Æfingabúðir í Vík.

 

 

Knattspyrnuliðum er boðið að koma og dvelja í Vík í Mýrdal og æfa þar. Þetta er tilvalin möguleiki á að vera með æfingabúðir í frábæru umhverfi þar sem öll aðstaða til íþróttaiðkunar er glæsileg og til fyrirmyndar.

 

Við bjóðum uppá:

·              Gras- knattspyrnuvöllur (frá 25.apríl).

·              Sundlaug, vaðlaug, rennibraut og heitur pottur með vatnsnuddi.

·              Gufubað og ljósabekkur.

·              Góð lyftingaraðstaða.

·              Sparkvöllur KSÍ.

·              Íþróttahús með öllum helstu áhöldum.

·              Glæsilegur 9 holu golfvöllur.

 

Innifalið í verði:

Aðgangur og afnot af grasvellinum, sundlauginni, gufubaðinu, lyftingaraðstöðunni, sparkvellinum og íþróttahúsinu. Dæmi: Æfingabúðir yfir helgi. Verð = 15.000 kr.

 

 

Annað:

Vallargjald á golfvellinum er 1.500 kr. og greiðist það á staðnum.

Einnig er hægt að leigja afnot af félagsheimilinu þar sem við erum með skjávarpa, sýningartjald, tölvuver með interneti, sjónvarp, gervihnattamóttakara, hljómsveitaraðstöðu, playstation 2, bortennis, fótboltaspil, þythokkí, pílukast og billjard.

 

 

Gisting og matur:

Gisting:       http://vik.is/ferdathonusta.htm .

Matur:        Halldórskaffi, Víkurbraut 28, storris@simnet.is . Sími: 4871202 / 8958221.

                  Víkurskáli, netfang: gel@vikurskali.is . Sími: 4871230.

 

 

 

 

Nánari upplýsingar og pantanir:

Victor Berg Guðmundsson. Æskulýðs- og tómstundafulltrúi, netfang: tomstundafulltrui@vik.is . Sími: 4871210 / 8213181.http://www.vik.is