
Eldri borgarar.
Mýrdalshreppur býður öllum eldri borgurum uppá frábæra kynningu á vatnsleikfimi og leikfimi í íþróttasal. Kynningin verður haldin í íþróttamiðstöðinni í Vík. Léttar æfingar í vatni og íþróttasal eru tilvalin form líkamsræktar fyrir þá sem vilja bæta úthald og styrk.
Kennari: Dagbjört Hrönn Leifsdóttir, íþróttakennari.
Föstudagur 10. nóv. Kl. 17:30-18:30 / Leikfimi í íþróttasal.
Laugardagur 11. nóv. Kl. 12:00-13:00 / Vatnsleikfimi.
Kveðja,
Victor Berg Guðmundsson
Æskulýðs- og tómstundafulltrúi
Sundnámskeið fyrir fullorðna.
Þetta námskeið er frábært tækifæri fyrir alla sem vilja læra að synda eða einfaldlega hressa uppá grunntæknina í bringu- og skriðsundi. Námskeiðið fer fram í sundlauginni í Vík.
Kennari: Dagbjört Hrönn Leifsdóttir íþróttakennari.
Föstudagur 10. nóv. Kl. 18:30-19:30
Laugardagur
11. nóv. Kl. 13:15-14:15
Verð: 1.000 kr.
Skráning í síma: 821-3181
Victor Berg Guðmundsson