Íbúafundir
Byggðasamlag Green Globe 21 í Rangárvalla- og Skaftafellssýslu boðar til íbúafunda til kynningar á Green Globe 21 verkefninu. Sveitarfélög á svæði byggðasamlagsins, auk Þjóðgarðsins Skaftafells, eru þátttakendur í verkefninu. Green Globe 21 eru alþjóðleg vottunarsamtök sem votta fyrirtæki í ferðaþjónustu og samfélög. Vottunarkerfið miðar m.a. að því að ná fram bættri frammistöðu í umhverfismálum, sem leiðir til rekstrarsparnaðar og bættrar samkeppnisstöðu svæðisins.
Íbúafundirnir verða á eftirtöldum stöðum:
Í Félagsheimilinu Leikskálum í Vík þriðjudaginn 20. mars kl. 20:30
Í Félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli miðvikudaginn 21. mars kl. 16:00
Stefán Gíslason umhverfisfræðingur og framkvæmdastjóri hjá Umhverfisráðgjöf Íslands ehf flytur erindi og kynnir verkefnið.
Að því loknu eru almennar umræður og fyrirspurnir.
Íbúar á svæðinu eru hvattir til að mæta á fundina til að kynna sér verkefnið og þá möguleika sem þátttaka í því skapar samfélaginu.
Stýrihópur Byggðasamlags Green Globe 21 í Rangárvalla- og Skaftafellssýslu.