
![]()
HEILSUHÓPUR 2007

Sumarátaksnámskeið 23.maí – 27.júní.
Heilsuhópurinn byrjar aftur miðvikudaginn 23. maí fyrir alla sem vilja koma sér í betra form og hafa gaman af því að hreyfa sig. Þetta eru eins og áður lokaðir tímar fyrir bæði karla og konur þar sem lögð verður áhersla á að auka styrk, brennslu og þol. Nú er bara að drífa sig af stað og taka þátt!
Mánudagur 18:30 - 19:30 / Íþróttamiðstöðin í Vík
Miðvikudagur 18:30 - 19:30 / Íþróttamiðstöðin í Vík
· Lokaðir hóptímar.
· Fjölbreyttar, skemmtilegar og krefjandi æfingar J
· Mikið aðhald og stuðningur, fylgst verður með mætingu!
· Fitumæling og vigtun (fyrir þá sem vilja).
· Slökun í heita pottinum eða gufubaðinu eftir æfingu.
Verð á námskeiðinu: 6.500 kr.
Upplýsingar og skráning í síma 821-3181.
Victor Berg Guðmundsson
Íþróttafræðingur