VíkurHús slf.
Íbúðir fyrir 50 ára og eldri við Hátún í Vík í Mýrdal.
Lýsing : Húsin eru raðhús með þremur íbúðum og eru íbúðinar misstórar.
Í suðurendanum er stærsta íbúðin 103,4 m2 , miðju íbúðin er 89,8 m2 og norðurendinn er 90,4 m2.
Húsin eru klædd að utan með viðhaldsfríu efni, lerkiklæðning og lituðu bárujárni. Lerkið er mjög trjákvoðuríkur viður sem gerir hann náttúrulega fúavarinn og þarf því ekki að bera á nein fúavarnarefni. Bárujárnið er þekkt fyrir langann líftíma og þarf enga meðhöndlun í áratugi. Gluggar eru svokallaðir ál/tré gluggar, sem þýðir að innrabyrði þeirra er timbur en ytrabyrði er klætt með lituðu áli, þar af leiðandi þarf ekki að vera með pensil á lofti á hverju vori til að verja gluggana fyrir fúa. Á þaki er litað bárujárn.
Inni eru allir veggir klæddir með gifsplötum.
Gólfefni eru tvennskonar, annarsvegar flísar og hinsvegar parket.
Við hönnun íbúðanna var hugsað um þarfir hreyfihamlaðra þannig að fólk með skerta hreyfigetu eða í hjólastól á að geta farið um íbúðinar án hindrana.
Milliveggir milli íbúða eru steyptir og hljóðeinangraðir beggja vegna, til að tryggja að hljóð heyrist ekki á milli íbúða.
Þessar íbúðir eru skilgreindar sem þjónustuíbúðir fyrir 50 ára og eldri og er eftirfarandi þjónusta í boði gegn gjaldi :
· Öryggishnappur sem tengdur er við dvalarheimilið Hjallatún, þar sem vaktmaður er allan sólarhringinn með beinan aðgang að lækni.
· Matur frá Hjallatúni, annað hvort heimsending eða í matsal.
· Þrif á íbúðum.
· Þvottur.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar að utan sem innan og lóð þökulögð.
Nánari upplýsingar og byggingarlýsing hjá VíkurHúsum.
Jóhann Vignir Hróbjartsson
Húsasmíðameistari
Sími 897 7737