Stjörnuhelgi í Þórbergssetri
Bókmenntir og vísindi
Fyrirhugað er að halda stjörnuhelgi í Þórbergssetri dagana 24. – 25. febrúar. Dagskráin er unnin í samvinnu við Snævarr Guðmundsson fjallaleiðsögumann , náttúruunnanda og ljósmyndara sjá www.snaevarr.com Snævarrr kemur með stórt stjörnuver með sér á staðinn og þátttakendur fá að fara inn í verið og fara í ferðalag um himingeiminn undir leiðsögn hans. Einnig verður farið í kvöldgöngu ef að veðrið verður gott og skyggnst um óravíddir himingeimsins. Snævarr ætlar síðan að flytja fræðsluerindi um norðurljósin kl 11:00 á sunnudeginum. Tengja á dagskrána bókmenntum Þórbergs með upplifun og upplestri úr verkum skáldsins.
Dagskrá stjörnuhelgi er eftirfarandi:
24. febrúar
14:00 Setning Þorbjörg Arnórsdóttir Þórbergssetri
14:20 Erindi um stjörnur: Snævarr Guðmundsson fjallaleiðsögumaður
15:00 Vökustemmning í fjósbaðstofunni á Hala
15:40 Kaffiveitingar
16:00 Heimsókn í stjörnuver: Snævarr Guðmundsson
17:00 Heimsókn í Bergshús, Siríus skoðaður
19:30 Hátíðarkvöldverður
20:30 Gönguferð, horft til himins og notið útiveru, hlustað á veraldarhafið
21:00 Samvera í Þórbergssetri, komið við á ,,strandi"
25 febrúar
10:00 Morgunverður
11.00 Erindi um Norðurljós
12:00 Hádegisverður
13:00 Gönguferð um umhverfið, farið upp að Steinum, frjáls dagur hagað eftir veðri og vindi
15:00 Formlegri dagskrá lokið
Hér er um afar áhugavert efni að ræða. Áhugasömum er bent á heimasíðu Snævarrs www.snaevarr.com og bókina Stjörnuatlas, eftir Snævarr Guðmundssons. Einnig heimasíðu Þórbergsseturs www.thorbergur.is
Hámark þátttakenda eru 40 manns. Dagskráin verður nánar auglýst síðar
Hægt er tilkynna þátttöku á netfangið thorbergssetur@simnet.is eða í síma 867-2900
Kjörið tækifæri að eyða
einni helgi í sveitinni
Gaman að fá í heimsókn fólk af
Suðurlandi og styrkja tengslin á milli svæða.
Aðeins er tveggja tíma akstur frá Vík að Hala og kjörið að eyða einni góðri
helgi í Suðursveit