Fyrirhugað er að halda málþing um stöðu og framtíð landbúnaðar
og byggðar í sveitum mánudaginn 14. september 2009 í Norræna húsinu í Reykjavík.
Þar verða kynntar niðurstöður úr viðamiklu rannsóknaverkefni um þessi efni, sem
unnið hefur verið að við Háskóla Íslands undanfarið og ber heitið "Litróf
landbúnaðarins". Verkefnið var styrkt af Framleiðnisjóði landbúnaðarins í
tilefni 40 ára afmælis sjóðsins árið 2007.
Atvinnulíf í sveitum hefur tekið miklum breytingum hér á landi á undanförnum
árum. Til viðbótar við hefðbundinn landbúnað, sem sér landinu fyrir
undirstöðumatvælum, hefur margvísleg nýsköpun átt sér stað. Nýjar vörur hafa
verið þróaðar og margs konar þjónusta er í boði. Einnig er í vaxandi mæli
viðurkennt að bændur hafi hlutverki að gegna við að sjá samfélaginu fyrir ýmsum
almannagæðum. Loks hafa bættar samgöngur breytt möguleikum fólks víða í sveitum
til að sækja vinnu fjarri heimili. Í rannsóknaverkefninu hefur þessi þróun verið
kortlögð og greind.
Niðurstöðurnar eru byggðar á spurningakönnunum og viðtölum við fjölmarga bændur
víðsvegar um land.
Að lokinni kynningu á verkefninu munu nokkrir aðilar hugleiða niðurstöðurnar í
pallborðsumræðum og verður gefinn góður tími til almennra umræðna. Leitast
verður við að setja íslenska landbúnaðar- og byggðastefnu í stærra alþjóðlegt
samhengi og velta vöngum um þróun komandi ára.
Málþingið verður öllum opið, en þeir sem láta sig varða málefni atvinnu- og
byggðaþróunar eru sérstaklega velkomnir. Dagskráin verður auglýst nánar þegar
nær dregur. Ef frekari upplýsinga er óskað má hafa samband við starfsmenn
verkefnisins, Ingu Elísabetu Vésteinsdóttur (iev1@hi.is)
eða Sigfús Steingrímsson (sis49@hi.is).
Með bestu kveðju,
Anna Karlsdóttir
Karl Benediktsson
Magnfríður Júlíusdóttir