Hrútavinafélagið Örvar á Suðurlandi býður Sunnlendingum og öðrum til afmælisfagnaðar og bryggjuballs á Hótel Selfossi föstudaginn 4. desember nk.

Hátíðarsamkoma og skemmtun hefst kl. 21:00.
Þar munu Hrútavinirnir að vestan, sem búa á Selfossi; þeir Ólafur Helgi Kjartansson frá Ísafirði og Hafliði Magnússon frá Bíldudal kynna og lesa úr nýjum bókum sínum. Einnig munu þeir segja vestfirskar gamansögur. Heiðursforseti Hrútavina, Guðni Ágústsson, f.v. landbúnaðarráðherra ávarpar samkomuna. Árni Johnsen, bryggjusöngvari Hrútavina, stjórnar afmælissöngvum.

Hrútavinabandið Granít frá Vík í Mýrdal flytur tónlist að hætti Hrútavina m.a. Rolling Stones-lög þar sem Ólafur Helgi Kjartansson mun taka lagið með hljómsveitinni. Granít sló hressilega í gegn á Bryggjuhátíðinni á Stokkseyri í sumar og var handsalað formlegt Hrútavinasamband Stokkseyrar og Víkur í Mýrdal. Þá verða óvænt atriði að hætti Hrútavina.

Kl. 23:00 hefst síðan Bryggjuball með Hrútavinabandinu Granít þar sem áhersla verður lögð á Rolling Stones og annað gullaldarpopp sem og sunnlenska sveitaballatónlist.

Allir hjartanlega velkomnir og enginn aðgangseyrir.