Fasteignablað Morgunblaðsins
12.03.2007
kristjang@mbl.is
Vík – uppáhaldsstaðurinn !
Unni Elfu Þorsteinsdóttur þykir Vík í Mýrdal fallegasti staðurinn í heiminum og vill hvergi annars staðar búa. Þar segir hún að sé öflug félagsstarfsemi og að talsverð uppbygging hafi verið þar á síðustu árum.
Unnur Elfa Þorsteinsdóttir sleit barnsskónum í Mýrdalshreppi, en faðir hennar er frá Vatnsskarðshólum. Nú býr hún á næsta bæ sem heitir Dyrhólar. Kristján Guðlaugsson innti hana eftir því hvernig væri að búa milli hafs, gróinna grunda, jökla og brunasands í Vík – eða öllu heldur nágrenni Víkur.
Íbúar Mýrdalshrepps eru 496 og rétt um 300 þeirra búa í bænum en þangað sækja allir Mýrdælingar þjónustu og aðrar þarfir.
Samkvæmt Landnámu var Mýrdalurinn að mestu numinn af Reyni-Birni og Loðmundi gamla að undanskildu svæðinu austan Kerlingadalsár og voru landamerkin við Hafursá. Hinn forni Dyrhólahreppur náði yfir allt landsvæði núverandi Mýrdalshrepps.
Öflug
félagsstarfsemi
“Mér finnst þetta fallegasta svæði í öllum heiminum. Að búa nálægt ströndinni og heyra brimið og sjá margbreytileika Dyrhólaeyjar í ljósi árstíðanna og upplifa fuglalífið og jöklana er eins og að sjúga næringu úr móður jörð,” segir Unnur Elfa, sem hvergi annars staðar vill búa.
Reyndar fór hún 16 ára gömul til Kanada í eitt ár síðan til Reykjavíkur til náms og vinnu. Unnur hefur ásamt manni sínum og börnum líka búið tvö ár í Bretlandi og eitt á Spáni. En hún sneri aftur til Mýrdalshrepps og Víkur af því að þar þykir henni best að vera.
“Hérna er
umhverfið svo barnvænlegt að ég get ekki hugsað mér betri stað til að ala upp
börn. Hér er góður leikskóli, góður grunnskóli og tónskóli, sundlaug og frábær
íþróttaaðstaða og félagsstarfið er vægast sagt öflugt. Félagslífið er eiginlega
ótrúlega flott, með sterkum kvenfélögum og virkum ungmennafélögum og svo er
Lions hérna líka og gríðarlega öflug félagsmiðstöð fyrir unga fólkið. En börnin
skipta mestu og þau hafa það gott alveg eins og ég hafði það þegar ég var lítil,
jafnvel betra,” segir Unnur Elfa. Það hvarflar náttúrulega að einhverjum að það
hljóti að vera leiðinlegt að búa utan höfuðborgarsvæðisins en Unnur er því
sjónarmiði algerlega ósammála.
“Hér er fyrsta flokks aðstaða til alls. Ferðaþjónustan er á mikilli
siglingu og bæði hótel og gistihús eru í stöðugri uppbyggingu. Þetta skapar
skiljanlega atvinnutækifæri og um leið bjartsýni hjá fólki.”
Hún ráðleggur fólki að fara í hjólabátaferð gegnum gatið á Dyrhólaey til þessa að sækja styrk í náttúruna og upplifa sjálft alla þessa fegurð.
“Skilningurinn á náttúrunni er sífellt að aukast og hér höfum við allt til alls. Hér eru fallegar gönguleiðir, bæði í Vík og í sveitinni, reiðskóli og hestamennska og níu holu golfvöllur sem margir kylfingar segja að sé hrein perla. Bara að ganga niður í fjöru eða upp í fjöll og sjá hve stórbrotin íslensk náttúra er og finna friðinn sem fylgir hverju fótmáli er frábært, enda koma stöðugt fleirir ferðamenn hingað,” segir Unnur Elfa.
Enginn uggur
Nálægð náttúrunnar er yndisleg, en einmitt í Vík vita menn gjörla að náttúran getur verið öflugri og tillitslausari en malbikið á höfuðborgarsvæðinu. Það má búast við Kötlugosi á svæðinu hvenær sem er.
“Auðvitað vitum við af Kötlu, en enginn er óttasleginn út af því. Það eru haldnar æfingar í skólanum og haft vökult auga með öllum hræringum. En allir vita hvað þeira eiga að gera ef eða þegar Katla gýs. Við erum ekki hrædd við það og allt það jákvæða vegur upp á móti hugsuninni um eldgos. Hér hefur alltaf búið fólk og mun alltaf gera það,” segir Unnur Elfa.
Einangrun er hugtak sem hún kannast ekki við , enda tveggja tíma akstur til Reykjavíkur ef einhvers þarf og styttra á Selfoss.
“Auðvitað tökum við þátt í því sem okkur finnst gaman að, eins og til dæmis Menningarnótt og öðrum uppákomum , en það er ekki langt að fara. Maður lærir það í sveitinni að fjarlægðin er ekki neitt vandamál. Hér er nálægðin svo mikil að við hugsum lítið um fjarlægðina.
Og það er byggt í Vík. Á síðustu árum hafa nýbyggingar aukist til muna og nú eru 4-5 hús í byggingu í Vík og fleiri í hreppnum.
“Ungt fólk er að flytjast hingað og það veit bara á eitt – að Vík er að stækka og styrkjast og við fögnum því. Ég hvet alla sem eru að hugsa um að flytja út á land að koma í Mýrdalinn, því her er allt til alls og best að búa,” segir Unnur Elfa að lokum.
_________________