OZ HÚSIÐ

 

 

OZ-húsið opnar föstudaginn 11. nóv. kl. 20:00

 

Ungmennahús OZ í Leikskálum fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára.

 

Með opnun OZ-Hússins í Vík hefur langþráður draumur á svæðinu orðið að veruleika um að skapa vímulausan vettvang fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára til að koma saman, spjalla um lífið og tilveruna, halda sýningar, tónleika, námskeið og koma á ýmsum spennandi verkefnum. Ungmennahúsið er samstarfsverkefni Rauðakrossins Víkurdeildar og Mýrdalshrepps.

 

Markmið

Markmið með rekstri ungmennahúsa, sem eru stundum kölluð tómstunda - og menningarhús, er að bjóða uppá heilbrigða félagslega afþreyingu og ná til ungs fólks á aldrinum 16 til 25 ára, sem allt of víða hefur í fá önnur hús að venda og það móti sjálft innra starf og beri ábyrgð á því ásamt forstöðumanni og öðru starfsfólki. Í OZ-Húsinu er tölvuver með nettengingu (ADSL), breiðtjald, hljóðkerfi fyrir hljómsveitir, gervihnattar-sjónvarp, billjardborð, þythokkí, borðtennis, pílukast, setustofa með sjónvarpi og myndbandstæki, playstation2, klúbbaherbergi og önnur slík aðstaða.

 

Hlutverk OZ hússins

Forstöðumenn húsa ungs fólks sem starfrækt eru víðs vegar um landið hafa skilgreint þau hlutverk sem húsin sinna með starfsemi sinni. Hvert hús sinnir hlutverkunum á sinn hátt og sinnir ekki endilega öllum hlutverkunum.

 

1) Afþreying / Aðstaða til að „hanga“.

2) Aðstaða (t.d. f. hljómsveitir, útvarp, verkefnavinnu, klúbba ofl.…).

3) Upplýsingamiðlun (fréttablað og heimasíða).

4) Aðstoð við þróun og framkvæmd verkefna.

5) Menningarviðburðir, tónleikar, sýningar o.þ.h.

6) Námskeið, kynningar, fundir og fyrirlestrar.

7) Hjálparúrræði (t.d. viðtalsþj. og ráðgjöf).

 

 

Reykingar eru bannaðar sem og öll vímuefnanotkun.

 

Opið á föstudögum kl. 20:00-23:00

 

Victor Berg Guðmundsson