir Harpa Jónsdóttir               Fleiri myndir
24.03.2010
Fjöldahjálparstöð var opnuð í Vík vegna eldgoss í Eyjafjallajökli.

Nóg var að gera og gistu 83 á vegum fjöldahjálparstöðvarinnar í Vík.  Kvenfélagið kom færandi hendi og sá til þess að allir fengju magafylli.  Morgunmatur, hádegismatur og svo var kvatt með súkkulaðiköku og ýmsu kruðeríi.

Fleiri myndir...                    

Ljósmyndir
Harpa Jónsdóttir

09.03.2010
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar í Víkurkirkju


Guðsþjónusta var í Víkurkirkju á degi æskulýðs þann 7. mars s.l.
Nemendur Tónskóladeildar Víkurskóla önnuðust undirleik og leiddu almennan söng af léttara taginu undir stjórn Kristins J. Níelssonar skólastjóra og Kára Gestssonar kennara og organista.
Ungmenni lásu ritningarlestra og kirkjuskólabörn sungu m.a. lögin hennar Hafdísar Huldar sem þau hafa æft mikið í kirkjuskólanum í vetur.
Fleiri myndir ...                                                              Myndir: Harpa Jónsdóttir

Nudd í Vík

Slökunarnudd með ilmmeðferð * Hljómmeðferð * Hui Chun Gong

Erika I. Pauler
s: 487-1117 og 693-5891
 

Kötlusafnið Brydebúð auglýsir

Opið verður um páskana

Miðvikudag 31.mars kl.12-20
Skírdag kl.12-20
Föstudaginn langa kl.12-20
Laugardag 3.apríl kl.12-20
Mánudag 5.apríl kl.12-20

Menningarfélag um Brydebúð
 

Páskaeggjabingó

Hið árlega páskaeggjabingó umf. Kötlu verður haldið
laugardaginn 3. apríl n.k.á Ketilsstöðum og hefst kl. 20:00
Bingóstjóri er Reynir Örn Eyþórsson

umf. Katla

Helgihald í Víkurprestakalli í Mýrdal
um bænadaga og páska 2010:

1. apríl - Skírdagur

Helgistund á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hjallatúni  í Vík kl. 15:00.

Félagar úr Samkór Mýrdælinga annast söng undir stjórn

Kára Gestssonar organista.

2. apríl - Föstudagurinn langi
Guðsþjónusta í Sólheimakapellu kl. 14:00.
Almennur safnaðarsöngur undir stjórn Kristínar Björnsdóttur organista

4. apríl - Páskadagsmorgunn
Hátíðarguðsþjónusta í Víkurkirkju  kl. 08:00.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.
Eftir guðsþjónustuna er öllum viðstöddum boðið að þiggja morgunkaffi á heimili prestshjónanna í Vík, að Ránarbraut 7, eins og tíðkast hefur síðustu ár.
Allir hjartanlega velkomnir

4. apríl - Páskadagur:
Hátíðarguðsþjónusta í Skeiðflatarkirkju  kl. 14:00.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn
Kára Gestssonar organista.

Kæru sóknarbörn, sumarbústaðafólk og allir sem leið eiga um okkar
fögru sveit um bænadaga og páska:
Fjölmennið til kirkju.
Fermingardrengir og foreldrar þeirra sérstaklega hvött til að mæta.
 
Sóknarprestur

Íþróttamiðstöðin opnun um páskana

Páskaeggjabingó í Leikskálum

Hið árlega páskaeggjabingó Kvenfélags Hvammshrepps
verður haldið í kvöld (þriðjudagskvöld) 30. mars
 
í Leikskálum og hefst kl. 20:00
Bingóspjaldið kostar 600 kr.
Allur ágóði rennur til björgunarsveitarinnar Víkverja
Sjoppa í hléi
Sjáumst
Kvenfélag Hvammshrepps

Brynjar og Steinar
safna

09.03.2010
Mottumars er genginn í garð hjá Krabbameinsfélaginu

Árlega greinast á Íslandi að meðaltali 716 karlar með krabbamein. Árlega deyja að meðaltali 278.
Þetta eru synir, bræður, pabbar, afar, vinir og makar.
Þitt framlag skiptir miklu máli. Við getum haft áhrif, því rannsóknir sýna að koma má í veg fyrir að minnsta kosti 1 af hverjum 3 krabbameinum.

Af hverju yfirvaraskegg?
Yfirvaraskegg er táknrænt. Það auðveldar umræðu um það sem erfitt er að ræða. Krabbamein í karlmönnum hefur verið feimnismál allt of lengi. Safnaðu mottu og vertu hvatning fyrir aðra að gera það sama.
Og þessari áskorun hefur Brynjar Ögmundsson tekið og safnar nú bæði mottu og áheitum. Við getum fylgst með Brynjari á slóðinni
http://karlmennogkrabbamein.is/einstaklingskeppni
Sjá nánar...

Kirkjuskólinn í Mýrdal

verður í Víkurskóla  laugardaginn 27. mars nk.  kl. 11:15 - 12:00.

 

Verið nú dugleg að mæta til að heyra nýjar biblíusögur og fá nýjar og fallegar myndir.

Litastund í lokin eins og vanalega.

 

Hlakka til að hitta ykkur öll.

 

Sóknarprestur

Dagskrá 40. ársþings USVS haldið á Hótel Laka í Skaftárhreppi laugardaginn 27. mars 2010
Nánar...

Vegna óveðurs fór Vitinn ekki í pósthús í gær þriðjudag.
Við bendum hinsvegar á hann hér vinstra megin á síðunni.

03.03.2010
Ferðafélag Mýrdælinga og Mýrdalshreppur hljóta styrki Ferðamálastofu

Ferðamálastofa hefur úthlutað styrkjum vegna úrbóta á ferðmannastöðum fyrir árið 2010 og hlaut Geopark verkefnið á Mið-Suðurlandi 2 milljónir í styrk. Geopark verkefnið er samstarfsverkefni þriggja sveitarfélaga, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Auk Geopark verkefnis hlutu fjölmörg önnur verkefni á svæðinu styrk.

Metár var í fjölda umsókna þetta árið en 260 umsóknir bárust en það er 18% fjölgun frá 2009 sem þá var metár. Alls hlutu 89 verkefni styrk. Heildarupphæð sem sótt var um var um 510 milljónir króna en til úthlutunar að þessu sinni voru 48 milljónir króna eða um 9,4% af heildarumsóknum.
Nánar...
02.03.2010
Mýrdalssandur ehf tekur þátt í sýningu

Fyrirtækið Mýrdalssandur ehf í Vík tekur þátt í sýningunni
VIÐHALD 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind um helgina.  Fyrirtækið framleiðir steinefni í steingólf og terrazzo auk sandblásturssands.
Heimasíða Mýrdalssands                                 Viðhald 2010

Kynningarefni (á ensku)

01.03.2010
Snjóflóð við bæinn Garða í Mýrdal
 
Snjóflóð féll við bæinn Garða í Reynishverfi í Mýrdal í síðustu viku.  Flóðið olli skemmdum á girðingu og kastaði traktor til á hlaðinu. Jónas Erlendsson var á ferðinni með snjóflóðaeftirlitsmönnum og tók þessar myndir af því tilefni.

Fleiri myndir ...
 
01.03.2010
Útkall Víkverja

Björgunarsveitarmenn úr Víkverja í Vík voru kallaðir út undir kvöld s.l. laugardag til hjálpar fólki sem var á ferð í bíl sínum á veginum við Reynisfjall.
Bíllinn flaut upp í krapa á veginum og fauk út af honum. Það varð fólkinu til happs að bíllinn lenti í snjóskafli annars hefði hann líklega farið margar veltur.
Sex voru í bílnum og meiddist fólkið ekki.

Fleiri myndir...

Texti og myndir Bryndís F. Harðard.

01.03.2010
Mikill snjór í Vík

S.l. föstudag var unnið hörðum höndum við moka og opna götur í Vík.  Langar biðraðir bíla mynduðust austan- og vestanmegin við þorpið fyrst um morguninn þegar flutningabílar og ferðalangar sem tepptust héldu áfram leið sinni.
Óneitanlega var nú samt fallegt um að litast. 
 

Skaftfellingamessa í Breiðholtskirkju

Sunnudagurinn 21. mars næstkomandi er 70 ára afmæli Skaftfellingafélagsins í Reykjavík. Afmælishátíðin hefst kl. 14:00 á Skaftfellingamessu í Breiðholtskirkju, en þar þjóna Sr. Bryndís Malla Elídóttir sem áður þjónaði á Klaustri og Sr. Gísli Jónasson prófastur sem áður þjónaði í Vík. Að austan koma sr. Haraldur M. Kristjánsson prófastur og sóknarprestur í Vík og Sr. Ingólfur Hartvigsson á Klaustri. Einnig taka þátt í athöfninni Sr. Sigurjón Einarsson fyrrum prófastur og prestur á Klaustri og Sr. Hjörtur Hjartarson fyrrum prestur að Ásum. Um söng sjá síðan kirkjukórar í Vestur-Skaftafellssýslu og Söngfélag Skaftfellinga.
Að lokinni messu um kl. 15:30 hefst afmæliskaffi í Skaftfellingabúð að Laugavegi 178.
Þar verður boðið uppá kaffi, söng kóranna, myndasýningu og
sitthvað frá sögu félagsins rifjað upp.

Allir Skaftfellingar eru velkomnir

Íbúafundur

Almannavarnanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
boðar til íbúafundar

þriðjudaginn 16. mars n.k. í félagsheimilinu Leikskálum í Vík kl. 20:00
Á fundinum verður farið yfir hættumat vegna eldgosa og jökulhlaupa úr Eyjafjalla- og Mýrdalsjökli, stöðuna í dag, skipulag almannavarna
og hvernig staðið verði að rýmingu svæðisins.

Almannavarnanefnd

Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki
Nánar

Umsóknareyðublað pdf
Umsóknareyðublað wordskjal

VIÐVERA MENNINGARFULLTRÚA Í SVEITARFÉLÖGUM

Menningarráð Suðurlands auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum á Suðurlandi vegna úthlutunar á menningarstyrkjum 2010

Viðtalstímar menningarfulltrúa, Dorothee Lubecki, verða sem hér segir:

Nánar ...

Víkurskóli – Tónskóladeild
Tónleikar

Tónleikar, sem vera áttu á Degi tónlistarskólanna og þurfti að fresta vegna veðurs, verða haldnir í Leikskálum fimmtudaginn 11. mars kl. 18:00 og kl. 20:00. 
Stefnt er að því tónleikarnir séu í styttra lagi,  ánægjulegir og gefi góða mynd
af starfinu í skólanum um þessar mundir.   Efnisskráin er fjölbreytt og spannar hinar ýmsu tegundir tónlistar í einleik, samleik og söng.    

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Aðalfundur Víkurdeildar og
grunnnámskeið Rauða krossins


verður haldið á Halldórskaffi miðvikudaginn 10. mars kl. 19:30

Námskeiðið hefst kl. 19:30.  Það er fyrir sjálfboðaliða og aðra sem vilja starfa með félaginu eða kynna sér starfsemi þess.  Farið er yfir í stuttu máli sögu, markmið og stefnu Rauða krossins og helstu áherslur í starfi félagsins innanlands og utan.

Strax að loknu námskeiði verður aðalfundur Víkurdeildar haldinn
Fundarefni:  Venjuleg aðalfundarstörf.

Kaffiveitingar í boði deildarinnar.  Allir velkomnir. 
Sjálfboðaliðar og aðrir áhugasamir sérstaklega hvattir til að mæta.
Stjórnin


Viðvera menningarfulltrúa
sem vera átti fimmtudaginn 4. mars á skrifstofu Mýrdalshrepps verður færð til fimmtudagsins 11. mars frá kl. 14:00 - 15:30

 

Atvinnuþróunarfélag Suðurlands í samvinnu við Útflutningsráð Íslands og mbl.is mun bjóða upp á námskeið í markaðssetningu á netinu byggt á samnefndri bók sem var að koma út. Kennarar eru Guðmundur Arnar, markaðsstjóri hjá Icelandair og Kristján Már hjá Nordic eMarketing.
Sjá nánar á heimasíðu AÞS

http://www.sudur.is/index.php?p=100&i=295

 

Víkurkirkja í Mýrdal
á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju næsta sunnudag 7. mars 2010 kl. 14:00,
sem jafnframt er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar.

Nemendur Tónskóladeildar Víkurskóla annast undirleik og leiða almennan söng af léttara taginu undir stjórn Kristins J. Níelssonar skólastjóra og
Kára Gestssonar kennara og organista.

Ungmenni lesa ritningarlestra og kirkjuskólabörn syngja lögin sem við erum búin að vera að syngja í kirkjuskólanum í vetur.

Allir Mýrdælingar eru hvattir til að mæta í Víkurkirkju 7. mars því guðsþjónustan
er fyrir allar sóknir Víkurprestakalls.
Sérstaklega eru fermingardrengir næsta vors og foreldrar þeirra hvattir til að mæta.

Sóknarprestur

Öskudagur í Vík

17.02.2010
ÖSKUDAGUR


rann upp bjartur og fagur í Víkinni.  Snjóföl yfir jörðu og kalt í lofti. Ýmsar kynjaverur fóru á kreik og var enginn óhultur.
Þessar kynjaverur áttu það þó sameiginlegt að ferðast á milli fyrirtækja og syngja hástöfum.  Að því búnu þáðu þær góðgæti og hurfu á braut.
Krakkarnir komu heldur ekki að tómum kofanum hjá Fjóla okkar Gísladóttur, því hún hafði nánast útbúið hlaðborð fyrir gesti og gangandi.  Gott var að þiggja heitt kakó þegar kuldaboli beit í kinnar.
Fleiri myndir                                   Ljósmyndir teknar af Hörpu Jónsdóttur

Listasýning barnanna i
Arion-banka
út febrúarmánuð

Þann 6. febrúar s.l. var dagur leikskólans, og af því tilefni stóð starfsfólk leikskólans Suður-Víkur fyrir listasýningu barnanna í Arion-banka.
Sýningin er stórskemmtileg og er fólk hvatt til að láta hana ekki fram hjá sér fara.

Allir velkomnir
15.02.2010
Tréútskurður í Vík

Um s.l. helgi stóð Jón Adólf Steinólfsson útskurðarmeistari fyrir námskeiði í tréútskurði í verkmenntastofu Víkurskóla í Vík.  Þetta er í 3ja skipti sem Jón Adólf sækir Mýrdælinga heim og kennir þeim listina að skera út.  Að þessu sinni var nemendahópurinn breiður þar sem saman voru komnir nemendur frá fyrsta og öðru námskeiðinu svo og nýir sem bæst hafa í hópinn, alls 11 manns. Að sögn Jóns er gott að kenna svona blönduðum hópi þar sem framhaldsnemarnir þurfa ekki sömu aðstoð og nýnemarnir.
Upp kom sú hugmynd að hópurinn hittist reglulega og skeri út, og hver veit nema kominn sé vísir að handverkshópi, enda býr Mýrdalurinn yfir miklum hæfileikum, það sást best á handverksmarkaði Regnbogahátíðarinnar s.l. haust.
Fleiri myndir...


Ljósm.Karin E.G.

Fréttatilkynning

1. Samstarfssamningur almannavarnanefndar og björgunarsveita.
Almannavarnarnefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu og björgunarsveitir á svæði 16 undirrituðu í dag samstarfsamning sín á milli. Markmið samningsins er að efla samvinnu þessara aðila m.a með því að byggja upp aðgerðastjórnstöð almannavarna og björgunarmála í húsnæði Flugbjörgunarsveitarinnar Hellu og vettvangsstjórnstöðvar í húsnæði björgunarsveitanna á Hvolsvelli, Vík og á Kirkjubæjarklaustri.
Lesa meira...

Ljósm.Grétar Ein.

08.02.2010 Innsend frétt frá stokkseyri.is
Granít-menn og konur farin heim til Víkur í Mýrdal

Eins og kunnugt er var komið á vinabæjarsambandi Stokkseyrar og Víkur í Mýrdal á Bryggjuhátíðinni á Stokkseyri s.l. sumar. Stokkseyrarhöfn er nú höfn Víkurbúa sem hafa ekki haft slíka aðstöðu fyrr en nú.
Lesa meira...                                                   fleiri myndir og fréttir
 
05.02.2010
Dagur kvenfélagskvenna 1. febrúar 2010

Kvenfélagasamband Íslands var stofnað 1. febrúar fyrir 80 árum og hefur af því tilefni tileinkað daginn Kvenfélagskonum á Íslandi.
Kvenfélag Hvammshrepps var 90 ára 12. desember s.l. og af því tilefni buðu kvenfélagskonur til  kaffiveitinga á opnu húsi sem þær héldu í Leikskálum á degi kvenfélagskvenna.
Af þessu tilefni kom björgunarsveitin Víkverji færandi hendi og gaf þeim kvenfélagskonum svuntur í afmælisgjöf, en þær eru búnar að vera öflugur styrktaraðili sveitarinnar í gegn um árin.
Fleiri myndir...

BINGÓ Í VÍKURSKÓLA !
 

mánudaginn 1. mars kl. 20:00 

Nánar...

Fundi sveitarstjórnar sem átti að vera kl. 14:00 föstudaginn 26. febrúar er frestað vegna ófærðar.

Fundurinn verður haldinn mánudaginn 1. mars nk. kl. 16:00

Sveitarstjóri

Þjóðvegur I er opinn í gegnum Vík en allar götur eru ófærar og unnið er að mokstri.  Stefnt er að því að opna allar götur í dag.
Einnig er stefnt að því að moka vegi og útvegi.
Mýrdalshreppur sér um snjómokstur á eftirfarandi tengivegum
og eftir atvikum tilheyrandi safnvegum:
Heiðardalsvegur, Gatnavegur, Hvammsvegur, Giljavegur, Skagnesvegur, Kaldrananesvegur, Brekknavegir, Rauðhálsvegur, Ketilsstaðavegir, Litla-Hvammsvegur og Eystri-Sólheimavegur.

Vegagerðin sér um snjómokstur á eftirfarandi tengivegum og eftir atvikum tilheyrandi safnvegum:
Kerlingadalsvegi, Reynishverfisvegi, Dyrhólavegi, Hvolsvegi, Péturseyjarvegi og Sólheimavegi.

Reyniskirkja í Mýrdal

Guðsþjónusta verður í Reyniskirkju í Mýrdal nk. sunnudag, 28. febrúar kl. 14:00.
Almennur safnaðarsöngur undir stjórn Kristínar Björnsdóttur organista.
Fermingardrengir og foreldrar hvattir til að mæta.

Sóknarprestur

Dagur tónlistarskólanna

Laugardaginn 27. febrúar er Dagur tónlistarskólanna haldinn hátíðlegur um allt land. Það er gert með ýmsum hætti t.d. tónleikum, opnu húsi eða hljóðfæraleik um borg og bæ. Hjá Víkurskóla - tónskóladeild er ætlunin að hafa tvenna tónleika í Leikskálum. Þeir fyrri eru kl. 14:00 og þeir síðari kl. 16:00. Miðað er við að tónleikarnir séu í styttra lagi og gefi góða mynd af starfinu í skólanum um þessar mundir.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir


Dagur tónlistarskólanna fellur niður laugardaginn 27. febrúar vegna ófærðar og áhrifa veðurs.
Nánar auglýst síðar

***
Kirkjuskólinn í Vík fellur niður á morgun laugardaginn 27. febrúar vegna ófærðar og veðurs
 


Tímar í heilsuhóp Sævars falla niður í dag fimmtudaginn 25. febrúar vegna (Ó)veðurs.
***
Spilakvöld kvenfélags Hvammshrepps fellur niður
í kvöld  25. febrúar vegna (Ó)veðurs
***

Aðalfundur umf Kötlu í kvöld á Halldórskaffi

Aðalfundur umf Kötlu verður haldinn
þriðjudagskvöldið 23. febrúar kl. 20 á Halldórskaffi

Venjuleg aðalfundarstörf
Eflum ungmennafélagsandann!
Veitingar í boði: Pizzahlaðborð

Stjórnin

03.02.2010
Menntastefna Mýrdalshrepps 2010

Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 15. mars 2007 að fela fræðslunefnd að vinna að heildstæðri menntastefnu fyrir sveitarfélagið en þá voru þrjár skólastofnanir starfandi innan þess; leikskóli, grunnskóli og tónlistarskóli. Þessar þrjár stofnanir voru svo 1. ágúst 2009 sameinaðar í einn skóla, sem hlaut nafnið, Víkurskóli.
Menntastefna Mýrdalshrepps er fyrst og síðast hugsuð sem áætlun sveitarfélagsins hvað markmið og leiðir í menntamálum varðar.  
Á 158. fundi fræðslunefndar Mýrdalshrepps þann 16. mars 2009 samþykkti fræðslunefnd að skipa 5 manna stýrihóp til að leiða vinnu við gerð menntastefnu Mýrdælinga.
Lesa meira...

Prjónakaffið hefst á ný.
Verðum á Halldórskaffi fimmtudagskvöldin 18. febrúar,
4. og 18. mars, 8. og 29. apríl og
byrjum kl. 20:00

Eins og áður eru allir velkomnir hvort sem þeir eru með prjóna, handavinnu eða bara góða skapið í farteskinu.

Hlökkum til að sjá ykkur,
prjónanefnd Kvenfélags Hvammshrepps

Myndasýning í Skaftfellingabúð

Myndasýning verður í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178, fjórðu hæð. Þar verður frumsýnd kvikmynd um selveiðar Fljótshverfinga, tekin af Þrándi Thoroddsen og Jóni Hermannssyni upp úr 1970.
Nánar ...

Áheitasundmaraþon OZ 2010

Í dag föstudaginn 12. febrúar ætla unglingarnir okkar 8. - 10. bekkur  í Félagsmiðstöðinni OZ að stinga sér í djúpu laugina.
Þolraunin hefst kl. 15:00 í sundlauginni í Vík og stendur fram yfir miðnætti. Gestir og gangandi eru velkomnir í heimsókn til að fylgjast með og hvetja okkar unga fólk til dáða. Maraþonið felst í því að krakkarnir skiptast á að synda stanslaust og ætla að synda samtals 110 km
Lesa meira...

 

Bobbablótað í Vík

29.01.2010

Laugardaginn 23. janúar s.l. var Þorrablót Víkurbúa haldið í Leikskálum í Vík.  Gestir voru í fleiri kantinum eða 214 talsins en í fyrra var slegið fjöldamet með 224 gestum. Formaður nefndarinnar Sandra Brá Jóhannesdóttir setti blótið og nefndin söng sig svo síðan inn í hláturtaugar blótsgesta. 
Sviðsmynd og umgjörð blótsins var "friðun brekkubobbans" og hafði nefndin einnig smíðað  jarðgöng á sviði félagsheimilisins.
Af mörgu skemmtilegu var að taka frá síðasta ári og áttu "útburðir" í póstmannafélaginu stóran þátt í blótinu.  Guðlaug Matthildur heiðraði samkomuna og las úr nokkrum bollum. Fundur var í Öldungaráði Mýrdalshrepps og fuglatalning í Dyrhólaey var framkvæmd.  Einnig stigu á svið "kjellingarnar" í slökkviliði Mýrdalshrepps.  Í lok skemmtiatriða var sveitarstjóranum svp færður Brekkubobbi (af stærri gerðinni) sem er alfriðaður og lögheimili hans er að Austurvegi 6 (sem er jú heimili sveitarstjórans).
Hljómsveitin Festival spilaði svo fyrir dansi fram eftir nóttu og var mikið stuð á mannskapnum.
Góður rómur var gerður að blótinu og er ekki laust við að tímabært sé að telja niður fyrir næsta blót.
Í lokin má svo geta þess að síðasta verk þorrablótsnefndarinnar, eftir tiltekt í Leikskálum næsta dag, var að marsera heim til sveitarstjórans undir trumbuslætti og skila "Brekkubobbanum" til síns heima.
Bobbatíðindi má svo lesa undir "eldri fréttir 2010" neðar á síðunni
Ljósmyndir Ragna Bj.Ársælsdóttir
Nefndina skipuðu                  Þorrablótsnefnd 2011                  Nýjar myndir...

Tréútskurður í Vík - Útskurðarnámskeið

Jón Adólf ætlar að halda hér námskeið 13. til 14. febrúar

Jón Adólf er að góðu kunnur enda verið með tvö námskeið hér í Vík.

Upplýsingar og skráning hjá Áslaugu Vilhjálms
í síma 487-1163  og  865-7047

http://www.jonadolf.com

Hjallatún í Vík - helgistund

Helgistund verður á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hjallatúni í Vík
nk. sunnudag, 14. febrúar, kl. 15:00.
Félagar úr Samkór Mýrdælinga leiða söng undir stjórn
Kára Gestssonar organista.

Sóknarprestur


Ljósm. Sævar J.

Víkurkirkja í Mýrdal

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju nk. sunnudag 14. febrúar, kl. 14:00.

Samkór Mýrdælinga annast söng undir stjórn Kára Gestssonar organista.
 

Fermingardrengir hvattir til að mæta með foreldrum og forráðamönnum.

 

Sóknarprestur

Dagur leikskólans

Þann 6. febrúar s.l. var dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. 
Daginn bar upp á laugardag og leikskólakennarar fögnuðu 60 ára afmæli félagsins þann dag.

Af þessu tilefni ætlum við í Suður-Vík að opna listasýningu í Arion-banka
mánudaginn 8. febrúar kl. 14:00
Allir velkomnir
Starfsfólk Leikskólans Suður-Víkur

"Klasasprengja"

Tilgangur verkefnisins er að fagna góðum árangri samstarfs á Suðurlandi, kynna það fyrir hvert öðru og hvetja til frekari samstarfs og hugmyndavinnu á milli klasanna.

„Klasasprengja“
... samstarfsverkefni á Suðurlandi
- Staðsetning – Hótel Selfoss tími 11. febrúar klukkan 13:00
Sædís Íva Elíasdóttir ávarp

Lesa meira...


UMF Katla auglýsir:
Nú fer senn að líða að aðalfundi hjá Kötlu og það er ljóst að okkur vantar formann og meðstjórnanda, okkur vantar einhver sem hefur metnað og áhuga. Áhugasamir hafi samband við stjórnina.
Guðný 659-8811
Vigfús Þór 848-2656
Þorbjörg 847-1858
Petra 866-0786
Andrína 896-3433

Vísir, 13. jan. 2010 12:00
Kvika færist í átt að toppgíg Eyjafjallajökuls

Kristján Már Unnarsson skrifar:


Skjálftavirkni í Eyjafjallajökli hefur verið að færast í aukana á ný undanfarnar tvær vikur og tengir Veðurstofan það við kvikuhreyfingar í eldstöðinni. Mælingar sýna útþenslu fjallsins sem taldar eru benda til kvikuflutnings upp í jarðskorpuna í átt að toppgíg fjallsins, eða norðausturjaðri hans.
Sjá nánari umfjöllun á slóðinni http://visir.is/article/20100113/FRETTIR01/375528310

Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Tillaga að Aðalskipulagi Mýrdalshrepps  2009-2025     

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2009-2025 skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, m.s.br. Skipulagsgögn eru skipulagsgreinargerð, skipulagsuppdrættir og umhverfisskýrsla. Ennfremur eru kynntar athugasemdir Skipulagsstofnunar við tillöguna sbr. 3. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga.

Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu Mýrdalshrepps að Austur­vegi 17, 870 Vík og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík, frá og með 22. desember 2009 til 19. janúar 2010. Skipulagsgögn má einnig sjá á heimasíðu Mýrdalshrepps: www.vik.is.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að gera athugasemdir er til 2. febrúar 2010 og skal skila þeim á skrifstofu Mýrdals­hrepps.  

Þeir sem ekki gera athugasemdir við aðalskipulagstillöguna innan tilskilins frests teljast samþykkir henni.

Tillaga að deiliskipulagi þjónustusvæða við Sólheimajökul og í Reynisfjöru

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps auglýsir hér með tillögur að deiliskipulagi þjónustusvæða fyrir ferðamenn við Sólheimajökul og í Reynisfjöru skv. 25. gr. skipulags- og byggingar­laga nr. 73/1997.

Sólheimajökull

Deiliskipulagið nær til 1 ha lóðar úr óskiptu landi Sólheimajarða. Svæðið er í um 300 m fjarlægð frá Sólheimajökli. Gert er ráð fyrir að byggð verði ferðamannaaðstaða í 1-2 húsum og geta byggingar verið samtals um 120 m2. Aðkoma að svæðinu er um nú­verandi veg að Sólheimajökli.

Reynisfjara

Deiliskipulagið nær til 1 ha lóðar úr óskiptu landi Reynishverfisjarða.  Gert er ráð fyrir að byggð verði ferða­mannaaðstaða í 1-2 húsum og geta byggingar verið samtals um 120 m2. Aðkoma að svæðinu er um Reynishverfisveg.             
 

Deiliskipulagstillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Mýrdalshrepps að Aust­ur­­vegi 17, 870 Vík frá og með 22. desember 2009 til 19. janúar 2010. Skipulagsgögn má einnig sjá á heimasíðu Mýrdalshrepps: www.vik.is.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillögurnar. Frestur til þess að gera athugasemdir er til 2. febrúar 2010 og skal skila þeim á skrifstofu Mýrdals­hrepps. 

Þeir sem ekki gera athugasemdir við deiliskipulagstillögurnar innan tilskilins frests teljast samþykkir þeim.

Sveinn Pálsson, sveitarstjóri

Dagur kvenfélagskvenna 1. febrúar 2010

Kvenfélagasamband Íslands var stofnað 1. febrúar fyrir 80 árum og hefur af því tilefni tileinkað daginn
Kvenfélagskonum á Íslandi

Kvenfélag Hvammshrepps var 90 ára 12.desember s.l.
Af því tilefni verður opið hús í boði Kvenfélags Hvammshrepps
 í Leikskálum frá kl. 16-18 mánudaginn 1. febrúar n.k.
og boðið upp á kaffiveitingar
Ánægjulegt væri að sjá sem flesta

Kvenfélag Hvammshrepps
 

11.01.2010
Fjósinu breytt

Í byrjun árs var tekin í notkun ný kennslustofa/listasmiðja við leikskólann Suðurvík, nánar tiltekið í Suður-Víkur fjósinu. Að sögn Höllu Ólafsdóttur deildarstjóra leikskólans er rýmið tuttugu og sex fermetrar og er vinnuaðstaðan mjög góð fyrir bæði börn og fullorðna. Starfsfólki finnst mikill munur að komast óhindrað um, til að aðstoða börn við vinnu sína. Þessi húsnæðisviðbót breytir miklu þar sem leikskólinn er full setinn.
Og má svo að lokum bæta við að nú sé Halla aftur komin í fjósið...
Fleiri myndir...

Myndir og texti
MS/HÓ/is

Kötlusetur - Kynningarfundur  

Kynningarfundur um Kötlusetur verður haldinn í félagsheimilinu Leikskálum miðvikudaginn 3. febrúar kl. 20:00.

Allir velkomnir

Sveitarstjóri
 

Skeiðflatarkirkja í Mýrdal

Guðsþjónusta verður í Skeiðflatarkirkju í Mýrdal, n.k sunnudag, 31. janúar  kl. 14:00.

Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.

 

Fermingardrengir sérstaklega hvattir til að mæta með foreldrum sínum og skyldmennum.

 

Sóknarprestur

Út eru komin "Bobbatíðindi" sem eru málgagn
Þorrablótsnefndar 2010 í Víkurkauptúni.

1. tbl.
2. tbl.
3. tbl.
4. tbl.
 

Þorrablót Víkurbúa
haldið í félagsheimilinu Leikskálum
laugardaginn 23. janúar n.k.
 

Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00

Vinsamlegast sækið pantaða miða í Leikskálum sama dag milli kl. 13 og 14

Við minnum á að aldurstakmark er 18 ár m.v. afmælisdag en ungmenni 16-18 ára eru velkomin í fylgd og á ábyrgð foreldra/forráðamanna

Þeir sem ekki hafa náð sér í miða er bent á að hafa samband við Siggu Dóru
 í s:893-3873 eða 487-1245 fyrir fimmtudag 21.jan.
Nefndin

Fréttir  og kveðja frá Hjallatúni.

Þó ýmislegt drífi á daga okkar á Hjallatúni árið um kring þá er engu að síður mest um uppákomur í aðdraganda jóla.  Við byrjuðum á vel  heppnuðum jólabasar 21. nóvember þar sem fjöldi gesta heimsótti okkur. Virkilega ánægjulegur dagur. 
Að kvöldi  1. desember hélt Kvenfélag Hvammshrepps jólafundinn sinn hjá okkur , eins og þær hafa gert sl. 20 ár, eða frá því að Hjallatún opnaði.  Þær hafa á öllum þessum fundum fært okkur gjafir og að þessu sinni var það bókin um Vigdísi forseta.  Bingó er einnig fastur og vinsæll liður á dagskrá þessara funda og þetta árið kom Auðbert einnig með harmonikkuna og dansinn var stiginn við undirleikinn.


Lesa meira...             Fleiri myndir frá Hjallatúni
07.01.2010
Guðlaug Guðmundsdóttir "Sunnlendingur vikunnar" hjá Sunnlenska

Í desembermánuði var Guðlaug Guðmundsdóttir hjúkrunarforstjóri á dvalarheimilinu Hjallatúni valin sunnlendingur vikunnar. Tilefnið var að Hjallatún átti 20 ára afmæli á árinu og hefur Guðlaug veitt heimilinu forstöðu allt frá stofnun þess árið 1989.
Til gamans má geta þess að yfirskrift viðtalsins við Guðlaugu er: "Afrek að búa með Haraldi í meira en 30 ár".

Lesa má viðtalið hér
 

Víkurkirkja í Mýrdal

Guðsþjónusta verður í Víkurkirkju í Mýrdal sunnudaginn 17. janúar nk. kl. 14:00.
Samkór Mýrdælinga syngur undir stjórn Kára Gestssonar organista.

Guðspjall dagsins er brúðkaupið í Kana.

Fermingardrengir vorsins eru sérstaklega hvattir til að mæta með foreldrum sínum.

Verum dugleg að sækja kirkju og efla okkur þannig andlega fyrir daglega lífið á nýju ári.

Hlakka til að hitta ykkur öll.

Sóknarprestur

07.01.2010
Einu klappstýrur landsins í Vík!

Svona hljóðar fyrirsögn í heilsublaði fréttablaðsins í gær 6. janúar.
Þar er viðtal við Hörpu Jónsdóttur sem segir frá tilurð Klappstýruliðsins í Vík, en  upphafið má rekja til dóttur hennar, Þórhildar Steinunnar.

Lesa má greinina í heild sinni á slóðinni:
http://vefblod.visir.is/index.php?alias=IS-FRT&s=3668&p=86290&a=215492

Klappstýrur umf. Kötlu hafa einnig fengið umfjöllun Sjónvarpsins, því í fréttatíma sjónvarpsins s.l. sunnudagskvöld fengu þær umfjöllun.

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497861/2010/01/03/11/

Ljósm. Þórir N. Kjartansson

06.01.2010
1000 frábærar húfur komin út!

Í október s.l. fjallaði vik.is um alþjóðlega hönnunarkeppni sem bar yfirskriftina 1000 frábærar húfur sem Harpa Jónsdóttir listakona og klappstýruþjálfari með meiru tók þátt í.
Við Mýrdælingar nutum góðs af listaverkum Hörpu því hún sýndi þau á menningarhátíðinni Regnboganum í haust.
Á heimasíðu Hörpu, Vestanpósturinn má sjá nánari umfjöllun um keppnina.
Bókin 1000 Fabulous Knit Hats er komin á Amazon, þó hún verði ekki gefin út fyrr en í júlí. Eins og sést á myndinni prýða þrjár húfur frá Hörpu forsíðu bókarinnar.
Vinningshúfan lengst til hægri og tvær aðrar.