Laugardaginn 21. nóvember s.l. var haldið upp á 40 ára afmæli
björgungarsveitarinnar Víkverja.
Að sögn Ragnheiðar Högnadóttur var þetta var stórkostlegur dagur fyrir
Víkverjafólk og gaman að sjá hversu margir sáu sér fært að koma en milli 150-170
gestir komu og þáðu kaffi.
Skrifað var undir samstarfssamning við Mýrdalshrepp um ýmsa þjónustu sem
björgunarsveitin veitir sveitarfélaginu og má þar nefna snjómokstur,
umferðarstjórnun við Víkurkirkju, (þegar stórathafnir eru) umsjón með
áramótabrennu ofl.
Í staðinn styrkir Mýrdalshreppur björgungarsveitina Víkverja um 1.000.000 á ári
næstu þrjú árin. Upphæðin kemur í stað þess að Víkverji sæki reglulega um styrk
til að mynda á móti fasteignagjöldum.
Víkverji fékk margar góðar gjafir bæði frá einstaklingum, félagasamtökum og
fyrirtækjum og vilja koma á framfæri kærum þökkum til allra sem að sýndu þeim
velvilja þennan merka dag.
Í tilefni af afmælinu voru heiðraðir sérstaklega tveir björgunarsveitarfélagar
sem unnið hafa með Víkverja frá upphafi. Það voru þeir Magnús Kristjánsson og
Reynir Ragnarsson. Fengu þeir afhenta áritaða skildi sem þakklætisvott fyrir vel
unnin störf í þágu sveitarinnar.
Stjórn björgunarsveitarinnar Víkverja er í dag þannig skipuð:
Einar Bárðarson formaður
Grétar Einarsson varaformaður
Guðrún Hildur Kolbeins ritari
Ragnheiður Högnadóttir gjaldkeri
Atli Már Guðjónsson meðstjórnandi.
Texti: Ragnheiður Högnadóttir / is
Ljósmyndir: Jónas Erlendsson