Dagur umhverfisins 25. Apríl.
Umhverfisráðuneytið hefur ákveðið að þema dagsins sé vistvænn lífsstíll. Ráðuneytið hvetur alla landsmenn til að hugleiða hvernig breyta má daglegu lífi til vistvænni lífsstíls.
Með einföldum breytingum á daglegu lífi má gera lífsstíl vistvænni án þess að draga úr lífsgæðum. Margt smátt gerir eitt stórt og með víðtækri þátttöku má ná umhverfislegum, samfélagslegum og efnahagslegum ávinningi. Reynslan sýnir að vistvænir lífshættir leiða til fjárhagslegs sparnaðar, bæði fyrir samfélagið og heimilin. Vistvænn lífsstíll er líka skemmtilegur og góður fyrir heilsuna. Það fylgir því góð tilfinning að leggja sitt af mörkum til að skapa vistvænna samfélag.
Allir geta tekið þátt í breytingunum, ungir sem aldnir en það er mikilvægt að fara sér ekki of geyst og muna að...
...enginn getur gert allt, en allir geta gert eitthvað.
Liðir í að skapa heilsusamlegra umhverfi, öllum til hagsbóta:
Minni notkun hráefna
Með nægjusemi stígum við mikilvægt skref í þá átt að draga úr sívaxandi álagi á umhverfið.
Minni orkunotkun
Spara má orku á ýmsan máta og oft kostar það ekki nema dálitla umhugsun og árvekni.
Minni losun skaðlegra efna
Spilliefni eru úrgangur sem getur valdið umhverfi og heilsu manna miklu tjóni. Þess vegna er mikilvægt að safna þeim saman og fara með þau á móttökustöð fyrir spilliefni.
Verndun náttúruverðmæta
Óspilltur jarðvegur og hreint vatn eru dýrmætustu auðlindir jarðarinnar og brýnt er að leggja sitt af mörkum til að vernda þau.
Endurnýting
Margt má endurnýta og kemur t.d. óslitinn fatnaður sem við erum hætt að nota sér vel í fatasöfnun RKÍ.
Umhverfis-og náttúruverndarnefnd
Áhugaverðar heimasíður um vistvernd:
www.umhverfisraduneyti.is/media/PDF_skrar/Skreffyrirskref.pdf