
Þriðjudagskvöldið 8. desember heldur söngkonan Ragnheiður Gröndal
tónleika í Víkurkirkju.
Hún gaf nýverið út geisladisk sem ber nafnið "Tregagás". Diskurinn er
sjálfstætt framhald plötunnar "Þjóðlög" sem kom út árið 2006 og inniheldur
íslensk þjóðlög í spennandi útsetningum.
Á tónleikunum mun Ragnheiður leika lög af hinum nýútkomna diski ásamt öðru
efni.
Með Ragnheiði leika Haukur Gröndal á klarínett, Guðmundur Pétursson á gítara,
Birgir Baldursson og
Matthías Hemstock á slagverk.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og aðgangseyrir er 1.500 kr.