|
HEILSUHÓPUR 2006 Íþróttamiðstöðin í Vík 6. nóv. - 14. des
Heilsuhópurinn er að byrja aftur eftir stutt hlé fyrir alla sem vilja koma sér í betra form bæði líkamlega og andlega fyrir jólin J Þetta eru eins og áður lokaðir tímar fyrir bæði karla og konur. Í hópnum verður lögð áhersla á að auka styrk, liðleika, brennslu og þol. Ég hef ákveðið að bjóða þeim sem vilja þann möguleika að bæta inn auka morgunæfingu á miðvikudögum. Veitt verða verðlaun fyrir bestu mætinguna!
· Lokaðir hóptímar (skráning í síma eða á staðnum). · Fjölbreyttar, skemmtilegar og krefjandi æfingar. · Mikið aðhald og stuðningur, fylgst verður með mætingu! · Fitumæling og vigtun (fyrir þá sem vilja). · Slökun í heita pottinum eftir æfingu.
Það er mjög mikilvægt í þessu hraða nútímasamfélagi að gefa sjálfum sér tíma til að huga að bættri heilsu og betri lífsgæðum. Hver er “húsbóndinn” í þínum líkama?
Mánudagur 18:15-19:15 / Íþróttasalur Miðvikudagur 06:45-07:30 / Íþróttavöllur (valmöguleiki) Fimmtudagur 18:15-19:15 / Íþróttasalur
Verð á námskeiðinu: 7.000 kr. (8500 kr. með morgunæfingu)
Skráning í síma 821-3181. Victor Berg Guðmundsson Íþróttafræðingur
|